Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
23
Meiming
Gimsteinn í götu manns
William Heinesen.
Wllliam Helnesen
Töfralampinn, nýjar mlnningasögur
Þorgeir Þorgelrsson þýddi
Forlagið 1987
Ef ekki væru bækur Williams
Heinesen gæti maður haldið að í
Færeyjum snerist mannlífið um að
borga skattinn til að geta keypt
brennivín, eiga lykil að bamum sín-
um, drepa alla grindhvali sem koma
í sjónmál, fara á samkomur í sértrú-
arhópum og dansa langan dans á
Ólafsvöku með tilheyrandi stórölvun
og bamaviðkomu. Eins væri maður
vís með að halda að eina bókabúðin
væri í Þórshöfn og aö í hinu þorpir.u,
Klakksvík, væri illa búið að verka-
fólki með barasta einni bunu úr
almenningssturtunni á farfugla-
heimilinu sem jafnframt er verbúð.
En einhvem veginn stangast þess-
ar upplýsingar úr munnlegum
frásögnum farandverkafólks og
ferðamanna á við þá mynd sem við
fáum úr bókum Heinesen sem Þor-
geir Þorgeirsson hefur góðu heilli
lagst á kaf í að þýða allt frá því að
Tuminn á heimsenda hitti beint í
hjarta þjóðarinnar árið 1976.
Heinesen segir gjarnan frá ein-
kennilegu en þó venjulegu fólki í
heimsbænum Þórshöfn. I frásögn-
inni er aldeilis ekki ílanað að neinu
eöa verið að eltast við hverfular
tískustefnur í bókmenntum. Það er
ekki heldur blásið í lúðra til að ná
athygli fjöldans. Sögumaður gengur
rólega um svið sitt og lýsir mannleg-
um brestum af næmum skilningi um
leið og tildur og stórmennska verða
fyrir barðinu á beittu og markvissu
háöi.
Dauðinn á næsta ieiti
í Töfralampanum er ekki brugðið
út af þessum vana enda þótt um-
mæli á bókarkápu gefi til kynna að
lesandi megi búast við mjög nýstár-
legum efnistökum. Hér gengur
gamall maður um götur í vel þekktu
þorpinu. Það er komið kvöld og dauö-
inn er á næsta leiti. En á meðan hann
lætur bíða eftir sér getum við hreiðr-
að um okkur og hlustað á nokkur
vel valin sögubrot um liðna atburði
ÁLEGGSHNÍFUR
A 330 FB 2
sem að öllu jöfnu ættu að vera löngu
gleymdir. Þessir atburðir eru felldir
inn í sögur sem sýna frummyndir
mannlegs lífs og fá því á sig svip
goðsagna og eiga jafnt við um alla
menn á öllum tímum. Þórshöfn er
lyft upp á goðsögulegt plan þar sem
heimsviðburðir eru soðnir niður í
lítinn afmarkaðan heim.
Athyglin beinist að manninum:
ástinni og líkamlegum þörfum
hversdagsins. Til dæmis er teflt fram
fallegu ástarævintýri fólks sem er
greinilega utangarðs samkvæmt
„viðurkenndum“ sjónarmiðum.
Bækluð, miðaldra og pipruð ,jóm-
frú“ laumast stundum á kvöldin að
finna gamlan og drykkfelldan
fræðagrúskara í slitnum skúr. í
venjulegum sögum er svona par ekki
gæfuleg uppistaða í rómantíska frá-
sögn. En Heinesen lætur fólk af þessu
tagi vera elskendur sem fá sér í
staupinu og tísta saman þangaö til
hún blæs á kertin og tekur hann
undir skinnábreiðuna til sín.
Flett ofan af
sjálfsblekkingum
Öllu viðurkenndari stórmenni,
landeigendur og útgerðarmenn,
verða aftur á móti að lítilsigldum og
vanþroska strákum sem slást eins
og hundar í stað þess aö rækta til-
finningagarðinn sinn. Og þegar sagt
er frá allra svíviröilegustu tiltækjum
þessara stórkarla er það gert af hóf-
semi með tilvísun í almannaróm sem
um leið flettir ofan af eigin sjálfs-
blekkingu. Tökum sem dæmi þegar
Konráð verslunarjöfur sölsar undir
sig jarðir smábændanna......svo-
nefndar torfur sem margarhveijar
eru þegar í eigu Konráös, oftastnær
frá viðskiptamönnum sem voru
orðnir skuldugir verslunarjöfrinum
vegna þess hvaö hann var bæði
greiðvikinn og þolinmóður, sem
kunnugt er.“
Og svo er grínast með Konráð og
brenglað verðmætamat hans. Hann
lendir í miklum deilum við frænda
sinn, stórlaxinn Lýð, en þessir tveir
„voru á meðal umtöluðustu og virt-
ustu manna í þá daga“. En eftir
meöhöndlun Heinesen hafa þeir og
eftirmyndir þeirra í mannheimum
gjörsamlega glataö þessari virðingu.
Þeir lenda í landamerkjadeilum sem
snúast aðallega um einn stein og
heiftin veröur að lokum slík að þeir
kyrkja hvor annan í saltkjallara.
Sannarlega dapurleg örlög en samt
getur höfundur ekki stillt sig um eitr-
aða athugasemd þegar fólkið er að
velta fyrir sér hvor þeirra hafi nú
átt upptökin: ......menn fengu sig
varla til að trúa því að Ijúflingurinn
Konráð hefði líka gert sig sekan um
morð, jafnvel þó í sjálfsvöm væri.
Sumir skuldunautar Konráös im-
pruðu þó á því að maðurinn hefði
verið óvenju handsterkur."
Bókmenntir
Gísli Sigurðsson
Hjá Fanneyju í hitanum
Ástin rúmast ekki í þröngum
ramma hjónabandsins sem er sá reit-
m- sem þjóðfélagið úthlutar henni,
a.m.k. um daga. Um nætur gilda önn-
ur lögmál og þá laumast karlarnir í
fangið á Fanneyju í hitanum - sem
svo er kölluö af því að hún er nætur-
vörður í saltfiskþurrkuninni - og
njóta þess forboðna. Þar er enginn
undanskilinn. Jóhann meðhjálpari,
sannkristið góðmenni, hrasar og læt-
ur undan freistingunni en með því
að játa opinberlega um daga það sem
hann gerir um nætur verður allt vit-
laust. Fleiri feta í næturspor Jóhanns
þangað til nánast allir karlmenn
bæjarins eru komnir í næturfriðla-
sveit Fanneyjar í hitanum. En þó að
þetta sé greinilega það sem þeir sækj-
ast allir eftir þá er ekki um það að
ræða að svona nokkur hegðun geti
viðgengist. Hún hlýtur að enda með
ósköpum og eftir sitjum við og höfum
kannski lært einhverja ögn um
mannlega bresti sem gengur illa að
ráða viö.
í goðsögum hrynur heimsmyndin
gjarnan í lokabardaga, e.k. ragna-
rökum, og stundum sjáum við
mannkynssöguna í svipuöu Ijósi.
Okkur er t.a.m. sagt að fyrir heims-
styijöldina fyrri hafi ríkt ákveðið
jafnvægi í tilverunni og ofurtrú á
framtíðina og mátt mannsins til að
leysa öll vandamál með aöstoð vís-
inda og skynsemishyggju. En með
styijöldinni fuku þessi gildi út um
gluggann og við tók nútíminn þar
sem engu er að treysta.
Brunadælubardaginn
Það smna gerist í Töfralampanum.
Sá furðuheimur, sem þar segir frá,
er horfmn og endalok hans markast
af brunadælubardaganum sein verö-
ur um sama leyti og heimsófriðurinn
mikli er að bijótast út. En brunda-
dælubardaginn er enginn venjulegur
bardagi. Og þó - kannski er hann
einmitt venjuíegastur allra bardaga.
Þorpsbúar hafa safnast saman til að
fylgjast með slökkvistjóranum og
mönnum hans reyna nýja bruna-
dælu. Þessi saklausa skemmtun
snýst upp í stóráflog þegar slökkvi-
stjórinn ræðst gegn fyrirmönnum
bæjarins meö dæluna að vopni. Al-
menningur stendur hjá og verður
vitni að skrípasýningu þar sem
virðulegir embættismenn leika aðal-
hlutverkin. Utan við þröngina
stendur Maðurinn með ljáinn og
hvetur kempumar áfram á meðan
báliö brennur til enda, bálið sem
meiningin var að slökkva með aðstoð
nýju dælunnar.
Sögur Heinesen sýna stórviðburði
í hversdagslegu lífi og leggja áherslu
á það sem skiptir raunverulega máli.
Þar er flett ofan af þvi verðmæta-
mati sem dýrkar styrkinn og at-
hafnasemina og í staðinn bent á þá
gimsteina sem liggja í götu okkar
ailra. G.S.
Við lofum því
sem skiptir mestu
máli:
GÓÐRI
ÞJÓNUSTU
Verð og tæknileg
útfærsla við allra
hæfi
PFAFF
Borgartúni 20
og Kringlunni
Sjálfvirkur með
færibandi.
Telur sneiðar.
Staflar eða raðar
eftir vild.
330 volt.
Gæði sem slá í
gegn.
ROKRÁS
RAFEINDATÆKNIÞJÓNUSTA
Ðlldshöfða 18 • Slml 671020
Gjörið svo vel!
Enjoy it!
Bitte schön!
/fllafossbúöin
Vesturgata 2, Reykjavík, sími 13404
Við pökkum - tryggjum og sendum um heim allan.
We wrap - insure and send around the world.
ír verpacken - versichem - versenden rund urn die Welt.