Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLl 1987. 7 Fréttir Ættarmót í Dalasýslu: Grunur um salmonellusýk- ingu eftir að tugir veiktust „Það hefur enn ekkert svar borist írá Rannsóknarstofu Háskólans en mér skilst að það sé sterkur grunur um að þetta sé salmonellusýking. Ein- kennin em þau sömu og þó að ég geti ennþá ekkert fullyrt reikna ég með því að þetta sé salmonella,“ sagði Am- bjöm Ólafsson, heilsugæslulæknir í Keflavík. Helgina 4.-5. júlí var haldið ættar- mót á Edduhótelinu að Laugum í Dalasýslu. Komu þar saman niðjar Hannesar Einarssonar úr Keflavík og á laugardagskvöldið var snæddur saman kvöldverður. Að sögn móts- gests tók fólk að veikjast upp úr hádeginu daginn eftir með höfuðverk, hita, uppköst, niðurgang og beinverki. Um 330 manns munu hafa verið á mótinu og virðist sem um 30 manns hafi orðið veikir. Enginn varð þó lífshættulega veikur sem vitað er um en að sögn Ambjam- ar var fólkið úr Keflavík, sem veiktist, mjög lasið, einkum þó eldra fólk. Veik- indin hafi þó staðið stutt yfir. Málið í rannsókn Það sem á boðstólum var á ættar- mótinu var pottréttur með nautakjöti, kalt borð með svínakjöti og rækjum. Gunnar Rafh Jóhannsson, læknir í Búðardal, sagði að þeir væm á kafi við að athuga þetta mál og hefðu sent allt hráefhi og vatn í rannsókn. Lang- líklegast væri að eitthvað hefði komist í matvæli. „Við verðum að rannsaka þetta eins og um matarsýkingu sé að ræða og gera ráð fyrir því versta,“ sagði Gunnar og vildi lítið tjá sig frek- ar. Helgi Helgason, heilbrigðisfulltrúi Vesturlands, sagði að þó að salmon- ella fyndist í sýni frá sjúklingum þyrfti ekki að vera um matareitrun að ræða. Tekin hefðu verið sýni úr nánast öllu hráefni en afgangar af kjötmetinu hafi ekki náðst, úr starfsfólki hótelsins hafi verið tekin saursýni. Þetta væri til rannsóknar hjá Hollustuvemd rík- isins og sýkladeild Rannsóknarstofn- unar Háskólans. Ólafur Steingrímsson, yfirlæknir á sýkladeildinni, sagði sterkar líkur benda til salmonellusýkingar. Ljúka þyrfti þó greiningunni áður en hægt væri að segja fyrir um það með vissu. Það tæki nokkurn tima að rækta upp sýkilinn. í sama streng tók Franklín Georgsson hjá Hollustuvernd. Hann sagði að ennþá hefði ekkert komið fram í matvæla- og neysluvatnssýnum, sem þeir hefðu fengið, enda ræktunin nýhafin. Hótelið bað um rannsókn „Þegar við fréttum um að eitthvað væri að báðum við um rannsókn. Enn sem komið er virðist ekkert benda til að þetta sé héðan komið," sagði Rein- hai-d Reynisson, hótelstjóri að Laug- Reinhard sagði að síðar í þessari viku ætti það að liggja fyrir hvort eitt- hvað væri frá þeim komið og fyiT vildu menn ekki vera með neinar getgátur, nógu slæmt værí að sögusagnir færu á kreik. Þetta gæti hugsanlega verið einhver önnur veiki en sýking. „Fólk- ið borðaði meira en hjá okkur þessa 3 daga sem það dvaldist hér. Það var með nesti og þess háttar sem geymt var við mismunandi aðstæður," sagði Reinhard og sagði ýmsar fleiri skýr- ingar geta verið heldur en matarsýk- ingu og það vrðu menn að gera sér grein fvrir. -JFJ Haffjarðará Þrír 22 punda komnir á land „Það er allt bærilegt að frétta úr Hafijarðará og ætli það séu ekki komnir um 184 laxar á land og þetta eru yfirleitt vænir fiskar sem veiðast, þrír 22 punda eru komnir á land,“ sagði tíðindamaður er við spurðum um Hafljarðará. „Við fengum 2 laxa og 9 bleikjur, annar laxinn ar 14 pund og hinn 5, bleikjumar voru stærstu 3,5 punda,“ sagði Dagur Garðarsson en hann var að koma úr Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. „Allur fiskurinn veiddist á flugu og þetta fékkst allt i Hvolsánni, við vildum geyma Staðarhólsána handa næstu veiðimönnum. Við sáum 3 laxa í Kaupfélagshylnum og svo var Norðurá í Borgarfirði 1200 laxar komnirígegn- um teljarann „Þetta gekk vel, hollið veiddi 66 laxa og við fengum 26 laxa og sá stærsti var 16 pund, annars voru sumir lax- amir smáir,“ sagði Magnús Jónasson sem var að koma úr Norðurá . „Það hafa aðeins komið skot í ána við og við og laxamir, sem eru komnir á land, em á milli 380 og 400. í gegnum teljar- ann em komnir um 1200 laxar og við vorum uppi á dal síðasta hálfa daginn og þar var töluvert af fiski víða en hann tekur illa. Veiðimenn töldu 50 laxa á Bergshylsbrotinu og sumir vom vænir. Ég var í Laugardalsá fyrir skömmu og þar fengum við 8 laxa, er að fara í Grímsá eftir helgi að renna þar,“ sagði Magnús í bílasímanum á leið niður Norðurárdalinn til Reykja- víkur með 26 laxa í farangursrýminu. bleikja í Máskeldufljótinu og i Hvíta- dalsstrengnum" sagði Dagur í lokin. Alvarlegir greiðsluerfið- leikar Sjóleiða hf. Starfsemi skipafélagsins Sjóleiða lif. hefúr nú legið niðri frá því S nóv- ember enda stendur fyrirtækið frammi fyrir alvarlegum greiðsluerf- iðleikum. Fyrirtækið hefur m.a. gert út flutn- ingaskipið Sögu en fyrir nokkrum mánuðum bræddi vél skipsins úr sér og liggur skipið nú vélarvana og kyrrsett úti í Frakklandi og býður þess að frárhagsleg staða fyrirtækis- ins skýrist Samkvæmt upplýsingum frá fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins mun tjónið, sem fyrirtækið varð fyTÍr, nema um tuttugu milljónum en hann tjáði DV einnig að unnið væri að því að greiða útistandandi skuldir. Frönsk hafriargjöld af skipinu nema nú um einni og hálfri milljón og þónokkrir af áhöfh skipsins hafa enn ekki fengið greidd laun frá þvi á síð- asta hausti. Skipið hefúr verið til uppboðameð- ferðar hjá borgarfógeta en þeim málum hefur verið frestað um óá- kveðinn tíma á meðan verið er að ganga frá málum við erlenda aðila. Fyrirtækið hefur enn ekki sótt um greiðslustöðvun. KGK BLAÐAUKI FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA um ferðalög og mótstaði helgarinnar kemur út miðvikudaginn 29. júlí. AUGLYSENDUR ATHUGIÐ! Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa vöru sína og þjónustu í þessum blaðauka hafi samband sem fyrst - í síðasta lagi fimmtudaginn 23. júlí. AUGLYSINGADEILD, ÞVERHOLTÍ 11, sími 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.