Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987. Spumingin Horfirðu á sólarlagið á kvöldin? Vignir Steinþór Haraldsson: Já, já - það kemur fyrir svona stundum. Það er svo gott útsýni heima - horfi bara út um gluggann. Stefanía Sigurbjörnsdóttir: Já, það geri ég nú alltaf. Það er það falleg- asta sem ég sé - bý í Hátúni og fer ekki inn til mín fyrr en sólin er sest. Fjóla Ægisdóttir: Það kemur sjaldan fyrir - jú, jú, ég geri það. Finnbogi Finnbogason: Já, já, stund- um. Gerði mikið af því hér áður. Fer nú ekki beinlínis til Grímseyjar til þess að horfa á sólarlagið en læt mér nægja að fara hérna vestur í bæ núna. Trausti Þórðarson: Já - ég geri það þegar ég get og þá út um gluggann hjá mér. Lesendur_____________________________ Kynferðisglæpir: Blásum til orrustu Sárreið móðir skrifar: Hvar ætlar þetta að enda? Er böm- um okkar hvergi orðið vært fyrir alls konar öfúguggum og undirheimalýð á þessu annars indæla landi? Ekki er þeim vært í blaðburði, ekki geta þau farið í sund, ekki út á bamaleikvöll eða í almenningsgarð og ekki er á það hættandi að senda þau í sumarbúðir. Ég bara spyr? Maður var auðvitað sleginn yfir frétt DV í síðustu viku, um að hjón er starf- rækt hefðu sumarbúðir fyrir böm væm grunuð um kynferðislega áreitni við þau. En fréttin í blaðinu þriðjudag- inn 7. júlí sl. um alvöru þessa máls varð þess valdandi að mér fannst ég verða að tjá mig um það og hafði ekki lyst á sjónvarpsglápi það kvöldið. Ég var í senn skelfd, reið og hrygg, og er víst að svo er um fleiri. En við verðum að gera eitthvað, ekki bara hugsa „Guð, hvað þetta er hræðilegt" og snúa okkur svo að öðm. Við getum bara ekki látið sem ekkert sé þegar böm em svívirt og líf þeirra eyðilagt. Lýsing DV á hinum óhugnanlegu at- burðum er takmörkuð því svo sem greinilega má skilja er margt í þessu máli ekki prenthæft sökum viðbjóðs. Getur nokkur ímyndað sér hvemig það er fyrir bam að fara í sumardvöl, fjarri heimili og foreldrum, og verða fyrir slíku áfalli fyrsta kvöldið sitt í sveitasælunni. Hvert á svo bam að flýja frá eyju langt úti á Breiðafirði? Fyrir um 2 árum síðan sá ég auglýs- ingu (í DV áreiðanlega því ég er áskrifandi að því) um sumarbúðir í Svefneyjum og mátti engu muna að ég sendi dóttur mína þangað, þá 9 ára gamla. Því meiri er e.t.v. skelfing mín nú. Þegar ég sjálf var u.þ.b. 9 ára göm- ul varð ég fyrir reynslu er hafði mikil og langvarandi áhrif á mig. Það var þó „aðeins" þukl á vissum líkams- hluta. Sá er þetta gerði var fjölskyldu- meðlimur. Auðvitað sagði ég ekkert - Stöndum sterk með börnunum - seg- ir sárreið móðir. böm segja ekki frá, þau loka óttann inni. Skelfinguna, skömmina og reið- ina bera þau ein. Það er það versta. Oft telja þau sökina sína. Mörgum árum síðar sló ég þessu fram í reiði en var ekki trúað. Það er hið allra versta. Það þarf nauðsynlega að fara að kenna bömum að segja frá. Það þarf strax á unga aldri að efla sjálfsvit- imd þeirra sem einstaklinga, kenna þeim að tjá tilfinningar sínar og segja frá ef þau em beitt misrétti eða líkam- legu ofbeldi. Það vantar strax efni í gmnnskólana er færi inn á þessi mál á réttan hátt. Ef hæft fólk semur gott efrii má e.t.v. finna þau böm sem þurfa að fá hjálp. Það vantar líka strax sér- stakan kynferðismáladómstól er færi með öll svona mál, nauðganir og önn- ur alvarleg líkamsárásarmál. Þetta em mál sem aldrei skyldu velkjast í dómskerfinu mánuðum saman. Til þess em þau alltof alvarleg og alltof sársaukafull. Ég dáist að þeim að- standendum bama sem bíða vikum og mánuðum saman eftir einhverri mynd af réttlæti eftir að bam þeirra hefur verið svívirt. Til þess þarf sterkar taugar, mikið hugrekki og trú. En við þær nefndir og þau ráð sem gæta eiga hagsmuna bama og láta svona mál dragast von úr viti með alls konar skriffinnsku segi ég bara: „Skammist ykkar.“ En rétt skal vera rétt og fólk saklaust þar til sekt þess er sönnuð. Því þarf að bæta þessi mál og flýta í dómskerfinu. En sé glæpurinn stór viljum við ekki sjá annan Steingrímsdóm. Eða er e.t.v. bara ekki hægt að dæma seka menn hér á landi nema til nokkurra mánaða vegna þess að ekkert tukthús er til. Á Tunguhálsi er víst platan að ríkis- fangelsinu löngu orðin ónýt, eða hvað? Þá er bara að dæma þá geggjaða og óábyrga gjörða sinna vegna þess að þeir vissu ekki hvað þeir gjörðu, þrátt fyrir þrælskipulagt atferli (sem reynd- ar er líka þekkt hjá geðsjúklingum eins og margir vita). Myndir af fólki, sem framið hefúr svona brot, á skilyrð- islaust að birta. Ég vona að nýstofnuð samtök gegn kynferðislegu ofbeldi á bömum láti í sér heyra um þetta mál - einnig mæð- ur, feður, gmnnskólakennarar, fóstr- ur, heilbrigðisstéttir, svo og allur almenningur. í guðanna bænum látið í ykkur heyra - yppið ekki bara öxlum. Látum bömin ekki vera ein lengur - stöndum sterk með þeim. Blásum til orrustu! Er annað að ala upp beljur en böm? Starfsstúlka í Reykjanesi veturinn ’67 - ’68 skrifar: Hver hefur efni á að horfa á aðra í smásjá? Erum við fúllkomin sjálf? Stöndum við ekki saman, íslendingar, allir sem einn? Allavega viljum við það út á við, gagnvart öðrum þjóðum, ekki satt? Hver hefúr efni á að dæma ann- an? Er einhver betri en annar? Svari hver sem svarað getur og hefúr efiii á. Þrír bændur úr Isafjarðardjúpi, sem sæti eiga í skólanefnd Reykjanesskóla, hafa skorað á skólastjórann að segja af sér. Hvers vegna? Vegna þess að hann er of góður maður, sem hefur tilfinningu fyrir því sem hann er að gera. Maður sem þykir vænt um böm og unglinga, maður sem vill gefa öðr- um tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Geta bændur dæmt skólastjóra? Er ekki svolítið annað að ala upp beljur en böm? Ég er alin upp í sveit en flutti til Reykjavíkur 17 ára, á 4 böm sjálf, þar fyrir utan hef ég annast ann- arra böm í 13 ár og mér finnst þetta ekki vera sama uppeldissvið. Tvö af mínum bömum hafa verið í Reykja- nesskóla, undir handleiðslu Skarphéð- ins skólastjóra. Þeim þykir mjög vænt um hann og styðja hann af heilum hug. Kjartan Gunnar Kjartansson var kennari í Reykjanesskóla í 1 og 'A vetur. Hann hafði að vísu ekki próf upp á það, en það er gott að geta ráð- ið sig sem kennara út á land, því ekki fær réttindalaust fólk kennarastöðu í Reykjavík á borð við það sem úti á landi fæst. Ódýrt húsnæði og ýmis önnur hlunnindi. Nú er Kjartan blaða- maður á Dagblaðinu Vísi og hæg heimatök að blása upp eitthvað sem hann getur tæplega útskýrt, nema það sem hann ásakar Skarphéðin um í grein sinni, að hann sé of mildur við bömin, hann sé sem sagt of góður maður til að vera skólastjóri Reykja- nesskóla. Skarphéðinn byrjaði að kenna við Reykjanesskóla 19 ára gamall. Þegar ég réð mig sem starfsstúlku við skól- ann veturinn 1967-68 var hann alfarið með bamaskólann nótt sem dag. Hann var vel metinn af öllum sem til hans þekktu og er enn í dag, þó fjórar tung- ur reyni að eyðileggja hann, sem ég skil ekki hvers vegna, nema að það væri öfund. Og öfund er ljót og eyði- leggur oftast þann sem öfundar en verður hinum til framdráttar. Þegar Skarphéðinn byrjaði að kenna var hann gagnfræðingur frá R-nesi og búfræðingur frá Hvanneyri. Síðan fór hann í Kennaraskólann 2 vetur og þaðan í íþróttakennaraskól- ann að Laugarvatni. Eftir það kenndi hann einn vetur í Reykjavík, en R-nes kallaði á hann, kallaði á hans tryggu sál, hann hafði bundist ákveðnum tryggðaböndum við þennan stað eins og margir þekkja sem þar hafa verið. Reykjanesskóli er honum allt, þar er hann búinn að læra og starfa meira og minna frá 15 ára aldri og lifa fyrir bömin sem hann hefur tekið að sér á hveijum vetri, sem koma misjafnlega í stakk búin að hausti en fara heim að vori með þakklæti í huga til hans, sem er þeim ekki bara skólastjóri, heldur vinur og félagi í gleði og sorg. Unglingavinna: Stjómendur ekki starfi sínu vaxnir 7732-4038 skrifar: Hvemig væri að þið fæmð á stúfana og tækjuð nokkrar myndir af ungling- um við unglingavinmma. Það er orðin hreinasta skömm að sjá hvemig borg- in okkar h'tur út núna. Keyrið þið um og lítið á. Njóli og illgresi er að kæfa gróður alls staðar. Má ég nefna dæmi eins og hjá Suðurlandsbrautinni, við Breiðholtsbrautina sem liggur upp í efra Breiðholt. Ég vissi þegar var ver- ið að gera 3 litla garða á vegum borgarinnar við Skógarsel, sunnan megin við Alaska í Breiðholti. Garð- yrkjumaðurinn, sem sá um það, var mjög fær og hann merkti allar plönt- umar, setti spjöld fyrir framan, svo fólk gæti komið og séð hvað þær hétu. En núna sést ekkert af þessu. Síðast- liðið sumar vom krakkar sem áttu að hirða þetta en það var svo illa gert að illgresið varð fljótt allsráðandi. Núna í sumar er ekkert farið að reyna að laga þetta. Krakkamir, sem eiga að sjá um þetta hverfi, em til stór skammar. Ég hef séð 4 stelpur í hóp sem áttu að vera að slá með sláttuvél meðfram gangstéttum í Seljahverfi og þær sváfu allar í hóp við veginn. Strák- ar, sem eiga að vera með handsláttu- vélar að vinna, em flestar stundir liggjandi eða að kjafta saman. Einn kemur á hjólahlaupabretti í vinnuna og gerir mest að því að leika sér á því. Þetta er orðin svo mikil skömm að það þyrfti að gera eitthvað róttækt í þessum málum. Auðvitað móðgast einhver. Jafnvel á einhver duglegan krakka í þessum hóp en þeir duglegu em bara kæfðir niður því þeir lötu em svo allsráðandi að þeir sem vilja vinna geta ekki staðið í þessu einir. Farið og skoðið þessa staði sem ég hef nefiit. Fáið að vita hveijir ráða þessu, hveijir eiga að stjóma og em alls ekki starfi sínu vaxnir. Það er alveg hræðilegt hvemig borg- in er orðin og sóðaskapurinn meðfram vegum, glerbrot og tómar gosdósir. Þakkir-HótelÖik Félagskonur Kvennadeildai- Rauða krossins fóm í sína árvissu sumarferð í síðústu viku. Á lieim- leið var snæddur kvöldverður í Hótel Örk, Hveragerði. Þar var sest að falloga dúkuðum borðuni þar som borin var fram vel , heit súpa, kjötréttur og eftiiTÓttur - ljúffenjpn’ matur. Við viljum hér biðja f>TÍr kveðjur til starfsfólks Hótel Arkar sem veitti okkur framúrskarandi góða þjónustu. Við vonum að Hóte! örk megi lengi lifa og dafiia vel ■ svo við megum öll njóta hins fallega um- hverfis þar - utanhúss sem innan, Félagskonur Kvennadeildar Rauða krossins. vantar Granni skrifar: Nú þegar allar þeasar nýju út- varpsstöðvar em komnar af stað er svolítið undarlegt að ekki skuli fyrirfinnast sá valkostur að hlusta á tónlist eingöngti. Á mörgum vinnustöðum þar sem menn þurfa að einbeita sér við vinnu er ekki hægt að hafa kveikt á þassum út- varps- stöðvum vegna málæðis þulanna sem truilar venjuleg vinnudýr. Þaif ekki meiri sérhæf- ing að koraa til? Þannig að þeir sera geta leyft sér að hlusta á talað mál hafi kost á því í vinnutíma og en hínir geti valið tónlistina. Eins og nú er virðast allar stöðvamar svjpaðar og þjóna því einnig alger- lega sama hlustendahópnum. Sigrún skrifar: Eg vil þakka Eddu Björgvins- dóttur og Júlíusi Brjánssyni fýrir góðan gamanþátt á Bylgjunni um fiölskylduna á Brávallagötu. Það er alvcg sama hvemig skapið er hjá manni þau fá mann alltaf til að hlæja. PÍg vona að þau verði lengi áfram. Þau eru frábær. Takk fyrir. Hjoli stolið frá ellefu ára slrák Unnar Snær Bjarnason hringdi: Aðfaranótt mánudagsins var hjólinu mínu stolið fyrir utan heima hjá mér. Þetta er í Kjalarl- andi 30. Hjólið var ólæst on stóð á stéttinni inni í garðinum okkar. Þetta er BMX hjól, hvítt stell og silfrað stýri með rauðum púðum og rauð handfong, rautt sæti og rauð dekk. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hjólið oru beðnir að hafa samband á kvöldin í sfma 37442 og or fundarlaunum heitið. Hörður Jóhannsson hringdi: Mér blöskra orðið skrifin um Hótel Örk. Ég hef verið þama tvi- svar, stuttu eftir að opnað var og svo aftur í vor með Qölskylduna og við fengum alveg yndielegar móttökur. Fólkið var liðlegt og yndislegt að vera þama i alla staði. Sérstaklega var starfsfólkið gott við krakkana. Hika ég því ekki við að raót- raæla þessum skrifura harðlega og mæli með því að fjölskyldufólk dvelji þarna, Auðvitað geta komið upp á svona vandamál eins og kona skrifaði um hjá ykkur um daginn en ég held það hljótí að llg mæli fyrir munn allrar fiöl- skyldunnar, og ekki síst barnanna, þegar ég segi að við höfum síður en svo yfir þjónustunni að kvarta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.