Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Side 20
20 21 íþróttLr • Hallgrímur Jónsson. Glæsimet Hallgríms - í flokki 60 ára í kríngiu Hallgrímur Jónsson, íslandsmet* hafi í krínglukasti á árum áður, sem nú er sextugur að aldri, gerði sér lítið fyrir sl. sunnudag og kast- aði kringlunni 38,90 metra. Það er Islandsmet í flokki 60 ára og eldri, - langbesti árangur í þeim flokki sem náðst heftir hér á landi. Afrekið vann Haligrímur á inn- anfélagsmóti KR í Laugardal. Elías Sveinsson, sem er 35 ára, sigraði. Kastaði 40,30 metra. Hall- grímur varð annar með 38,90 m. I kúluvarpinu varpaði Elías 12,26 m, Hallgrímur 11,68 m. Þingeyingurinn Haligrímur Jónsson frá Kaxamýri var áður fyrr lengi í hópi bestu írjálsíþrótta- manna Isiands. Hann sétti íslands- met í kringlukasti, 56,05 m, 1964. Árangur hans á sunnudag hjá sex- tugum manni er mjög góður og Hallgrímur virðist hafa alla mögu- leika á að setja heimsmet í aldurs- flokknum. -hsím íslandsmet hjá Helgu Heiga Haiidórsdóttir setti nýtt íslandsmet í 400 metra grinda- hlaupi í gærkvöldi, hljóp á 57.57 sekúndum á heimsmeistaramóti stúdenta sem fram fer um þessar mundir í Zagreb í Júgóslavíu. Helga átti einnig gamia metið í greininni. -JKS Uwe Hohn er steinhættur - Kastar ekki spjóti framar Eins og lesendur DV sjá á upptaln- ingunni á bestu afrekunum í heimin- um í ár í spjótkasti hér annars staðar á síðunni, er þar ekki að finna nafn Austur-Þjóðverjans Uwe Hohn. Sem kunnugt er hefur enginn maður kastað spjóti lengra en Hohn sem nú hefúr tilkynnt að hann sé hættur að iðka íþrótt sína vegna þrálátra meiðsla í baki. Þetta tilkvnnti Hohn í gær, • Uwe Hohn kastar ekki spjóti fram- ar. aðeins þremur dögum fyrir 25. af- mælisdaginn. • Uwe Hohn vakti feiknalega at- hygli þegar hann setti nýtt heimsmet með gamla spjótinu, bætti fyrra heims- metið um rúma fimm metra og kastaði 104,80 metra, 20. júlí árið 1984. Nokkuð sem hverjum manni þótti ómögulegt. Það var ekki síst vegna þessa risa- kasts Austur-Þjóðverjans að ákveðið var að færa þyngdarpunkt spjótsins framar til að draga lir kastlengd kepp- enda. Spjótkastkeppni fer gjaman fram í öðrum enda íþróttavalla en óskapleg köst Uwe Hohn voru farin að ógna áhorfendum á hinum enda vallanna. • Uwe Hohn skaust fram á sjónar- sviðið 1981 er hann varð Evrópumeist- ari í unglingaflokki og ári síðar sigraði hann í fullorðinsflokki sama móts í Aþenu. Þá fóru meiðsli að setja strik í reikninginn. Árið 1983 keppti hann aldrei og árið eftir missti hann af OL í LA vegna ákvörðunar austur blokk- arinnar um að hundsa leikana. Árið 1985 varð hann heimsmeistari og Evr- ópumeistari. Hann náði aldrei að kasta nýja spjótinu að ráði og hyggst nú einbeita sér að þjálfun spjótkast- ara. -SK Gould sljóri hjá Wimbledon Bobby Gould, sem lék með Arsenal hér á Laugardalsvellinum á árum áður og var einnig kunnur miðherji hjá Úlfunum og Coventry, hefur verið ráð- inn stjóri enska l.deildarliðsins Wimbledon. Kemur hann í stað Dave Bassett sem stjóri hjá Lundúnaliðinu en Bassett ræður nú ríkjum hjá félagi Eltons John, Watford. Siðustu árin hefur Bobby Gould verið stjóri Bristol Rovers eftir að hann var látinn hætta störíúm sem slíkur hjá Coventry. Við stöðu hans hjá Rovers tekur annar kunnur kappi, Gerry Francis, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins. Hann lék lengstum með QPR en einnig hjá Bri- stol-liðinu undir stjóm Gould. Hann er aðeins 35 ára og því möguleiki á að hann leiki einnig með Rovers. Francis var valinn úr hópi 10 umsækj- anda sem sóttu um starfið. -hsím Björgvinvann í 8. skiptið - á meistaramóti GA • Verðlaunahafar á Mitsubishimótinu ásamt Skúla Ágústssyni, eiganda Höldurs sf. Kristján hlutskarpastur - á Mitsubishi goifmótinu á Akureyri Gyffi Kri3tjáiisscn, DV, Akureyri; Kristján Hjálmarsson, kylfingur frá Húsavík, varð sigurvegari á Mitsubis- hi-open golfrnótinu sem fram fór nýverið á Akureyri. Kristján sigraði í keppni án forgjafar og lék á 149 högg- um. Sverrir Þorvaldson, GA, varð í öðm sæti á 155 höggum og Sigurður Haf- steinsson, GR, þriðji á 156 höggum. • I keppninni með forgjöf varð Egg- ert Eggertsson, GA, hlutskarpastur á 131 höggi, Pétur Hr. Sigurðsson, GA varð annar á 136 höggum og Kristján Hjálmarsson, GH, þriðji á 139 höggum. • Höldur h/f gaf öll verðlaun til mótsins og lagði auk þess til bifreið sem ekki gekk út. Fjölmörg aukaverð- laun voru í boði en þess má geta að Jón Aðalsteinsson, GA, varð næstur holu á 18. braut og hlaut Mitsubishi bílasíma að launum. -SK Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: Björgvin Þorsteinsson sigraði á meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar sem fram fór um helgina og er þetta í 8. skipti sem hann fer með sigur af hólmi. Björgvin setti vallarmet á fyrsta degi og náði strax afgerandi forystu. Hann lék á 306 höggum. Annar varð Þórhallur Pálsson á 315 höggum og þriðji Kristján Hilmir Gylfason á 316 höggum. • Inga Magnúsdóttir sigraði í kvennaflokki og vann einstakt afrek. Sigur Ingu var sá níundi í röð. Inga lék á 363 höggum og var í algerum sérflokki í meistaraflokki kvenna. • Gunnar Sólnes vann í 1. flokki karla á 328 höggum. • Óli Magnússon sigraði í 2. flokki karia á 348 höggum. • I 1. flokki kvenna sigraði Aðalheiður Alfreðsdóttir á 430 höggum. • Ragnar Steinbergsson sigraði í öldun- gaflokki á 287 höggum. • Eggert Eggertsson vann unglinga- flokkinn á 337 höggum. • Þórleifúr Karlsson sigraði í drengja- flokki á 339 höggum. • Oddur Jónsson bar sigur úr býtum í 3. flokki karla á 380 höggum. • 14. flokki sigraði Guðjón Guðmunds- son á 423 höggum. • Bryndís Kristjánsdóttir lék á 260 höggum í 2. flokki kvenna og sigraði. • Alls tóku 80 manns þátt í mótinu sem var það 50. í röðinni. _gj{ íþróttii • Einarvn- hjálmsson, sem setti glæsilegt Norðurlandamet á Húsavík um helgina, er ellefti best spjótkastari i heimi í dag. Einar er bjartsýnn á enn betri árangur i sumar. - TVeir íslendingar á lista yfir 20 bestu spjótkastara í heimi Afreksmennimir Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einarsson eru báðir á meðal tuttugu bestu spjót- kastara heimsins. Þetta kemur fram á glænyjum afrekalista bestu spjótkastara heims sem birtur var í gær. Sem kunnugt er setti Einar Vilhjálms- son nýtt Norðurlanaamet á landsmótinu á Húsavík um síðustu helgi er hann kastaði 82,96 metra. Þessi glæsilegi árangur fleytti Einari í ell- efta sætið á heimslistanum. . li Aiív • Siguróur Einarsson er sem stendur átjándi besti spjótkastari heims. Sigurð- ur hefur verið i mikilli framför undanfar- ið og á eflaust eftir að gera enn betur í framtíðinni. Heimsmethafinn, Jan Zelezny frá Tékkóslóvakíu, er vitanlega í efsta sæti listans en heimsmet Tékkans er 87,66 metrar þannig að Einar vantar aðeins 4,70 metra í heimsmetið. Sigurður Einarsson í átjánda sætinu Sigurður Einarsson er einnig á um- ræddum lista og vermir átjánda sætið. Er þetta í fyrsta skipti sem tveir íslensk- ir spjótkastarar eiga sæti á þessum merka lista og sýnir vel snilli Einars og Sigurðar. Þá vekur athygli að aðeins þrír Norðurlandabúar eru á listanum, auk okkar manna Dag Wennlund frá Svíþjóð sem Einar tók Norðurlandamet- ið af á Húsavík. Listinn yfir tuttugu bestu spjótkastara í heimi lítur annars þannig út: 1. JanZelezny.Tékkóslóvakíu 2. KlausTafelmeier, V-þýskal 3. Michael Hill, Bretlandi. 4. Viktor Yevsyukov, Sovétr... 5. Lev Shatilo, Sovétr..... 6. KazuhiroMizoguchi, Japan 7. Roald Bradstock, Bretl.. 8. Sejad Krdzalic, Júgósl.. 9. Tom Petranoff, USA...... 10. Brian Crouser, USA..... 11. EinarVilhjálmsson.Isl... 12. Duncan Atwood, USA..... 13. DagWennlund,Svíþjóð.... 14. GeraldWeiss, A-Þýskal.. 15. Sergey Gavras, Sovétr. ...87,66 ...86,68 ...85,24 ....85,16 ....84,30 ....84,16 ....83,84 ....83,34 ....83,22 ....83,00 ....82,96 ....82,74 ....82,64 .81,76 .81,74 16. Detlef Michel, A-Þýskal.....81,56 17. Nicu Roaata, Rúmeníu........81,16 18. SigurðurEinarsson,Islandi....:..80,84 19. VolkerHadwig, A-Þýskal......80,74 20. Heine Puuste, Sovétr........80,62 Vantar lítið upp á enn betri sæti Eins og sést á listanum hér að ofan er í mörgum tilfellum lítill munur á köstur- unum og til að mynda vantar Einar Vilhjálmsson aðeins 1,34 metra i fimmta sætið. Og Sigurð Einarsson vantar að- eins 2,12 metra í ellefta sætið sem Einar situr í. Geta bætt sig enn frekar í framtíðinni Af framansögðu má ljóst vera að þeir félagar eiga að geta gert enn betur í framtíðinni. Sjálfúr hefúr Einar lýst því yfir að hann hafi sjaldan eða aldrei ver- ið í svo góðri æfingu sem nú en eins og fram hefur komið í DV hefúr hann alger- lega sloppið við meiðsli í nokkuð langan tíma. Sigurður Einarsson á mikið inni, að sögn fróðra manna. Það verður því gam- an að fylgjast með þeim félögum í spjótkasti í náinni framtíð. -SK Einar ellefti besti heimi Bj örgvin Þorsteinsson og Inga Magnúsdóttir báru sigiu- úr bytum á meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar sem fram fór um síðustu helgi. Björgvin lék mjög vel og vann sigur á mótinu í 8. skipti. Inga bætti um betur og sigraði á 9. mótinu í röð. Hefur hún lengi verið í nokkrum sérílokki í meistaraflokki kvenna fyrir norðan. DV-mynd Gylfi Kristjánsson/Akureyri „Þá var ég órakaður og óhvíldur eins og sagt er‘1 - Eðvarð Þ. Eðvarðsson á 15. besta tímann í 100 metra baksundi Rotff áfram í Bayer Leverkusen Ekkert verður af því að þýski lands- liðsmaðurinn Wolfgang Rolff leiki með ítalska liðinu Avellino næsta keppnis- tímabil, að því er talsmaður Bayer Leverkusen skýrði frá í gær. Rolff hafði náð samkomulagi við Avellino um kaup og kjör. Hins vegar vildi Bayer Leverk- usen fá 2,8 milljónir marka fyrir leik- manninn, tæpar 60 milljónir króna, en Avellino vildi ekki borga rneira en 2,2 raillj.marka. -hsím Klaus Tafel- meier kast- aði 86,64m Vestur-þýski spjótkastarinn, Klaus Tafelmeier, náði mjög góðum árangri á vestur-þýska moistaramótinu í gær- kvöldi. Tafelmeier sigraði í spjótkastinu og kastaði 86,64 metra Sem er þriðja lengsta kastið í heiminum í ár. Tafelmei- er hefúr kastað fjórum sentimetrum lengra í ár, 86,68 metra. -hsím/-SK. „Ég náði þessum tíma á alþjóðlegu sundmóti í Edinborg fyrir tveimur mánuðum síðan. Ég var þá óhvíldur og órakaður eins og sundmenn orða það. Undir venjulegum kringumstæð- um á ég að geta bætt tímann enn betur,“ sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson í samtali við DV. Nýlega var birtur listi yfir bestu sundafrekin í heiminum fyrstu sex mánuði ársins og kemur þá fram að Eðvarð Þór á fimmtánda besta tímann í 100 metra baksundi, 58.10 sekúndur. Eins og kom fram í máli Eðvarðs hér á undan, náði hann þessum tíma þreyttur og ætti því góða möguleika á að bæta tímann á þeim mótum sem framundan eru á næstunni. Eini frá Norðurlöndum meðai þeirra bestu Bandaríkjamaðurinn Mark Tewks- bury hefur náð bestum tíma í ár í þessari grein, tímanum 55.97 sekúnd- um sem er jafnframt bandarískt met. I öðru sæti er Dirk Richter frá Austur- Þýskalandi á 56.57 sekúndum og í þriðja sæti er Sergey Zabolotnov frá Sovétríkjunum á 56.78 sekúndum. Eð- varð Þór er eini Norðurlandabúinn H sem kemst í hóp þeirra bestu. I hópi bestu baksundsmanna í heiminum Engum blöðum er um það fletta að Eðvarð Þór er kominn í hóp allra fremstu baksundmanna í heiminum en að baki þessum árangri liggja þrot- lausar æfingar sem eru famar að skila árangri svo um munar. Að vera kom- inn í hóp bestu sundmanna í heiminum er talandi dæmi. Eðvarð Þór á meðal annars Norðurlandamet í 200 metra baksundi sem er 2:03.03 sem hann setti á Heimsmeistaramótinu í Madrid í fyrra. Evrópumeistaramótið næsta stórverkefnið „EvTÓpumeistaramótið í Strassborg í Frakklandi sem haldið verður í ágúst, er stærsta verkefnið sem frarn- undan er og stefni ég að sjálfsögðu á að gera mitt besta á þvi móti. Það fer eftir forminu hverju sinni hvaða ár- angri maður nær á Evrópumótinu en þar verður við ramman reip að draga þvi þar verða samankomnir bestu sundmenn Evrópu." sagði Eðvarð Þór ennfremur. Tekur hvíld frá skólagöngu næsta vetur „Ég hef sett mér það takmark að vera í toppformi þegar Ólympíuleikamir hefjast i Seoul á næsta ári og til að leggja enn meiri áherslu á góðan árangur þar, hef ég ákveðið að taka taka mér hvíld frá skóla- göngu næsta vetur. Þetta ákvað ég að vel athuguðu máli en annað er ekki hægt ef ég á að ná toppárangri," sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson að lokum. Um næstu helgi fer fram Sundmeistara- mót Islands og verður Eðvarð Þór meðal keppenda ásamt okkar fremsta sundfólki. Eðvarð Þór hefúr ákveðið að synda þá 1500 metra baksund en það hefur ekki áður verið synt hérlendis. Einnig ætlar hann að synda 400 metra fjórsund og hefur jafhframt lofað meti í því sundi. Ánnars segist Eðvarð Þór líta ó þetta mót sem æfingamót hvað sig varðar. Þess má að lokum geta að Eðvarð Þór er í efsta sæti í karlaflokki í Bikarkeppni einstaklinga, hefúr samtals hlotið 4449 stig í þeim mótum sern hann hefur tekið þátt í vetur. 1 kvennaflokki er Ragnheiður Runólfsdóttir efst með 3947 stig samtals. -JKS • Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundmaðurinn snjalli úr Njarðvikum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.