Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Side 13
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
13
Heimilisbókhaldið í september
- 5.549 krónur á mann í mat
Þá kemur hér yflrlit yfir sept-
embermánuð. Það hefur aukist
talsvert að fólk haldi heimilisbók-
hald enda gefst það vel. Við fengum
því nokkuð mikið af upplýsinga-
seðlum senda þrátt fyrir að okkur
heföi láðst að birta tölur ágústmán-
aðar.
Meðaltalskostnaður á mann í
matvæh og hreinlætisvörur eru kr.
5.549. Þefta kann sumum að hljóma
ótrúlega lágt en meðal þeirra sem
senda inn upplýsingaseðla er fólk
sem auðsýnir ýtrustu spameytni í
hvívetna og veltir fyrir sér hverri
krónu. Þannig eru þeir lægstu með
kr. 3.066,50 á mann sem hlýtur að
teljast furðu lágt. En þetta er sem
sé hægt ef keypt er inn með varúð.
í janúar síðastliönum var meðal-
talskostnaðurinn kr. 4.518 krónur
á mann. Síðan hefur því rekstrar-
kostnaður hækkað um rúmar
þúsund krónur, eða 22,8%. Þetta
samsvarar því að verðbólga sé um
30,4% miðað við heilt ár. Þessi
hækkun er því í samræmi við opin-
berar tölur um verðbólgu hér á
landi.
Meðaltal matarkostnaðar á mann
ætti samkvæmt þessu að vera orð-
inn um 5.900 krónur í árslok. Það
kemur í ljós.
Þeir sem koma út lægstir í heimil-
isbókhaldi DV eru oft bammargar
fjölskyldur. Það segir sig sjálft að
þegar fimm manns era í heimili fer
minna til spillis og matarkostnaður
verður mun lægri á mann heldur
en þar sem einn eða tveir em í
heimili. Þetta á þó ekki við um þá
sem lægstir vora en þar eru aðeins
tveir í heimih.
Hæstu tölumar í bókhaldinu eru
kr. 7.746 á mann. Þar er greinilega
ekki sama nýtnin og hjá hinum en
þó greinilega ekki neinn óþarfi á
ferðinni.
-PLP
Margir þeir sem taka þátt i heimilisbókhaldinu reyna að spara sem mest. Ein góð leið til sparnaðar er að hætta að neyta kjöts og taka þess i stað til
sín eggjahvítuefni úr baunum. Þær eru mun ódýrari auk þess sem þær gefa ekki kólesteról.
Heillaráö
Blöð í plasti
Færð þú blöð og tímarit í plast-
pökkum? Geymdu þá plastið, það er
gott að nota það til að frysta í græn-
meti.
Bílaþvottur
Leiður á að þvo bílinn? Láttu hann
þá standa úti í rigningu og þurrkaðu
hann vel með baðhandkæði. Þetta
tekur örfáar mínútur og bhhnn htur
út eins og hann hafi verið þveginn á
þvottastöð.
Ráð til að opna krukkur
Allir kannast við það hvað erfitt
getur verið að ná lokinu af
sultukrukkunni. Prófið að láta heitt
vatn renna yfir lokið í smástund.
Þurrkið síðan vel og þá verður auð-
velt að skrúfa lokið af.
Blettir frá kúlupenna
Ef kúlupenninn hefur sett bletti í
fótin er hægt að ná þeim burt með
hárlakki. Úðið lakkinu yfir blettinn
og látið þoma. Síðan er flíkin þvegin.
Þetta gengur yfirleitt í fyrstu tilraun.
Bleiunælur
Ef að bamiö notar taubleiu getur
verið að erfitt sé að koma nælunni í
hana. Til að hún smjúgi betur inn
er gott að stinga nælunni í sápu-
stykki. Þá á hún að renna inn.
Raddir neytenda
Kæra neytendasíða.
Þá er ég komin á klakann aftur
frá Grikklandi. Ráðstefna EAPS,
Evrópusamtaka ritara, heppnaðist
mjög vel. Þama mættu 320 ritarar
frá 14 löndum. Þar af vomm við 13
frá íslandi og vakti það athygli
vegna höfðatölu landsmanna, fjar-
lægðar og einnig að við erum 50
meðhmir hér í Samtökum ritara.
Sem viðmiðun komu aðeins 27 frá
Bretlandi samkvæmt nafnahsta.
Grísku ritaramir tóku mjög vel á
móti okkur, með gjöfum, sýndu
okkur vinnustað eins ritarans, sem
var mjög fróðlegt, og síðan var okk-
ur boðinn gómsætur grískur matur
og grískt hvítvín með. Við fengum
fleiri gjafir og minjagripi frá þeim
og það kom mér mjög á óvart. Þær
voru með okkur í fimm daga og
slógu hvergi af. Ég held að það
hafi verið almenn ánægja hjá okk-
ur með þessa ráðstefnu. í fyrra var
ráðstefnan haldin hér á landi og
tókst rpjög vel, góð skipulagning
og fróðleg hópvinna meðal annars.
En þá er komið að þessu óhjá-
kvæmilega hjá mér. Skattamir kr.
21.795. Hóplíftryggingin hjá mér kr.
437. DV og Morgunblaðið kr. 1.100.
Happdrætti og gíróseðlar kr. 5.300.
Skuldabréf kr. 7.779. Bensín kr.
950. Farmiðar, hótel og gjaldeyrir
kr. 220.330 fyrir okkur bæði svo að
„annar kostnaður“ hækkar vem-
lega... Það er mikih munur á verði
í fríhöfninni. Samt olh úrval á vör-
um í Aþenu mér vonbrigðum.
Mig langar í lokin að segja að
mér finnst DV orðið mjög gott
fréttablaö, erlendu fréttimar ekki
síður en þær innlendu og neyt-
endasíðan fróðleg. Þakkir fyrir
laugardagspistla Eherts B. Schram
sem em sumir eins og talaðir út
úr mínu hjarta. Hins vegar er gamli
góði Mogginn orðinn htið annað en
auglýsingar og minningargreinar
sem em ekki beinhnis upplífgandi.
Með haustkveðju,
Ingibjörg J. Helgadóttir
KVIKMYN
GERÐAR-
MENNI
SJÓNVARPIÐ
INNLEND DAG-
SKRÁRGERÐARDEILD ÓSKAR
EFT/R T/LBOÐUM í GERÐ KVÍKMYNDA
ÆTLAÐA YNGSTUÁHORFENDUM. MYND/N ER HLUTI
AF SAMNORRÆNUM MYNDAFLOKKI, ÞARSEM HVER
KV/KMYND ER SJÁLFSTÆTT VERK OG VERÐUR SÝNDÁ
ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM. LENGD MYNDAR/NNAR ÞARFAÐ
VERA UM 20 MÍNÚTUR. / ÚTBOÐ/NU FELST ENDANIEGUR
KOSTNAÐUR V/Ð GERÐ MYNDAR/NNAR ÁSAMT
HANDR/T/ SEM VERKTAK/ VELUR SJÁLFUR.
T/LBOÐUM ÞARFAÐ SK/IA T/L SJÓNVARPS/NS
FYR/R 1. JANÚAR 1988. KV/KMYND/N AFHENDIST
FULLBÚ/N E/G/ SÍÐAR EN1. DESEMBER 1988.
NÁNAR/ UPPLÝS/NGAR VE/T/R DAG , . „ . „ _____
SKRÁRFULLTRÚ/BARNAEFN/S. ^ ' f/1Jf ÁÁrl-LÆ
SJÓNVARP/NU/AUGAVEG/176
106 REYKJAVÍK
SÍMt 38800 ÆM
f. ucocmdck iyoo.
TIRDAG- ^ . v
76
i*IIV
RIKISUTVARPIÐ