Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1987, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987. Erlend myndsjá Steinninn yngdist Kafarar þeir, sem í síðustu viku fundu bjarg við höfnina á Rhodos og héldu það væri hnefinn af stytt- unni af Kolosusi, einu af sjö undrum veraldar til foma, horfa nú daprir á klettinn sem venjulegt grjót. Hún Melina Mercori, fyrrum kvikmyndastjama og nú mennta- málaráðherra Grikklands, sagði það strax að um misskilning væri að ræða. Rannsókn leiddi enda í ljós að förin á steininum væm eft- ir skurðgröfu og að honum hefði verið fleygt í hafið fyrir þrem árum. Mikið byggt á Manhattan New York er í dag talin draumaborg húsasmiða því hvergi í heiminum er byggt jafnmikið eða jafnhátt. Á Man- hattan-eyju einni saman em nú í byggingu sextíu og sex háhýsi, þrjátíu og fimm hæða eða meir. Að vísu em framkvæmdir þessar vegfarendum til ama og leiðinda en afraksturinn er glæsilegur eins og sjá má af spírunni á Reutermyndinni sem hér fylgir. Geimverur enn á ferð Þær em um fjögur fet að hæð, með gríðarstór augu og hvelfd höfuð. Þær koma úr hinum enda vetrarbrautarinnar og gætu átt það til að ræna þér. Þessi lýsing á að sjálfsögðu við um verur utan úr geimnum. Fyrir fjömtíu árum greip um sig geimvemæði mikið, sem nú er að rísa að nýju, eftir talsvert hlé. Undanfarið hefur komið út mikið af bókum um geimverur og eina þeirra prýða teiknaðar myndir af verum sem heimildarmenn höfundar hafa séð, oft og mörgum sinnum. I bókunum er talað við hundmð manna sem geimverur hafa rænt, rannsakað og skilað aftur. Öll þessi vitni segja að sjálfsögðu „alveg satt“, en því miður getur ekkert þeirra staðfest sögu sína. Ekkert þeirra tilkynnti ránið á sér til yfirvalda þegar það átti sér stað. Engu að síður halda útgefendur bókanna fast við þá fullyrðingu að um virðuleg fræðiskrif sé að ræða. Dæmi svo hver fyrir sig. Nei, hann er ekki að ieita að verum utan úr geimnum, þessi. Þetta er hann Richard Lawrence, helsti krókódílabani Florída, sem löngu er orðinn vel þekkt- ur fyrir baráttu sín við þessi ótó. Þegar fólk verður krókódíla vart tilkynnir það Richard um og hann fer á stúfana í þvi augnmiði að ná dýrinu, dauðu eða lifandi. Yfirvöld Florida telja nauðsynlegt að bregðast fljótt og vel við slíkum tilkynningum þar sem stærri krókódílar ógna ekki aðeins mannslifum heldur sjálfum túristaiðnaðinum sem auðvitað er mun alvarlegra mál. Richard er hér að kikja eftir krókódíl í holræsi og vonandi er þefskyn hans ekki of við- kvæmt. Frægðin er ekki öll tekin út með sældinni. Ljúft líf í Beirút Innan um tugþúsundir stríðs- hijáðra, heimilislausra og svelt- andi, má enn finna í Beirút fólk sem nýtur þæginda og hóglífis og lætur þjáningamar ekkert á sig fá. Enda ef til vill gott að einhver geti brosað þótt kúlumar fjúki. Fangar á eigin heimilum vegna samvinnu við hvíta Þessi suður-'dfríski blökkumaður er ekki fangi, að minnsta kosti ekki í neinu af fangelsum stjómvalda þar í landi. Hann er bæjarráðsmaður i einu af úthverfum blökkumanna við Jóhannesarborg og er, vegna þeirrar sam- vinnu við hvíta, talinn svikari við málstað bræðra sinna. Stjómvöld hvítra sjá honum því fyrir öryggisgirðingu um heimili sitt, sem og vopnuðum verði, sem vakir dag og nótt yfir öryggi hans. Lögfræðingur Goetz rændur á götu Flestir muna líklega eftir Bemhard Goetz, sem nýlega var sýknaður af ákærum um morðtilraun og líkamsár- ás, eftir að hafa skotið þrjá unga blökkumenn, sem hann taldi ætla að ræna sig i neðanjarðarbraut i New York. Lögfræðingur hans þótti taka vel á vöminni og hefur nú fengið enn einá staðfestingu þess að almennir borgarar geta þurft að verja hendur sínar í stórborginni. I síðustu viku var nefnilega á hann ráðist og hann rænd- ur, um hábjartan dag. Ætli hann skilji ekki skjólstæðing sinn enn betur en áður?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.