Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Page 36
_______
Sviðsljós
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
DV
Ölyginn
sagði...
Linda Evans
hin fagra 44 ára stjarna úr Dyn-
asty myndaflokknum, er enn
að reyna að eignast barn. Hún
segir að það sé enn mögulegt,
þrátt fyrir háan aldur, úr því
Ursulu Andress tókst það á
sama aldri. Linda Evans hefur
leitað hjálpar hjá Shirley
MacLaine. Shirley sagði Lindu
að vilji og hugsun væri það
eina sem til þyrfti og lagði fyrir
hana jógaæfingar til þess að
■ rná árangri. Nú situr Linda alla
daga með krosslagða fætur og
þylur jógarímur en það dugir
nú sjálfsagt ekki eitt sér til.
Annie Lennox
söngkonan úr dúettnum Eur-
ythmics, sakar poppheiminn
um ósanngjarna afstöðu til
kvenna. Með örfáum undan-
tekningum þarf söngkona
ávallt að vera einhvers konar
kyntákn, segir Annie. Þessa
.ímynd vildi ég forðast og þess
vegna ákvað ég að klæða mig
öðruvísi en sem kyntákn á svið-
inu. Þess vegna eru föt mín
karlmannleg og jafnvel frá-
hrindandi til þess að ég verði
dæmd fyrir hæfileika en ekki
útlit. Klæðnaður minn túlkar því
ekki mína eigin ímynd.
Eðvarð prins
reyndi fyrir sér í konunglega
sjóhernum breska en var látinn
hætta. Nú er búið að Ijóstra upp
ástæðunni í bresku pressunni.
Hann þóttist allt of fínn til þess
að vinna þau störf sem ætlast
var til af sjóhermönnum og var
sífellt að minna menn á að
hann væri af konunglegum
ættum. Hann varð aldrei jafn-
ingi piltanna í hernum enda
þoldu þeir hann ekki.
.'*!---------------------
Steen Nedergaard frá Danmörku
vann einstaklingskeppnina í hár-
skurði og er einnig núverandi
Evrópumeistari.
Eiríkur Þorsteinsson, einn islensku keppendanna, sést hér ásamttveim-
ur módelum. DV-myndir BG
Þarna sést módel Gisla Viðars Þór-
issonar að lokinni greiðslu.
■
'
Áhorfendur voru fjölmargir í Iþróttahúsinu í Digranesi.
Það þurfti ekkert minna en íþrótta-
húsið í Digranesi til þess að hýsa
Norðurlandamót í hárgreiðslu og
hárskurði um síðustu helgi. Þetta er
í annað sinn sem íslendingar halda
keppnina en hún var síðast haldin
hér fyrir tíu árum.
Keppendur voru alls 50 og voru
þeir 25 í hárskurði og 25 í hár-
greiöslu. Alls komu á annað hundraö
manns frá hinum Noröurlöndunum
til keppninnar ef með eru taldir
blaðamenn og fylgdarlið. Á meðal
kepppenda voru meðal annars tveir
nýbakaðir Evrópumeistarar frá Nor-
egi og Danmörku.
íslensku keppendurnir stóðu sig
vel í hárgreiðslunni og vann Dóró-
thea Magnúsdóttir til gullverðlauna
fyrir daggreiðslu. Hún var aðeins
einu stigi frá sigri í samanlögðu.
Enginn íslensku keppendanna varð
neðar en í 12. sæti (af 24) í hár-
greiðslukeppninni sem er góður
árangur. I keppninni í hárskurði
stóðu íslendingar sig lakar.
Sléttbaks-
skjöl
afhent
„Okkur fmnst eins og við séum að
aíhenda nýtt skip,“ sagði Gunnar
Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar
á Akureyri, er hann afhenti Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf. togarann
Sléttbak á sunnudag. „Við erum í
rauninni að eignast nýtt skip,“ sagði
Sverrir Leósson, stjórnarformaður
ÚA, sem veitti skipinu viðtöku fyrir
hönd félagsins.
Segja má að Sléttbakur EA 304 sé
nýtt skip eftir hinar geysilegu breyt-
ingar sem gerðar hafa verið á því hjá
Slippstöðinni. Það er greinilegt að
ekkert hefur verið til sparað til að
gera skipið sem glæsilegast og mönn-
um, sem til þekkja, ber saman um
að Sléttbakur sé glæsilegasta skip
flotans í dag.
Sléttbaksskjölin afhent, frá vinstri Stefán Reykjalin, stjórnarformaður Slippstöðvarinnar á Akureyri, Gunnar Ragn-
ars, forstjóri Slippstöðvarinnar, og Sverrir Leósson, formaður stjórnar Útgerðarfélags Akureyringa. DV-mynd GK