Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 12. NÖVEMBER 1987.
Neytendur dv
Pillur eru ekki allra meina bót
Ofneysla verkjalyfja
Dauf verkjalyf hafa oröið mikil
neysluvara á síðustu áratugum.
Þetta á sumpart rót sína að rekja til
fáfraeði um hliðarverkanir þesaara
lyfja, en ekki hvað síst til fáfræði um
orsakir ýmissa kvilla, svo sem höfuð-
verkjar. Vegna þessarar vanþekk-
ingar veit almenningur ekki hvaða
ráðstafanir er hægt að gera til að
losna við t.d. höfuðverk.
Viðleitnin til að stemma stigu við
sársauka hefur verið eitt af mark-
miðum mannsins aUt frá upphafi
vega. Á okkar dögum hefur þessi við-
leitni leitt til algerrar ofneyslu á
ýmsum deyfi- og verkjalyfjum í veik-
ari kantinum. Þekktasta dæmið um
þessa ofneyslu er aspirínið. Bara í
Bandaríkjunum er framleiðsla og
sala á þessu lyfi stór iðnaður sem
veltir um 400 milljónum dala á ári
hverju.
Veikari verkjalyf eru yfirleitt not-
uð gegn smákvillum eins og höfuð-,
tíða- og ýmiss konar yfirborðsverkj-
um, t.d. vegna sára. Þessi lyf eru
morfinlyf, salisýlsýrulyf og fenasón-
lyf auk koffeins og paracetamols.
Aukaverkanir
Eins og áður segir veit fólk yfirleitt
lítið um aukaverkanir þessara lyfja,
sérstaklega hér á landi þar sem allar
upplýsingar þar að lútandi eru fjar-
lægðar. Að íjarlægja þessar upplýs-
ingar er raunar fáheyrð ósvífni og
óskiljanlegt að Landlæknisembættið
skuli líða slíkt þar sem aukaverkanir
ýmissa lyfja eru talsverðar og fer
best á þvi að fólki séu þær ljósar.
Hér á eftir verður því gerö grein fyr-
ir aukaverkunum ýmissa algengustu
verkjalyfjanna.
Kódeín
Kódeín er eitt af algengustu verkja-
lyfjum hér á landi. Þaö er í hópi
morfínlyfja og líkist raunar morfini,
þó mun minni hætta sé á því að fólk
veröi lyfinu háð. Lyfið er gefið gegn
sársauka af ýmsu tagi og er róandi
um leið. Það slær einnig á hósta.
Lyfið er það sterkt að stjómendur
ökutækja ættu að láta akstur eiga sig
meðan á verkan þess stendur. Auka-
verkanir eru hægðatregða, sljóleiki,
uppköst, auk þess sem hætta er á því
aö einhveijir hafi ofnæmi fyrir lyf-
inu.
Magnýl og aspirín
Magnýl og aspirín eru í hópi sali-
sýlsýrulyfja. Þau em mest notaði
lyfjaflokkur í heiminum, þrátt fyrir
talsverðar aukaverkanir. Þau em
gefin við öllum minni háttar verkj-
um, svo sem höfuðverk, tíðaverkj-
um, tannpínu, vöðvaverkjum og
beinverkjum. Lyf í þessum flokki em
einnig hitalækkandi og slá á bólgur
sem ekki em af völdum sýkingar.
Lyfin lengja einnig blæðingartímann
með því að koma í veg fyrir að blóð-
flögurnar safnist saman og storkni.
Um aukaverkanir þessara lyfia
segir í Lyfiabókinni:
Við venjulega skömmtun geta
komið fram aukaverkanir eins og
þrýstingur ofarlega í maganum,
ógleði, uppköst, niðurgangur og
magablæðingar. Sé efnið tekiö í lang-
an tíma er það ein algengasta orsök
magasárs. I einstaka tilfellum getur
ofnæmi komiö fram sem útbrot,
punktlaga blæðingar, ofsakláði
(urticaria) eða asmakast.
Stærri skammtar geta valdið eitr-
unareinkennum eins og höfuðverk,
svima, suði fyrir eymm, minnkaðri
heym, þokukenndri sjón, sljóleika
sem eykst og leiðir til meðvitundar-
leysis, uppköstum, hröðum og
djúpum andardrætti, rauðri og
sveittri húö. Einnig geta orðið breyt-
ingar á samsetningu blóðsins og
hormónajafnvæginu, blóðsykurs-
lækkun og áhrif á nýmavefinn.
Eitranir em oft alvarlegar og erfiö-
ar í meðferð. Dauðsfóll vegna
misnotkunar og eitrunar af sahsýl-
sýrulyfium þekkjast hér á landi.
TÍlvitnun lýkur.
Svo mörg vom þau orð um algeng-
asta læknislyf í heiminum.
Kódímagnýl
Þetta er blanda tveggja lyfia, ko-
deíns og magnýl. Það er gefið við
höfuð- og tíðaverkjum, tannpínu og
öðrum líkum verkjum. Þar sem þetta
er blanda tveggja lyfia þá hefur það
aukaverkanir þeirra beggja.
Það hefur þó lengi verið Ijóst að lyf
í þessum flokkum em ekki gaUalaus
og því hefur annað lyf mtt sér leið
inn á markaðinn hin síðari ár. Þaö
er lyfið paracetamol (Panodil), af
mörgum taliö undralyf í fyrstu.
Paracetamol (Panodil)
Paracetamol hefur náð mikilh út-
breiðslu á síðari árum. Það er notað
í sama thgangi og magnýl en hefur
ekki jafn gífurlegar aukaverkanir.
Það hefur því þótt henta að gefa það
smábömum.
Paracetamol hefur þau áhrif að
myndun prostaglandína hægist.
Prostaglandín em fitusýrur sem
myndast í frumum líkamans og eru
þau líffræðilega nyög virk. Við það
að myndun þeirra hægist minnkar
næmi verkjaboða líkamans og sárs-
aukatilfinning minnkar. Paraceta-
mol er einnig hitalækkandi.
Aukaverkanir
Lyfiö er tahð að mestu án auka-
verkana ef það er tekið í venjulegum
skömmtum. Ef lyfið er notað í langan
tíma geta þó komið fram nýma-
skemmdir og séu skammtamir of
stórir getur lyfið valdiö lifrar-
skemmdum og leitt til gulu.
Orsakir höfuðverkjar
Þessi rosalega ofneysla verkjalyfia
kemur til af því að fólk þekkir ekki
orsakir höfuðverkjar og kann því
ekki að komast fyrir hann. Einnig
er mörgum óljóst aö þrálátur höfuð-
verkur er oft einkenni alvarlegra
sjúkdóma, eins og t.d. of hás blóð-
þrýstings. í þeim tilfehum er lausnin
að sjálfsögðu fólgin í því að fara til
læknis en ekki að bryðja magnýl. í
öhu falli er nauðsynlegt að komast
að því hvað veldur verknum, lausnin
er ekki fólgin í því að gleypa töflur
sem geta verið mjög skaðlegar þegar
th langs tíma er htið.
Útvíkkun æða
Ein algeng orsök höfuðverkjar er
of mikh úvíkkun þeirra æða sem
flytja heilanum blóð. Slagæðamar
þrýsta þá á taugar og valda sársauka
sem líkur er slætti. Þessi verkur
virðist koma innan úr höfðinu, þó
að í rauninni eigi hann upptök sín í
enni eða gagnaugum.
Vöðvasamdráttur
Samdráttur og herpingur vöðva í
höfði og hálsi er einnig algeng orsök
höfuðverkjar. Orsökin að þessum
verk liggur oft í spennu og stressi,
nokkuð sem algengt er í daglegu lífi
margra. Þetta getur einnig komið
fyrir hjá fólki sem vinnur viö slæma
lýsingu eða í vitlausum vinnusteh-
ingum.
Augnþreyta
Þreyta í augum er mjög algeng or-
sök þráláts höfuðverkjar og er því
nauðsynlegt að gæta vel að sjón og
vinna við rétt birtuskhyrði.
Uppsöfnun eiturefna
Uppsöfnun eiturefna í líkamanum,
vegna þess að nýrun hafa ekki undan
að hreinsa þau út, er önnur orsök
höfuðverkjar. Algeng orsök þessarar
uppsöfnunar er flensa eða kvef. En
ofneysla áfengis er ekki síður algeng-
ur skaðvaldur.
Eins og sést á framangreindu em
það oftar en ekki ytri aðstæður sem
valda höfuðverk. Það er því oftast
nóg að breyta hthlega um lífshætti
og höfuðverkurinn hverfur fijótlega.
Það gerir hann hins vegar aldrei með
verkjalyfium heldur nægja þau að-
eins til að slá á hann um stundarsak-
ir.
Losnið við höfuðverkinn
Til að losna við höfuðverk em th
náttúrlegar aðferðir sem eru ekki
síður áhrifaríkar en verkjalyfin og
ekki eins skaðleg fyrir líkamsstarf-
semina. Sú einfaldasta þeirra er
hvhd. Að leggja sig í dimmu herbergi
í algerri þögn hefur reynst mörgum
vel. Og ef verkurinn er sérstaklega
mikih er gamh íspokinn nauðsynleg-
ur.
Th að vinna bug á verkjum vegna
vöðvaspennu er nauðsynlegt að
koma sér upp einhvers konar slök-
unartækni. Þó má ekki gleyma því
að góður svefn er það mikhvægasta.
Nudd er einnig áhrifarík aðferð th
að slaka á vöðvasamdrætti, svo og
heit böð.
Hin síöari ár hefur einnig framboð
á ahs kyns grösum aukist mjög.
Seyði og bakstrar úr ýmsum þeirra
em einxúg árangursrík aðferð til
slökunar. Upplýsingar um verkan
þeirra er hægt að fá á útsölustöðum
þeirra.
-PLP
Verkjapillur eru ekki síður vinsæl neysluvara hér á landi en annars staðar.