Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Endurskoðandi um fýnverandi framkvæmdasljóra Helgarpóstsins:
Tók verulegar fjár-
hæðir frá félaginu
- ákveðið að kæra málið til rannsóknarlögreglunnar
Samkvæmt þeim athugasemdum
endurskoðanda við bókhald Goðgár
hf.. útgáfufélags Helgarpóstsins, sem
lagðar voru fram á framhaldsaðal-
fundi í fvrrakvöld, tók fyrrverandi
framkvæmdastjóri blaðsins veruleg-
ar Qárhæðir frá fyrirtækinu. Athug-
unin nær einungis til fyrstu fimm
mánaða þessa árs, en samkvæmt at-
hugasemdunum skuldar fram-
kvæmdastjórinn fyrrverandi útgáfu-
félaginu rúmlega 1,6 milljónir króna.
í athugasemdum endurskoðand-
ans, Magnúsar G. Benediktssonar,
segir að framkvæmdastjórinn fyrr-
verandi skuldi félaginu 1.635.275 kr.
sem hann hafi tekið sér með einum
eða öðrum hætti á umræddu tíma-
bih. Þar í eru meðal armars oftekin
laun upp á 460.000 kr„ fyrirfram-
greidd laun upp á 189.000 kr. og tveir
víxlar að upphæð 732.000 kr. sem
hann hafi samþykkt fyrir hönd Goð-
gár hf. en peningarnir fyrir víxlun-
um aldrei komið til fyrirtækisins.
Endurskoðandinn gerir sérstaka
athugasemd við tíu liöi í reikningum
félagsins fyrstu fimm mánuði ársins.
Segir þar meðal annars að auglýs-
ingastjórinn skuldi tvö skuldabréf að
upphæð 335.237 kr. sem hafi verið
færð með ólögmætum hætti á reikn-
inga félagsins. Þá er gerð athuga-
semd við launagreiðslur upp á rúmar
300.000 kr. til fyrrverandi stjómar-
formanns.
Einnig er gerð sérstök athugasemd
við samskipti fyrirtækisins Fjaðra-
bhks og Goðgár. Segir að fyrmefnda
fyrirtækið hafi keypt hlutafé í Goðgá
sem það í raun lét Goögá borga. Hlut-
hafar Fjaðrabliks eru m.a. fyrrver-
andi formaður og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri sem fer með umboð
fyrirtækisins.
Endurskoðandinn gerði sérstaka
athugasemd við bókfærslu á tekjum
fyrir lausasölu og áskriftir. Telur
endurskoðandi að erfitt sé aö sann-
reyna tekjur vegna lausasölu og
áskrifta blaðsins.
-SMJ
Sníktu
mat og
stálu
hjólum
Tveir 17 ára Þjóðverjar komu
með ferjunni Norrænu 1 vikunni.
Fréttist fyrst af þeim í Mývatns-
sveit þar sem þeir höfðu gengið
mihi hótela og sníkt mataraf-
ganga af diskum fólks. í húsi þar
stálu þeir tveimur reiðhjólum og
hjóluðu alla leið til Þórshafnar.
Þar fengu þeir gistingu og fæði.
Þótti þeim ófært að borga ekki
fyrir sig og gáfú börnunum á
bænum hjólin. Virðast þeir síðan
hafa komist á puttanum til Seyð-
isfjarðar. Þar hafði lögreglan frétt
af piltunum og handsamaöi þá.
Játuðu þeir á sig verknaði þessa
og voru sendir úr landi með
fyrstu ferö.
-hlh
Ferskfisksala:
Utgerðarmenn
tapa miklu
Næstu tvo mánuði munu íslensk-
ir útgerðarmenn tapa mörg hundr-
uð milljónum króna vegna útflutn-
ingstakmarkana á ferskum fiski
sem stjómvöld settu á. Þrátt fyrir
að verð á ferskum fiski hækki í
Bretlandi vegna minna framboðs
er tap útgeröarmanna verulegt.
Takmörkun stjómvalda á út-
flutningi kemur mjög misjafnlega
niður á útgerðarmönnum. Stór fyr-
irtæki sem hvort tveggja gera út
skip og reka fiskvinnslu tapa mun
minna á útflutningshöftum en fyr-
irtæki í eigu manns sem gerir út
einn bát. Enginn greinarmunur er
geröur í reglum sfjómvalda á þess-
um ólíku rekstrarháttum.
Stórir aðilar geta sett þann fisk í
vinnslu sem ekki fæst leyfi th að
flytja út. Þennan kost eiga smáút-
geröarmenn ekki sem veröa að
seija sinn fisk á mörkuöum, annað
hvort hér heima eða erlendis.
Samanburöur á verði á innlend-
um og erlendum mörkuðum í þess-
ari viku leiðir í fjós að þegar búið
er aö draga frá flutningskostnað á
erlendan raarkaö er mikill munur
á því verði sem útgeröarmaðurinn
getur stungið í vasann eftir sölu.
Ef útgerðarmaöur hefði selt eitt
tonn af þorski á Faxamarkaði i síð-
ustu viku hefði hann fengið tæpar
40 þúsund krónur. Sama magn á
Bretlandsmarkaöi heföi selst á 95
þúsimd krónur. Útgerðarmaöur-
inn hefði þurft að borga 20 þúsund
fyrir flutning á fiskinum tO Bret-
iands og raunvirði sölunnar hefði
því verið 75 þúsund krónur. Mun-
urinn er 35 þúsund krónur.
pv
Verð á ferskfiski
18.-22. júií
| Faxamarkaður
□ Gámaflutn. til Bretlands
□ Meðal flutningskostnaður
100-1
94.93
Þorskur Ýsa
Myndin sýnlr samanburð á verði
i þessari viku á milll Faxamarkað-
ar i Reykjavik og markaöarins i
Grimsby. Þó aö fiutningskostnaöur
sé relkmúhir meö er miklll munur
á verði. Útgeröarmaður græöir 35
þúsund krónur á hverju tonni af
þorski sem hann selur í Bretlandi
mlðað við veröiö hér heima. Verð-
mlsmunur á tonni af ýsu er 15
þúsund krónur þegar flutnings-
kostnaöur er dreglnn frá.
Engin gögn liggja
fyrir um glæp-
samlegt athæfi
- segir fyrrverandi framkvæmdastjóri HP
„Þaö er ekki búið aö taka neitt til
rannsóknar þótt einhveijir menn úti
í bæ kæri til rannsóknarlögreglunn-
ar. Núverandi meirihluti Goðgár hef-
ur stefnt að þessu frá upphafi en ég
sé nú ekki hvað er veriö aö kæra.
Engin gögn liggja fyrir um glæpsam-
legt athæfi,“ sagði Hákon Hákonar-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Helgarpóstsins og núverandi fram-
kvæmdastjóri Alþýöublaösins. Há-
kon sagði aö eðlilegra hefði verið að
fara strax fram á gjaldþrot enda
stefndi núverandi meirihluti leynt
og ljóst að því.
Hákon sagði aö þessi kæra hefði
verið knúin í gegn í krafti meiri-
hlutavalds á hluthafafundinum á
fimmtudagskvöldið. Núverandi
minnihluti í stjóminni hefði ekkert
vitað um fundarefnið fyrirfram og
því ekki getað imdirbúið sín málsrök.
Þá hefðu eðlileg fundarsköp ekki
verið höfð í heiðri en fundarstjóri var
Ólafur Sigurgeirsson lögfræðingur.
Hákon sagöi aö reikningar ársins í
fyrra hefðu verið samþykktir af lög-
giltum endurskoðanda. Aðspurður
um fjárdráttarkæru vegna skatt-
greiöslna starfsfólks sagði Hákon að
það hefði komið til vegna slæmrar
lausafiárstöðu. Sagðist hann ekki
hafa neina trú á því að starfsmenn
yrðu látnir tvígreiða skatt. -SMJ
Bærinn frestar framkvæmdum
„Ég sé ekki betur en þetta mál sé
komið í höfn. Ég fór á fund með
bæjarlögmanni og bæjarfógeta og
þeir féllust á þær kröfur mínar að
framkvæmdum yröi frestað á þessu
svæði. Krakkamir fá þennan spark-
völl á þessu svæði og við fognum því
en lóðum undir hús verður ekki út-
hlutað fyrr en eftir dóm Hæstaréttar,
meira að segja verslunarlóð, sem
búiö var aö auglýsa, verður ekki út-
hiutað fyrr. Ég hef ekkert á móti íbú-
unum á þessu svæði en bærinn á
ekki að geta komist upp með slíka
hegðun,“ sagði Garðar Sveinsson.
í gær lokaði Garðar, ásamt ættingj-
um sínum, vinnuvélar Kópavogs-
bæjar inni, þannig að ekki var hægt
að halda áfram framkvæmdum á
hinu svonefnda Sæbólslandi. Deilur
hafa staöið yfir á milii erfingja fyrri
eigenda og bæjarins um lögmæti
samnings á milli þeirra. Undirréttur
ógilti samninginn en framkvæmdum
hefúr engu að síöur veriö haldiö
áfram. Garöar kvað bæinn hafa vilj-
að sölsa landið undir sig og því hafi
hairn gripið til þessa neyðarúrræðis.
„Ég var búinn að reyna allt hvaö
ég gat og þeir virtu mig ekki viðlits,
þetta var síðasta hálmstráið. Ætii
þeir hafi ekki veriö hræddir viö fjöl-
miðlana, ekki veriö með góða sam-
visku og því gefiö eftir,“ sagi Garðar
um aðgerðimar í gær og viðbrögð
bæjaryfirvalda.
„Þetta er ipjög flókið mál en megin-
málið er það að framkvæmdum á
svæðinu verður hagað í samráði við
bæjarfógetann en hann fer með mál
dánarbúsins. Þær framkvæmdir sem
þama hafa verið em ekki verulegar
heldur almenn snyrting á svæöinu.
Skiptaráöandi vissi af þeim fram-
kvæmdum og við teljum okkur ekki
hafa verið að ganga á rétt dánarbús-
ins. Það er Kópavogsbær sem á
landið, þetta er erfðafestusamningur
sem bærinn getur alltaf innkailaö.
Dómsmálið snýst um bætumar fyrir
landiö, en samningurinn um þær var
ógiitur. Bærinn mun hins vegar
halda að sér höndunum fram yfir
Hæstaréttardóminn enda hafa ekki
verið neinar verulegar framkvæmd-
ir á svæðinu. Um aðgerðir Garðars
vil ég ekkert tjá mig,“ sagði Þórður
Þórðarson, bæjarlögmaður Kópa-
vogsbæjar.
JFJ
Forsvarsmenn bæjarins, Þórður Þórðarson bæjarlögfræðingur, Guðmundur
Oddsson formaður bæjarráðs og Björn Þorstelnsson bæjarritari, þungir ó
brún eftir að Garðar Sveinsson hafði stöðvað framkvæmdlr við Sæbðlsland
f Kópavogi. Bærlnn gaf eftir og lætur af framkvæmdum að sögn Garðars.
DV-mynd S
Tuttugu
þúsund
á kílóið
Ánamaðkar era sjálfsagt sú
vara sem dýrust er hér á landi
miðað við þyngd. Góður laxaorm-
ur er seldur á um 17 krónur en í
þurrkatíð getur verðið fariö upp
í allt að 25 til 30 krónur.
Anamaðkar em að mestu vatn.
Maðkur sem er um 12 sentímetr-
ar og 4 millímetrar í ummál ætti
því að vega um 1,5 grömm. Þaö
þarf því um 670 slíka maðka til
að fylla kílóið. Samkvæmt þessu
getur kílóið af ánamöðkum farið
í allt að 20 þúsund krónur í þurr-
katíö. Kílóverðiö er hærra en á
nokkurri annarri íslenskri vöm.
íslendingar hafa stundum líkt
þorskinum viö gull. Hann veröur
þó hálflítilmótlegur í samanburði
viö maðkinn því ánamaðkar selj-
ast á 400 sinnum hærra verði en
þorskurinn.
Til þess að finna einhvem sam-
jöinuð við ánamaðkinn er helst
að leita að aldýrustu kryddteg-
undum eins og saffran. -gse