Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987.
T
11
UtLönd
Auðugustu menn heims
em japanskir iðnjöfrar
Bandaríska tímaritið Forbes
Magazine segir að tveir auðugustu
menn veraldar séu báðir japanskir
iðnjöfrar og að meðal Japana sé nú
að finna fleiri milljarðamæringa en í
nokkru öðru landi að Bandaríkjunum
með,töldum.
Tímaritið segir að í Japan sé að finna
tuttugu og tvo milljarðamæringa en
aðeins tuttugu og einn í Bandaríkjun-
um.
Auðugastan allra manna segir tíma-
ritið vera Yoshiaki Tsutsumi en eignir
hans telur það nema um tuttugu og
einum milljarði Bandaríkjadala.
Tsutsumi stjómar Seibu jámbrauta-
samsteypunni en hún er stærsti
landeigandi í Japan, auk þess að eiga
golfvelli, skíðasvæði, homaboltalið og
eina af stærstu hótelkeðjum heims,
Prince hótelin.
Annar auðugasti maður veraldar,
að sögn Forhes, er Taikichiro Mori,
sem einnig er japanskur. Hann byrjaði
uppbyggingu auðs síns árið 1959 þegar
hann fékk í arf frá föður sínum land-
spildu eina og hóf brask með hana.
Nú á hann sextíu og fimm skrifstoíú-
byggingar í Tókýó.
Sá Bandaríkjamanna sem kemst
næst þessum auðjöfrum er Sam Moore
Walton, stofnandi Wal-Mart verslana-
keðjunnar. Auður hans er metinn á
litla fjóra og hálfan milljarð.
Þá segir Forbes að átta af tíu stærstu
fyrirtækjum utan Bandaríkjanna séu
japönsk.
Ihaldsflokkurinn áminnhir
vegna upplýsingasöfnunar
Haukusr L. Haukæon, DV, Kaupmannahöfe
Aðalritari danska íhaldsflokksins,
Torben Rcchendorf, hefur fengið
áminningu fi-á Poul Schlúter forsæt-
isræðisráðherra og Erik Ninn
Hansen dómsmálaráðherra fyrir að
hafa hvatt landshlutastjómir flokks-
ins til að safna upplýsingum, og þá
líka persónulegum, um óvinina eins
Og það heitir.
í kosningabandbók flokksins hefur
aðalritarínn skrifað að mikilvægt sé
að safha nýjurn upplýsingum um
frambjóðendur íhaldsflokksins og
annarra flokka. Er meðal annars um
að ræða upplýsingar um félagslega
stöðu, bameignir, atvinnu og tóm-
stundaáhuga.
Frótt um upplýsingasöfnun þessa
olli mildum styr í öðrum flokkum
og meðal sumi-a ihaldsmanna. Dóms-
málaráðherrann telur að hvatningin
í kosningahandbókinni geti auð-
veldlega misskilist og hrýnir fyrir
aðalritaranum að einungis megi
skrá opinberar upplýsingar um
greinar, ræður og skoðanir.
Poul Schlúter, forsætisráðherra og
formaður íhaldsflokksins, segir að
skráning upplýsinga og vinnsla
nafiiahsta og þess háttar eigi ekki
að eiga sér stað i stjómmálastarfi
þó svo að slíkt hfyóti ekki i hága við
log um skráningu upplýsinga. Fyrr-
nefnd áskorun var talin á mörkum
lagamta.
Lausnargjald fyrir
gíslana margfaldað
Lausnargjald það, sem ræningjar
tveggja Vestur-Þjóðverja í Beirút i
Líbanon fóm fram á, hefur nú verið
margfaldað að sögn fjöbniðla í
landinu. Upphaflega höfðu mannræn-
ingjamir krafist tveggja milljóna
v-þýskra marka en hafa nú fimmtán-
faldað kröfur sínar. Segja heimildir
að nú fáist gíslarnir tveir ekki látnir
lausir fyrir minna en þrjátiu miiljónir
marka.
Gíslarnir tveir em Rudolf Cordes og
Alfred Schmidt, sem teknir vom í
hverfi múhameðstrúarmanna í vestur-
hluta Beirút í janúarmánuði, skömmu
eftir að einn af leiðtogum shíta í Lí-
banon, Mohammed Ali Hamadei, var
handtekinn á flugvellinum í Frankfurt
í V-Þýskalandi. Hamadei var hand-
tekinn fyrir að hafa sprengiefni í fórum
Yoshiaki Tsutsumi, sem timaritið Forbes segir auðugasta mann veraldar,
stjórnar sjötíu fyrirtækjum með um þrjátiu og fimm þúsund starfsmönnum.
Simamynd Reuter
Einn af liðsmönnum Hizhollah (flokks guðs), flokksbrots í Libanon sem fylg-
ir íran að málum, les Time með Oliver North ofursta á forsíðu, með Ayatollah
Khomeini og aðra klerka shita i bakgrunni. simamynd Reuter
Metsölu-
bækur
á ensku
vikulega
í flugi.
titlar af
tímaritum
frá USA.