Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLl 1987.
9
Einn indversku flóttamannanna bíður þess að verða yfirheyrður í Halifax i gær.
Simamynd Reuter
Uppruni indversku
flóttamannanna óviss
Töluverð óvissa ríkir nú varðandi
það hverjir indversku flóttamennimir,
sem komu sjóleiðis til Halifax á Nova
Skotia í gær, eru og hvaðan þeir komu.
Kanadísk stjómvöld halda flótta-
mönnunum i herbúðum í Halifax og
hyggjast yfirheyra þá hvem fyrir sig.
Ekki er talið fullvíst að þeir séu allir
sikhar, líkt og haldið hefur verið fram
og einnig hafa komið fram efasemdir
um hvaðan þeir komu. Því hefur verið
haldið fram að þeir hafi komið írá
Vestur-Þýskalandi en ekki Indlandi.
Indverjamir, sem em 174 að tölu,
em sumir í hefðbundnum klæðum sik-
ha en aðrir ekki.
Embættismenn kanadísku ríkis-
stjómarinnar munu á næstu dögum
og vikum re^ma að ákvarða hvort
veita skuli Indverjunum landvistar-
leyfi, annað hvort sem innflytjendum
eða sem flóttamönnum.
Talið er að rannsókn mála þeirra
geti tekið allt að hálft ár.
Skipstjóri skipsifis sem þeir komu
með til Kanada, Svíinn Rolf Nygren,
mun mæta fyrir rétti í dag, ásamt Ind-
verja að nafni Jasvir Singh sem talinn
er hafa skipulagt ferð hópsins. Þeir
em sakaðir um að hafa flutt einn af
mönnunum 174 ólöglega til Kanada.
Reyna að fa smábændur til liðs við sig
Skæmliðar kontrahreyfingarinnar,
sem berst gegn stjómvöldum í Nig-
aragua, hefur undanfarið reynt að fá
til liðs við sig smábændur úr hémðum
í austanverðu Hondúras. Kontra-
skæmliðar, sem beijast með fulltingi
Bandaríkjamanna, hafa haft bæki-
stöðvar í Hondúras og skipulagt
starfsemi sína þaðan.
Þá skýrði dagblað í Hondúras írá
því í gær að kontraskæmliðar hefðu
ráðist á og rænt gullleitarmenn í sömu
hémðum.
Smábændur, sem dagblað þetta átti
viðtöl við, sögðust ekki vita hversu
ágengt kontrahreyfingunni hefði orðið
í liðssaíhaði sínum.
Undanfarið hafa borist fregnir af því
að kontrahreyfingin hefði fært bæki-
stöðvar sínar lengra inn í Hondúras
vegna þess að fyrri bækistöðvar lágu
of vel við árásum frá stjómarher Nig-
aragua.
Kontramenn réðust inn í Nigaragua
með allt að tólf þúsund manna lið fyrr
á þessu ári en talið er að nokkur þús-
und þeirra séu enn í Hondúras.
Skæruliðar úr röðum kontrahreyfingarinnar taka saman birgðir af vopnum og
búnaði sem varpað var niður í fallhlifum til þeirra. Meöal annars má þarna
sjá jarðsprengjur, annað sprengiefni, einkennisklæðnað og handsprengjur.
Símamynd Reuter
McFarlane vill bera vitni á ný
ÓJafur Amaisan, DV, New York
Yfirheyrslumar yfir Oliver North
héldu áfram í gær en gærdagurinn var
fimmti dagurinn sem North sat fyrir
svörum.
Hafa yfirheyrslumar tekið á sig
töluvert aðra mynd en i upphafi. Bæði
stendur Oliver North nú mun sterkar
að vígi en í upphafi því að á einni
viku hefur hann náð slíkum vinsæld-
um að talið er um „Ollie mania" eða
Ollaæði hér í Bandaríkjunum og einn-
ig em það nú þingmenn sjálfir sem
yfirheyra en ekki starfsmenn rann-
sóknamefiidarinnar.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
telja nú áttatíu og fjögur prósent
Bandaríkjamanna að North sé að
segja satt. Eftir fyrsta dag yfirheyrsln-
anna töldu fimmtíu og átta prósent
að svo væri. Nú telja fimmtíu og átta
prósent að North hafi unnið gott starf
er hann starfaði hjá öryggisráði
Bandaríkjaforseta. Tuttugu prósent
Bandaríkjamanna em þeirrar skoðun-
ar að North sé sannkölluð þjóðhetja.
I gær vom það þingmenn sjálfir sem
yfirheyrðu North. Höfðu hlutverkin
heldur betur snúist við því nú var það
North sem lagði við hlustir en fyrir-
spyijendur héldu langar ræður.
Margir nefndarmanna lýstu aðdáun
sinni á North og störfum hans. Orrin
Hapch, öldungadeildarþingmaður frá
Utah, tók undir gagnrýni Norths á
þingið og sagði nauðsynlegt að forset-
inn hefði skýr völd til að marka
utanríkisstefnu. Ekki næði nokkuiri
I gær var það Oliver North sem lagði
við hlustirnar á meðan þingmenn
héldu ræður þar sem þeir ýmist
hrósuðu honum eða gagnrýndu.
Liktust yfirheyrslurnar í gær fram-
boðsfundi að nokkru leyti.
Símamynd Reuter
átt að 533 þingmenn reyndu að hrifsa
völd hans og reyndu að leika litla ut-
anríkisráðhen-a.
Ekki vom allir þingmenn jafnhrifnir
af North. Jack Brooks, demókrati og
fulltrúadeildarþingmaður frá Texas,
hélt langa ræðu þar sem hann réðst á
North. forsetann og kontraskærulið-
ana en spurði North engra spurninga.
V om yfirheyrslumar í gær því líkastar
að þingmenn væru að halda framboðs-
ræður fyrir framan kjósendur sína.
North mun sitja áfram fyrir svörum
í dag. Að því loknu mun Robert
McFarlane, fyrrum öryggisráðgjafi
Reagans, aftur setjast í vitnastólinn.
Hann óskaði eftir því þegai’ ljóst var
að ýmislegt sem North hefur sagt
stangast á við fyrri vitnisburð
McFarlanes.
Síðar í vikunni mun John Poindext-
er bera vitni. Hann er nú sá eini sem
getur varpað ljósi á það hvort Reagan
vissi um tilfærslur á vopnasöluhagn-
aði til kontraskæmliðanna. Hann
verður meðal annars spurður um það
hvort forsetinn hafi lagt blessun sína
yfir skjal sem kom fram í dagsljósið
um helgina. Talsmenn Hvíta hússins
hafa þegar sagt að forsetinn hafi aldr-
ei séð skjalið.
Útlönd
Mikið manntjón í umferð á Ítalíu
Undanfama þrettán daga hafa orðið um átta þúsund og sex hundmð
umnferðarslys á Italíu. I slysunum hafa þijú hundrað og tuttugu manns
farist og um sjö þúsund og þrjú hundmð hafa slasast mismunandi alvarlega.
I gær fórust átta manns í árekstri sjö biffeiða á þjóðvegi skammt frá
bænum Foggia á Ítalíu. Bifreiðimar rákust saman í miklu reykjarkófi sem
lagði yfir þjóðveginn frá bálkesti þar sem landbúnaðarverkamaður var að
brenna rusl Verkamaðurinn var handtekinn og verður líklega dreginn fyr-
ir dóm, sakaður um manndráp af gáleysi.
Deng hrósar Vestur-Þjóðverium mikið
Deng Sjaóping, leiðtogi Kína, hrósaði i gær Vestur-Þjóðverjum á hvert
reipi og sagði þá vera mikilvægustu viðskiptafélaga Kínverja í Evrópu.
Deng lét þessi ummæli falla á fundi sem hann átti með Helmut Kohl, kansl-
ara V-Þýskalands, sem nú er i opinberri heimsókn í Kína.
Deng og Kohl áttu með sér viðræður fyrir luktum dymrn í gær. Tahð er
að þeir hafi þar rætt áffamhaldandi þróun viðskipta milli ríkjanna. Á síð-
asta ári undúrituðu fulltrúar Kínverja og V-Þjóðveija viðskiptasamning,
að verðgildi meira en fjórir milljarðar Bandaríkjadala.
Knattspymuáhugamennimir framseldir
Jean Gol, dómsmálaráðherra Belg-
íu, skýrði frá því á fféttamannafundi
í gær að lávarðadeild breska þings-
ins hefði samþykkt að ffamselja til
Belgíu tuttugu og sex breska knatt-
spymuáhugamenn sem sakaðir em
um manndiáp vegna óeirða sem
urðu á knattspymuvelli í Brussel
1985. Þijátfu og níu manns létu lífið ;
í átökum þessum.
Belgísk yfirvöld hafa reynt að fá
mennina framselda allt frá því að til
átakanna kom milli áhangenda
breska knattspymufélagsins Li-
verpool og hins ítalska Juventus, í
úrslitaleik Evrópubikarkeppninnar 1985.
Talið var að áhangendur Liverpool bæm ábyrgð á því að óeirðimar hófust.
Sjó mánaða hellisdvöl ttala lokið
Morizio Montaldini, liðlega þrítugur Itali, sagðist í gær leiður yfir að yfir-
gefa helli þann sem hann hefur nú dvalið í um sjö mánaða skeið. Montaldini
dvaldist einn í hellinum og hefur með dvölinni sett nýtt heimsmet, lifað
lengst allra manna í algerri einangrun.
Montaldini sagðist, við komuna upp á yfirborð jarðar, hafa lært að tala
tungumál þagnarinnar. Hann átti erfitt með að átta sig á því að hann væri
búinn að setja heimsmet þar sem hann hélt að enn væri mars.
Kvaðst hann geta greint milii hljóðsins frá átján mismunandi tegundum
af vatnsdropum.
Að sögn lækna er Montaldini við góða heilsu.