Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987. Viðskipti____________________________________________________________________________ðv Gott mál í Rotterdam Verölækkun upp á nokkra dollara hefur orðiö á unnum olíuvörum í Rotterdam frá því í síðustu viku. Þaö er gott mál. Sérstaklega hvaö verð á gasolíu snertir. Á þessum árstíma hefur gasolían oft hækkað í verði þegar menn birgja sig upp fyrir vet- urinn. En nægilegt framboð er á olíu um þessar mundir. Það eru allar birgðageymslur fullar og svo virðist sem menn hafi birgt sig upp af gasol- íu hægt og hljótt. Tíöarfarið hefur jafnframt verið hagstætt í Evrópu. Tonnið af bensíni, venjulegu, fæst nú á 161 dollar í Rotterdam. Það var selt á um 166 dollara í síðustu viku. Lækkunin er því 5 dollarar. Bensín, súper, fæst nú á um 181 dollar tonn- ið, en í síðustu viku var veröið um 185 dollarar. Tonnið af gasolíu fæst nú á 160 dollara í Rotterdam, en það var selt á 164,50 dollara í síðustu viku. Ánægjuleg verðlækkun á árstíma þegar verðiö hefur tilhneigingu til að hækka. Hráolíuverðið í Rotterdam hefur einnig lækkað að undanfórnu. Verð tunnunnar er nú um 18 dollarar í stað 19 dollara í síðustu viku. Skref niður um einn dollar. Stöðugt verð á bensíni, gasolíu og hráolíu í Rotterdam og hvað þá smá verðlækkun síðustu daga eru ánægjuleg tíðindi fyrir okkur íslend- inga. Það þýðir að innkaupsverð okkar á bensíni og gasolíu er ekki að hækka. Von er því á stöðugu veröi hérlendis á næstunni, svo fremi sem íslenska ríkið hækkar ekki hlut sinn í bensíni og öðrum olíuvörum. Verð á áli á markaðnum í London er enn að snarlækka. Tonnið er nú komið niður í 926 sterlingspund. Það var í síðustu viku 1012 sterlingspund. Og í þessum pistli fyrir fjórum vikum mátti sjá að tonnið var komið upp fyrir 1250 sterlingspund og álfram- leiðendur voru ánægðir. Tonnið af áli var selt á innan viö 1000 sterlingspund á markaðnum í London fyrir rúmum þremur mán- uðum. En svo tók eftirspurnin að vaxa og verðið hækkaði. Nú er greinilegt að álmarkaðurinn er kom- inn í sama horf og áður, er til uppsveiflunnar kom. Hluti af skýringunni á lægra ál- verði er aukið framboð af áli sem varð þegar ljóst var að eftirspurnin hafði aukist og verðið hækkað. Verk- smiðjur sem búiö var að loka voru ræstar aftur. Þá er ál mikil dollara- vara og hefur veik staða dollarans að undanförnu haft sín áhrif til lækk- andi verðs á áli. -JGH Verð á erlendum mörkuðum Berasín og olía Verð í Rotterdam, fob., 10. nóv. Bensín, venjul..161,50$ tonnið, eða um......4,53 ísl. kr. lítrinn. Bensín, súper...181,50$ tonnið, eða um......5,06 ísl. kr. lítrinn. Gasolía............160$ tonnið, eða um......5,02 ísl. kr. lítrinn. Hráolía Verð í Rotterdam, fob„ 10. nóv. Um..........18 dollarar tunnan, eða um......664 ísl. kr. tunnan. Verð á áli heldur áfram að lækka og það ekki i neinum smástökkum. Þeir brosa því ekki mjög blitt i Straumsvík þessa dagana eftir miklar verð- hækkanir síðustu vikurnar. Peningamarkaður________________________________________pv Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með.8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn- legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóðum eöa almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 23% og ársávöxtun 23%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérs- taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttckt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Vextir færast hálfsárslega. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán- uði á 28,5% nafnvöxtum og 30,5% ársávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs- árslega. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og 32,2% ársávöxtun. Verótryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð- tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega á höfuðstól. 18 mánaóa bundinn reikningur er með 31% nafnvöxtum og 31% ársávöxtun. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 29% nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun. Af óhreyfö- um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast 30,4% nafn- vextir (ársávöxtun 32,7%) eftir 16 mánuði og 31% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 33,4%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær- ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 19%, eftir 3 mánuði 22%, eftir 6 mánuði 28%, eftir 24 mánuði 30% eða ársávöxt- un 32,3%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaöa verö- h'yggðum reikningum gildir hún um hávaxta- reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 29% nafn- vexti og 31,1% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislega. Af útttekinni upphæö reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 29,96% (ársávöxtun 31,51%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni bætt við höfuðstól, en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 20%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tek- ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá í 31,96-33,93%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin- reglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjórðung, ber 27,5% nafnvexti, kaskóvexti, sem gefur 30,47% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara „kaskókjara”. Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í ársfjórðungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef hún stendur óhreyfð út fjórðunginn. Reikning- ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil- yrðum. Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svoköll- uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa 32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð- trY99Öa ávöxtun, og ræöur sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu bundna í 18 mánuöi óverðtryggða á 32% nafn- vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma- bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfiröi, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð- tryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins getur numið 2.755.000 krónum á 4. ársfjórð- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.350.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum, algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir I einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagð- ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn- ir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum veröur innstæðan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel oröið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán- uði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð- ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,8% á mánuði eða 45,6% á ári. Vísitölur Lánskjaravisitala í nóvember 1987 er 1841 stig en var 1797 stig i október. Miðað er við grunninn 100 í júni 1979. Bygglngarvísltala fyrir nóvember 1987 er 341 stig á grunninum 100 frá 1983, en 106,5 á grunni 100 frá júli 1987. Húsalelguvísltala hækkaði um 5% 1. okt. Þessi visitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miöað sérstaklega í samningum leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 19-21,5 Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 19-23 Ab 6 mán. uppsögn 20-25 Ab 12mán.uppsögn 22-28 Úb 18mán, uppsögn 31 lb Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp Sértékkareikningar 8-20,5 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán.uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb,Vb Innlán meðsérkjör- 19-34 Sp vél. um Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 6,5-8 Ab Sterlingspund 8,5-9 Ab,Úb, Vb.Sb Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab Danskarkrónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 31-33 Sb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 33-36 eða kaupgengi Almennskuldabréf 31-35 Sb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-36 Lb, Bb Utlan verðtryggð Skuldabréf 9-9,5 Úb,Sb, Sb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 29,5-31 Sb SDR 8.25-9,25 Sp Bandaríkjadalir 9,25-10,75 Sp Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb Vestur-þýsk mörk 5,75-6,75 Sp Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 3,8 á mán. MEÐALVEXTIR óverðtr. nóv. 87 31,5 Verðtr. nóv. 87 9.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala nóv. 1841 stig Byggingavísitalanóv. 341 stig Byggingavisitalanóv. 106,5stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% . okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3079 Einingabréf 1 2,420 Einingabréf 2 1,417 Einingabréf 3 1.498 Fjölþjóðabréf 1,060 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,420 Lifeyrisbréf 1.216 Markbréf 1,239 Sjóðsbréf 1 1,178 Sjóðsbréf 2 1,135 Tekjubréf 1,268 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv,: Almennartryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiðir 196 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 119 kr Iðnaðarbankinn 143 kr. Skagstrendingur hf. 182kr. Verslunarbankinr. 126 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Hraður akstur veldur oft alvarlegum slysum UMFERÐAR RAÐ Gull Verð í London 11. nóv. Um.........469 dollarar únsan, eða um....17.011 ísl. kr. únsan. Al Verð á áli í London 10. nóv. Um....926 sterlingspund tonnið, eöa um....61.023 ísl. kr. tonnið. Ull Verð í Sydney, Ástralíu Um..................890 cent kílóið, eða um...........328 ísl. kr. kílóið. Bómull Verð á bómull í New York Um................67 cent pundið, eða um..........54 ísl. kr. kílóið. Hrásykur Verð í London Um..........184 dollarar tonnið, eða um.......6.790 ísl. kr. tonnið. Sojamjöl Verð í Chicago Um..........184 dollarar tonniö, eða um......6.790 ísl. kr. tonnið. Kaffibaunir Um............114 cent pundið, eða um.......2,50 dollarar kílóiö, eða um.........92 ísl. kr. kílóið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.