Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
Erlendar bækur
Ævintýri í
heimspólitík
WINDMILLS OF THE GODS.
Höfundur: Sidney Sheldon.
Fontana/Collins, 1987.
Bækur Sidney Sheldon eru
meðal þeirra sem kerfisbundið
lenda í efstu sætum metsölu-
lista í nágrannalöndunum.
Þessi er engin undantekning:
hún er á toppi bandaríska list-
ans um þessar mundir.
Að þessu sinni fjallar Sheldon
um alþjóðapólitík og hryðju-
verkastarfsemi. Samsæri er í
gangi milli háttsettra manna
ýmissa landa, bæði í austri og
vestri, sem óttast bætta sambúð
risaveldanna. Fyrirhugað fórn-
arlamb er bandarísk kona, sem
forseti Bandaríkjanna hefur
skipað sendiherra í austantj-
aldslandi, og börn hennar.
Þetta er læsileg bók og á köfl-
um spennandi, en afar grunn-
færnisleg eins og margir aðrir
reyfarar af þessu tagi. Auðvitað
eru samsæriskenningar af þeim
toga sem hér er vikið að fyrir
löngu útslitnar vegna ofnotk-
unar reyfarahöfunda, og frá-
sagnir af samskiptum
stjómmálamanna, til dæmis
bandaríska sendiherrans og
einræðisherrans í austri, eru
einfeldningsleg ævintýr.
Sígild ástarsaga
MANON LESCAUT.
Höfundur: A. Prévost.
Penguin Books, 1987.
Prévost, sem var uppi á átj-
ándu öld, lifði stormasömu lífi.
Hann tók ýmist þátt í taumlitl-
um lífsnautnum samtímans eða
lokaði sig af sem félagi í klaust-
urreglu. Og svo skrifaði hann
reiðinnar ósköp af ritum, bæði
fræðibækur ýmiss konar og
skrúðmálgar aíþreyingarsögur
sem nutu um hríð mikilla vin-
sælda í Frakklandi.
Á okkar dögum er það hins
vegar þessi eina saga, sem var
svo ólík öllu öðru sem hann
skrifaði, sem heldur nafni hans
sem rithöfundar á lofti. Sagan
af Manon Lescaut og elskhuga
hennar, Des Grieux, gerist á
árunum eftir andlát Lúðvíks
fjórtánda þegar hefðarfólk í
París létti sér upp eftir siðsemis-
ok undanfarandi ára með hressi
legu svalli. Þau eru bæði flókn-
ir persónuleikar og ást þeirra
verður dramatísk harmsaga.
Það hefur verið sagt að á sama
hátt og „Madame Bovary“ sé
fullkomnasta skáldsaga allra
tíma sé Manon Lescaut „full-
komnasta sagan“ sem samin
hafi verið. Hvað sem um það
má segja. er hér um að ræða
meistaraverk sem staðist hefur
tímans tönn afar vel.
Attenborough kvikmyndar
baráttu gegn apartheid
CRY FREEDOM.
Höfundur: John Briley.
FILMING WITH ATTENBOROUGH.
Höfundur: Donald Woods.
Penguin Books, 1987.
Sir Richard Attenborough, sem er
þekktastur fyrir stórmyndina um
Gandhi, hefur nýlokið við nýja kvik-
mynd. Hún heitir „Cry Freedom" og
byggir á samtímaatburðum frá Suð-
ur-Afríku.
Aðalpersónur kvikmyndarinnar
eru tveir Suður-Afríkumenn. Annars
vegar svertingjaleiðtoginn Steve
Biko, sem var aðaldrifkrafturinn í
svokallaðri BCM-hreyfingu (Black
Consciousness Movement) ungs
fólks sem var á móti aðskilnaðar-
stefnu (apartheid) hvítu minnihiuta-
stjórnarinnar og lagði áherslu á að
svertingjar litu á málin frá eigin
sjónarhóli. Hins vegar Donald
Woods, ungur, hvítur ritstjóri dag-
blaðsins Daily Dispatch í hafnar-
borginni East London, en hann
skrifaði einarðlega í blað sitt gegn
aðskilnaðarstefnunni.
Biko og Woods hittust fyrsta sinni
eftir að Woods haföi skrifað harðorð-
an leiðara í nóvember árið 1975 þar
sem hann gagnrýndi BCM-hreyfing-
una og Biko fyrir öfgastefnu. Stuðn-
ingsmenn Biko földu gagnrýnina
óréttmæta og komu á fundi þeirra
tveggja. Upp frá því hittust þeir
nokkrum sinnum og Biko sýndi Wo-
ods meðal annars eymdarleg lífskjör
fólks í svertingjahverfunum.
Biko var handtekinn af öryggislög-
reglunni árið 1977 og lést þar af illri
meðferð í september það ár. Lögregl-
an gaf þá opinberu skýringu að Biko
hefði látist vegna hungurverkfaUs,
en Woods haíði aðrar upplýsingar
og krafðist rannsóknar á láti Biko. í
október þetta ár, þegar Woods var á
leið til Bandaríkjanna til að halda
þar fyrirlestur, var hann handtekinn
og settur í stofufangelsi. Honum var
bannað að skrifa, ferðast og tala við
annað fólk en nánustu fjölskyldu
sína í fimm ár.
í stofufangelsinu skrifaði Woods
bók um Biko og í árslok 1977 ákvað
hann og fjölskylda hans að yfirgefa
allar eigur sínar og flýja land. Þeim
tókst að komast til Lesotho og þaðan
til Bretlands með handritið að ævi-
sögu Biko í farteskinu. Sú bók kom
skömmu síðar út og vakti verulega
athygli.
Á þessari sögu af samskiptum Biko
og Woods byggir Attenborough kvik-
mynd sína. Þessar tvær bækur lýsa
þeirri kvikmynd. Annars vegar hef-
ur handritshöfundurinn John Bri-
ley, sem fékk óskarsverðlaun fyrir
handritið að „Gandhi“, samið læsi-
lega skáldsögu upp úr kvikmynda-
handriti sínu að „Cry Freedom".
Hins vegar lýsir Donald Woods gerð
kvikmyndarinnar, sem að verulegu
leyti fjallar um ævi hans sjálfs og sem
hann fylgdist mjög vel með allt frá
upphafi.
Það liggur í hlutarins eðli að þessar
tvær bækur eru mjög ólíkar. Woods
segir á léttan og skemmtilegan hátt
frá því hvernig það er að sjá kvik-
mynd um sjálfan sig verða til. En
Briley rekur hina alvarlegu hliö til-
verunnar í Suður-Afríku þar sem
afskipti af stjómmálum geta kostað
menn frelsið og jafnvel líf-
ið.
Eftir endalok sólkerfisins
THE SONGS OF DISTANT EARTH.
Höfundur: Arthur C. Clarke.
Grafton Books, 1987.
Þegar jarðarbúar átta sig á því að
skammt er í endalok sólkerfisins
leita þeir ákaft leiða til þess að
tryggja áframhaldandi tilvera
mannsins. Þær lausnir, sem þeir
finna, eru með ýmsu móti og þróast
eftir því sem árin og aldirnar líða.
En bera þær tilætlaðan árangur?
Slíkum spurningum veltir sá
snjalii vísindasagnahöfundur Arth-
ur C. Clarke upp í þessari nýjustu
skáldsögu sinni sem á að gerast eftir
nokkuð á annað þúsund ára. Þá er
geimskipið Magellan, sem var hið
síðasta til að yfirgefa jörðina áður
en hún og sólkerfið allt eyddist við
það að sóhn breyttist í „nóvu“, á leið
til nýs áfangastaðar í geimnum þar
sem jarðarbúar hyggjast búa sér nýja
,jörð“.
Clarke, sem hefur skrifað fjöldann
alian af vísindaskáldsögum, blandar
hér sem fyrr saman af mikiili kunn-
áttu vísindalegum fróðleik og
spennandi atburðarás. Sú blanda er
jafnheillandi í þessari bók sem þeim
fyrri, að minnsta kosti í hugum
þeirra sem á annað borð hafa gaman
af lestri vísindaskáldsagna.
Metsölubækur
Bretland: Bandaríkin: WEST WITH THE NIGHT.
1. James Clavelf: 1. Sidney Sheldon: 6. Judith Viorst:
WHIRLWIND. WINDMILLS OF THE GODS. NECESSARY LOSSES.
2. John le Carré: 2. V.C. Andrews: (Byggt ó New York Times Book
A PERFECT SPY. GARDEN OF SHADOWS. Review.)
3. Stephen King: 3. James Clavell:
IT. WHIRLWIND.
4. P.J. James: 4. Belva Plain:
A TASTE FOR DEATH. 5. Kingsley Amis: THE GOLDEN CUP. 5. Jude Devereaux: Danmörk:
THE OLD DEVILS. THE PRINCESS. 1. Herbjörg Wassmo:
6. Catherine Cookson: 6. Stephen Coonts: HUSET MED DEN BLINDE
BILL BAILEY. FLIGHT OF THE INTRUDER. GLASVERANDA.
7. Jack Higgins: 7. Ken Follett: 2. Jean M. Auel:
NIGHT OF THE FOX. PAPER MONEY. HULEBJ0RNENS KLAN.
8. Olivia Manning: 8. Tom Clancy: 3. Isabel Allende:
THE BALKAN TRILOGY. RED STORM RISING. ÁNDERNES HUS.
9. Jeffrey Archer: 9. Stephen King: 4. Jean M. Auel:
A MATTER OF HONOUR. IT. HESTENES DAL.
10. Olivia Manning: 10. P.D. James: 5. Isabel Allende:
THE LEVANT TRILOGY. . A TASTE FOR DEATH. KÆRLIGHED OG M0RKE.
Rit almenns eðlis: Rit almenns eðlis: 6. Elsa Morante: HISTORIEN.
1. GILES CARTOONS. 1. Joseph Wambaugh: 7. John Mortimer:
2. Keith Floyd: ECHOES IN THE PARADIS I MORGEN.
FLOYD ON FRANCE. DARKNESS. 8. John Irving:
3. Susan Hicks: 2. Gelsey Kirkland: ÆBLEMOSTREGLEMENTET.
THE FISH COURSE. DANCING ON MY GRAVE. 9. I. og R. Rachlin:
4. Jolliffo, Mayle: 3. M. Scott Peck: 16 ÁR I SIBIRIEN.
WICKED WILUE'S LOW- THE ROAD LESS 10. Umberto Eco:
DOWN ON MEN TRAVELED. ROSENS NAVN.
6. Spike Mifligan: 4. Bill Cosby: (Byggt á Politiken Sondag)
GOODBYE SOLDIER. FATHERHOOD.
(Byggt á The Sunday Times.) 5. Beryl Markham:
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Maðurinn og
skáldið Shelley
SHELLEY: THE PURSUIT.
Höfundur: Richard Holmes.
Penguin Books, 1987.
Enska ljóðskáldið og hug-
sjónamaðurinn Shelley lifir enn
í mögnuðum ljóðum sínum.
Margar bækur hafa verið skrif-
aðar um verk hans og ævi en
það er samdóma áht þeirra sem
best þekkja til að engin þeirra
jafnist á við þetta mikla verk
breska ævisöguritarans Ric-
hards Holmes.
Við samningu þessarar bók-
ar, sem er yfir átta hundruð
blaðsíöur að stærð, hefur Hol-
mes kannað upp á nýtt heimild-
ir um lífshlaup og skáldskap
Shelleys. Hann er óháður túlk-
unum þeirra mörgu sem áður
hafa skrifað um þetta stór-
brotna ljóðskáld og kemst um
margt að öðrum niðurstöðum.
Holmes rekur mjög ítarlega
stutta ævi Shelleys og tengsl
ljóða hans við það fólk sem var
honum nákomið og þau hugð-
arefni sem á hverjum tíma áttu
hug hans allan. Sá Shelley, sem
hér birtist, er ekki jafngeð-
þekkur og sú helgimynd sem
sumir hafa dregið upp af hon-
um. Hann hafði til að bera
mannlegan breyskleika í ríkum
mæli ekki síður en snilligáfu,
enda áttu átökin á milli þeirra
ólíku eðlisþátta í skapgerð Shel-
leys sinn þátt í listsköpun hans.
Smásögur
frá írlandi
THE NEWS FROM IRELAND.
Höfundur: William Trevor.
Penguin Books, 1987.
írski rithöfundurinn William
Trevor er einn besti núlifandi
smásagnahöfundur þjóðar
sinnar. Mikið af smásögum
hans, og reyndar skáldsögum
líka, er til í pappírskiljum.
í þessari bók eru tólf nýlegar
smásögur Trevor sem sýna enn
og sanna kunnáttusemi hans í
smásagnagerð. Hér eru mann-
leg vandamál krufin til mergj-
ar: ást, ótti, söknuður og
einsemd fólks í írskum hvers-
dagnum.
í sögum Trevor er á ljósan og
áhrifamikinn hátt dregin fram
tilfinningalega einangrun skýrt
markaðra persóna. Það er oft
mikiö bil milli væntinga og
veruleika, og harmurinn er
ávallt í nánd. Þetta er áhuga-
verð veröld, sem hefur mann-
lega skírskotun ofar öllum
landamerkjum þótt sögusviðið
sé ljóslega af heimaslóðum höf-
undarins, írlandi.