Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Breiðsíðan
Bjami Arason kominn með bílpróf:
„Eg lofa að
aka á löglegum hraða
Þú ert 2000 krónum ríkari
Maðurinn í hringnum að þessu sinni er drengur sem fylgdist með vinum sínum að leik á hjólapalli sem var rifinn á dögunum. Pallinum
höfðu börnin komið upp í Breiðholti og æfðu þar listir sínar ekki ósvipað og sjást í íþróttatímum frá útlöndum. En leikurinn getur líka
verið hættulegur og betra að fara að öllu með gát. Lögreglan kom og lét fjarlægja leikpallinn og börnin urðu að finna sér annað til að
dunda við. Einn drengurinn fær þó sárabætur frá DV því hann er nú tvö þúsund krónum ríkari og má vitja peninga sinna hér á ritstjórn
DV, Þverholti 11. -ELA DV-mynd S
„Þetta var létt. Ég ílaug í gegnum
ökuskólann," sagði Bjarni Arason
poppstjama sem hélt upp á sautján
ára afmælið fyrir stuttu og fékk öku-
skírteinið í vasann eins og flestir
jafnaldrar hans. „Það er algjör mun-
ur að þurfa ekki lengur að þvælast í
strætisvögnum,“ sagði Bjarni sem
keypti sér glænýjan bfl á afmælis-
daginn, svartan sportbíl sem margur
unglingur léti sig ekki dreyma um
að eignast.
Bjarni hefur unniö hörðum hönd-
um allt síðasta ár eða frá því hann
var kjörinn látúnsbarkinn 1987, þá
tæpra sextán ára. í kjölfarið fylgdi
plata sem gekk vel og nú hefur Bjarni
sent frá sér aðra plötu sem situr á
toppnum yfir plötusölu. „Þetta hefur
gengið ótrúlega vel,“ sagði hann. „Og
ég er auðvitað mjög ánægður með
þær viötökur sem platan hefur feng-
ið.“
Bjarni sagðist fmna fyrir hversu
mjög hann hefur þroskast síðasta ár
enda hefur hann starfað mikið með
eldra fólki. „Þetta hefur sannarlega
verið lærdómsríkt ár.“ Nýr látúns-
barki verður valinn um verslunar-
mannahelgina í Atlavík og sagði
Bjami að væntanlega kæmi á yfir-
borðið ný poppstjama. „Ég veit ekki
ennþá hvort ég á að krýna þann nýja
en ég verð í Atlavík um verslunar-
mannahelgina með hljómsveit
minni, Búningunum, þannig að ég
reikna með að ég komi þar eitthvað
nálægt,“ sagði hann.
Þegar Bjami var spurður hvort
ljós er hann hafði lofað að árita plötu
sína í Kringlunni fyrir stuttu. Þar
beið heill hópur ungra meyja eftir
átrúnaðargoðinu sem lét ekki sjá sig.
„Þetta var algjört klúður,“ segir
Bjarni. „Ég var að spila á torginu og
mætti allt of seint inn í Kringlu og
þá voru allir farnir. Ég lofa því að
þetta kemur ekki fyrir aftur.“
Hvað varðar stelpur þá segir Bjami
að hann eigi æðislega kærustu sem
heitir Anna Lára Magnúsdóttir og
er hún ári yngri en hann. „Ég læt
mér nægja að eiga hana.“ Popp-
stjaman er því á föstu þótt trúlofun
sé ekki á næsta leiti, eins og hann
orðaði það.
Þegar við mynduðum Bjarna með
nýja ökuskírteinið sagði lögreglu-
varðstjóri, sem þar var nálægur, að
hann yrði bara að aka á löglegum
hraða því ella tæki hann skírteinið
til baka. „Ég lofa því,“ sagði Bjami.
„Ég hef ekki einu sinni prófað að
þenja nýja bílinn.“ Hann sagðist vera
ákveðinn í að nota bíhnn til annars
en glannaaksturs um götur. „Ég er á
móti þessum hraðakstri og mín
vegna mætti hækka bílprófsaldur-
inn. Mér er að minnsta kosti sama
núna eftir að ég er kominn með skír-
teinið," sagði Bjarni Arason „ Annars
var lögð mikil áhersla á löglegan
hraða í ökuskólanum," sagöi einn
vinsælasti söngvari landsins í dag og
vonandi taka aðrir nýir ökumenn
hann sér til fyrirmyndar.
ELA
hann heföi náð sömu frægð ef hann
heföi ekki farið í keppnina í fyrra
svaraði hann því neitandi. „Að
ósvipað og Björgvin Halldórsson var
á svipuðum aldri. „Ég veit nú ekki
hvort það er hægt að líkja því sam-
Bjarni Arason var stoltur er hann fékk afhent ökuskírteinið enda var hann
búinn að kaupa sér nýjan sportbíl. DV-mynd GVA
minnsta kosti hefði það ekki gerst
. svona fljótt." Sumir segja að Bjarni
sé poppstjama dagsins í dag, ekki
an,“ sagði hann hæverskur.
Táningsstúlkur hafa mikið dálæti
á Bjarna Arasyni og það kom vel í
DV
Bianca Jagger sveiflaði sér
inn á veitingahús nýlega
seint að kvöldi og óskaði
eftir matseðli þrátt fyrir að
hún vissi að búið væri að
loka eldhúsinu. Afsakið,
sagði þjóninn, en við erum
búniraðloka.Bianca
stappaði þá niður fæti, leit
á þjóninn og spurði með
þjósti: „Veistu ekki hver ég
er?“ (Afhverju segir fræga
fólkið þetta alltaf?) Frúin
stóð síðan upp og rauk á
dyr...
★ ★★
hafa sagt að sé af íslenskum
ættum) sem lék hina ill-
gjörnu Nellie í þáttunum
Húsinu á sléttunni, sýnir
hér í gegnum stækkunar-
gler trúlofunarhring sinn
sem er skreyttur demanti.
Hann er frá kærastanum,
leikaranum Donald Mark
Spencer.
★ ★★
Sumar leikkonur eldast
verr en aðrar. Þannig er t.d.
ástatt um fyrrum kyn-
bombuna Brigitte Bardot
sem hefúr látið mikið á sjá
ef marka má nýjar myndir.
Sennilega hefur einhverj-
um aðdáandanum brugðið
að sjá þessa mynd af leik-
konunni. Bardot er nú 53
ára og býr með hundum
sínum og öðrum dýrum í
Frakklandi.
★ ★★
Tina Tumer hefur fengið
tilboð um að gerð verði
kvikmynd eftir bók hennar
I Tina. Tina, sem er sögð
kynþokkafyllsta amma, tók
boðinu með því skilyrði að
söngkonan Whitney Hous-
ton léki aðalhlutverkið...
★ ★★
Erobikkdrottningin Jane
Fonda, sem er fimmtug,
hefúr alltaf haldið því fram
að leikfimi og gott matar-
æði hafi gert hana svo ung-
lega. Hún hafi aldrei þurft
á fegrunaraðgerðum að
halda. Nú herma sögur að
Fonda hafi nýlega farið í
brjóstastækkun bjá fræg-
um bandarískum lækni.
Þetta átti auðvitað að vera
leyndamál en kjaftast ekki
alltút..?