Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
55
LífsstQl
Berat var kölluð borg hinna þúsund glugga. Vegna legu borgarinnar sáust Ijósin úr gluggunum á kvöldin. Aður fyrr þótti tilkomumikil sjón að sjá þessa Ijósadýrð þó að Berat standist ekki
samanburð við nútímastórborgir
hafa hins vegar lagt mikið upp úr
því að fá fólk sem hefur áhuga á landi
og þjóð.
Hótelin eru góð án þess að vera
yfirgengilega flott. Matur og þjónusta
er til fyrirmyndar og allt mjög hrein-
legt. Á hverju hóteli er matsölustað-
ur með alþjóðlegum réttum og á þeim
staerstu er boöið upp á skemmtiat-
riði. Ég vil samt hvetja þá sem fara
til Albaniu að borða þjóðarrétti
þeirra. Ég fæ tii dæmis vatn í munn-
in að hugsa um eftirrétt sem ég
smakkaði en það voru döðlur soðnar
í jógúrt og kanel stráð yfir. Lamba-
kjöt er mjög' ljúfengt þama og er
einnig matreitt í jógúrt. Það er mjög
gaman að fara á kafíihúsin þar sem
íbúarnir safnast saman á kvöldin.
Þar seljast menn niður, drekka þjóö-
ardrykkinn „raki“ og spjalla saman.
Tónlist er leikin og er hún sú sér-
kennilegasta sem ég hef heyrt. Um
er að ræða undarlegt sambland af
tónlistarstefnum austurs og vesturs.
Ég man að Guðmundur Steingríms-
son trommuleikari spáði mikið í
hvemig stefin væm uppbyggö. Ég
vil samt taka fram að tónlistin er
mjög áheyrileg.
Albanía er fjöllóttasta land Evrópu
fyrst er getið í Hómerskviöum. Þetta
er ákaflega stolt og sterk þjóð. Gam-
an er að geta þess að fyrir hundrað
og fimmtíu árum var á íslandi kveð-
ið um aðalhetju þeirra. Þessi maður
var kallaður Skanderbeg sem þýðir
hinn mikli stríðsmaður. Þegar Tyrk-
ir byrjuðu að herja á Evrópu kom
hann til skjalanna og frelsaöi al-
bönsku þjóðina.
Tyrkir vom ekki sáttir við að láta
litla þjóð eins og Albaníu sparka sér
í burtu og sendu árlega fjölmennar
fylkingar til að hertaka þá. Skander-
beg varðist þessum herjum í tuttugu
og átta ár. Sögumenn segja að þessi
hetjulega vörn Albana hafi dregið
máttinn úr Tyrkjum þannig að þeir
urðu að gefa Evrópu upp á bátinn.
Hetjudáðir Skanderbegs voru því lof-
aðar á fleiri stöðum en í heima-
landinu," segir hann.
Lambalgöt soðið í jógúrt
Hvernig er ferðamannaiönaður-
inn og hvað er hægt að skoða þarna?
Ég held að Albanir vilji ekki að
ferðamannaiðnaðurinn verði of mik-
ill. Þeir era lítið spenntir fyrir ferða-
mönnum sem vilja búa í lúxus. Þeir
Hrafn E. Jónsson og Jóhannes Arason þulur, ásamt litlum albönskum vini þeirra, hvila sig á göngutúr um Durres.
en sléttur eru niðri við Miðjarðar-
haf. Landslagið er því mjög stórbrot-
iö og ákaflega fallegt. Lítil falleg þorp
skreyta hlíðar fjallanna og bændum-
ir rækta landið á ótrúlegustu stöð-
um.
Við Miðjarðarhafið eru fallegustu
strendur sem ég hef séð. Vatnið er
ótrúlega tært og hreint. Stutt undan
ströndum Albaníu er eyjan Korfu
sem er löngu þekkt sem ferðamanna-
staður. Albaníumegin er túrisminn
ekki orðinn eins þróaður og persónu-
lega tel ég það mikinn kost. Þar er
hægt aö njóta strandarlífs í eðlilegu
umhverfi. Ég gæti sjálfsagt haldið
langar tölur um fegurð Albam’u en
ég held það sé varla pláss til þess
nú,“ segir Hrafn og brosir.
„Ég held að þeir ferðamenn, sem
feröast til þessa vinalega lands, komi
ekki til með að verða óánægðir með
ferðina og ég veit að Islendingar
kunna að meta óspjallaða náttúm og
vingjarnlegt fólk.“
Þvi er við að bæta að fyrirhuguð
er hópferð til Albaníu í september.
Dvahst verður viku í landinu en
feröalagið allt tekur sautján daga. -
Ferðin mun kosta á bilinu 80 til 90
þúsund fyrir manninn. Hægt er aö
fá upplýsingar um ferðina hjá M.A.Í.
-EG.
nimrrn nmn mmn rm
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Laugavegi 178* Reykjavik - Simi 685811
mngimsmimmnTi ■ ■ ■ ■ i