Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 12. NOVEMBER 1987.
17
Lesendur
Háttverð
á karimanna
fatnaði
Ó.I.skrifer:
Ég lýsi fyllsta stuöningi við
málflutning gatnamálastjóra er
hann lýsir ósk sinni um að öku-
menn noti ekki nagladekk hér á
þéttbýlissvæðinu. Nagladekkin
gera iítið annað en að veita Mskt
öryggi. Þau gera það einnig að
vericum að menn aka mun hraðar
en aðstæður leyía.
inni varðar er litið annað til
vamar þai' i mikilli hálku eða
óferð en nota gömiu góðu keðj-
urnar. Það er enda gert af langf-
lestum vönum ökumönnum sem
þekkja best hvar ófærukaflar
myndast hverju sinni.
Ég vil nefha máli mínu til
stuðnings eitt dæmi um það hve
nagladekkin hafa valdiö miklum
skaða. Ég þurfti sem oftar aö fara
til Keflavíkurflugvallar einn
morgun fyrir stuttu. Þaö var htil
umferð en há vaðarok og rigning.
Vegurinn var svo aö segja ófær
vegna vatnselgs sem situr í
skomingum sem hafa aö mestu
myndast vegna nagladekkja bif-
reiöa.
Á þessari aðalþjóðbraut varð
ég lengst af að halda mig á miðju
vegarins til aö forðast það að
fljóta hreinlega eftir skorningun-
um sem þama eru. Þaö er Ijóst
að nagladekkin hafa mjög víða
komiö við sögu og stórskemmt
götur og akbrautir i þéttbýhnu.
Undanfama vetur hafa nú ekki
verið það miklar vetrarhörkur
hér sunnanlands aö það sé bráö-
nauðsynlegt að fyrirskipa að selja
nagladekk undir alla bfla. Og það
sem af er vetri lofar góðu hvað
þetta snertir.
Við ættum því að fara að öllög-
um gatnamálastjóra í vetur og
forðast nagiadekidn og sjá hvort
við getum ekki samiö okkur að
siðum flestra annarra þjóða sem
leggja bann viö notkun nagla í
dekkjum.
Gunnar hringdi:
Núna, mitt 1 allri umræðunni um
erfiða stöðu iðnaðarins og þá einkum
fataiðnaðar, sem er sérstaklega illa
staddur vegna manneklu, mætti
skoða nánar hvers vegna fatnaður
hér á landi er svo dýr sem raun ber
vitni.
Ég mun þó halda mig við karl-
mannafatnað þar sem það er hann
sem að mér snýr í þessu tilviki. Ég
fór nýveriö í verslanir til aö skoða
karlmannafót, þessi af gamla skólan-
Mikið er til af fallegum fatnaði - en
of dýrum, að mati Gunnars.
um (jakki og buxur), svona sparifót,
eins og sagt var hér áður. Sennilega
er það orð fallið í gleymsku og dá.
Mér féll allur ketill í eld þegar kom
að verðinu. Að vísu var til mikiö
úrval af fallegum og sennilega góðum
fatnaði. En þegar maður þarf að
borga þetta frá kr. 16.900 og upp í kr.
23.000 þá finnst mér nú athugandi
hvort maður slæst ekki í hóp þeirra
Glasgowfara sem sagt er að fari til
aö gera innkaupin.
En í alvöru talað, þá reikna ég með
að halda mig við fóðurlandið og fara
ekki til Glasgow í bfli, a.m.k. Hitt er
mjög tímabært að kanna hvort verð
á tilbúnum fatnaði er yfirleitt í
nokkru samræmi við kaupgetu fólks
almennt.
Viö skulum gæta að því að það
verð, sem er víst lægst hér, eða kr.
11.300 fyrir karlmannaföt, jafngildir
um 380 Bandaríkjadollurum og þaö
sem er í miöflokki, eða kr. 16.900,
jafngildir um 450 dollurum. Maður
minnist svo ekki á fót sem eru á verð-
bilinu 18-23 þúsund krónur, því
jafngildi þess verðs erlendis er vand-
fundið.
Þegar á allt er litið þykir mér sem
tilbúinn fatnaður hafi hækkað svo
mjög í verði hér á landi að maður
þurfi að gæta ýtrustu sparsemi og
útsjónarsemi til þess að geta fatað sig
upp eins og sagt er svona á tveggja
til þriggja ára fresti. Verð á tilbúnum
fatnaði hefur aldrei farið jafnhátt og
nú. Það er illa farið, á sama tíma og
verið er að tala um að hjálpa þurfi
iðnaðinum og fataiðnaði sérstaklega.
Jólagjafahandbók
VERSLANIR!
Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 3. desember nk.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í
J ÓL AGJ AF AH ANDBÓKINNI
vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild
Þverholti 11 eða í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst.
í síöasta lagi fimmtudaginn 26. nóv. nk.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Pantanasími 13010
Litakynning.
Permanentkynning.
Strípukynning.
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
KROSSÁ Á SKARÐSSTRÖND
er auglýst til leigu laxveiðatímabilið 1988. Tilboðum
skal skilað til Trausta Bjarnasonar, bónda á Á, Skarð-
strönd, fyrir laugardaginn 5. desember kl. 14.00 er
tilboðin verða opnuð að viðstöddum þeim er óska á
Á á Skarðströnd. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum. Állar upplýsingar
gefur áðurnefndur í síma 93-41420.
Veiðifélag Krossár
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi söluskatts fyrir októbermánuð er 15. nóvember.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
^jRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-87008: Raflínuvír, 180 km.
Opnunardagur: Fimmtudagur 10. desember 1987 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 12. nóvember 1987 og kosta kr. 200,-
hvert eintak.
Reykjavík 11. nóvember 1987,
Rafmagnsveitur ríkisins
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fulhi ferð
SKILAFRESTUR
í BÍLAGETRAUN ER
TIL KL. 22 í KVÖLD,
FIMMTUDAG