Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Side 29
29
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
13 v_____________________Vísnaþáttur
Þremur
jólabókum flett
Freysteinn Gunnarsson,
1892-1976, var, eins og flestir vita,
kunnur skólamaður, guðfræðingur
að mennt, stjórnandi Kennaraskól-
ans í heilan mannsaldur, orða-
bókahöfundur, þýöandi óteljandi
barnabóka og söngljóða. Hann er
líká höfundur ljóðsins um glerbrot-
ið sem svo oft er sungið í útvarpið.
Hann gaf út tvö ljóðabókarhefti
með margra ára millibili og hand-
rit hins þriðja var fullbúið til
prentunar þegar hann dó gamall
maður. Þetta eru frumsamin ljóð
og vísur, ennfremur þýdd kvæði,
nýkomin út í einu bindi.
Kvæðasafn Freysteins
Um ljóða- og vísnagerð sína yfir-
leitt segir Freysteinn:
Sumt er þýtt og sumt er stælt,
sumt af öðru dregið,
sumt er beint af munni mælt,
mörgu er yflr legið.
Og:
Þegar inn í húmsins hjúp
hverfur víður geimur,
er augna þinna dulardjúp
drauma minna heimur.
Aðrar vísur:
Þar sem í gær var góður sopi
gutlar nú ekki pennadropi,
kroppurinn alveg eins og lopi
og andinn hálfgerður lausagopi.
Við sem vorum í gær svo glaðir,
göngum í dag svo örvinglaðir,
fullir af andlegu aukataði
eins og krossgáta í morgun-
blaði.
Þrjár stökur:
Svo hafa örlög ójafnt skipt,
eins er um mannabörnin smá,
sumum er hátt í ljóma lyft,
ljósvana sitja önnur hjá.
Blómin sem anga
um bjarta grund,
búin í skart, sem æðst er til,
gróandi vors á glaðri stund,
glæðast við sólarbirtu og yl.
Önnur sem eru í lífsins leik
ljósinu svipt í skuggadal,
draga fram lífið dauf og bleik,
dæmd til að falla ung í val.
Vísur Sigurðar Gunnarsson-
ar
Þá er að nefna Sigurð Gunnars-
son. Hann er fæddur að Skógum í
Öxafirði, kennaraskólagenginn og
menntaður víðar. Lengst starfsald-
urs síns var hann skólastjóri á
Húsavík. Hann hefur þýtt og
frumsamið fjölda bamabóka og
samið söngljóð sem víða hljóma
fyrir æskulýð. Nýlega hefur komið
út bók með ræðum, ritgerðum, af-
mæhs- og eftirmælagreinum,
ennfremur vísur og ljóðmæli, allt í
einu bindi. Svo er manni lýst:
Bæði daga og dimma nátt |
dreifir myrkri svörtu,
sæði kærleiks sáir þrátt
í sinna bræðra hjörtu.
Svona menn eru vissulega til.
Annar lýsir hug sínum þannig:
Hvar ég fer um fold og haf,
ég finn til smæðar minnar.
Góði, Drottinn, gef mér af
gnægðum visku þinnar.
Og biður:
Sú er innsta óskin mín,
eins á nótt sem degi,
að þú látir ljósin þín
lýsa mína vegi.
Stakar vísur:
Þegar ríkir náköld nótt,
nötra björk og hlynur,
þá er gott að geta sótt
gleði til þín, vinur.
Blessuð sólin gyUir grund,
gleði vekur sanna,
flytur yndi alla stund
inn í hjörtu manna.
AlUr kosti Esju sjá,
enginn henni líkur,
dýrðarfógur, draumablá,
drottning Reykjavíkur.
Óskarfrá Haga
Þegar við Ólafur Jóhann Sigurðs-
son vorum að gefa út okkar fyrstu
bækur á kreppuárunum, síðari
hluta þriðja áratugarins, var einn
af efnflegum félögum, vinum og
jafnöldrum okkar Oskar Þórðarson
frá Haga í Skorradal, f. 1920. Eftir
hann birtust þá oft í barnablöðum
og fylgiritum dagblaðanna ljóð og
sögur. Ung rithöfundaefni á þeirri
tíð töldu sjálfsagt að hann yrði
áfram í hópnum. En hann tók aðra
stefnu og ábyrgöarmeiri, réði sig
til rafvirkjameistara, giftist fyrr en
við hinir og sinnti sinni iðn og
barnauppeldi. Kannski hefur
sjálfsálitið verið minna hjá honum
en okkur. Nýlega kom út eftir hann
minningabók og nú kvæðabók sem
heitir A hljóðum stundum. Hér
koma nokkrar lausavisur úr henni:
Auðlegð hjartans muna má
sé maður einskis nýtur.
Sínum augum silfrið á
sérhver Uta hlýtur.
Birkið leggur laufin sín
á lyngið bleika og rauða.
Moldin geymir grösin mín,
gátu lífs og dauða.
Þegar einn ég þreyti leið
og þykist verjast strandi,
sé ég allt mitt æviskeið
eins og mynd á bandi.
Oftast þegar þögull ég
þrauka á lokum vöku,
aðeins sé ég auðan veg
einnar gleymdrar stöku.
Snillinganna aö lesa ljóð
líst mér sigur hálfur.
Ég hef fyrir þessa þjóð
þráð að yrkja sjálfur.
Þó að vargar vígatól
veröld kjósi að bjóða,
færa vil ég friðarjól
fólki allra þjóða.
Utanáskrift: Jón úr Vör,
Fannborg 7, Kópavogi.
BESTU MYNDIRNAR
í BÆNUM
VIDEOTÆKI FRÍTT MEÐ 2
SPÓLUM
They werc a special squad
Theír mission - rescue an Amerícan General
Thelr successful operatlon ~ Brilliant
Their reward - DEATH
WlUIAMOWYPftJÍOíTS
CtflUDE BRASSÉUR • BERNflRD-PIERRE DONNflDIEU
CERAtin DARMCai • föfis ARJSTWP • JJAN HUCOES AUCLAOf • OANif L DUVAL
JIAN-ROCEft MILO • "AMOHC V/OUÆS- A FU1SY JOSE GlOVANNI WlfH LISAKHUl/Eft
CABIllCt 8R1AND • PATRICA EDUNGER • PADl CIOVAWI • ISACEL LBftCA • ftftafBT ARDíM
EÖWARO MEEKS • OTItLMHLAY (JY JOSE GtOVANNI AND JEAM SCHMIH
ERÖM THí STOW BYJOSE CKWAHNI ANf) JEAfi SCHMin ____
f.UISIC SY PWO MAftOUESE • fJIEOlTfJr PROOllCEft OANY COHGN
ASSOCIATE PRBOUCfR H. SFlfJGUNfl
DÆMI UM
TOPPMYNDIR
TOP GUN
BIG TROUBLE IN LITTLE CHINA
CROCODILE DUNDEE
THE GOLDEN CHILD
BEST SHOT
HEARTBREAK RIDGE
MORNING AFTER
RUNNING SCEARD
OVER THE TOP
ALIENS
STAND BY ME
LEAGEL EAGLE
RUTHLESS PEOPLE
PEGGY SUE GOT MARRIED
STJÖRNUVIDEO SNÆVARSVIDEO
SOGAVEGI 216 HÖFÐATÚNI 10
SÍMI 687299 SÍMI 21590