Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Qupperneq 34
*
r
34
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
Jaröarfarir Merming
bóra Björnsdóttir lést 4. nóvember
sl. Hún var fædd í Reykjavík 3. des-
ember 1941, dóttir hjónanna Björns
.Guðmundssonar og Guðlaugar
Markúsdóttir. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Sigþór B. Sigurðs-
son. Þau hjónin eignuðust 3 börn.
Útför Þóru verður gerð frá Bústaða-
kirkiu í dag kl. 15.
Sólveig Sigurðardóttir, Gerðakoti,
Ölfusi, er lést mánudaginn 2. nóv-
ember, verður jarðsungin frá Hjalla-
kirkju laugardaginn 14. nóvember
kl. 13.30.
Gunnar Þór Jóhannsson skipstjóri,
Bárugötu 7. Dalvík. verður jarðsung-
inn frá Dalvikurkirkju laugardaginn
14. nóvember kl. 10.30.
Jóhannes Halldór Pétursson, IÖU-
felli 12, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 13. nóv-
ember kl. 10.30.
Andreas S. J. Bergmann, Ljósvalla-
götu 24. verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 13. nóv-
ember kl. 15.
Björgvin Filippusson, Hjallavegi 23,
Reykjavík. sem andaðist 6. nóvemb-
er, verður jarðsunginn frá Áskirkju
föstudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
Útför Önnu Agnarsdóttur verður
gerð frá Borgarneskirkiu föstrdag-
inn 13. nóvember kl. 14. Rútuferð
verður frá Umferðarmiðstöðinni kl.
11 og til baka að athöfn lokinni.
Tilkyimingar
Háskólafyrirlestur
Malan Simonsen, lektor í færevskum
bókmenntum við Fróðskaparsetur Fær-
eyja, flvtur opinberan fvrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands í dag.
12. nóvember. kl. 17.15 í stofu 422 í Árna-
garði. Fyrirlesturinn nefnist „Kvindelitt-
eratur pa Færoerne" og verður fluttur á
dönsku. Malan Simonsen lauk cand.
mag. prófi í dönsku og frönsku frá Kaup-
mannahafnarháskóla og síðan licentiats-
prófi frá háskólanum í Odense. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn
Vakningasamkomur
i Neskirkju með Toger Larson verða öll
kvöld kl. 20 þessa viku. Fyrirbænir. mik-
ill söngur. tónlist og lofgjörð. Fórn verður
tekin.
Tónleikar
Áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
Fjórðu áskriftartónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands verða haldnir í Háskólabi-
ói í dag. 12. nóvember, kl. 20.30. Guðni
Franzson klarínettleikari leikur þá i
fyrsta skipti einleik með hljómsveitinni
Klarínettkonsert nr. 2 eftir Weber. Auk
þess verða á dagskránni Vespurnar eftir
Vaughan-Williams og Sinfónía nr. 5 eftir
Tschaikovskv. Stjórnandi á tónleikunum
verður Frank Shipway. Miðasala verður
í dag á skrifstofu hljómsveitarinnar í
Gimli við Lækjargötu og í Háskólabíói
við upphaf þeirra.
Ftóamarkaður
Lionessuklúbbur Reykjavíkur
heldur flóamarkað í Lionsheimilinu Sig-
túni 9 laugardaginn 14. nóvember kl. 14.
Á boðstólum verða glæsilegir munir, all-
ir ódýrir. Kaffi á könnunni.
Fundir
Hið íslenska sjóréttarfélag
gengst fyrir hádegisverðarfundi í Leifs-
búð á Hótel Loftleiðum fóstudaginn 13.
nóvember nk. og hefst hann kl. 12 (kalt
borð). Fundarefni: Haraldur Blöndal hrl.
flytur erindi er hann nefnir: „Rannsókn-
arnefnd sjóslysa ,og starfsemi hennar".
Að erindinu loknu er gert ráð fyrir fyrir-
spurnum og umræðum. Fundurinn er
öllum opinn og eru félagsmenn og aðrir
v áhugamenn um sjórétt, sjóvátrygginga-
rétt og siglingamálefni hvattir til að
mæta.
Vetrarmynd í kirkjunni
Nýtt verkefni eftir Atla Heimi í Dómkirkjunni í gærkvöldi.
Lokatónleikarnir á tónlistardög-
um Dómkirkjunnar voru í gær-
kvöldi. Þar fluttu Dómkórinn og
ýmsir einsöngvarar (Sigrún Gests-
dóttir, Anna S. Helgadóttir, Elín
Sigurvinsdóttir, Sigursveinn K.
Magnússon), tveir organistar
(Martin Hunger, Guðni Þ. Guö-
mundsson) og nokkrir ónafn-
Tórúist
Leifur Þórarinsson
greindir félagar í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands verk eftir Atla H.
Sveinsson, Karl Runólfsson, Gunn-
ar R. Sveinsson, Saint-Saens og
Cesar Franck. Stjómandi var Mar-
teinn H. Friðriksson alias Martin
Hunger.
Aðalverkið og það eina sem skipti
máli var auðvitað nýtt verk eftir
Atla: Vetrarmynd í kirkjunni við
texta eftir Knud Ödegárd. Það var
spennandi, í það minnsta fyrir tón-
leikana. Eftir að það hófst var ekki
laust við að læddist að manni nokk-
ur leiði, jafnvel kvíði, því síbyljandi
endurtekningar á atkvæðum text-
ans voru langdregnar og drógu úr
áhuga undirritaðs, svæfðu hann
næstum. Þetta er kallað kórtrillur
í efniskrá samanber: „Frásögn er
hæg, kórtrillur, hraðar og hægar,
bylgjast upp og niður og fleyta úr
sér orðunum, hverju fyrir sig. Frá-
sagnarmátinn og formið verða
eitt.“
Og frá hverju er verið að segja?
Aitarisgöngu á vetrarmorgni,
vænti ég. Og lokalínum ljóðsins er
vonandi ætlað að vera ógnvekj-
andi: „Mjór vegur af dökkum
rauðum vökva/bugðast hægt eftir
steingólfinu.“
Dómkórinn flutti þetta undir
stjórn Marteins dómorganista og
voru félagarnir í sinfóníunni einnig
með í leiknum. Var auðheyrt að
mikil vinna lá að baki.
Annað á efnisskránni var ekki
sérlega áhugavert, heldur ekki
Kórall nr. 1 eftir Franck, sem var
álíka stirðbusalegur og sá nr. 3,
sem Bjöm Sólbergsson lék um dag-
inn, var skemmtilegur. En ein-
hvers staðar verða vondir að vera.
LÞ
Dinnermúsik
Háskólatónleikar, sem haldnir
eru í hádeginu næstum annan
hvern miðvikudag, hafa einkum
sér til ágætis að þar eru gjarnan
kvaddir til músíkantar sem lítið
myndi heyrast í ella.
I gær kom þarna fram (í Norræna
húsinu) ungur fiðluleikari, Martin
Frewer, en hann hefur dvalið hér
á landi nokkur undanfarin ár og
leikið með sinfóníunni. Martin er
frá Englandi og er bæði menntaður
sem stærfræðingur og fiðluleikari.
Hann lék þarna m.a. fyrstu fiðlu-
sónötuna op. 12 eftir Beethoven og
hafði með sér landa sinn, Divid
Knowles við píanóið. Ekki verður
nú sagt að þetta hafi verið hnökra-
Tónlist
Leifur Þórarinsson
laus flutningur eða svipmikill.
Sónatan gefur að vísu ekki mikil
tilefni til stórátaka í sálartötrinu,
en hún gerir kröfur um skýra
formmótun og jafnvægi í samspili.
Nokkuð skorti á að þeir félagar
hefðu þetta á valdi sínu sem
kannski er ekki nema von.
Önnur verk voru styttri og létt-
vægari, útsetningar á dinnermúsík
eftir de Falla og Ponce, sem var
ágætt. LÞ
Skák___________________
Jafntefli samið
á óteflda skák
í gærkvöldi
Sigurður ísaksson:
Góður
en grófur
Umsögn um fjölmiðlun á mið-
vikudagskvöldi miðast eingöngu
-við Ríkissjónvarpið þar sem ég
kom það seint heim að ég gat
ekki horft á 19:19 á Stöð 2 sem
annars er áhugaverður. En aö
ööru leyti yrði myndlykill dýr hjá
mér þar sem ég er ekki það mörg
kvöld heima.
Fréttir Ríkissjónvarpsins horfi
ég ávallt á ef ég get og var gær-
kvöldið engin undantekning.
Þættimir hans Hemma Gunn í
sjónvarpinu finnst mér ekki nógu
góðir og persónulega finnst mér
hann fremur eiga heima í hljóð-
varpinu. Þó fannst mér gaman
aö gömlu kempunni Hjálmari
Gíslasyni.
Þættirnir um Kolkrabbann lýsa
sjálfsagt vel baráttunni viö maf-
íuna, en heldur finnst mér sum
atriðin gróf fyrir sjónvarp þetta
snemma kvölds. Svipmyndir frá
íslandsmótinu í handknattleik,
og þá sérstaklega beinar lýsingar,
eru vel þegnar þó þær mættu
vera lengri að mínu mati. Og fyrst
ég er farinn að ræða um íþróttir
í Ríkissjónvarpinu, þá tekur
knattspyrnan allt of mikinn tíma
þess þáttar.
Garrí Kasparov og Anatoly
Karpov sömdu um jafntefli eftir 21
leik í tólftu einvígisskákinni í Se-
villa í gær. Kasparov, sem haföi
hvítt, sótti fram með peðum sínum
á kóngsvæng en snerist svo hugur
og bauð jafntefli. Karpov þekktist
boðið þótt hann ætti að flestra dómi
traustari stöðu. Hann tapaöi elleftu
skákinni eftir fmgurbrjót en eftir
svo auðvelt jafntefli meö svörtu
mönnunum ætti skákskap hans að
lyftast á ný.
„Auðvitað var þetta dautt jafn-
tefli,“ sagði sovéski stórmeistarinn
Gufeld um lokastöðuna í gær og
bætti viö: „Þeir voru búnir að
skipta upp á einu peði hvor.“ Gu-
feld var óánægður eins og svo
margir aðrir í Lope de Vega leik-
húsinu með að meistararnir skyldu
slíðra sverðin svo fljótt. Haft var
fyrir satt að Kasparov hygðist
freista þess að ná öðru höggi á
Karpov meðan hann væri enn að
jafna sig eftir afleikinn í elleftu
skákinni. Svo er eins og honum
hafi ekki lengur litist á stöðu sína.
Að loknum tólf skákum hefur
Kasparov hlotið 6 'A v. en Karpov
5 'A v. Karpov kom á óvart með því
að fá skákinni ekki frestað í gær á
meðan hann væri aö jafna sig á
afleiknum. É.t.v. hefur hann held-
ur viljað taka sér frí næst, því aö
hann er hjátrúarfullur maður.
Ekki er víst að honum fmnist fýsi-
legt að tefla 13. einvígisskákina
föstudaginn 13. nóvember, ekki síst
ef haft er í huga að talan 13 er
happatala Kasparovs.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarbragð.
1. c4
Kasparov ýtti kóngspeðinu úr vör
síðast er hann hafði hvítt en gegn
Caro-Kann vöm Karpovs var ekk-
Skák
Jón L. Árnason
ert að fá. Því leitar hann aftur á
fyrri mið.
1. - e6 2. Rc3 d5 3. d4 Be7
Gamla góða drottningarbragðið
komið upp á borðinu í fyrsta skipti
í einvíginu. Vinsælasta byrjunin í
samskiptum þeirra félaga og því er
ekki seinna vænna en að dusta ryk-
ið af henni.
4. cxd5 exd5 5. Bf4 RfB 6. Bf4 Bf5
Örlítið breytt leikjaröð frá fyrri
skákum þeirra í afbrigðinu en Ka-
sparov virtist hvergi brugðið og lék
næstu leiki hratt.
7. Rge2 0-0 8. Hcl c6 9. Rg3 Be6 10.
Bd3 He8 11. Db3 Db6 12. Dc2
Hvítur tapar ekki leik þótt hann
færi drottninguna tvisvar. Drottn-
ing svarts stendur ekki sérlega vel
á b6.
12. - Rbd7 13. 0-0 g6 14. h3 BI8 15.
Rge2 Hac8 16. Dd2 Rh5 17. Bh2 Rg7
18. g4
Þessi leikur vakti nokkra furðu í
skákskýringasalnum. Kasparov
vili bersýnilega hindra að Karpov
nái að skipta upp á hvítreita bisk-
upum með 18. - Bf5 en leikurinn
veikir kóngsstöðu hans. Með 18.
Ra4 virðist hann geta skapað sér
góð færi á drottningarvæng.
18. - Dd8!
Drottningin stefnir strax yfir á
kóngsvænginn, þar sem ný færi
gefast og um leið tekur svartur
broddinn úr 19. Ra4, sem þó er enn
skarpasti kostur hvíts.
19. f3 Rb6 20. b3 Ba3 21. Hc2
Um leið og Kasparov lék bauö
hann jafntefli, sem Karpov þáði.
Kasparov hefur teflt ráðleysislega
í síðustu leikjum. Nú hefur svartur
komið ár sinni vel fyrir borð á
drottningarvæng og á kóngsvæng
og miðborði er hann fastur fyrir.
Karpov gæti teflt taflið áfram en
eftir ófarirnar í undangenginni
skák er skiljanlegt að hann sé sátt-
ur við skiptan hlut.
-JLÁ