Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Sverrir
slapp
Hæstiréttxir hefur staðfest þann
úrskurð borgardóms að vísa frá
dómi máli Jafhréttisráðs gegn
menntamálaráðherra vegna stöðu-
veitingar við heimspekideild
Háskóla fslands.
Sverrir Hermannsson, þáverandi
menntamálaráðherra, skipaði í
ársbyrjun 1986 Matthías Viðar
Sæmundsson lektor í íslenskum
bókmenntum í trássi við meðmæli
dómnefhdar heimspekideildar.
Mælt var með Helgu Kress sem
einnig hlaut 26 atkvæði af 30 í
atkvæðagreiðslu innan deildarinn-
ar.
Jafnréttisráð höfðaði mál og
taldi að þama hefði verið um brot
á jafhréttislögum að ræða. Niður-
staða dómsins var sú að Jafnrétt-
isráð sé samkvæmt lögunum
bundið þvf ófrávíkjanlega skilyrði
að hafa áður beint rökstuddum
fyrirmælum um ákveðnar úrbætur
til þess aðila sem að mati ráðsins
hefði gerst brotlegur. Þess hafi
ekki verið gætt og Jafhréttisráð
því brostið málshöfðunarheimild.
-JFJ
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur ób 10-14 lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 13-16 Ab
6 mán. uppsögn 14-20 Ib
12 mán. uppsögn 15-26,5 Sp.vél.
18mán. uppsogn 25-27 Ib
Ávísanareikningar 4-12 • Ab
Hlaupareikningar 4 8 Ib
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 2
6 mán. uppsögn Innlán meo sérKjörum 2,5-4 Ab.Úb
10-23.9
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6-6,5 Úb.Vb,
Sterlingspund 7,5-9 Ab Vb
Vestur-þýsk mörk 2.5-3.5 Vb
Danskarkrónur 8,5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv-) 23-28.5 Lb.Úb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 25-26 eða kge
Almennskuldabréf 24-29,5 Úb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggð 24,5-30 Úb
Skuldabréf
Ad2.5árum 6,75-8 Úb
Til lenqri tíma 6,75-8 Úb
Utlántilframleiðslu
isl. krónur 21 -24 Úb
SDR 7,75-8.25 Bb.Lb.
Úb.Vb
Bandaríkjadalir 8.75-9.25 Bb.Lb.
Sterlingspund 10-11,5 Sp.Vb Bb.Lb,
Vestur-þýsk mörk 5,25-5,5 Vb Bb.Lb.
Húsnæðislán 3,5 Úb.Vb
Lífeyrissjóðslán 5-6,75
Dráttarvextir 36
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júli 1721 stig
Byggingavísitala 320 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. júní
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa (uppl. frá Fjárfestin<
arfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1,1561
Einingabréf 1 2,151
Einingabréf 2 1,276
Einingabréf3 1,328
Fjölþjóðabréf 1,030
Kjarabréf 2,152
Lífeyrisbréf 1,081
Markbréf 1,068
Sjóösbréf 1 1,053
Sjóðsbréf 2 1,053
Tekjubréf 1,211
HLUTABREF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv..
Almennar tryggingar 112 kr.
Eimskip 255 kr.
Flugleiðir 175 kr.
Hampiðjan 114 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 114 kr
lönaðarbankinn 137 kr.
Skagstrendingur hf. 350 kr.
Verslunarbankinn 120kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 150 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla
gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og
nokkrir sparisj. 26%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkadinn
birtast i DV á fimmtudögum.
DV
Málflutningur um vanhæfískröfu í Hafskipsmálinu:
Hafskipsmálið er
réttarfarslegt slys
- sagði Jónas Aðalsteinsson hrl., einn verjenda
Munnlegur málflutningur um kröfu
þriggja forráðamanna Hafskips hf. og
endurskoðanda félagsins um að ríkis-
saksóknari verði dæmdur vanhæfur í
Hafskipsmálinu fór fram í sakadómi
Reykjavíkur í dag. Við upphaf mál-
flutningsins fór nokkur tími í skoð-
anaskipti um það hvort nauðsynlegt
væri að veijendur legðu fram fleiri
gögn í málinu. Lögðu sækjendur
áherslu á að það yrði ekki gert en
veijendur höfhuðu þeim óskum og
voru ýmis gögn lögð fram, þar á með-
al ljósrit af fréttum dagblaða á meðan
á rannsókn Hafskipsmálsins stóð.
í málflutningnum kom það meðal
annars fram hjá Guðmundi Yngva
Sigurðssyni, verjanda Björgólfs Guð-
mundssonar, að ástæða setningar laga
um stofnun embættis ríkissaksóknara
hefði verið sú að með því yrði réttarör-
yggi aukið enda væri ríkissaksóknari
óháður og ekki hætta á að hann mis-
beitti valdi sínu. Vitnaði Guðmundur
Yngvi til umræðna á Alþingi þegar lög
um þetta efhi voru sett máli sínu til
stuðnings.
Varðandi vanhæfi sagði Guðmundur
Yngvi að þegar vanhæfi kæmi til álita
væri lagður sami mælikvarði á ríkis-
saksóknara og dómara því krafist
væri að ríkissaksóknari væri hafinn
yfir alla gagnrýni. Þetta gerði þær
kröfur til ríkissaksóknara að hann
væri siðferðilega næmur en Hallvarð-
ur Einvarðsson sæi ekkert athugavert
við það að stjóma rannsókn máls og
taka síðan ákvörðun um það hveijir
sættu ákæm og hverjir ekki. Sagði
hann að Hafskipsmálið væri réttar-
farslegt slys. Það vekti einnig tor-
tryggni að ríkissaksóknari vildi ekki
upplýsa um samskipti sín og Alberts
Guðmundssonar sem veitti honum tvö
lán af ráðherrakvótanum svokallaða.
Sagði Guðmundur að Hallvarður
hefði fengið tvö lán með milligöngu
Alberts og annað þeirra væri með mun
betri kjörum en tíðkast hefðu á sama
tíma; miðað hefði verið við lægri láns-
kjaravísitölu en í gildi hefði verið þann
mánuð sem lánið var veitt og vaxtafót-
ur hefði aðeins verið 2% í stað 8%
eins og viðgengist hefði á sama tíma.
Þessi kjör hefðu verið ríkissaksóknara
til hagsbóta og hann stæði í þakkar-
skuld við Albert Guðmundsson vegna
þessarar fyrirgreiðslu. Þá hefði sonur
Alberts unnið í sumarleyfum undir
stjóm Hallvarðs í Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og hefði hann einnig
skrifað kandídatsritgerð undir hand-
leiðslu Hallvarðs. Þar sem Albert hefði
verið einn þeirra sem til greina hefði
komið að ákæra, bæði sem fyrrum
formaður stjómar Hafskips og bank-
aráðsformaður Útvegsbankans, væri
Hallvarður vanhæfur til þess að taka
ákvörðun um ákæm á hendur honum
enda samband aðila með þeim hætti.
Jón Magnússon, veijandi Ragnars
Kjartanssonar, sagði að málið snerist
um hæfi Hallvarðs Einyarðssonar til
þess að gegna embætti rannsóknarlög-
reglustjóra ríkisins og síðar ríkissak-
sóknara. Sömu kröfur væm gerðar til
hæfis rannsóknarlögreglustjóra og
ríkissaksóknara.
Sagði Jón að óeðlilegt væri að sami
maður stjómaði rannsókn meints
sakamáls og tæki síðan ákvörðun um
ákæm á gmndvelli þeirrar sömu rann-
sóknar sem stjómað hefði verið af
honum sjálfum. Hann væri þar með
að meta eigin störf. Kvaðst Jón hafa
óskað eftir því í bréfi til ríkissaksókn-
ara að hann viki sæti í málinu en því
hefði hann hafiiað.
Þá taldi Jón að Hallvarður sem rík-
issaksóknari hefði verið búinn að
móta sér ákveðna afstöðu fyrirfram
enda hefði hann látið hafa eftir sér
yfirlýsingar í blöðum á meðan á rann-
sókn málsins stóð sem bentu til fyrir-
fram mótaðrar afstöðu.
Ræddi Jón um lánveitingar til Hall-
varðs og taldi hættu á því að vegna
þakkarskuldar í garð Alberts Guð-
mundssonar gæti ríkissaksóknari ekki
litið óhlutdrægt á málið, ekki síst þar
sem það snerti þennan velgjörðar-
mann hans.
Jónas Aðalsteinsson, verjandi Páls
Braga Kristjónssonar, krafðist frávís-
unar málsins frá dómi eins og aðrir
veijendur. Taldi hann að við rannsókn
málsins hefðu rannsóknaraðilar verið
slegnir blindu og að rannsókn málsins
hefði verið undarleg á köflum. Þá hefði
ríkissaksóknari látið undan þrýstingi
dómsmálaráðuneytisins sem hvatt
hefði til málshöfðunar. Sagði hann að
þetta mál væri mikið réttarfarslegt
slys og bæri að vísa því frá dómi.
Ólafur Gústafsson, veijandi Helga
Magnússonar, sagði að um ríkissak-
sóknara giltu sömu hæfisreglur og um
dómara. Sagði hann að málshöfðanir
í Hafskipsmálinu og Útvegsbankamál-
inu væru reistar á sömu rannsókn, það
hefði farið fram ein samfelld rannsókn
sem báðar málshöfðanimar hefðu ver-
ið reistar á. Sagði Ólafur að af þessu
leiddi að ríkissaksóknari væri jafn-
vanhæfur til að fara með Hafskipsþátt
málsins og Útvegsbankaþátt þess;
hann væri vanhæfur til að fara með
málið í heild sinni. Sagði Ólafur enn-
fremur að tengslin á milli Hafskips
hf. og Útvegsbankans hefðu verið
óvenju náin.
Ólafur sagði að þær reglur giltu að
ef hæstaréttardómari viki sæti í máli
ef hann lýsti yfir sem hæstaréttardóm-
ari áliti sínu á viðfangsefni sem hann
síðar færi með. Sama ætti við um ríkis-
saksóknara sem áður gegndi störfum
rannsóknarlögreglustjóra ríkisins.
Jafnframt viki dómari sæti ef sú hætta
væri talin vera fyrir hendi að hann
gæti ekki litið óhlutdrægt á mál en
slíkt ætti við í þessu tilviki. Nefndi
hann þessu til stuðnings blaðaviðtöl
við Hallvarð Einvarðsson og Þóri
Oddsson, yfirmenn rannsóknarlög-
reglunnar, þar sem þeir lýstu því yfir
að rannsóknin styrkti grun um mis-
ferli. Sagði Ólafur að þegar þessar
yfirlýsingar hefðu verið gefhar hefði
Helgi Magnússon verið yfirheyrður í
2-3 klukkustundir, Ragnar og Björg-
ólfur í 1 klukkustund hvor og Páll
Bragi hefði aldrei verið yfirheyrður.
Af þessum sökum taldi Ölafur ríkis-
saksóknara vanhæfan til ákæm í
málinu.
Jónatan Sveinsson saksóknari hafði
orð fyrir sækjendum en auk hans er
Bragi Steinarsson saksóknari í málinu
fyrir hönd ríkissaksóknara. Sagði
hann að meginhluti ræðna verjenda
hefðu íjallað um efni sem óviðkomandi
væri þessu máli. Spurði Jónatan
hversu langt ætti að ganga í þá átt
að ræða lánveitingar til Hallvarðs í
málflutningnum. Varðandi rannsókn
málsins sagði Jónatan að Þórður
Bjömsson, fyrrum ríkissaksóknari
hefði lagt iínumar um það að hvaða
atriðum rannsóknin ætti að beinast
og hefði rannsóknarlögreglustjóri,
Hallvarður Einvarðsson, farið eftir því
í einu og öllu. Hvað þakkarskuld hans
í garð Alberts Guðmundssonar varð-
aði, vegna milligöngu hans í lánveit-
ingum til Hallvarðs, sagði Jónatan
það skrítið að því skyldi haldið fram
að maður stæði í ævarandi þakkar-
skuld við þann sem veitti manni
peningalán. Kvaðst hann aldrei hafa
orðið var við slíkar tilfinningar hjá
sjálfum sér enda þótt hann hefði tekið
lán hjá Lífeyrissjóði opinberra starfs-
manna eins og Hallvarður.
Ekki taldi Jónatan að ríkissaksókn-
ari væri vanhæfur til ákæm í málinu
þó hann hefði stjómað rannsókninni
sem rannsóknarlögreglustjóri. Ekki
væri hægt að sínu mati að taka slíkar
kröfur til greina. Hingað til hefði ríkis-
saksóknari ekki verið vanhæfur til að
gefa út ákærur í málum sem hann
sjálfur hefði rannsakað.
Málflutningi lauk síðdegis í gær og
er búist við úrskurði sakadóms síðar
í þessari viku. Málið dæmir Haraldur
Henrýsson sakadómari.
-ój
Tveir verjenda, þeir Jón Magnússon hdl. og Jónas Aðalsteinsson hrl.
Við upphaf málflutnings i sakadómi i gær. DV-myndir JAK