Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI
Innritun nemenda, sem ætla að hefja nám í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti á vorönn 1988, stendur
nú yfir. Athygli er vakin á því að enn er unnt að
bæta við nemendum, einkum á heilbrigðissviði
(sjúkraliðar), matvælasviði (matartæknar og matar-
fræðingar) og tæknisviði (nám til sveinsprófs á
málmiðna- rafiðna- og tréiðnabrautum. Sími skólans
er 75600.
Skólameistari
Blöð og blaðamennska
í nútíð og framtíð
Opinn fundur á vegum Blaðamannafélagsins í
Listasafni Alþýðu, Grensásvegi 16, fimmtu-
daginn 12. nóvember kl. 20.30.
Ritstjórarnir og blaðamennirnir Árni Berg-
mann, Björn Jóhannsson, Elías Snœland Jóns-
son, Indriði G. Þorsteinsson og Steinar J. Lúð-
víksson verða með stutta framsögu. Umræður
á eftir.
Blaðamenn og allt áhugafólk um blöð og
blaðamennsku velkomið.
Munið afmælissýningu Blaðamannafélagsins -
síðasta sýningarhelgi.
Stjórn BÍ
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Höfðabraut 4, rishæð, þinglýstur eigandi
Finnbogi Pálsson, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akra-
nesi, miðvikudaginn 18. nóv. kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild
Landsbanka islands, Steingrímur Þormóðsson hdl„ Jón Sveinsson hdl. og
Landsbanki íslands.
________________________Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Heiðarbraut 37, neðri hæð, þinglýstur eigend-
ur Sigrún Daníelsdóttir og Þröstur Eðvarðsson, fer fram í dómsal embættis-
ins, Suðurgötu 57 á Akranesi, miðvikudaginn 18. nóv. kl. 11.45.
Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka íslands, Tryggingastofnun
rikisins, Gústaf Þór Tryggvason hdl., Ævar Guðmundsson hdl., Jón Svein-
son hdl., Andri Árnason hdl. og Landsbanki íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Háholti 11, neðri hæð, talinn eigandi Ketill
Vilbergsson, fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, mið-
vikudaginn 18. nóv. kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands,
Lögmenn Hamraborg 12 og Reynir Karlsson hdl.
___________Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Bakkatúni 14, neðri hæð, talinn eigandi
Þórdís Skúladóttir, fer fram i dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akra-
nesi, miðvikudaginn 18. nóv. kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild
Landsbanka íslands og Brunabótafélag íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Krókatúni 5, efri hæð, talinn eigandi Gróa Dal, fer fram í
dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, miðvikudaginn 18. nóv.
kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka Islands og Jón
Þóroddsson hdl. .......
Bæjarfógetinn Akranesi
Útiönd
Reagan Bandaríkjaforseti kynnir Athony Kennedy dómara og fjölskyldu hans. Frá vlnstri Justin, Mary, Anthony,
Kristin og Gregory. Símamynd Reuter
Hyggst tilnefna
Kennedy
Ólafur Amarson, DV, New Yorlc
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
tilkynnti í gær að hann hygðist til-
nefna Anthony Kennedy, dómara við
alríkisrétt í Kalifomíu, 1 embætti
hæstaréttardómara. Formleg til-
nefning verður þó ekki send öld-
ungadeild Bandaríkjaþings fyrr en
niðurstöður af rannsókn alríkislög-
reglunnar á ferli Kennedys liggja
fyrir. Þessi fyrirvari mun hafður
vegna þeirrar útreiðar sem Douglas
Ginsburg fékk eftir að í Ijós kom aö
hann hafði reykt marijúana.
Kennedy er þriðji maöurinn sem
Reagan velur til að fylla auða sætiö
sem nú er fyrir hendi í hæstarétti.
Óþarft er að nefna afdrif tveggja fyr-
irrennara hans, Robert Borks og
Douglas Ginsburgs.
Menn hér vestra telja líklegt að
Kennedy hljóti staðfestingu þingsins.
Hann er tahnn hófsamur íhaldssam-
ur sem bæði repúblikanar og
demókratar geti sætt sig við. Ljóst
er að þetta atriði hefur ráöið miklu
um aö Reagan valdi Kennedy nú.
Hann hefur ekki efni á því að þriöji
maöurinn á hans vegum falli í val-
inn.
Anthony Kennedy er 51 árs gamall
og alls óskyldur Kennedy fjölskyld-
unni í Massachusetts. Hann stundaði
nám við Stanford og síöar við Har-
vard lagaskólann. Hann hefur verið
alríkisdómari í Kalifoníu síöan 1975.
Hans sérgrein er stjómarskrármál.
Vegna þeirra Ulu örlaga sem Dou-
glas Ginsburg hlaut hafa aUar helstu
stofnanir í Washington rannsakað
feril Kennedys út í hörgul. Ekkert
óhreint hefur fundist í hans poka-
homi en samt verður hann ekki
endanlega tilnefndur fyrr en alríkis-
lögreglan hefur gefið grænt ljós.
I gær vom þingmenn beggja flokka
varkárir í yfirlýsingum. Það er hins
vegar mál þeirra sem vel þekkja til
að Kennedy muni auðveldlega hJjóta
staðfestingu þingsins. Það gæti þó
oltið á því hver afstaða hans gagn-
vart frjálsum fóstureyðingum er. Ef
hann lýsir sig andvígan frjálsum
fóstureyðingum má búast við að
demókratar geri aUt sem í þeirra
valdi stendur til að leggja stein í götu
hans.
Umsjón:
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Halldór Valdimarsson
Enn verðfall i Pans
Bjami HinrikaBon, DV, Bordeaur
Um allt Frakkland var í gær
minnst loka fyrri heimsstyrjaidar-
innar. ll.nóvember er almennur
frídagur og vora verslanir og stofn-
anir lokaðar. Nemendur sátu
heima og þeir sem vinna í kaup-
höllinni I París gátu hvílt sig.
Ekki veitti af því þriöjudagurinn
var einn sá versti frá því að hrær-
ingamar á verðbréfamörkuðunum
hófust fyrir nokkrum vikum. Verö-
fallið nam tæplega 7 prósentum og
reyndar var mánudagurinn ekki
miklu skárri.
Þetta kom á versta tíma fyrir rík-
isstjórnina því að á mánudaginn
var í fyrsta skipti skráð í kauphöU-
inni markaðsverð hlutabréfa fyrir-
tækisins Suez sem til skamms tíma
var í eigu ríkisins en er nú komið
í hendur einkaaðila.
Salan þótti takast vel en ekki er
hægt aö segja það sama um skrán-
ingu hlutabréfanna því verö þeirra
var tæpum 18 prósentum lægra en
þaö verð sem rfkissljómin setti upp
þegar þau vora seld. Erlendir aöil-
ar, sem tekið höfðu þátt í kaupun-
um, hafa margir hverjir byrjað að
losa sig við bréfin svo tap þeirra
verðí minna.
Líklega hækkar verö hlutabréf-
anna þegar verðbréfamarkaöimir
hafa jafnað sig en hér í landi eru
menn ekki bjartsýnir á að þaö veröi
á næstunni, Til þess þarf meiri
samvinnu og ákveðnari stefiiu en
helstu iðnaðarriki heims hafa sýnt
hingaö til
Grískt skip stórskemmt
Orrastuþotur frá írak gerðu í gær-
kvöld eldflaugaárás á grískt olíu-
flutningaskip, skammt suður af
írönsku oliuhöfninni á Kharg-eyju á
Persaflóa. Haft var eftir heimildum
við Persaflóa að skipið, sem heitir
Fortuneship L og er nær tvö hundruð
og sjötíu þúsund tonn að stærð, hafi
stórskemmst í árásinni, sem var gerð
klukkan rúmlega fimm í gærkvöld.
Þá halda írakir því fram að þeir
hafi gert árásir á þrjú önnur skip við
strendur írans undanfamar þrjátíu
og sex klukkustundir.
Fyrr í gær gerðu íranskir hrað-
bátar árás á japanskt efnaflutninga-
skip nálægt Hormuz-sundi.
Bátamir skutu fjórum sprengjum
aö skipinu.
Ekki var getið um mannfall í árás-
unum í gær.
Franskt herskip við gæslustörf á Persaflóa i gær. Sfmamynd Reuter