Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
33
dv Fólk í fréttum
Magnús Thoroddsen
Magnús Thoroddsen, forseti
Hæstaréttar, hefur verið í fréttum
DV og andmælt gagnrýni Jóns
Steinars Gunnlaugssonar á Hæsta-
rétt.
Magnús er fæddur 15. júlí 1934
og lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1959.
Hann var í framhaldsnámi í réttar-
fari í Kaupmannahöfn 1959-1960 og
var fulltrúi hjá borgardómaranum
í Rvík 1960-1967. Magnús var borg-
ardómari 1967-1982 og starfaði hjá
mannréttindanefnd Evrópu í
Strassborg 1979-1982. Hann hefur
verið dómari í Hæstarétti íslands
frá 1982. Magnús varð formaður
réttarfarsnefndar 1983 og forseti
Hæstaréttar 1. janúar 1987.
Magnús giftist 23. nóvember 1957
Sólveigu Kristinsdóttur, f. 25. apríl
1935. Foreldrar hennar eru Krist-
inn Stefánsson prófessor og kona
hans, Oddgerður Geirsdóttir. Börn
Magnúsar og Sólveigar eru Sigurð-
ur Tryggvi, f. 9. maí 1958, í doktors-
námi í Bandaríkjunum í straum-
fræði vatna og vinda, Gerður
Sólveig, f. 18. ágúst 1959, lögfræði-
nemi, gift ívari Pálssyni viðskipta-
fræðingi, og Þóra Björg, f. 23.
september 1962, viðskiptafræðing-
ur. Systkini Magnúsar eru María
Kolbrún, f. 26. júní 1939, gift Emi
Ingólfssyni, verslunarmanni í
Rvík, og á hún eina dóttur; Soffía
Þóra, f. 14. september 1945, gift Sig-
urði Kristinssyni, rafvirkja á Sel-
tjamamesi, og eiga þau tvö börn,
og Sigurður, dó unngur.
Foreldrar Magnúsar em Jónas
Thoroddsen, borgarfógeti í Rvík,
og kona hans, Björg Magnúsdóttir.
Föðursystkini Magnúsar eru Sig-
ríður, gift Tómasi Jónssyni borgar-
lögmanni, en móðir Jóns borgar-
lögmanns, Kristín, var gift Bruno
Kress prófessor; Valgarð raf-
magnsveitustjóri; Gunnar forsæt-
isráðherra; Margrét, gift Einari
Egilssyni verslunarmanni. Faðir
Jónasar var Sigurður Thoroddsen
landsverkfræðingur, bróðir Skúla
alþingismanns, afa Dags Sigurðar-
sonar rithöfundar. Sigurður var
sonur Jóns Thoroddsen, sýslu-
manns og skálds á Leirá. Móðir
Sigurðar var Kristín Þorvaldsdótt-
ir, b. í Hrappsey, Sívertsen, bróöur
Ólafs, langafa Katrínar, móður Pét-
urs J. Thorsteinsson sendiherra.
Móðir Jónasar var María, dóttir
Jean Valgard van Deurs Claessen
landféhirðis og konu hans, Kristín-
ar, systur Páls, afa Sigurðar Líndal
prófessors. Kristín var dóttir Egg-
erts Briem, sýslumanns á Reyni-
stað, Gunnlaugssonar Briem,
sýslumanns á Grund í Eyjafirði,
fóður Jóhönnu, ömmu Hannesar
Hafstein ráðherra. Bróðir Jóhönnu
var Ólafur á Grund, faðir Valdim-
ars Briem, vígslubiskups og skálds,
einnig langafi Davíðs Stefánssonar,
og langafi Odds, fóður Davíðs borg-
arstjóra.
Móðursystkini Magnúsar eru
Bogi, stýrimaður, d. 1937, og Þóra,
gift Pétri Gunnarssyni, forstjóra
Rannsóknastofnunar landbúnað-
arins. Björg er dóttir Magnúsar
ráðherra, bróður Sigurbjargar,
móður Björgvins Sigurðssonar, fv.
framkvæmdastjóra Vinnuveiten-
dasambands íslands. Magnús var
sonur Guðmundar, b. í Holti í
Svínadal, Þorsteinssonar, b. á
Grund í Svínadal, Helgasonar, b. á
Sólheimum, Eiríkssonar, b. í Bol-
holti, Jónssonar. Dóttir Eiríks var
Ingunn, langamma Sigríðar, móð-
ur Ólafs Skúlasonar vígslubiskups.
Móðir Guömundar var Sigurbjörg
Oddsdóttir, systir Gísla, langafa
Ágústs, foður Hákonar Á. Bjarna-
sonar, fv. skógræktarstjóra. Móðir
Magnúsar var Björg Magnúsdóttir,
systir Önnu, langömmu Guðmund-
ar Péturssonar, forstöðumanns á
Keldum. Björg var dóttir Magnús-
ar, b. í Garði, Magnússonar, bróður
Rannveigar, langömmu Páls á
Höllustöðum og Jónasar Kristjáns-
sonar ritstjóra. Móðir Bjargar var
Margrét Jónsdóttir, systir Magnús-
ar, prests í Laufási, fóður Jóns
forsætisráðherra. Móðuramma
Magnúsar, kona Magnúsar ráð-
herra, var Soffia, systir Hhfar,
langömmu Vals Arnþórssonar.
Soffía var dóttir Boga Smith, b. í
Arnarbæli á Fellsströnd, Martin-
ussonar Smith, kaupmanns í Rvík.
Móðir Boga var Ragnheiður, systir
Brynjólfs, langafa Geirs Hallgríms-
sonar. Ragnheiður var dóttir Boga,
b. og fræðimanns á Staðarfelli,
Benediktssonar, bróöur Halldóru,
langömmu Magnúsar, foður Dav-
íðs Scheving Thorsteinsson.
Afrnæli
Þórhallur Hermannsson
Þórhallur Hermannsson, við-
skiptafræðingur og húsfaðir,
Álfhólsvegi 97, Kópavogi, er sex-
tugur í dag. Þórhallur Hjörtur
fæddist á Skútustöðum við Mývatn
og ólst þar upp en 1943 varð faðir
hans skólastjóri við Héraðsskólann
að Laugum og þar var Þórhallur
kennari 1950-1951. Hann var kenn-
ari við Gagnfræðaskólann á
ísafirði 1947-1948 pg lauk viðskipta-
fræöiprófi frá HÍ 1953. Þórhallur
var starfsmaður Tryggingastofn-
unar ríksins 1953-1979, lengst af
deildarstjóri þar, og starfaði einnig
fyrir Norðurlandaráð en hefur ver-
ið húsfaðir síðan 1979. Þórhallur
kvæntist 2. júní 1952 Sigríði Páls-
dóttur, f. 21. febrúar 1930, ráðskonu
á barnaheimili. Foreldrar hennar
eru Páll H. Jónsson, kennari á
Laugum, og kona hans, Rannveig
Kristjánsdóttir. Börn Þórhalls og
Sigríðar eru: Rannveig, f. 2. mars
1952, fóstra, gift Má V. Magnússyni
sálfræðingi, og eiga þau eitt barn;
Sigríður Kristín, f. 27. júlí 1953,
póststarfsmaður, fyrri maður
hennar var Þorvaldur Kristjánsson
frá Haraseli í Hróarstungu og eiga
þau þrjú börn; Höskuldur, f. 12
desember 1954, forritari, búsettur
Svíþjóð; Geirfinnur, f. 8. mars 1956
útvegsbóndi á Saurbæ á Langanes
strönd, giftur Guðrúnu Sigur
björnsdóttur, og eiga þau eitt barn
Hrólfur, f. 9. febrúar 1962, nemi
Stýrimannaskólanum; og Arnhild
ur, f. 23. febrúar 1964, Kennarahá
skólanemi, gift Heröi Jónssyni
sjómanni.
Systkini Þórhalls eru fimm og er
eitt látið, þau eru: Hallur, f. 31. maí
1917, skrifstofustjóri Skipaútgerðar
ríkisins, fyrri kona hans var
Hrefna Eyjólfsdóttir, seinni kona
hans er Sigurveig Halldórsdóttir;
Ingibjörg, f. 22. júní 1918, gift Will-
iam Dínussyni, ættuðum frá
Mýlaugsstöðum í Aðaldal, prófess-
or í landbúnaöarfræðum í Norður-
Dakota, og eiga þau tvö börn;
Ingunn Anna, f. 20. ágúst 1921, var
gift Jónasi Pálssyni, rektor Kenn-
araháskóla íslands, og á hún fimm
börn; Jóhanna Sigríður, f. 30. maí
1923, ógift, býr í Reykjavík; og Álf-
hildur, f. 26. maí 1925 og lést níu
ára.
Foreldrar Þórhalls voru: Her-
mann Hjartarson, prestur og síðast
skólastjóri Laugaskóla, og kona
hans, Kristín Sigurðardóttir. Her-
mann var sonur Hjartar, útvegs-
bónda, hreppstjóra og snikkara á
Flautafelli í Þistilfirði, Þorkelsson-
ar, b. á Sveinungavík. Móðir
Hermanns var Ingunn Jónsdóttir,
b. í Kollavík í Þistilfirði, Þorláks-
sonar. Móðir Ingunnar var Malen
Sigurðardóttir, stúdents á Eyjólfs-
stöðum á Völlum, Guðmundsson-
ar, sýslumanns í Krossavík,
Péturssonar. Móðir Þórhalls var
Kristín Sigurðardóttir, b. í Páls-
gerði í Dalsmynni, Pálssonar, b. í
Glaumbæ í Reykjadal, Halldórs-
sonar, b. í Vallakoti í Reykjadal,
Jónssonar lamba, er átti galdrabók.
Móðir Páls var Dóróthea Nikulás-
dóttir Buch, ættfóður Buchættar-
innar. Móðir Kristínar var
Hólmfríöur Árnadóttir, b. í Landa-
móti í Kinn, Bjarnasonar.
Vilborg Torfadóttir
Vilborg Torfadóttir verkakona,
Fljótaseh 8, Reykjavík, er sextug í
dag. Vilborg fæddist í Hafnarfirði
en ólst upp í Reykjavík hjá fóstur-
foreldrum sínum, Matthildi
Hannibalsdóttur og Kristjáni Sæ-
mundssyni, sem stundaði trilluút-
gerð.
Maður Vilborgar var Pétur Björn
skipherra, Jónsson, f. í Dýrafirði
26. júní 1927, en hann lést 1969.
Foreldrar hans: Jón, sjómaður í
Dýrafirði, Erlendsson og kona
hans, Lilja skáldkona Björnsdóttir.
Vilborg átti eina dóttur fyrir
hjónaband, Matthildi Kristjönu
Kelley, en hún er ekkja og býr í
Chicago í Bandaríkjunum. Vilborg
og Pétur eignuöust sex börn: Jón,
bakari í Reykjavík, f. 4. nóvember
1950, er giftur Sigfríð Þormar og
eiga þau þrjú börn; Kristinn Pétur,
stýrimaður í Reykjavík, f. 4. nóv-
ember 1950, giftur Ragnheiði
Bragadóttur, og eiga þau tvö börn;
Hafdis Lilja, húsmóðir og skrif-
stofustúlka á Grundarfirði, f. 29.
janúar 1952, gift Bæring Aðal-
steinssyni sjómanni og eiga þau
fjögur börn; Sveinn Kristján, stýri-
maöur á ísafirði, f. 22. ágúst 1954,
giftur Sigurborgu Kristjánsdóttur;
Ingibjörg Mjöll, tollvörður i
Reykjavík, f. 16. mars 1956, á tvö
börn; Bjarni Leifur, sjómaöur, f. 15.
júní 1958, á eitt barn.
Vilborg átti íjögur alsystkini og
átta hálfsystkini.
Foreldrar Vilborgar voru Torfi
Björnsson, sjómaður í Hafnarfirði,
og kona hans, María Ólafsdóttir.
Vilborg tekur á móti gestum aö
Fljótaseli 8 i kvöld, eftir klukkan 20.
Guðmundur EyjóHisson
Guðmundur Eyjólfsson bóndi,
Suðurhvoh, Mýrdalshreppi, er sjö-
tíu og fimm ár í dag. Guömundur
fæddist aö Hvoli og ólst þar upp og
útskrifaðist úr Samvinnuskólan-
um 1941. Guðmundur hefur verið
bóndi á Suðurhvoli frá 1954. Systk-
ini Guðmundar eru Anna Rósa, f.
1905, bústýra á Hvoli; Ingveldur,
gift Daníel, b. í Kerhngadal í Mýr-
dalshreppi, Guðbrandssyni; Stein-
unn, f. 1910, nú látin, var gift
Sigurjóni, b. í Pétursey, Árnasyni,
sem einnig er látinn; Sigurður, f.
1915, b. að Hvoli, giftur Sigurbjörgu
Guðnadóttur. Foreldar Guðmund-
ar voru Eyjólfur, rithöfundur og
b. að Hvoli, Guðmundsson, og kona
hans, Arnþrúður Guðjónsdóttir.
Foreldrar Eyjólfs voru Guömund-
ur Ólafsson í Eyjarhólum í Mýrdal
og kona hans, Guðrún Þorsteins-
dóttir, garðyrkjumanns í Úthlíð,
Þorsteinssonar, b. á Hvoli í Mýrd-
al, Þorsteinssonar, hálfbróður,
samfeöra, Bjarna amtmanns Thor-
steinssonar. Móðir Þorsteins var
Þórunn Þorsteinsdóttir, b. og smiðs
á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, Ey-
jólfssonar. Móðir Þórunnar var
Karítas Jónsdóttir, stjúpdóttir Jóns
Steingrímssonar „eldprests". Móö-
ir Guömundar, Arnþrúður, er
dóttir Guðjóns, b. á Þórisstöðum í
Eyjafirði, Einarsson, og konu hans,
Önnu Buch.
Einar Olafsson
Einar Ólafsson fulltrúi, Norður-
völlum 10, Keflavík, er sjötíu og
fimm ára í dag. Einar fæddist í
Keflavík, ólst þar upp og lauk stúd-
entsprófi frá MR 1933. Einar var á
Niels Brock-verlsunarháskólanum
í Kaupmannahöfn í eitt ár og starf-
aði hjá bæjarfógetaembættinu í
Keílavík 1945-1976 og hefur staifað
hjá Sparisjóði Keflavíkur frá 1976.
Einar giftist 17. desember 1949
Liss Jelstrup, f. 30. desember 1924.
Faðir Liss var Christian Jelstrup,
yfirvélstjóri hjá Konunglegu
Grænlandsversluninni, en hann
fæddist á Saint Croix sem þá var
dönsk nýlenda í Vestur-Indíum.
Móðir Liss var Elna Jelstrup, dóttir
Vilhelmínu, dóttur Stefáns Gunn-
laugssonar, landfógeta og bæjar-
fógeta í Reykjavík, og Ragnhildar
Benediktsdóttur skálds Gröndals,
en Ragnhildur var systir Helgu,
konu Sveinbjarnar Eghssonar
rektors.
Einar og Liss eiga þrjú börn: Ólaf-
ur, f.10.9. 1950, skurðlæknir á
Landspítalanum, giftur Guðbjörgu
Halldórsdóttur og á eina dóttur,
Maríanna, f.18.11. 1952, gift Þor-
steini Marteinssyni, bóksala í
Kelfavík, og eiga þau þrjá syni;
Guðrún, f.1.3. 1958, hefur lokiö
BA-prófi í frönsku og málvísindum,
en hún starfar hjá Féfangi hf., gift
Einari Páli Svavarssyni, fram-
kvæmdastjóra hjá fyrirtækinu
Þykkvabæjarkartöflur. Þau eiga
eina dóttur.
Einar á tvö systkini: Þórunn,
húsmóðir í Keflavík, f.9.maí 1916,
var gift Helga S. Jónssyni verslun-
armanni; Arinbjörn, f.29. júlí 1922,
starfaði hjá Rafveitunni, giftur
Ernu Vigfúsdóttur. Foreldrar Ein-
ars voru Ólafur Ólafsson, kaup-
maður í Kelfavík, og kona hans,
Guðrún Einarsdóttir. Faöir Ólafs
var Arnbjörn, kaupmaður í Kefla-
vík, Ólafsson, b. á Árgilsstöðum í
Hvolhreppi, Arnbjörnssonar, af
Kvoslækjarætt. Meðal systkina
Arnbjarnar, afa Einars, má nefna
Bergstein, fóður Gissurar hæsta-
réttardómara, sem er faðir Berg-
steins brunamálastjóra, Sesselju,
ömmu Hallgríms Helgasonar tón-
skálds, og Ólöfu, ömmu Ólafs G.
Einarssonar og Nils, skrifstofu-
stjóra síldarútvegsnefndar, föður
Boga skattrannsóknarstjóra. Þur-
íður Bergsteinsdóttir, langamma
Einars og kona Ólafs b. á Árgils-
stöðum, var systir Jóhannesar, b.
í Litla-Gerði í Hvolhreppi, en hann
var afi Gunnars Bergsteinssonar,
forstjóra Landhelgisgæslunnar.
Móðir Einars, Guðrún, var dóttir
Einars, útvegsbónda í Sandgerði,
Sveinbjömssonar og konu hans,
Guðrúnar Bjarnadóttur.
85 ára
Guðbjörg Stefánsdóttir, Bólstaöar-
hlíð 54, Reykjavík, er áttatíu og
fimm ára í dag. Hún tekur á móti
gestum að Hegranesi 7 í Garðabæ ^fl ópg
eftir kl. 20.
Magnús Sigurjónsson, Álftamýri
31, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Roy Philipps, Skólagarði 4, Húsa-
vík, er fimmtugur í dag.
70 ára
Ásgeir Björnsson, Suöurgötu 37,
Siglufirði, er sjötugur í dag.
50 ára
Sigurður Þórhallsson, Klúku,
Fljótsdal, Múlasýslu, er fimmtugur
í dag.
Magnús Björgvinsson, Kirkjuvegi
3, Hafnarfirði, er fertugur í dag.
Sigurður Ármannsson, Hallveigar-
stíg 10 A, Reykjavík, er fertugur í
dag.
Árni Þór Árnason, Hallveigarstíg 6
A, Reykjavík, er fertugur í dag.
Jónas Pálsson, Aðalbraut 43, Rauf-
arhöfn, Þingeyjarsýslu, er fertugur
í dag.
Andlát
Aldný Magnúsdóttir, Norðurbrún
1, andaðist þriðjudaginn 10. nóvemb-
er.
Klara Kristiansen, hárgreiðslu-
meistari frá Seyðisfirði, Njálsgötu
34b, andaðist í Vífilsstaðaspítala 9.
nóvember.
Baldur Þórhallsson, Fellsmúla 2,
andaðist 10. nóvember í Vífilsstaö-
aspítala.
Gunnar Bjarnasen frá Vestmanna-
eyjum er látinn.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Opit) til kl. 21 1)11 kriiltl
0öBlóm
wQskrcylingar
Laugavegi 53, simi 20266
Scndum um land allL