Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Page 5
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
5
Fréttir
Nýju útflytjendumir á Bandaríkjamarkað
Sumir byrja strax,
aðrir fara varlega
útflutningsleyfíð er skilyrt og aðeins til 6 mánaða
Mjög misjafnt er hvað útflutnings-
fyrirtækin 6, sem Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra veitti leyfi til út-
flutnings á frystum fiski til Banda-
ríkjanna, ætla að gera á næstunni.
Nokkur eru hrædd við að leggja í
kostnað sem því fylgir að markaðs-
setja fiskinn vestra vegna þess að
leyfið er aðeins veitt til 6 mánaða og
einnig er það skilyrt. Fyrirtækin
mega ekki fá fisk hjá frystihúsum
sem eru fyrir í viðskiptum við Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna eða
sjávarafurðadeild Sambandsins.
Jón G. Magnússon, framkvæmda-
stjóri Marbakka, sagðist ekki vera
búinn að skoða leyfið og skilmálana
nógu vel til að segja til um hvað hann
mundi gera. Hann sagði slæmt að
leyfið væri bara til 6 mánaða, menn
þyrftu að leggja í ýmsan kostnað, svo
sem að láta búa til umbúðir og fleira,
■og því hæpið að fara út í mikinn
undirbúningskostnað fyrir svo stutt-
an leyfistíma ef leyfið fengist svo
ekki framlengt.
Eiríkur Hjartarson hjá Stefni tók í
sama streng. Hann sagðist myndu
fara varlega vegna þess hve leyfið
væri veitt í stuttan tíma.
Óttar Yngvason hjá íslensku út-
flutningsmiðstöðinni var aftur á
móti fullur bjartsýni. Hann sagðist
fara á fulla ferð í útflutningnum
strax. Hann sagðist telja að það væri
bara formsatriði að láta leyfið gilda
í 6 mánuði. Óttar sagðist ekki vita
nein dæmi þess að Stjórnarráðið
beitti þeim bolabrögðum að veita
fyrst leyfi á borð við þetta og kippa
því svo til baka eftir stuttan tíma og
ekki eiga von á því að það yrði tekiö
upp núna. Þess vegna sagðist hann
líta á leyfisveitinguna sem varan-
lega.
Guðmundur Ingason hjá G. Inga-
son sagðist fara varlega til að byrja
með en benti á aö stóru sölusamtökin
yrðu áfram með massaframleiðslu
og sölu, minni fyrirtækin myndu
far'a meira út í hvers konar sérhæf-
ingu varðandi fiskrétti. Hann sagði
nauðsynlegt fyrir nýja kynslóð að fá
að spreyta sig á þessu verkefni.
Jón Gunnarsson hjá íslenskum
gæðafiski sagðist ekki myndu leggja
út í mikinn kostnað vegna þessa fyrr
en ljóst væri hvort leyfið yrði fram-
lengt. Hann sagði að ráðherra yrði
að koma með sterk rök ef hann tæki
leyfið af eftir 6 mánuði og sagðist
vart trúa því að til þess kæmi. Hann
sagðist tilbúinn að hefja útflutning á
frystum fiski til Bandaríkjanna um
leið og hann vissi eitthvað um fram-
haldið.
-S.dór
Sölusamtök íslenskra matjurtaframleiðenda:
Hverjir eiga
samtökin?
í firmaskrá Borgarfógetaembættis-
ins í Reykjavík eru sex eigendur
skráðir sem stofnend’ir og með ótak-
markaða ábyrgð á skuldbindingum
Sölusamtaka íslenskra matjurta-
framleiðenda. Þessir einstaklingar
eru Eiríkur Sigfússon, Sílastöðum,
Glæsibæjarhreppi, Yngvi Markús-
son, Oddsparti, Djúpárhreppi,
Hrafnkell Karlsson, Hrauni, Ölfusi,
Magnús H. Sigurðsson, Birtingaholti,
Hrunamannahreppi, Jóhannes
Helgason, Hvammi, Hnmamanna-
hreppi, Skarphéðinn Larsen, Lindar-
bakka, Nesjahreppi.
DV leitaði álits Þorkels Gíslasonar
lögfræðings firmaskrár á þessu máh.
„Eins og fyrirtækið er skráð í firma-
skrá eru það þessir 6 einstaklingar
sem eiga SÍM og þeir bera því ábyrgð
á fjárhagslegum skuldbindingum fé-
lagsins og þar með eru þeir ábyrgir
gagnvart skuldum dreifingarfyrir-
tækisins Ágætis. Ég tel þó líklegt að
á þetta yrði að reyna fyrir dómstól-
um. -J.Mar
þar sem fram kemur að stofnendur
Sölusamtaka íslenskra matjurta-
framlelðenda eru sex.
Neytendasamtökin:
Opinberir aðilar
gefa grænt Ijós
á lögbrot
„Ef það næst breið samstaða meðal
matjurtaframleiðenda og þeir eign-
ast húseignirnar Síðumúla 34 og
kartöflugeymslur í Árbæ er verið að
búa til einokunarhring matjurta-
framleiöenda," sagði Jónas Bjarna-
son hjá Neytendasamtökunum.
„Ef þessi samstaða næst og fram-
leiðendur sameinast í einu félagi er
það ávísun á lögbrot því að hringa-
myndun er bönnuð samkvæmt
lögum. Kartöflubændur hafa einnig
verið að bera víurnar í áðurnefndar
eignir og ef þeir eignuðust þær væri
ekki um lögbrot að ræða því verð-
lagning á kartöflum er ekki frjáls.“
-J.Mar
Sr. Baldur kosinn
júiía imsland, dv Höfa: Kristjánsson, settur prestur í þessum
_________________________ soknum, og var hann kjönnn með
Nýlega fór fram prestskosning í öllum greiddum atkvæðum. Það eru
Bjarnanes-, Staðarfells- og Hafnar- sóknarnefndarmenn og þeirra vara-
sóknum. Umsækjandi var sr. Baldur menn sem kjósa prest.
íbúðirnar á Hjallavegi á Flateyri sem deilan hefur staðið um.
DV-mynd Reynir
Flateyri:
Uppboðin á íbúð-
unum afturkölluð
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Uppboð á fimm íbúðum af sex á
Hjallavegi á Flateyri hafa nú verið
afturkölluð í kjölfar skrifa DV um
málið. Hefur verið ákveðið að Flat-
eyrarhreppur kaupi allar íbúðimar
réttu verði og greiði eigendum út
sinn hluta.
Forsaga málsins er sú að í október
voru fimm af sex íbúum hússins
famir úr íbúðum sínum, ákveðnir í
að láta bjóða upp frekar en aö borga
af lánum sem komin vom langt yfir
raunvirði íbúðanna. Strax í kjölfar
frétta DV um málið sendi Húsnæðis-
málastofnun tvo fulltrúa til Flateyr-
ar, þar sem sest var niður og málin
leyst með því að Húsnæðisstofnun
lánar Flateyrarhreppi þær fjárhæðir
sem þarf til að hann geti keypt íbúð-
imar. Flateyrarhreppur mun síðan
endurselja íbúðirnar þar sem 85%
kaupverðs verður lánað til 40 ára.
Sami háttur verður hafður á varð-
andi þá íbúð sem þegar hefur verið
seld nauðungarsölu. Þar verður
reiknað til baka og gert upp viö fyrr-
verandi eiganda. Því má segja aö
máh þessu hafi lokið farsællega fyrir
alla aðila.
Búið er að veiða tæpan
helming síldarkvötans
- síldarsöltunin líkist frekar íþrótt en atvinnugrein
Mikið gengur á í síldveiðum og
vinnslu á Austfjörðum þessa dagana.
Búið er að veiða tæpan helming síld-
arkvótans, eða rúmar 30 þúsund
lestir, og salta í 172.400 tunnur. Þar
af fara um 60 þúsund tunnur til Sví-
þjóðar og Finnlands en hitt fer á
Rússlandsmarkað.
Rússar hafa staðfest að þeir kaupi
150 þúsund tunnur en samningurinn,
sem gerður var við þá, var upp á 200
þúsund tunnur. Þeir eiga því eftir að
staðfesta kaup á 50 þúsund tunnum.
Fari svo að Rússar kaupi 200 þús-
und tunnur fer tæpur helmingur
síldarkvótans í söltun, með þeim 60
þúsund tunnum sem fara til Svíþjóð-
ar og Finnlands. Ekki mun enn liggja
fyrir hve mikið magn fer í frystingu
og flökun.
Mörgum þykir hraðinn í síldarsölt-
uninni undanfarið of mikih og óttast
að hann komi ef til vih niður á gæð-
unum. Einn viðmælenda DV sagði
að síldarsöltunin líktist frekar
íþróttakeppni en atvinnugrein, slík-
ur væri hraöinn.
Síldarkvótinn í ár er 72.930 lestir
og fékk 91 skip leyfi til veiðanna. Þar
af hafa 30 skip framselt sildarkvóta
sinn en 54 skip byrjað veiðar og af
þeim eru 11 þegar búin með sinn
kvóta, að því er Örn Traustason í
veiðieftirlitisjávarútvegsráðuneytis-
ins upplýsti DV um.
Til þessa hafa um 24% síldaraflans
farið í bræðslu.
-S.dór
í fyrra var loðnuafurðaverð í
lágmarki en veiðarnar gengu af-
buröa vel. Nú er afurðaverðið á
uppleið en loðnan er illveiðanleg.
í fyrra fengust rúmir 5 dollarar
fyrir prótíneininguna af mjöh og
ura 200 dollarar fyrir tonn af lýsi.
Nú er mjölverðið komið upp i 7,40
dollara og lýsið í um 300 dollara
tonnið, að sögn Jóns Reynis
Magnússonar, framkvæmda-
stjóra Sfldarverksmiðja rikisins.
Jón Reynir segir að enn vanti
upp á að búið sé að veiöa upp í
fyrirframgerða samninga um
sölu á lýsi og mjöli enda er heild-
arloðnuaflinn ekki kominn í
nema rúmar 70 þúsund lestir. Á
sama tíma í fyrra var afhnn orö-
inn 370 þúsund lestir.
Ástráður Jngvarsson hjá loðnu-
nefhd sagði að svohtið hefði
lifnað yfir loðnuveiðunum í gær.
Þá tilkynntu 18 skip um afla, sam-
tals um 10 þúsimd lestir. Þá var
bræla að skella á og allir bátar á
leiö tii lands.
Að sögn Ástráðar heldur loön-
an sig mjög djúpt eða á allt að 160
fóðmum en um leiö og hún kemur
upp dreifir hún sér og er ihveið-
anleg. Hann sagðist hafa þaö eför
skipstjórum að kuldaskihn í sjón-
um, sem loðnan heldur sig við,
liggi nú ööruvisi en vanalega.
Menn hafa verið aö mæla hitastig
sjávar um eina gráðu en svo eför
ðrstutta stund er það komiö upp
í fjórar til fimm gráður. Þá hefur
ís á aðalveiðisvæðunum, sem eru
djúpt norður af Homi, komið í
veg fyrir veiöar loðnubátanna.
Loks er þess að geta að þessir
18 bátar, sem tflkynntu um afla í
gær, munu flestir landa afla sfn-
um í heimahöfnum allt umhverf-
islandið. -S.dór
B j a rg -
vætturinn
hreinsar
með
glans!
Fyrir
vaska, baðkör,
w.c. flísar. keramik-
eldahellur og margt fleira.
Heildsala - smásala
J.ÞORLÁKSSQN OC NQRÐMANN H.F
Réttarhájsl 2 - simi 83833.