Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
Fréttir dv
Eurocard:
Allir skHvísir geta
fengið gullkort
- viðskiptabankamir ráða hjá Visa
„Skilyrði þess að fá gullkort frá
Eurocard eru þau að hafa veriö með
almennt kort frá fyrirtækinu síðast-
liðna 12 mánuði og hafa ávallt staðið
í skilum," sagði Gunnar Bæringsson
hjá Kreditkortum hf.
„Við setjum ekki upp neina lág-
marksúttektarheimild á kortunum,
aðalatriðið er að fólk hafi gert upp
reikninga sína á réttum tíma.
Við gefum ekki upp hversu margir
Júlia Imsland, DV, Höfm
Flestir kannast við orðatiltækið að
stela öllu steini léttara. En varla á
þaö orðatiltæki við um sýslustein
þeirra Austur-Skaftfellinga sem stóð
á vesturmörkum sýslunnar því nú
hafa fengið gullkort hjá fyrirtækinu
né hversu mörgum við höfum boðið
slík kort,“ sagði Gunnar.
Hjá Visa ísland gegnir öðru máli.
Samkvæmt upplýsingum Margrétar
Ólafsdóttur, deildarstjóra hjá fyrir-
tækinu, býður Visa ísland engum
gullkort heldur eru það viðskipta-
bankar hvers og eins sem sækja um
gullkort fyrir viðskiptavini sína.
Visa ísland afgreiðir síðan umsókn-
segja vegfarendur, sem leið eiga um
Skeiöarársand, að steinninn sá stóri
og þungi sé horfmn. Hefur mönnum
helst dottiö í hug að einhver ákafur
steinasafnari, sem hyggst koma sér
upp sýslusteinasafni, muni vera
valdur að hvarfi steinsins.
imar samkvæmt óskum bankanna.
„Aðalreglurnar hjá okkur eru þær
að fólk hafi verið með almennt kort
síðastliðna 18 mánuði. Úttektar-
mörkin eru 200 þúsund krónur
innanlands og 5000 dollarar erlendis.
Stefnan hjá okkur er sú að gullkortin
verði ekki notuð innanlands heldur
að þau verði fyrst og fremst til notk-
unar fyrir fólk á ferðalögum erlend-
is.“
Landssamband íslenskra útvegs-
manna sendi á dögunum ráðamönn-
um fiskmarkaðanna í Þýskalandi
þrjár spurningar varðandi stjórnun
á löndun skipa, hafnargjöld og tölvu-
vogir á fiskmarkaðnum. Þjóðverjar
hafa nú sent svar við þessum spurn-
ingum.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar
hjá Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna sögðu Þjóðverjar að þeir
gætu ekki stjómað löndunum þýsku
togaranna. Undanfarið hefði afli
þeirra verið góður og því hefði of
mikill afli borist aö á sama tíma sem
verður til þess að verðið lækkar.
Þetta segja þeir aö geti endurtekið
sig ef vel veiðist.
Varðandi löndunargjoldin voru
svörin þau aö ekki stæði til að hækka
þau nema ef almennar hækkanir
ættu sér stað í landinu.
Um það hvort tölvuvogum yrði
Undanfarnar vikur hafa verið við-
ræður milli Kreditkorta hf. og Visa
ísland um notkunarreglur á gull-
kortum. Samkvæmt upplýsingum
Leifs Steins Elíssonar, aðstoðarfor-
stjóra Visa ísland, er niðurstöðu af
þeim viðræöum að vænta nú í vik-
unni.
-J.Mar
komið upp á mörkuðunum sögðu
Þjóðverjar að til stæði að setja bók-
hald þeirra í tölvu og verið væri að
kanna hvort hægt væri að tengja
vogir við það kerfi. Ekkert hefði ver-
ið ákveðið í þeim efnum.
Vilhjálmur sagði að nýlega heföi
ein kvörtun borist til Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna vegna
vigtunar á þýska markaðnum. Aftur
á móti væri eins og íslendingar hefðu
orðið tröllatrú á tölvuvogum.
Aö sögn Vilhjálms er þýski fisk-
markaðurinn mjög viðkvæmur
ennþá. Togarinn Bessi ÍS seldi þó
fyrir sæmilegt verð í gær. Hann fékk
50,20 krónu meðalverð fyrir karfa.
Afli skipsins var 157 lestir en af því
magni reyndust 24 lestir vera ónýtar.
Meðalverðið fyrir þann hluta sem
reyndist í lagi voru 57 krónur fyrir
kílóið.
-S.dór
Tómas Gunnarsson lögfræó-
ingur hefur tekið saman lög-
fræðilega greinargerð fyrir
samtökin Tiörnin lifi. í greinar-
gerðinni kemst Tóma9 aö þremur
megmniðurstöðum.
í fyrsta lagi aö þar sem engar
skráðar heimildir finnist um
eignarheimildir á Tjöminni verði
að byggja á Vatnalögunum varð-
andi eignarrétt. 1 þeim segir
meðal annars að vatn9botn fylgi
þeim bakka er hann sé talinn
framhald af og ekki megi hrófla
við botni vatnsins nema allir eig-
endur þess séu því samþykkir.
í öðru lagi aö samkvæmt lögum
sé bannað að hrófia viö aöal-
skipulagi og deiliskipulagi sem
búiö sé að auglýsa, kynna og sam-
þykkja. Fyrirhuguðu ráðhúsi
hafi hins vegar verið skellt inn í
skipulagið ári eför að það var
samþykkt
í þriöja lagi kemur fram aö
mikiö skorö á grenndarkynningu
þvi að íbúum nærliggjandi húsa
hafi ekki verið kynnt ráöhús-
byggingin á lögformlegan hátt.
Einnig kemur frara í greinargerð*
inni að náttúruverndarlög hafi
veriö brotin svo og lög um þjóö-
minjar. -J.Mar
,JÞað er af og frá aö ég ræöi
greinargerð sera ég hef ekki séð.
En frá mínun. bæjardyrura séð
leíkur enginn vafi á því að borgin
á rétt á því að byggja ráðhús við
Tjönúna,“ sagði Magnús Óskars-
son borgarlögmaður.
„Þetta er einhver skammdegis-
brandari aö fara allt i einu að
velta því upp hver eigi Tiömina.
En borgin hefur þrælskoðaö þetta
mál og hún er ekki að flana að
neinu. Að mínu mati er engin leið
að búa til neina lögfræöiþvælu
úrþessumáii.“ -J.Mar
Þessi myndarlegi steinn stendui á austurmörkum sýslunnar. Steinninn, sem
hvarf af vesturmörkunum, er sams konar og því engin smásmíði.
DV-mynd Ragnar Imsland
Austur-Skaftafellssýsla:
Sýslusteinninn hovfinn
Fiskmarkaðurinn í Þýskalandi:
Þjóðverjar svara
spurningum
útvegsmanna
í dag mælir Dagfari
Ameríkanar í
Þær fréttir berast frá Bandaríkjun-
um að forsetinn geti ekki skipað
menn í Hæstarétt vegna þess að þar
finnist enginn með óflekkað mann-
orð. Sama máh gegnir um forseta-
frambjóðendur. Þar eru menn ekki
fyrr búnir að tilkynna framboð sín
en þeir verða að draga þau til baka
vegna synda sem þeir hafa drýgt á
lífsleiðinni. Nú er það nýjast aö
bæði forsetaframbjóðendur og
verðandi hæstaréttardómarar játa
á sig maríhúananeyslu einhvern
tímann í æsku og tveir forseta-
frambjóðendur hafa játað á sig
sama glæp og orðið að draga sig í
hlé úr forsetaslagnum.
Þá er þess skemmst að minnast
að Gary Hart þurfti að hætta við
framboð eftir að hann hafði sést
með kvenmanni sem hann hafði
kannski sofið hjá eða hefði getaö
sofið hjá ef hann heföi viljað. Ann-
ar frambjóðandi dró sig í hlé þegar
upplýst var að hann hefði flutt
ræðu sem áður hafði verið flutt af
öðrum manni og svo var þriðji
frambjóðandinn að gefast upp þeg-
ar í ljós kom að einn af stuðnings-
mönnum hans haföi lekið út þeirri
fétt að hinn frambjóðandinn heíði
flutt ræður sem annar hefði flutt.
Fjölmiðlarnir velta sér upp úr
þessu og árangurinn er sá að nú
er ekki þverfótað í Bandaríkjunum
fyrir fyrrverandi tilvonandi fram-
bjóöendum, sem hafa orðið upp-
vísir að syndugu atferli eins og því
að hafa sést með öðrum konum en
eiginkonum sínum, haldið annarra
manna ræður eða kjaftað frá því
sem ekki á að kjafta frá. Fjölmiðl-
arnir eru auðvitað sólgnir í að
heyra allar kjaftasögurnar og
ávirðingarnar en bregðast svo hin-
ir verstu við þegar sagt er frá því
hver hefur lekið kjaftasögunum.
Það má sem sagt hvorki falla fyrir
freistingu, né heldur segja frá því
að aðrir falli fyrir freistingum.
Hvorutveggja kallar yfir viökom-
andi fordæmingu og hneykslan
þeirra sem ganga lengst í því að
velta sér upp úr hneykslunum.
Af þessu má sjá aö það er vandlif-
að í Bandaríkjunum, fyrir þá sem
vilja komast til valda. Ekki bætir
það úr skák að það varðar líka við
almennignsálitið að hafa skoðanir.
Bork nokkur, sem tilnefndur var
sem hæstaréttardómari og enginn
gat fundið út að hafi reykt hass eða
sofið hjá öðrum konum en eigin-
konu sinni, né heldur lekið kjafta-
sögum, var felldur á þinginu fyrir
að hafa skoðanir á málum sem
hann hafði dæmt.
Nú er svo komið að menn mega
ekki vera breyskir í æsku, ekki
veikir fyrir konum, ekki halda
ræður annarra manna og ekki
segja frá því að aðrir menn hafi
haldið ræður annarra manna. Þeir
mega heldur ekki hafa skoðanir
sem öðrum er illa við. Þá eru þeir
samstundis útskúfaðir frá völdum
og mannvirðingum í þessu guðs
vanda
heilaga og syndlausa landi. Enda
er nú leitun á mönnum sem þora
að gefa kost á sér til kosninga af
ótta við að pressan grafi upp æsku-
brek og víxlspor í prívatlífinu sem
þeir hafa sjálfir gleymt og grafið. í
hvert skipti sem einhver er nefnd-
ur sem álitlegur frambjóðandi og
sá hinn sami afþakkar heiðurinn
og framboðið segir pressan aha og
lítur á það sem viöurkenningu á
aö maðurinn viti upp á sig ein-
hverja sök.
Nú er það flestum ljóst að þeir
eru fáir og af síðustu sort sem ekki
hafa einhvern tímann á ævi sinni
fallið fyrir freistingu. Þó ekki væri
nema að skrökva eða svindla sér í
bíó sem er bannað börnum. Skárri
væri það nú auminginn sem heföi
mannoröiö svo óflekkaö að hann
þurfi ekki á syndakvittun aö halda.
En það er alveg greinilegt að
Bandaríkjamenn hafa ákveðið að
fela engum trúnaðarstörf nema lið-
leskjum og englabörnum. Næsti
forseti Bandaríkjanna verður
sennilega svo hvítþveginn og full-
kominn að það verður álitamál
hvort hann yrði ekki hæfari sem
páfi eða postuli í stað þess að feta
í fótspor Kennedys Nixons og Reag-
ans sem flinkastir hafa verið í því
að gera það sem ekki má.
Hvað mundi verða um íslenska
stjórnmálamenn og hæstaréttar-
dómara ef þeir þyrftu að skrifta
fyrir þjóðinni um syndir sínar áður
en þeir brjótast til metorða?
Vonandi kemst íslenskt siðferði
aldrei á það stig að bannfæra
frammámenn sína fyrir að vera
mennska.
Dagfari