Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Page 14
14
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Frjálst,óháÖ dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglysingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11. SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Sanngirni villir sýn
Vextir á íslandi eru sagðir sanngjarnir eða ósann-
gjarnir eftir sjónarhóli hvers og eins. Sama er að segja
um verðtryggingu vaxta og vísitöluna, sem látin er
mæla hana. Um fjármagnskostnað af ýmsu tagi ræða
menn á þeim grundvelli, að sanngirni þurfi að ráða.
Þeir, sem fylgjandi eru háum eða hærri vöxtum, verð-
tryggingu og lánskjaravísitölu, ræða gjarna um gamla
fólkið, sem hafi með þrotlausri vinnu á langri starfsævi
safnað sér til ellinnar og þurfi að sjá óverðtryggt spari-
fé sitt brenna upp á neikvæðum vöxtum í bönkunum.
Hinir, sem andvígir eru háum eða hærri vöxtum,
verðtryggingu og lánskjaravísitölu, sjá allt annað pen-
ingafólk gegnum sín gleraugu. Þeir sjá slefandi okrara,
sem leika sér að því að eyðileggja framtíð fólks með því
að drepa það í skuldadróma frá unga aldri.
Fyrra hópnum fmnst sanngjarnt, að sparendur fái
umbun erfiðis síns og síðari hópnum fmnst ósann-
gjarnt, að peningamönnum sé gert kleift að níðast á
auralausu fólki. í báðum tilvikum er máhð metið á
grundvelh þess, hvað sé sanngjarnt og ósanngjarnt.
Sé htið á viðtakendur lánsfiárins, þá sér annar hópur-
inn gegnum sín gleraugu margs konar gæludýr hins
opinbera, fyrirtæki á borð við SÍS og aðra shka aðila,
sem hafa meira eða minna hfað á aðgangi að peningum,
sem ekki þurfti að endurgreiða að fuhu.
Hinn hópurinn sér aftur á móti vaxtarbrodd atvinnu-
hfsins. Hans gleraugu sýna þjóðhagslega hagkvæmar
hugmyndir, sem ekki komast til framkvæmda eða eru
kæfðar í fæðingu af hrikalegum fjármagnskostnaði. Enn
er talað um, hvað sé sanngjarnt og ósanngjarnt.
Þegar byggt er á slíku gæðamati, er venjulega skammt
í handaflslausnir. Vextir eru hækkaðir eða lækkaðir
með handafh til að auka sanngirni. Verðtrygging og
vísitala eru teknar upp eða afhumdar með handafh til
að auka sanngimi. Menn skipuleggja vandamáhð.
í öhum þessum tilvikum er htið á lánsfj ármarkaðinn
sem ákveðna stærð, sem sé til skiptanna. Síðan er htið
á útlönd sem almenna fjáruppsprettu, sem ganga megi
í til viðbótar eftir þörfum. í þessum hugmyndaheimi er
gott rúm fyrir mat á sanngirni og ósanngirni.
í reynd er leitast við að taka frá eins mikið af pening-
um, sem koma á lánsfjármarkaðinn. Þessu fé er beint
í farvegi til gæludýra og forgangsverkefna og gjarna á
lágum vöxtum, sem ákveðnir em með sanngjörnu hand-
afh. Ýmsir opinberir sjóðir gegna þessu hlutverki.
Ennfremur er í reynd leitast við að fá sem mest af
peningum frá útlöndum. Sú leið hefur verið ofnotuð svo
lengi, að jafnvel sérfræðingum í sanngimi er farið að
ofbjóða. Enda erum við nú orðin ein ahra skuldugasta
þjóð heimsins og senn komin þar á leiðarenda.
Einnig hafa í reynd yfirleitt orðið hlutadrýgst þau
sjÓL-jmið, að sanngjarnt sé, að lántakendur borgi hóf-
lega vexti, það er að segja lága. Með því handafh hefur
verið dregið úr sparifiármyndun í landinu. Hungrið í
lánsfé er ahtaf miklu meira en hægt er að seðja.
Þegar saman koma langvinn ofnotkun á erlendu láns-
fé, langvinnur forgangur gæludýra og forgangsverkefna
að ódým lánsfé og langvinnir öfugvextir á almennum
markaði, verður útkoman óhjákvæmhega ósfjórnleg
lántökufíkn, sem ekki sefast, þótt vextir hækki um skeið.
Hlutverk stjórnvalda er samt ekki að beita handafh
th að auka vaxtasanngirni, heldur að haga svo málum,
að meira lánsfé en eha verði th á innlendum markaði.
Jónas Kristjánsson
Erkiklerkur fær að
geifla á eitrinu
Arftakar Ruhollah Khomeini,
erkiklerks í stjóm klerkaveldisins
í íran, eru að reyna að bjarga því
sem bjargað verður úr skipbroti
íslömsku byltingarhreyfmgarinn-
ar í stríöinu við írak. Þess vegna
var bragðið við og lýst yfir sam-
þykki við vopnahlé daginn eftir að
erkióvinurinn, Saddam Hussein,
forseti íraks, hafði boðið „frið með
heiðri" í hátíðarræðu síðasta
sunnudag. Þar var Hussein að
minnast tveggja áratuga veldis
Batth-flokksins og þrítugsafmæhs
byltingarinnar gegn konungsstjóm
á snærum Breta í írak.
Á miðvikudag barst svo brostin
raust byltingarleiðtogans til írana
af bandi. Hann minnti á eiða sína
að veija síðasta andardrætti og síð-
asta blóðdropa til að yfirbuga Sadd-
am Hussein. „Því var þessi ákvörð-
un fyrir mig eins og að bergja eit-
ur.“ En leiðtogum ríkisstjómar og
herafla tókst að sögn öldungsins
að sýna honum fram á að friðarum-
leitanir væru nauðsynlegar í þágu
hagsmuna íslamsks lýðveldis í Ir-
an. Fyrir þeim varð draumurinn
um útbreiðslu íslamskrar bylting-
ar til annarra landa að víkja.
Khomeini erkiklerkur er 88 ára,
og í Teheran er altalað að hann sé
dauðvona af krabbameini í blöðru-
hálskirth. Félli hann frá að töpuðu
fómfreku stríði, þjóð í eymdar-
ástandi og óútkljáðri valdabaráttu
innan klerkaveldisins mátti búast
viö að íslamska lýðveldið færi í
gröfina með honum. En með því
að losna úr stríðinu, og fá Kho-
meini til að samsinna friðargerð,
gefst kostur á að reyna að hressa
það viö'á ný.
Um þetta verkefni tóku höndum
saman háklerkar sem einatt hafa
ERLEND TÍÐINDI
Magnús Torfi
Ólafsson
og byltingarvarða lentu í innbyrðis
átökum. Gömlu, bandarísku vopn-
in frá keisarahernum týndu
tölunni án þess að önnur fengjust
í staðinn.
Atvinnuvegir írans eru í lama-
sessi af því að stríðsreksturinn
gleypir obbann af tekjum fyrir olíu-
útflutning. Þær hafa þar að auki
dregist verulega saman upp á síðk-
astið. Bæði stafar það af usla á út-
skipunarmannvirkjum og vinnslu-
stöðvum eftir loftárásir íraka og
verölækkun og vaxandi sölutregðu
á hráolíu á heimsmarkaði.
Eftir að Rafsanjani tók við yfir-
herstjórn boðaði hann í öðru orð-
inu aukna herkvaðningu og nýjar
baráttuaðferðir á vígvöllunum, en
meira kvað þó aö hvatninu til end-
urskoðunar á afstöðunni til um-
Það hefur líka komið á daginn að
afsakanir Bandaríkjaforseta og
bandarísku herstjórnarinnar, fyrir
drápi á 290 flugfarþegum og áhöfn,
eru haldlausar. Flug 655 var á miðri
alþjóðaflugbraut, að hækka flugið
en ekki aö lækka það með stefnu á
beitiskipið, og með auðkennasvara
farþegaílugvélar (IFF) í gangi. Flest
af þessu staðfesta önnur bandarísk
herskip en Vincennes. Niðurstaða
alþjóðlegrar rannsóknar er þvi lík-
leg til að leiöa í ljós að Bandaríkja-
floti sé ámóta háskalegur umhverfi
sínu og vamarleysingjum sem í
nánd við hann lenda og loftvamar-
kerfi Sovétmanna.
í trausti á þessa málavexti hefur
íransstjóm ákveðið að gera ekki
gagnslausa tilraun til að fá áfellis-
dóm yfir Bandaríkjunum í Örygg-
isráðinu, þar sem Bush forsetaefni
hefði fengið tækifæri til að auglýsa
sig við að beita neitunarvaldi, held-
ur leggja málstaö sinn undir rann-
sókn alþjóðlegra flugmálayfir-
valda.
Aðalritara SÞ og mönnum hans
er mikill vandi á höndum. Eftir árs
vífilengjur hefur íransstjórn fallist
á vopnahlé samkvæmt ályktun 598.
Peres de Cuellar hefur ákveðið að
reyna að koma því á í snatri og
snúa sér síðan að færslu heija að
alþjóölega viöurkenndum landa-
mærum og skiptum á hundruðum
þúsunda stríðsfanga. Þetta eiga SÞ
að framkvæma jafnframt sem við
þeim blasir gjaldþrot af því að
Bandaríkjastjórn neitar að greiða
450 milljóna dollara skuld sína við
alþjóðasamtökin. Loks á að koma
á varanlegum friðarsamningi og
setja á laggir hlutlausa rannsókn-
arnefnd til að skera úr um sök á
því að Persaflóastríðið skall á.
Rafsanjani herstjóri og þingforseti (t.h.) ásamt Khameini forseta Irans.
tekist á innbyröis fram að þessu.
Fremstur í flokki þeirra er Has-
hemi Rafsanjani, forseti þings ír-
ans. Hann fékk nú í lið með sér
meðal annarra Ahmed Khomeini,
son byltingarleiðtogans, Ali Mont-
aseri, erkiklerk og útnefndan arf-
taka leiðtogans, og Khameini, for-
seta ríkisins.
Atburðarásin, sem náði hámarki
á mánudaginn þegar de Cuellar,
aðalritara SÞ, barst tilkynning um
að íran féllist á vopnahlé í sam-
ræmi við ályktun Öryggisráðsins
nr. 598, hófst 2. júní þegar Kho-
meini erkiklerkur lýsti yfir að
hann hefði ákveðið aö setja Has-
hemi Rafsanjani þingforseta yfir
allan herafla íslamska lýðveldisins,
jafnt fastaherinn, byltingaverði og
sjálfboðaliðasveitir. Á undan var
gengin hver ósigur írana af öðrum
fyrir tvíefldum her íraks.
í sókn dugði trúarmóðurinn til
að knýja íranska æskumenn til að
fóma sér í hundruöa þúsunda tali.
í vöm og á undanhaldi fjaraði hann
út, og þá skorti líka herstjómar-
kunnáttu og samheldni ósam-
stæöra fylkinga. Sveitir fastahers
heimsins. Fyrstu helgina í þessum
mánuði kvað hann svo upp úr með
að íslamska lýðveldið væri að hluta
statt í sjálfskaparvíti, það hefði
sjálft stuðlað að alþjóðlegri ein-
angrun sinni, hrundið frá sér
mögulegum vinum og gert hlut-
lausa að óvinum.
En einmitt um sömu mundir og
rækilegar fregnir af þessum nýju
tónum frá Teheran tóku að berast
út um heiminn, sunnudaginn 3.
júlí, gerðist sá atburður að banda-
ríska beitiskipið Vincennes skaut
niður flug 655 frá Iran Air á al-
þjóöaflugleið milli Bandar Abbas í
Iran og Dubai í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum og drap
hvert mannsbarn um borð, 290
manns.
Khomeini erkiklerkur hótaöi
strax greypilegum hefndum og
hvatti til árása á Bandaríkjamenn,
hvar sem til þeirra næðist. En þá
sýndi Rafsanjani fyrir alvöru,
hvert völdin höfðu færst. Hann
varaði við fljótræði, kvað írani nú
njóta samúðar umheimsins, og
hana mættu þeir ekki brjóta af sér
með óyndisúrræðum.
Þrátt fyrir að vofa Khomeinis
hafi komið fram í írönskum fjöl-
miðlum til að gera friðarumleitanir
Rafsanjani trúverðugar vill stjórn
íraks hafa vaðið fyrir neðan sig.
Tariq Asis, utanríkisráðherra í
Bagdad, hefur lagt til við aðalritara
SÞ að komið verði á beinum við-
ræðum íraks og írans um siglinga-
frelsi á Persaflóa og hreinsun
árósanna Shatt-al-Arab, sem bæði
ríki eiga land að og eru eina leið
íraka til sjávar. Ósinn er búinn að
vera tepptur af skipsskrokkum frá
því stríðið hófst fyrir tæpum átta
árum.
Og ólíkt væri það sögu írapska
klerkaveldisins til þessa ef keppi-
nautar Rafsanjani og hans manna
reyndu ekki aö bregða fyrir þá fæti.
Fremstir í flokki þeirra sem hoða
áframhald þjóðfélagsbyltingar inn-
anlands undir íslömsku formerki
og látlaust stríö fyrir útbreiðslu
byltingarmálstaðarins eru innan-
ríkisráðherrann Mohamed Mont-
ashemi og bandamenn hans í Hes-
bollah eöa Guðshemum, bæði í ír-
an og í Líbanon.