Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Síða 11
FIMMTUDAGUR 12, NÓVEMBER 1987.
11
Utiönd
Skotaras og
sprengjutilræði
Skotárás var gerð á franskan verk-
fræðing í kristna hluta Beirút,
höfðuborgar Líbanon, í gær og hann
særður illa á höfði.
Verkfræðingurinn, sem heitir Ric-
hard Kempel, er kvæntur líbanskri
konu og hefhr búið í Líbanon í tíu
ár. Hann var enn talinn í hfshættu
síðast þegar til fréttist.
í gær var einnig framið sprengjutil-
ræði á alþjóðaflugvelhnum í Beirút.
Sprengja, sem falin var í ferðatösku,
sprakk í farþegasal og létu að
minnsta kosti fimm manns lífið.
Meira en fimmtíu manns slösuðust í
sprengingunni.
Mikill fjöldi ferðamanna og ann-
arra sem voru að fylgja þeim var
staddur á flugvellinum þegar
sprengjan sprakk, skömmu eftir há-
degi í gær.
Að sögn lögreglunnar í Beirút er
talið að sprengjunni hafi verið komið
fyrir af konu sem skildi ferðatösku
eftir við dyrnar inn í brottfararsal
flugstöðvarinnar.
Richard Kembel var enn i gjörgæslu í morgun. Simamynd Reuter
Borgarastyrjöld
eða innrás í Island
Páll Vflhjálmsson, DV, Osló:
í DV í gær var greint frá inni-
haldi þeirrar skýrslu bandaríska
þjóðaröryggisráðsins sem það
sendi forsetanum um mánaðamót-
in júlí-ágúst 1949. Þá var forsetinn
beðinn að samþykkja ráðstafanir
og áætlanir sem miða að því að
hindra hugsanlega valdatöku kom-
múnista á íslandi.
Ásamt skýrslu þjóðaröryggis-
ráðsins fylgdi áhtsgerð frá banda-
ríska utanríkisráðuneytinu. í
álitsgerðinni eru lagðir fram frek-
ari valkostir í átökunum við ís-
lenska kommúnista.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
taldi víst, og var þar á sama báti
og þjóðaröryggisráðið, að Sovétrík-
in myndu ekki freistast til þess að
ná íslandi undir sig með vopnum
né myndu íslenskir kommúnistar
fá fyrirskipanir um valdarán frá
Sovétríkjunum. Áhyggjur banda-
rískra yhrvalda beindust einvörð-
ungu að íslenskum kommúnistum
og hugsanlegri valdatöku þeirra.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
taldi vafasamt að senda bandarískt
herlið til að hnekkja á kommúnist-
um kæmust þeir til valda. Utanrík-
isráðuneytið sagði að Bandaríkin
ættu yfir höfði sér fordæmingu
annarra ríkja ef það sendi innrás-
arlið til smáþjóðar eins og íslend-
inga. Það er ekki einu sinni víst að
aðrar Natóþjóðir myndu sam-
þykkja slíka aðgerð, segir í álits-
gerðinni. Ef aftur á móti, segir
bandaríska utanríkisráðuneytið,
Bandaríkin ákveða að gera innrás
í ísland er skynsamlegast að gera
þaö undir því yfirskini að ætlunin
sé að verja bækistöðvar sem séu
nauðsynlegar Natóþjóðunum.
í álitsgerðinni kemur glögglega
fram að bandaríska utanríkisráðu-
neytið vill helst að Bandaríkin
myndu láta aðrar þjóðir Nató sjá
að mestu leyti um innrás í ísland.
Það getur ekki komið til af öðru en
að diplómötum í utanríkisráðu-
neytinu hrís hugur við aö afsaka
og réttlæta innrás stórveldis á borð
við Bandaríkin inn í smáríki eins
og ísland.
Höfundur álitsgeröarinnar segir
það ekki einu sinni víst að það þurfi
að gera innrás í ísland þótt komm-
únistar næðu þar völdum. Það
getur verið nóg að halda uppi
hörðu pólítísku stríði (intensive
pohtical warfare) gegn kommúnist-
um og senda skemmdarverkamenn
sem gætu stutt þá andstöðu sem
væri fyrir í landinu. Þessir
skemmdarverkamenn þyrftu helst
að vera Norðurlandabúar, segir
bandaríska utanríkisráðið. Ef að
líkum lætur er átt við að senda
norska eða danska skemmdar-
verkamenn til íslands ef aðstæður
krefðust. Fyrir utan ísland eru
Danmörk og Noregur einu Norður-
landaþjóðirnar í Nató.
Ef það dygði ekki til að hnekkja
á kommúnistum að efna til borg-
arastyrjaldar á íslandi mætti senda
innrásarlið til landsins undir því
yfirskini að það ætti að koma á lög-
um og reglum. Þannig mætti
tryggja þá aðstöðu á íslandi sem
er Bandaríkjunum og Nató nauð-
synleg, segir í álitsgerð bandaríska
utanríkisráðuneytisins sem send
var Bandaríkjaforseta 4. ágúst 1949.
Irisarnir seldust fyrir tvo milljarða
Eitt af verkum hollenska lista-
mannsins Vincent Van Gogh, írisar,
seldist í gær á uppboði fyrir nær
fimmtíu og fjórar milljónir Banda-
ríkjadollara eða liðlega tvo mihjarða
íslenskra króna.
Verkið, sem Van Gogh málaði á
geðveikrahæli fyrir níutíu og átta
árum, var selt af uppboðsfyrirtækinu
Sotheby’s í London. Ekki var gefið
upp hver kaupandinn var en sagt að
salan hefði farið fram í gegn um
síma.
Er þetta hæsta verð sem fengist
hefur fyrir listaverk til þessa.
Boðin í verkið í gær byijuðu í
fimmtán milljón dohurum.
í marsmánuði síðasthðnum seldist
annað af verkum Van Gogh, Sól-
blóm, fyrir fjörutíu milljónir dollara
og í sumar seldist enn eitt verka hans
fyrir liðlega tuttugu miljónir dollara.
Simamynd Reuter
Námskeið
Námskeið eru haldin í dul-
fræðilegri heimspeki (Meta-
physics), þróunarheimspeki
(Cosmology) og stjörnuspeki
(Esoteric Astrology).
Leshringar um dulfræði.
Sími 79763.
• /
satináferð
með
Kópal
Glitru
Kópal Glitra innimálningin hefur gljástig
10, sem gefur fallega satináferð. Heimilið
fær mildan og sérlega hlýlegan blæ, því
birtan endurkastast ljúflega. Samspil ljóss
og skugga verður áhrifamikið með Kópal
Glitru. Kópal Glitra hefur hæfilegan gljáa
til að henta á öll herbergi hússins. Viljir
þú hærri gljáa á veggi sem meira mæðir á
skaltu velja Kópal innimálningu með
hærra gljástigi, s.s. Kópal Flos eða Kópal
Geisla.
málninglf
Á STEIN, TRÉ, MÁLM O.Ft
^tASTMÁLMNG, VATNSÞYNNANLEG,