Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987. Útlönd DV Sakaður um skattsvik, siðleysi og lygar Skammt í afsögn Edwin Meese? Ólafur Amaisan, DV, New York: Edwin Meese, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, á nú við síaukinn vanda að stríða. Margir telja að skammt sé í afsögn hans en þó eru skiptar skoðanir um stöðu hans. Undanfamar vikur hefur öldunga- deild Bandaríkjaþings rannsakað tengsl Meese við fyrirtæki sem heitir Wedtech. Framleiðir það vopn og her- gögn. Leikur grunur á að Meese hafi beitt áhrifum sínum til að fyrirtækið næði góðum samningum við vamar- málaráðuneyti Bandaríkjanna um framleiðslu hergagna. I síðustu viku vöknuðu síðan ýmsar nýjar spumingar um aðild Meese að Iransmálinu er Oliver North bar við yfirheyrslur að Meese hefði vitað meira og fyrr en áður hefur verið talið. Edwin Meese hefur löngum verið óvinsæll maður í röðum frjálslyndra hér í Bandaríkjunum og stóð mikill styr um hann er Reagan Bandaríkja- forseti tilnefndi hann í embætti dómsmálaráðherra á sínum tíma. Tengdur vopnafyrirtæki Það var því mikil gleði í búðum frjálslyndra er í ljós kom fyrir nokkm að Meese tengdist vopnafyrirtækinu Wedtech. Fyrir tilstilli Meese var fyr- irtækinu úthlutað samningi um framleiðslu á vopnum fyrir varnar- málaráðuneyti Bandaríkjanna. Síðan kom í ljós að forráðamenn Wedtech höfðu stundað fjárdrátt og mútað op- inberum starfsmönnum. Meese mun ekki hafa verið f hópi þeirra er þágu mútur frá fyrirtækinu en í ljós kom að Meese hafði átt við- skipti við W. Franklyn Chinn, fjár- málaráðgjafa og forstjóra Wedtech. Meese fjárfesti á árinu 1985 fimmtíu þúsund dollara hjá Chinn. Skilaði sú fjárfesting fjörutíu þúsund dollara hagnaði á nítján mánuðum. Meese taldi hvorki fram fjárfestinguna né hagnaðinn til skatts. Þykir ýmsum sem slíkt sé ekki sæmandi dómsmála- ráðherra Bandaríkjanna og að siðferði Meese sé ábótavant. Meese hefur sagt að hann hafi vitað að Chinn væri „eitthvað tengdur" Wedtech en að hann hafi ekki leitt hugann frekar að þvi. Hvað vantaldar eignir og tekjur á skattframtali varðar segir Meese að um einföld mistök sé að ræða. Hann hafi engin lög brotið. Viðstaddur skýrslufals 1 yfirheyrslum fyrir þingnefnd í síð- ustu viku sagði Oliver North að Edwin Meese hefði verið með í ráðum er William Casey bjó sig undir að fara með rangt mál frammi fyrir þingnefhd í lok síðasta árs. North sagði einnig að Meese hafi verið viðstaddur er sam- in var fölsuð skýrsla, sem kynnt var á blaðamannafundi þann 25.nóvember á síðasta ári, þegar upp hafi komist um íransmálið. Reagan forseti byggði málflutning sinn í upphafi á þessari skýrslu. Á þessum sama blaðamanna- fundi talaði Meese og sagði að eini maðurinn sem vitað hefði um allar hliðar íransmálsins væri Oliver North. Ef þessar upplýsingar frá North eru réttar gæti það haft alvarlegar afleið- ingar fyrir Meese og er erfitt að sjá hvemig honum væri stætt á öðm en að segja af sér embætti. Einnig kom fram við yfirheyrslumar í síðustu viku að á meðan starfsmenn dómsmálaráðuneytisins voru á skrif- stofum hans til að leita að skjölum sem tengdust Iransmálinu hafi North í ró- legheitum sett skjöl í pappírstætarann. Segir North skjölin hafa verið af ýms- Samkvæmt vitnisburði Olivers North vissi dómsmálaráðherra Bandarikjanna, Edwin Meese, meira og fyrr um íransmálið en áður hefur verið talið. Simamynd Reuter um toga og að mörg þeirra hafi á engan hátt tengst Iransmálinu. Mörg- um þykir það hins vegar fúrðu sæta að starfsmenn dómsmálaráðuneytis- ins, sem Meese hafði sent á staðinn, skyldu láta það viðgangast að North eyðilagði skjöl fyrir framan nefið á þeim. Vilja sumir meina að Meese hafi gefið þeim fyrirmæli um að láta North afskiptalausan við iðju sína. Engin lognmolla Það hefur ekki verið lognmolla kringum Edwin Meese frá því að Re- agan tilnefndi hann í embætti dómsmálaráðherra. Það virðist þó sem hann hafi aldrei staðið í jafn ströngu og nú. Meese er sakaður um misbeit- ingu valds síns í þágu fyrirtækis sem hann var í tengslum við. Hann er sak- aður um skattsvik og siðleysi. Nú er hann einnig sakaður um að hafa logið að forsetanum, þinginu og almenningi. Á næstu dögum og vikum ætti að skýrast hvort Meese neyðist til þess að víkja úr stóli dómsmálaráðherra vegna þessara ásakana. Vitnisburður John Poindexters, fyrrum öryggisráð- gjafa Reagans, í þessari viku mun vega þungt. Ef vitnisburður Poindexters reynist Meese óhagstæður gæti farið svo að Meese verði að víkja á næstu dögum. Á hitt ber einnig að líta að Meese hefur áður komist í hann krappan. Á sínum tíma þótti það til dæmis ólíklegt að þingið myndi sam- þykkja tilnefriingu Meese í embætti dómsmálaráðherra en um síðir var hann samþykktur. Það ber einnig að athuga að hér er aðeins um ásakanir á hendur Meese að ræða og enn hafa engar sakir verið sannaðar á hann. Hér í Bandaríkjunum segja lög svo fyrir að menn séu saklausir þar til sekt þeirra sé að fullu sönnuð. Mótmæla í bifreiðum, nota ímyndaðan gjaldmiðil og eigin lýðræðishugmyndir Þá sjaldan Panamabúar fara fótgangandi í mótmælaaögerðir senda stjórnvöld her og lögreglu gegn þeim. Sjaldan kemur til verulegra átaka. Simamynd Reuter Þeir mæta til opinberra mótmæla- aðgerða á bifreiðum, nota ekki sinn eigin gjaldmiðil, gera öfbeldismenn úr hemum að hetjum, kjósa helstu óvini sína sem forseta og steypa þeim svo og nota herinn í baráttunni gegn eyðni. Þessi lýsing á við íbúa Panama sem þykja öðrum mönnum óskiljan- legri. Þeir sem fjalla um málefni landsins em oftast ósammála, en gangast þó allir við því að þar í landi gildi rökhyggja einu. Á hverju byggja Panamabúar þá? Það veit enginn heldur. Balboa og dollari Panamabúar eiga sinn gjaldmiðil sem nefnist balboa og allir verðút- reikningar í landinu sem og allar verðmerkingar fara fram á gmnni hans. Þessi gjaldmiðill er þó aðeins til sem mynt, stærst sem nemur um tuttugu krónum íslenskum, og ei ekkert notuð í viðskiptum. Banda- ríkjadalur ræður þar ríkjum og fara öll viðskipti fram í dollurum. Panamabúar láta það ekki valda sér áhyggjum fremur en annað. Þeir em vanir því að hlutir byggi ekki á rökrænni hugsun. Enda tóku þeir vel í það þegar einn af helstu of- beldismönnum hers landsins, Diaz Herrera, iðraðist og snerí frá villu síns vegar, eftir að hafa ráðgast við indverskan gum. Herrera réðst um leið gegn fyrrum yfirmönnum og samverkaimönnum sínum, sakaði þá um hina ógurlegustu glæpi og varð samstundis þjóðhetja. Geimverur og bílflaut Mikið umrót komst á í Panama við yfirlýsingar Herrera og helst var að sjá að verur frá öðrum hnöttum þætti þróun mála athyglisverð. Að minnsta kosti yfirgnæfðu fréttir af fljúgandi diskum alla aðra umfjöllun. í ríkisfjölmiðlum landsins fyrstu vik- una sem mótmælin stóðu. Panar ibúar hafa enda aðrar að- ferðir en venjulegt fólk við mót- mælastarfsemi. Þeir fara sjaldan fótgar.gandi til slíkrar iðju heldur fjölmenna á bifreiðum sínum, festa hvítar veifúr við útvarpsloftnetin og liggja á flautunni. Þeir-sem sýna vilja fómarvilja sinn skrúfa niður bílrúðuna og slökkva á loftkæling- unni. Forseti eða ekki forseti Lýðræði í Panama er einnig öðru- vísi háttað en í flestum heimshlutum. Stjómmálaferill Amulfo Arias er eí til vill nokkuð táknrænn fyrir þær lýðræðisvenjur sem íbúar landsins hafa tamið sér. Hann hefur þrisvar verið kjörinn forseti landsins og þrisvar hefur herinn steypt honum af stóli. Síðast var Arias kjörinn 1984 og þá með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða þeldökkra og fátækra. Þegai hann gegndi fyrst forsetaembætti, á fimmta áratug aldarinnar, hafði hann að vísu uppi áætlanir um að láta gera alla blökkumenn landsins ófrjóa og bað Bandaríkjamenn að flytja alla Vestur-Indíamenn á brott til upprunalands síns. Engu að síður líta blökkumenn og Vestur-Indíar nú á hann sem lýðræðissinna og hetju og vilja hann helst allra sem forseta. Herinn gegn eyðni Þá þykir Panamabúum her lands- ins til ýmissa hluta nýtilegur. Auk þess að steypa forsetum úr stóli og stjóma umferð bifreiða í mótmæla- aðgerðum, gegnir herinn mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn eyðni. Herferðin gegn eyðni byggir mikið á sjónvarpsauglýsingum þar sem flokkur herlögreglu er í aðalhlut- verki. Flokkurinn er við liðskönnun og liðþjálfi þeirra öskrar á þá, eins og liðþjálfar einir geta: „Menn, við stöndum frammi fyrir heimsstyrjöld. En við höfum vopnin til að beijast með. Sýnið vopn!“ Og herlögreglumennimir rétta fram hendurnar, líkt og nasistamir forðum, með prússneskri nákvæmni. Hver og einn þeirra heldur á smokk. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Halldór Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.