Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1987, Side 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Aoglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1987.
Meirihluti Aiþingis:
Burt með
línuna
Meirihluti Alþingis, 32 þingmenn
úr Reykjaneskjördæmi, Reykjavík,
■ Vesturlandi og Suðurlandi, krefst
þess að við úthlutun þorskkvóta til
togara með sóknarmark verði hætt
að skipta landinu í suður- og noröur-
svæði. Allir þingmenn kjördæmanna
fjögurra á suðursvæðinu, nema ráð-
herrar, hafa skrifað undir bréf þessa
efnis til ráðgjafarnefndar um fisk-
veiðistjórnun.
Með reglugerð sjávarútvegsráð-
herra hefur lína verið dregin þvert
yfir landið frá Látrabjargi að Eystra-
Horni. Togarar norðan línunnar hafa
fengið 350 til 550 tonna meiri þorsk-
kvóta en togarar sunnan línunnar.
Ástæðan er sú að á viðmiöunarárum
kvótakerfisins var karfi stór hluti af
afla togara á suðursvæðinu.
Þingmenn Reykjaneskjördæmis
höfðu frumkvæði að þessari áskor-
un. Þeir halda því fram að skipting
landsins sé meginástæðan fyrir sölu
margra togara af Suðurnesjum.
-KMU
Olíulekinn:
Leiðslan
upp í dag
grafin
llar
gerðir
sendibíla
25050
SETlDIBiLJISTODin
Borgartúni 21
LOKI
Hvatvísi
er þetta!
Skjal norska sagnfræðingsins Tangen:
Ekkert um
Stefán Jóhann
Pall Vilhjálmsson, DV, Osló:
í því skjali sem norski sagnfræð-
ingurinn Dag Tangen fann á
þjóðskjalasafni Bandaríkjanna um
ísland kemur ekki fram að banda-
rísk yfirvöld hafi haft samráð við
íslenska stjórnmálamenn.
Fréttir um einstaka íslenska
stjórnmálamenn og samskipti
þeirra við bandarísku leyniþjón-
ustuna eða önnur bandarísk yfir-
völd geta því ekki verið byggðar á
þessu skjali sem Tangen fann.
í álitsgerð bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins um hættuna á
vaidatöku íslenskra kommúnista
er aðeins stuttlega fjallaö um að
hve mikiu leyti ætti að hafa samráð
við íslenska stjórnmálamenn. Þar
segir að ekki ætti að vera því neitt
til fyrirstöðu að ræða við íslensk
yfirvöld um það hvernig mætti best
stemma stigu við ógnuninni af
kommúnistum. í álitsgerðinni
kemur ekki fram hvort slíkt samr-
áð sé þegar hafið né hvort utanrík-
isráðuneytið eða leyniþjónustan
hafi reglulegt samband við ein-
staka íslenska stjórnmálamenn.
Eina skiptið sem íslenskir stjórn-
máiamenn eru nefndir í öllu skjal-
inu er þegar þjóðaröryggisráðið
segir frá heimsókn ráðherranna
þriggja, Bjarnar Benediktssonar,
Eysteins Jónssonar og Emils Jóns-
sonar, til Bandaríkjanna þann 12.
mars 1949.
Að öðru leyti er í skjalinu vísað
til ónafngreindra og óauðkenndra
embættismanna og stjórnmála-
manna þegar íslendingar eru á
annað borð látnir koma við sögu.
Eftir að olíuleiöslan í Keflavík, sem
grunur leikur á að hafi lekið, var
þrýstiprófuð á þriðjudagskvöld náð-
ist ekki upp þrýstingur í leiðslunni
og því nær öruggt talið að leki sé.
kominn að henni. í dag verður leiðsl-
an grafin upp til að ganga úr skugga
um lekann, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Vilhjálmi Ketils-
syni, bæjarstjóra í Keflavík.
Sagði Vilhjálmur að leiðslan hefði
veriö þrýstiprófuö í tvígang og eftir
þær prófanir hefði verið ljóst að eitt-
hvað hefði gefið sig. Notaður var 200
punda þrýstingur en það sagði Vil-
hjálmur þann þrýsting sem nota ætti
undir þessum kringumstæðum.
Leiðslan verður grafin upp í dag,
-1 það er að segja sá hluti hennar þar
sem lekinn er talinn vera en það er
á 350 metra kafla. Ekki hefur enn
neitt fundist í jarðvegi sem bendir til
olíuleka á svæðinu, að sögn Vil-
hjálms. -ój
Landað úr Súlunni EA 300 á Akureyri í fyrrinótt.
DV-mynd gk
Aðeins 72.000 tonn af loðnu
- miðað við 363.000 á sama tíma í fyrra
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Loðnuveiðin hefur gengið fremur
brösulega að undanfórnu, bæði
vegna slæms tíðarfars og einnighef-
ur verið erfitt að eiga við loðnuna.
í gær nam heildarveiðin á vertíð-
inni rúmlega 72 þúsund tonnum en
á sama tíma í fyrra var aflinn 363
þúsund tonn. Veiðisvæðið síðustu
daga hefur verið 30-60 mílur norður
af Horni. Loðnan hefur legið djúpt
og ef hún hefur grynnkað á sér hefur
hún dreifst verulega og verið erfið
viðureignar.
Alls hafa 32 bátar nú hafið veiði
af þeim 49 sem hafa leyfi til loðnu-
veiða. Sem fyrr sagði er erfitt að eiga
við loðnuna út af Horni og bíða sjó-
menn þess nú að loðnan fari að sýna
sig á svæðinu við Kolbeinsey en þar
hefur yfirleitt verið mun stöðugri
veiði og betra aö eiga við hana.
Veðrið á morgun
Norðanátt
ríkjandi
Á morgun verður norðanátt á
landinu með éljum norðanlands,
skúrum á Austurlandi en björtu
veðri á Suöur- og Vesturlandi. Hiti
verður á bilinu um eða rétt yfir
frostmarki.
Auður Auðuns
gekk úr Hvöt
- gekk af aðatfundi
Einn þekktasti framherji í sveit
sjálfstæðiskvenna, Auður Auðuns,
fyrrum þingmaður, ráðherra og
borgarstjóri, sagði sig úr Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt og gekk af
aöalfundi í gærkvöld. Hún kvaðst
ætla að skila síðar viðurkenningar-
skjah heiðursfélaga Hvatar.
Ástæða úrsagnarinnar er ágrein-
ingur um formennsku í félaginu.
María E. Ingvadóttir hefur verið
formaður Hvatar í tvö ár en hún er
búsett á Seltjarnarnesi og er ein 85
kvenna í félaginu sem eru búsettar
þar og í Garðabæ þar sem engin sjálf-
stæðiskvennafélög starfa. Sam-
kvæmt lögum Hvatar er aðild bundin
búsetu í Reykjavík, þótt hefð sé fyrir
öðru. Auður gerði athugasemd viö
kosningu Maríu í fyrra og lét spyrj-
ast fyrir fundinn nú að hún myndi
ekki sætta sig við endurkosningu
hennar.
Um 1.600 manns búsettir utan
Reykjavíkur eru í sjálfstæðisfélögun-
um í borginni, einkum námsmenn í
Heimdalli. Um þetta fyrirkomulag
ríkir ágreiningur innan flokksins,
meðal annars vegna hugsanlega tvö-
falds réttar í prófkjörum, og fjallar
skipulagsnefnd flokksins um máhð.
-HERB
Kjarasamningar:
Ekki ástæða
til bjartsýni
- segir Kaivel
„Við áttum fund með vinnuveit-
endum í gær og ég er annað en
bjartsýnn á að samningar takist á
næstu vikum ef miðað er við tvo
fyrstu könnunarfundina," sagði Kar-
vel Pálmason, varaformaður Verka-
mannasambandsins, í samtali við DV
í morgun.
Karvel sagði að menn vildu leita
leiða til að leiðrétta kjör þess fólks
sem ekki hefur notið launaskriðsins
frá því að síðustu kjarasamningar
voru gerðir og fyrst þungt væri fyrir
fæti hjá atvinnurekendum með það
þá yrði þyngra fyrir með almenna
samnmga.
Hann var spurður hvort hann teldi
raunhæft að búast við að samningar
tækjust fyrir áramót ef miðað væri
við tvo fyrstu samningafundina.
Karvel sagðist vera allt annað en
bjartsýnn á það, viljinn hjá atvinnu-
rekendum þyrfti að vera meiri.
í dag er fyrirhugaður fundur aðha
vinnumarkaðarins með fulltrúa
Þjóðhagsstofnunar. -S.dór
Innbrot í
Breiðholti
í nótt braust hópur unglinga inn í
verslunina Ritu í Eddufelh 2. Var það
rétt um klukkan þrjú í nótt. íbúi við
Asparfell sá til innbrotsþjófanna og
lét lögreglu vita.
Lögreglan náði tveimur drengjum,
fimmtán og sextán ára gömlum. Aðr-
ir úr hópnum sluppu út í myrkrið.
Föt, sem stolið var úr versluninni,
voru á víöavangi. Auk fatnaöarins
stálu unglingarnir skartgripum og
dálitlu af peningum. Talið er að þýfið
hafi allt skilað sér.
Drengirnir voru handteknir og sá
eldri settur í fangageymslu en hinn
á Unglingaheimili ríkisins í Kópa-
vogi. -sme
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
I i
í
i
i
Í
i