Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 10
10
■ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Norræna kvennaráðstefnan í Osló:______
íslenskar konur ætla að
leika, syngja og dansa
mun fleiri viðburðir verða úti í bæ í
tengslum við ráðstefnuna; leiksýn-
ingar, kvikmyndasýningar og
fleira."
Forsætisráðherrann
með leikþátt
Ráðstefnan verður sett laugardag-
inn30.júlí. Þá verða konurnar boðn-
ar velkomnar á sérstakan hátt. Hin
ýmsu fyrirtæki hafa séð sér hag í því
að gefa konunum smágjaflr.
Á opnunarhátíðinni verða öll þátt-
tökulöndin með sérstakt innlegg.
Framlag íslands við opnunina verð-
ur ballett sem þrjár íslenskar ball-
erínur munu flytja. Þær taka fyrir
efni úr Völuspá, skapanornirnar
Urði, Verðandi og Skuld. Stjórnandi
er Auður Bjarnadóttir. Framlög
landanna við opnunina verða annars
með margvíslegum hætti. Til dæmis
mun Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, vera með leik-
þátt. Þar ætlar hún að túlka hvernig
það er að vera forsætisráðherra í
sannkölluðu jafnréttisþjóðfélagi.
„Það hefur verið reglulega gaman
að fylgjast með þessum konum sem
ætla út. Okkur í undirbúningsnefnd
var fengiö þaö verkefni að reyna aö
ná til sem flestra kvenna úr öllum
stéttum þjóðfélagsins og þá sérstak-
lega til kvenna sem hingað til hafa
ekki sótt ráöstefnur á erlendri
grund,“ segir Guðrún.
Fyrsta utanlandsferð
sumra kvennanna
„Viðbrögðin hafa verið stórkostleg
og farið langt fram úr björtustu von-
um, Konurnar koma alls staðar að
af landinu, á öllum aldri og úr öllum
stéttum. Fyrrverandi og núverandi
ráðherrar, fiskvinnslukonur, for-
stjórar og ræstingakonur. Sumar
konurnar eru að fara í sína fyrstu
ferð til útlanda og aðrar að fara í
fyrsta skipti „einar“ út, það er að
segja ekki með eiginmanni og fjöl-
skyldu. Mér finnst þetta allt mjög
jákvætt.
Enn aðrar konur hafa litið á þessa
ferð sem tækifæri til að taka þátt í
málefnum kvenna. Þær hafa lengi
haft áhuga á að starfa á þessum vett-
vangi en ekki komið sér af stað. Því
er vonandi að hægt verði að virkja
þann hóp þegar heim er komið aftur.
Hér hefur kviknað áhugi hjá gífur-
legum fjölda kvenna sem vert er að
halda við og verður spennandi að
finna leiðtil þess.“
Guðrún sagði öll viðbrögð í garð
ráðstefnunnarmjögjákvæð. Sér-
staklega vildi hún nefna ákvörðun
Davíðs Oddssonar borgarstjóra og
Jóns Baldvins Hannibalssonar f]ár-
málaráðherra um aö veita starfskon-
um ríkis og borgar leyfi til aö fara
utan á fullum launum. Það framtak
segir hún lofsvert og benda til að
ráðstefnan sé tekin jafnalvarlega og
svipaðar ráöstefnur sem karlarfjöl-
menntuá.
Konur úr flestum stjórnmálaflokk-
unum mæta á ráðstefnuna og þá með
ýmiss konar kynningu í pokahorn-
inu. Jafnt í formi fyrirlestra sem og
myndbanda. Konur úr verkalýðs-
hreyfingunum hafa undirbúið sig af
krafti. Framlag þeirra verður fyrir-
lestrar, myndbandssýningar, leik-
sýningar, söngur og dans.
íslenskar listakonur munu kynna
verk sín. Fimm myndlistarkonur
halda sýningu á verkum sínum. Þær
Ingunn Eydal grafíkhstakona,
Bryndís Jónsdóttir keramiklista-
kona, Hansína Jensdóttir sýnir
skúlptúr, Guðrún Kristjánsdóttir
málverk og Kristín Jónsdóttir textíl-
verk. Tónlistarkonur munu flytja
verk eftir íslensk kventónskáld.
Systurnar Elísabet og Helga Brekkan
verða með leikatriði sem fjallar um
sérkennilega uppákomu hjá tveimur
konum sem fara á kvennaráðstefnu
í Noregi. Og fleira og fleira. Einnig
sagði Guðrún að á hverjum degi yrðu
opnir sérstakir tímar fyrir hvers
kyns óvæntar uppákomur sem til
féllu.
Sigrún Stefánsdóttir
stýrirumræðum
Þegar litið er á dagskrá ráðstefn-
unnar sést að það er fátt sem konur
láta sér óviðkomandi þessa viku sem
ráðstefnan stendur yfir. Á hverjum
degi er úr fjölmörgum uppákomum
að velja og leitar þá hver kona þang-
að sem áhugi hennar beinist hverju
sinni. Það er því alger ógjörningur
að ætla sér að komast yfir allt það
sem verður á dagskránni.
Nokkrir viðburðir standa þó upp
úr að mati Guðrúnar. Nefndi hún
meðal annars fund sem haldinn
verður fóstudaginn 5. ágúst. Þar
koma til fundar allir jafnréttismála-
ráðherrar Norðurlandanna og ræða
niðurstöður fundar sem haldinn er í
tengslum við Nordisk Forum. En
ráðherrarnir og nokkrir fulltrúar frá
hverju landi ætla að hittast sérstak-
lega á opinberri ráðstefnu þessa daga
og ræða sameiginlega framkvæmda-
áætlun.
Á fundinum, sem haldinn verður á
föstudeginum, verður fróðlegt að
heyra hvað ráðherrarnir hafa að
segja og munu þeir sitja fyrir svör-
um. Umræðurnar verða sendar út á
flestum Norðurlöndunum en dr.
Sigrún Stefánsdóttir mun stjórna
þeim. Sigrún hefur nú reyndar gert
sérstakan þátt sem hún kallar Fóst-
urlandsins Freyju, og fjallar um líf
og störf íslenskra kvenna. Þátturinn
verður sýndur á ráðstefnunni en
þess má geta að hann verður á dag-
skrá Sjónvarpsins um miðja næstu
viku.
Guðrún tók fram aö áhersla yrði
lögð á að íslensku konurnar stæðu
vel saman þarna úti. Sérstakur
starfsmaöur hefur verið ráðinn til
að vera konunum innan handar og
svo mun sendiráð íslands í Osló veita
lið sitt ef þurfa þykir. Búin hafa ver-
ið til barmmerki sem allar íslensku
konurnar fá og ætti því að vera auð-
velt að þekkjast úr hópnum.
Þá er ekkert annað eftir en að óska
konunum góðs gengis...
-RóG.
Hvorki fleiri né færri en 800 íslensk-
ar konur munu taka sig saman og
leggja land undir fót um næstu helgi.
Leið hggur til Osló þar sem kvenna-
ráðstefnan Nordisk Forum verður
haldin.
Alls munu 7000 konur alls staðar
af Norðurlöndunum koma saman í
Osló til að taka þátt í ráðstefnunni
en hún er haldin á vegum Norður-
landaráðs.
„Eftirvænting er mikil og hefur
undirbúningur staðið í töluverðan
tíma,“ sagði Guðrún Ágústsdóttir
sem er í forsvari íslensku undirbún-
ingsnefndarinnar í samtah við DV.
„íslenskar konur verða með ahs
kyns uppákomur sem gaman verður
að fylgjast með. Annars verða um
2000 uppákomur alls á háskólasvæð-
inu þar sem ráöstefnan fer fram. En
„Það hefur verið stórkostlegt að taka þátt í þessum undirbúningi og fylgjast með konunum sem ætla á ráðstefn-
una,“ segir Guðrún Ágústsdóttir sem hefur verið í forsvari fyrir íslenska undirbúningsnefnd norrænu kvennaráð-
stefnunnar Nordisk Forum sem hefst um næstu helgi. DV-mynd GVA
Hefur þú séð í dag?