Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
Iþróttir
Ungu „stjómum-
ar skinu skært
- þegar Stjaman vann Víking, 21-15
• Jens Einarsson, markvörður Fram, hefur hér hætt sér langt út úr markinu
f lelk KR og Fram í gærkvöldi. KR sigraöi 21-19. DV-mynd Brynjar Gauti
þjálfari KR, eftir að KR hafði sigrað
FTam, 21-19, í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Þaö syrtir því enn í álinn
hjá Fram og ekki verður framhjá
þeirri staðreynd gengið að liöið er
komið í alvarlega fallbaráttu.
Sigur KR var verðskuldaður þó
munur væri ekki mikill í lokin og
vesturbæjarliðið hefði átt að vera
búiö aö gera út um leikinn í fyrri
hálfleik. Þá misnotuöu KR-ingar fjög-
ur vítaköst - alls fimm í leiknum -
en höfðu samt þriggja marka forustu,
12-9, í hálfleik.
Fram var nú með alla sína bestu
menn, Hannes Leifsson var nú með
eför meiðsli en samæfingin er lítil
sem engin og því fór sem fór. Liðið
slakt og lánlaust að auki. Átti mörg
stangarskot í leiknum. En Björgvin
þjálfari Björgvinsson hiýtur aö geta
lagað leik þess og fær til þess góðan
tíma, tvo mánuði. Síöari rnnferö
mótsins hefst 24.janúar.
Leikurinn var jafn framan af eða
upp í 3-3. Síðan náði KR þriggja
marka forustu, 6-3, og hélt þeirri for-
ustu nær allan hálfleikinn og það
þrátt fyrir misnotuðu vítin. Lengi
framan af síðari hálfleiknum hélst
þessi munur. Fram-liðið virtist hafa
litla möguleika á aö vinna upp mun-
inn. Gísli Felix Bjamason snjall í
marki KR en markvarslan hins vegar
ekki sem best hjá Fram. Þegar sjö
mínútur voru til leiksloka náði KR
fimm marka forustu, 20-15, og sigur-
inn virtist öruggur. En það var öðru
nær. Guðmundur Jónsson fór að
verja mark Fram með miklum til-
þrifum og Fram skoraði fjögur mörk
í röð. Allt í einu eins marks munur
og rúmar tvær mínútur eftir. En
Guðmundur Albertsson lék lokakafl-
ann mjög vel í KR-liðinu, hélt knett-
inum og lét leikmenn Fram bijóta á
sér. Lék það aftur og aftur og skoraði
svo 21. mark KR fimm sekúndum
fyrir leikslok.
Gísli Felix var öðrum fremur mað-
urinn bak við sigur KR. Varði 15
skot og ungu strákarnir, Konráð
Olavson og Stefán Kristjánsson,
stóðu vel fyrir sínu. Hjá Fram var
Atli Hilmarsson skástur en þó langt
frá sínu besta. Mörk Fram í leiknum
skoruðu Atli 4/1, Pálmi Jónsson 3,
Júlíus Gunnarsson 3, Hannes Leifs-
son 3/1, Birgir Sigurðsson 2, Egill
Jóhannesson 2/2, Hermann Bjöms-
son 1 og Sigurður Rúnarsson 1. Mörk
KR skomðu Konráð 8/2, Stefán 4,
Guðmundur Albertsson 3, Sigurður
Sveinsson 3, Jóhannes Stefánsson 2/2
og Guðmundur Pálmason 1.
Dómarar Ólafur Haraldsson og
Stefán Amaldsson. Fram fékk 6 víta-
köst, misnotaði tvö. KR fékk níu
vítaköst og fimm fóm forgörðum.
Einum leikmanni Fram var vikið af
velli, fjórum KR-ingum.
-hsím
„Ég er mjög ánægöur með sigur-
inn, stigin og baráttuna hjá leik-
mönnum KR í leiknum. Með þessari
baráttu höldum við vel okkar hlut í
1. deildinni," sagði Ólafur Jónsson,
Ungu stelpumar í liði Stjömunnar
komu svo sannarlega á óvart með
mjög góðum leik í gærkvöldi er
Stjaman vann sanngjaman sigur á
Víkingi. Stjaman hafði þriggja
marka forskot í hálfleik og jók enn á
forskot sitt og sigraöi ömgglega með
21 marki gegn 15.
Það var ekki hægt að sjá á leik
Stjömunnar að hún hefði misst sinn
besta leikmann, Erlu Þuríði Rafns-
dóttur, frá vegna meiðsla. Hinir ungu
og efnilegu leikmenn liðsins fóra á
kostum í leiknum og em án efa mik-
il efni þar á ferðinni. Þær léku vörn
Víkingsliðsins oft grátt með góðum
gegnumbrotum eða skomðu með
góðum skotum utan af velli og homi.
í vöminni bám þær enga virðingu
fyrir leikmönnum Víkings og tóku
hressilega á móti þeim. Stjaman tók
strax forystu í leiknum og komst í
4-0. Víkingur náði að minnka mun-
inn í 6-5 og bjuggust menn nú við
því að þær myndu ná yfirhöndinni.
En Stjömustúlkur vom ekki á þeim
buxunum og með góðri baráttu juku
þær forskot sitt á ný og héldu því til
leiksloka.
Stjömuliðið átti góðan dag og eiga
allir leikmenn Uðsins hrós skilið fyr-
ir góða baráttu allan leikinn.
Valur vann stórt
Valur vann nýliöa Þróttarj
stórt í gærkveldi er liöin mætt-
ust að Hlíðarenda, staðan íj
hálfleik var 15-9 og endaöi leik-
urinn 30-16.
Valsliðiö var miklu sterkari I
aðilinn í leiknum og skoruðu |
flest marka sinna úr hraðaupp-
hlaupum eftir misheppnaöar;
sóknarlotur Þróttar. Þróttur |
komst upp með að spila mjö
langar soknir án þess aö f
dæmda á sig leíktöf.'Við það |
leiddist Valsstúlkum þófið og
freistuöust til að fara út úr vöm-
inni og misstu manneskjur oft
klaufalega fram hjá sér.
Valsliöið var sprækt í leiknum,
enda mótstaöan ekki mikil. At-
kvæðamest var Ema Lúðvíks-
dóttir sem spilaði sinn besta leik
í vetur og sýndi mikið öryggi í
vitaköstunum. Lið Þróttar mætti
ofjörlum sínum og áttu aldrei
möguleika á sigri.
• Mörk Vals: Ema Lúðviks- j
dóttir 10/6, Kristín Anna Ara- ,
þórsdóttir 6, Guörún Rebekka
Kristjánsdóttir og Magnea S.
Friðriksdóttir 4 hvor, Hanna
Katrín Friðriksen 3, Ásta Björk
Sveinsdóttir 2, Guðný Guðjóns-
dóttir 1.
• Mörk Þróttar: María Ingl-!
mundardóttir 4/2, Asta Stefájis-:
dóttir 4, Ema Reypisdóttir 3, Iris
Ingvarsdóttir og Agúst *
ardóttir 2 hvor, “
dóttir 1. .
-EL/ÁBS
Eria Rafnsdóttir með slitin krossbönd
Það er óneitanlega mikil blóö- krossbönd eru í sundur og mun besta handknattieikskona landsins
takan sem Stjömustúlkumar hafa hún fara í uppskurð á næstu dög- og verið einn af burðarásum ís-
orðið fyrir. A æfingu á sunnudag um. Óvfst má því telja að hún veröi lenska landsliösins.
fékk Erla Raíhsdóttir hnykk á hnéö nokkuð meira með í vetur en Eria -EL/ÁBS
og viö nánari skoðun kom í Ijós að hefur undanfarin ár verið ein al-
Atkvæðamestar vom þær Herdís
Sigurbergsdóttir, Ingibjörg Antons-
dóttir og Ragnheiður Stephensen en
allar em þær leikmenn í öðrum ald-
ursflokki og eiga án efa, ef þær balda
áfram á sömu braut, eftir aö láta
mikið að sér kveða í framtíðinni.
Víkingsliöið átti slakan dag og virt-
ist sem liöið væri ekki í góöri æfingu.
Vömin götótt og sóknarleikurinn bit-
laus. Þær veröa að taka sig saman í
andlitinu Víkingsstúlkumar ef þær
ætla sér aö veröa með í toppbarátt-
unni í vetur.
• Mörk Stjömunnar: Ingibjörg Ant-
onsdóttir og Herdís Sigurbergsdottir 7
mörk hvor, Ragnheiður Stephensen
5, Guöný Gunnsteinsdóttir og Hrund
Grétarsdóttir sitt markiö hvo,r.
• Mörk Víkings: Eiríka Asgríms-
dóttir 8/2, Valdís Birgisdóttir, Sigurrós
Bjömsdóttir og Svava Baldvinsdóttir
tvö mörk hver og Inga Lárar Þóris-
dóttir eitt mark.
• Valdimar Grimsson sést hér skora eitt af fimm mörkum sínum fyrir Val gegn Stjörnunni i gær. Valur sigraði
örugglega, 22-14. DV-mynd GUN
„Mína menn virtist skorta
alla trú á að geta unnið“
- sagði Gunnar Einarsson, þjátfari Stjömunnar. Valur - Sijaman 22-14
.JMína menn virtist skorta alla trú á að þeir gætu unnið Valsmenn.
Þrátt fyrir þennan ósigur er maöur ekkert voðalega ósáttur við okkar
frammistöðu og ef viö vinnum Fram í næsta leik veröum við komnir
með jafiivel fleiri stig en við reiknuðum meö í upphafi eftír fyrri um-
ferðina,“ sagði Gunnar Einarsson, þjálfari Stjömunnar, í samtali við DV
öryggi með 22 mörkum gegn 14 en staöan í leikhléi var 13-8 Val í vil
Leikur þessi var leiðinlegm- á að
horfa, fullmikil harka, lengstum
frekar slakur handknattleikur, sér-
staklega hjá leikmönnum Stjörnunn-
ar, og það lá svo til ljóst fyrir eftir
nokkrar mínútur hvort hðið myndi
sigra. Reyndar vom Garðbæingamir
sérlega slakir í þessum leik, sóknar-
leikurinn var í molum og ótrúlega
einhæfur.
Það sem hins vegar stóð upp úr í
þessum leik var vamarleikur Vals-
manna og markvarsla Einars Þor-
varðarsonar. Þau skiptu eflaust
tugum skotin sem Valsvömin varði
frá sóknarleikmönnum Stjömunnar
sem alltaf reyndu að sækja inn á
miðjuna. Þar hittu þeir fyrir betri
helming vamar Valsmanna. Og
mörg skotanna sem komust að Vals-
markinu varði Einar Þorvarðarson
af snilld.
• Ef htiö er yfir gang leiksins þá
var hann í stuttu máli sá aö Vals-
menn komust í 3-0, síöar í 5-1, 8-4,
12-7 og staðan í leikhléi var 13-8, Val
í vil. Valsmenn héldu uppteknum
hætti í síðari hálfleik og mest mun-
aði sjö mörkum, 19-12. Minnstur
varö munurinn hins vegar 14-10
skömmu eftir leikhlé.
• Valsmenn veröa greinilega með
í baráttunni um íslandsmeistaratitil-
inn ef þeir fara þá ekki alla leið. í
gær átti Einar Þorvarðarson bestan
leik og varði hami alls um 15 skot,
þar af tvö vítaköst.
• Evrópuævintýri Sijömumanna
hefur eflaust setiö í leikmönnum og
þeir virtust áhugalausir og trú á eig-
in getu var ekki fyrir hendi. Þeir
geta og gera eflaust betur í næstu
leikjum.
Mörk Vals: Júlíus Jónasson 6, Vald-
imar Grímsson 5, Þórður Sigurðsson
4/1, Jakob Sigurðsson 3, Gísli Óskars-
son 2 og Geir Sveinsson 2.
Mörk Stjömunnar: Gylfi Birgisson
5, Hermundur Sigmundsson 3/2, Haf-
steinn Bragason 2, Skúli Gunnsteins-
son 2, Einar Einarsson 1 og Sigurjón
Guðmundsson 1. Markverðir Stjöm-
unnar vörðu samtals 8 skot, Sigmar
Þröstur varði 5 skot, eitt víti og Hösk-
uldur Ragnarsson varði 3 skot.
• Leikinn dæmdu þeir Einar
Sveinsson og Gunnar Viðarsson.
Tveimur leikmönnum Vals var vikið
af leikvelli en Stjömumenn sluppu
við brottrekstra. -SK
Enn syrtir í álinn hjá Fram
- KR sigraði Fram, 21-19, í 1. deild karia í handboltanum í gær