Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
Viðskipti____________________________________________________________________________ðv
Gott mál í Rotterdam
Verölækkun upp á nokkra dollara
hefur orðiö á unnum olíuvörum í
Rotterdam frá því í síðustu viku. Þaö
er gott mál. Sérstaklega hvaö verð á
gasolíu snertir. Á þessum árstíma
hefur gasolían oft hækkað í verði
þegar menn birgja sig upp fyrir vet-
urinn. En nægilegt framboð er á olíu
um þessar mundir. Það eru allar
birgðageymslur fullar og svo virðist
sem menn hafi birgt sig upp af gasol-
íu hægt og hljótt. Tíöarfarið hefur
jafnframt verið hagstætt í Evrópu.
Tonnið af bensíni, venjulegu, fæst
nú á 161 dollar í Rotterdam. Það var
selt á um 166 dollara í síðustu viku.
Lækkunin er því 5 dollarar. Bensín,
súper, fæst nú á um 181 dollar tonn-
ið, en í síðustu viku var veröið um
185 dollarar.
Tonnið af gasolíu fæst nú á 160
dollara í Rotterdam, en það var selt
á 164,50 dollara í síðustu viku.
Ánægjuleg verðlækkun á árstíma
þegar verðiö hefur tilhneigingu til
að hækka.
Hráolíuverðið í Rotterdam hefur
einnig lækkað að undanfórnu. Verð
tunnunnar er nú um 18 dollarar í
stað 19 dollara í síðustu viku. Skref
niður um einn dollar.
Stöðugt verð á bensíni, gasolíu og
hráolíu í Rotterdam og hvað þá smá
verðlækkun síðustu daga eru
ánægjuleg tíðindi fyrir okkur íslend-
inga. Það þýðir að innkaupsverð
okkar á bensíni og gasolíu er ekki
að hækka. Von er því á stöðugu veröi
hérlendis á næstunni, svo fremi sem
íslenska ríkið hækkar ekki hlut sinn
í bensíni og öðrum olíuvörum.
Verð á áli á markaðnum í London
er enn að snarlækka. Tonnið er nú
komið niður í 926 sterlingspund. Það
var í síðustu viku 1012 sterlingspund.
Og í þessum pistli fyrir fjórum vikum
mátti sjá að tonnið var komið upp
fyrir 1250 sterlingspund og álfram-
leiðendur voru ánægðir.
Tonnið af áli var selt á innan viö
1000 sterlingspund á markaðnum í
London fyrir rúmum þremur mán-
uðum. En svo tók eftirspurnin að
vaxa og verðið hækkaði. Nú er
greinilegt að álmarkaðurinn er kom-
inn í sama horf og áður, er til
uppsveiflunnar kom.
Hluti af skýringunni á lægra ál-
verði er aukið framboð af áli sem
varð þegar ljóst var að eftirspurnin
hafði aukist og verðið hækkað. Verk-
smiðjur sem búiö var að loka voru
ræstar aftur. Þá er ál mikil dollara-
vara og hefur veik staða dollarans
að undanförnu haft sín áhrif til lækk-
andi verðs á áli. -JGH
Verð á erlendum
mörkuðum
Berasín og olía
Verð í Rotterdam, fob., 10. nóv.
Bensín, venjul..161,50$ tonnið,
eða um......4,53 ísl. kr. lítrinn.
Bensín, súper...181,50$ tonnið,
eða um......5,06 ísl. kr. lítrinn.
Gasolía............160$ tonnið,
eða um......5,02 ísl. kr. lítrinn.
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob„ 10. nóv.
Um..........18 dollarar tunnan,
eða um......664 ísl. kr. tunnan.
Verð á áli heldur áfram að lækka og það ekki i neinum smástökkum. Þeir
brosa því ekki mjög blitt i Straumsvík þessa dagana eftir miklar verð-
hækkanir síðustu vikurnar.
Peningamarkaður________________________________________pv
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður
sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir
eru verðtryggðir og með.8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eöa almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 23%
og ársávöxtun 23%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3%
bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar
upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérs-
taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja
mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttckt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 27%
nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings
með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mán-
uði á 28,5% nafnvöxtum og 30,5% ársávöxtun,
eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs-
árslega.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verótryggð bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuðstól.
18 mánaóa bundinn reikningur er með 31%
nafnvöxtum og 31% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 29%
nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun. Af óhreyfö-
um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greiðast 30,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 32,7%) eftir 16 mánuði og
31% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 33,4%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 19%, eftir 3 mánuði 22%, eftir 6
mánuði 28%, eftir 24 mánuði 30% eða ársávöxt-
un 32,3%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaöa verö-
h'yggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og
31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 29% nafn-
vexti og 31,1% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæö reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum,
nú 29,96% (ársávöxtun 31,51%), eða ávöxtun
3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega og vaxtaábótinni
bætt við höfuðstól, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 20%, þann mánuð. Heimilt er að
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar með
hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá
í 31,96-33,93%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan
ársfjórðung, ber 27,5% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefur 30,47% ársávöxtun, eða nýtur kjara
6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara”. Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt í ársfjórðungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfð út fjórðunginn. Reikning-
ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða
almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið
sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggður
og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða
er gerður samanburður á ávöxtun með svoköll-
uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð-
tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð-
trY99Öa ávöxtun, og ræöur sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu
bundna í 18 mánuöi óverðtryggða á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6
mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5%
vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfiröi,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað,
Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins
getur numið 2.755.000 krónum á 4. ársfjórð-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.350.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru
3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur
og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum,
algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir I einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagð-
ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum veröur innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel oröið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan
á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð-
ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,8% á mánuði eða 45,6% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravisitala í nóvember 1987 er 1841
stig en var 1797 stig i október. Miðað er við
grunninn 100 í júni 1979.
Bygglngarvísltala fyrir nóvember 1987 er 341
stig á grunninum 100 frá 1983, en 106,5 á
grunni 100 frá júli 1987.
Húsalelguvísltala hækkaði um 5% 1. okt. Þessi
visitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miöað sérstaklega í samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar
miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 19-21,5 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 19-23 Ab
6 mán. uppsögn 20-25 Ab
12mán.uppsögn 22-28 Úb
18mán, uppsögn 31 lb
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp
Sértékkareikningar 8-20,5 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán.uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb,Vb
Innlán meðsérkjör- 19-34 Sp vél.
um Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6,5-8 Ab
Sterlingspund 8,5-9 Ab,Úb, Vb.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 8,5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 31-33 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 33-36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 31-35 Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-36 Lb, Bb
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 9-9,5 Úb,Sb, Sb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 29,5-31 Sb
SDR 8.25-9,25 Sp
Bandaríkjadalir 9,25-10,75 Sp
Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,75 Sp
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6 3,8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. nóv. 87 31,5
Verðtr. nóv. 87 9.1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 1841 stig
Byggingavísitalanóv. 341 stig
Byggingavisitalanóv. 106,5stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3079
Einingabréf 1 2,420
Einingabréf 2 1,417
Einingabréf 3 1.498
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,420
Lifeyrisbréf 1.216
Markbréf 1,239
Sjóðsbréf 1 1,178
Sjóðsbréf 2 1,135
Tekjubréf 1,268
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv,:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182kr.
Verslunarbankinr. 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Hraður
akstur veldur oft
alvarlegum slysum
UMFERÐAR
RAÐ
Gull
Verð í London 11. nóv.
Um.........469 dollarar únsan,
eða um....17.011 ísl. kr. únsan.
Al
Verð á áli í London 10. nóv.
Um....926 sterlingspund tonnið,
eöa um....61.023 ísl. kr. tonnið.
Ull
Verð í Sydney, Ástralíu
Um..................890 cent kílóið,
eða um...........328 ísl. kr. kílóið.
Bómull
Verð á bómull í New York
Um................67 cent pundið,
eða um..........54 ísl. kr. kílóið.
Hrásykur
Verð í London
Um..........184 dollarar tonnið,
eða um.......6.790 ísl. kr. tonnið.
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um..........184 dollarar tonniö,
eða um......6.790 ísl. kr. tonnið.
Kaffibaunir
Um............114 cent pundið,
eða um.......2,50 dollarar kílóiö,
eða um.........92 ísl. kr. kílóið.