Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987.
15
Velferðarþjóðfélag
Þegar stjómarmyndunarviðræður
stóðu yfir á dögunum kom íram að
mikil þræta átti sér stað um skipt-
ingu ráðuneyta milli stjómarflokk-
anna þriggja. Þá kom ekki aðeins
fram hvaða ráðuneyti það voru sem
flokkamir sóttust eftir heldur líka
hvaða ráðuneyti það vom sem flokk-
amir sóttust ekki eftir. Talað var
um að einstakir ráðherrastólar
hefðu „lent í vanskilum" og Fram-
sóknarflokkurinn taldi stjómar-
myndunartilraunina vonlitla. Jón
Baldvin Hannibalsson skilaði um-
boði sínu til forseta íslands en eftir
tvo sólarhringa fannst vanskilastóll-
inn - fjórði stóllinn handa Fram-
sókn. Þá gat Framsókn farið í
ríkisstjómina og stóllinn var settur
undir Guðmund Bjamason sem er
vissulega alls góðs maklegur. En þá
kom líka í ljós að hann sat uppi með
ráðuneytið sem enginn vildi - heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
ið. í viðtölum kom fram að nýi
ráðherrann var heldur mæðulegur
yfir þessu ráðuneyti; þetta væri nú
ekki óskaráðuneyti hans og þegar
hann var spurður um það hvað væri
biýnast í heilbrigðismálum á íslandi
sagði hann: Að spara.
Málaflokkurinn er hornreka
Það er góðra gjalda vert að spara.
En afstaða flokkanna til heilbrigðis-
ráðuneytisins segir alvarlega sögu,
þá að enginn áhugi er á þessum
málaflokki - þar sem starfa þúsund-
ir manna og tugþúsundir sækja
þjónustu - innan stjómarflokkanna.
Þetta ráðuneyti og málaflokkur-
inn í heild er homreka, er í vanskil-
um.
Alþýðuflokkurinn - sem alltaf hef-
ur áður farið með tryggingamál
þegar hann hefur verið í ríkisstjóm
- sagði ekki ég.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur
farið með ráðuneytið þegar hann
hefur verið f ríkisstjóm eftir stofhun
KjaUaiinn
Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins, sagði ekki ég.
Og Framsóknarflokkurinn, sem
hefur aldrei komið nálægt heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytinu,
sagði ekki ég.
En vegna þess að stóllinn var í
vanskilum var Guðmundur Bjama-
son píndur til að setjast í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið.
í málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar em almenn orð um heilbrigðis-
mál sem er ekkert nýtt, en þar er til
dæmis ekki minnst á málefni aldr-
aðra sem forgangsverkefni.
Hornsteinn
velferðarþjóðfélags
Þetta áhugaleysi stjómarflokk-
anna á heilbrigðis- og trygginga-
málum hrópar í himininn. Það sýnir
ekki aðeins virðingarleysi við starfs-
fólk og sjúklinga heldur skilnings-
leysi á því að heilbrigðis- og
tryggingamálin em einn gildasti
homsteinn velferðarsamféfags á Is-
landi. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið hefur verið byggt
upp eftir 1970 undir myndarlegri for-
ystu Páls Sigurðssonar og hans
samstarfsmanna. Þau hafa veitt dug-
legum ráðherrum gott lið og hafa
jafnframt varið ráðuneytið fyrir
heiftarlegustu árásum ftjálshyggju-
og niðurskurðarmanna. Áhuga- og
skilningsleysi núverandi stjómar-
flokka á heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið kallar á varðstöðu
alls almennings um þennan mála-
flokk nú sem aldrei fýrr.
B-álman, minnismerki um
áhuga- og skilningsleysi
Fyrir nokkrum dögum var sýnd
kvikmynd í sjónvarpinu um Alz-
heimer-sjúkdóminn. Fjallað var um
vanda sjúklinga og aðstandenda.
Þessi mynd minnir á þá óhugnan-
legu staðreynd að lögin um málefiii
aldraðra, sem vom sett í okkar tíð
í heilbrigðismálaráðuneytinu, hafa
verið vanrækt. Minnismerki van-
rækslunnar er B-álma Borgarspítal-
ans í Reykjavík sem reist var í okkar
tíð í borgarstjóm og ríkisstjóm en
hefúr síðan staðið að mestu óhreyfð.
Svo virðist sem núverandi ríkis-
„Áhuga- og skilningsleysi núverandi
stjórnarflokka á heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu kallar á varðstöðu alls
almennings um þennan málaflokk nú
sem aldrei fyrr.“
í vanskilum
„Svo virðist sem núverandi rikisstjórn ætli að hlúa að þessu minnis-
merki enn um sinn: Með því að halda áfram að koma i veg fyrir það -
ásamt borgarstjóranum i Reykjavík - að B-álma Borgarspitalans verði
tekin í notkun.“
stjóm ætli að hlúa að þessu minnis-
merki enn um sinn: Með því að halda
áfram að koma í veg fyrir það -
ásamt borgarstjóranum í Reykjavík
- að B-álma Borgarspítalans verði
tekin í notkun.
Brýn þörf fyrir þjónustu við aldr-
aða annars vegar og hins vegar
B-álman og áhugaleysið á heilbrigð-
isráðunevtinu em hrópandi and-
stæður, sönnun þess að sérhyggjan
má sín meira en félagshyggjan, til-
litsleysið er öflugra en tillitssemin
við náungann. Með því verður fylgst
hvemig þessum málum reiðir af.
Frumkvæði fjöldans og
fjölmiðlanna
Nú kann einhver að halda að það
sé óumflýjanlegt að horfa upp á
stöðnun heilbrigðisþjónustunnar
næstu fjögur árin og ekkert sé hægt
að gera fyrr en skipt verður um
stjóm. Það er misskilningur. Það
þarf öflugt frumkvæði vakandi fjöl-
miðla - eins og sjónvarpsins sem
sýndi Alzheimer-myndina á dögun-
um - lifandi samtök aðstandenda og
þeirra sem skilja mikilvægi heil-
brigðisþjónustunnar og duglega og
ábyrga stjómarandstöðu - þá mun
jafnvel þriggja flokka stjóm verða
að taka tillit til aðstæðna. Þetta
aðhald Qöldans verður að skapa til
vemdar heilbrigðis- og trygginga-
málunum. Og það er ekki verra að
vita af því að það hefði örugglega
verið hægt að finna mikið lakari
mann til að gegna starfi heilbrigðis-
ráðherra en Guðmund Bjamason.
Honum skulu því sendar góðar óskir.
Svavar Gestsson
Forsætisráðherrastóllimi of dýr biti
Nú þegar ríkisstjóm Þorsteins
Pálssonar hefur verið mynduð er
ekki úr vegi fyrir þegna þessa lands
að reyna að gera sér grein fyrir þvi
hvers vænta má á komandi mánuð-
um. Eitt er vís. Skattheimta mun
stóraukast en mest á kostnað þeirra
er síst skyldi. Og þannig séð eru
sannleikskom í yfirlýsingum for-
svarsmanna stjómarmyndunarvið-
ræðnanna er þeir kölluðu hver
annan ósannindamenn og lygara í
fjölmiðlum því lítið er eftir af mörg-
um kosningaloforðum þeirra.
En hvað kostar þessi stjórn?
Framsókn heldur nær öllu sínu og
fær utanríkisráðuneyti og utanríkis-
viðskipti. Fyrir þetta lætur hún
forsætisráðuneyti af hendi þrátt fyrir
að allur þorri kjósenda hefði kosið
Steingrím Hermannsson áfram í
þeirri stöðu. Og fyrir aðrar breyting-
ar fær hún heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti.
Alþýðuflokkurinn kemur ágætlega
út úr þessum samningum og eftir
atvikum má hann vel við una. Þó
er því ekki að leyna að kosningalof-
orð flokksins og stefnuskrá hefur
rýmað til muna. Engu að síður nær
hann merkilegum umbóta- og vel-
ferðarmálum inn í samninginn en
einnig aukinni skattheimtu sem því
miður beinist að þeim er síst skyldi.
En fj ármálaráðuney ti, viðskipta-
ráðuneyti, Hagstofú íslands, dóms-
og kirkjumálaráðuneyti og félags-
málaráðuneyti hefur Alþýðuflokk-
urinn fengið á tombóluprís. Hann
getur því vel unað við sitt hlutskipti.
En þegar við spyrjum: Hvað fær
Sjálfstæðisflokkur í sinn hlut? Við
spumingunni getur svarið aðeins
orðið eitt - ekkert - ef undan er
skilið forsætisráðuneyti. Hann held-
ur reyndar samgöngu-, iðnaðar- og
KjaUaiiim
Sigurður
Arngrímsson
framkvæmdastjóri
menntamálaráðuneyti en gloprar
öllu öðm niður sem hann hafði.
Ef marka má málefnasamning og
stjómarsáttmála er svo til öllum
kosningaloforðum og stefnuskrá
flokksins kastað fyrir róða. Og þessi
blóðtaka veldur því að reynslulausir
menn em valdir til að fylla stólana.
Þetta er það gjald sem Sjálfstæðis-
flokkurinn verður að greiða til að
kaupa forystunni fylgi við þessa ein-
stæðu stjómarmyndun.
Lokaorð
En mér er spum: Hefur þjóðin efni
á þessum vinnubrögðum? Allir heil-
vita menn hljóta að sjá að hún hefur
það ekki og ömgglega ekki Sjálf-
stæðisflokkurinn. Og í framhaldi af
þessu getum við spurt: Af hverju
mátti ekki kanna samstarf við Borg-
araflokkinn?
Þegar Albert Guðmundsson rétti
fram sáttahönd lýsti hann þvi jafn-
framt yfir, fyrir hönd Borgaraflokks-
ins, að flokkurinn væri reiðubúinn,
í stórum dráttum, að starfa í þeim
anda sem fyrri stjórn starfaði. Ör-
uggt má telja að slík stjóm hefði
verið meira í anda þess sem þegnam-
ir kiósa sér og skattheimtan hefði
orðið mun minni.
Vissulega óska ég nýrri stjóm far-
sældar. Engu að síður óttast ég að
forsætisráðherrastólinn verði þjóð-
inni of dýr biti þegar upp er staðið.
„Hefur þjóðin efni á þessum vinnubrögð-
um? Allir heilvita menn hljóta að sjá að
hún hefur það ekki og örugglega ekki
S j álfstæðisflokkurinn. ‘ ‘
Og reynist það rétt má öllum ljóst fjöregg þjóðarinnar.
vera að þannig má engin versla með Sigurður Amgrímsson
„Vissulega óska ég nýrri sljórn farsældar. Engu aö síður óttast ég að forsætisráðherrastóllinn veröi þjóðinni
of dýr biti þegar upp er staðið."