Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 23
23
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Nicol Williamson leikur Mountbatten
lávarð.
verður vinkona mín, frú Gandhi,
sár,“ sagði hún í gríni. Nehru var
fyrsti forsætisráðherra Indlands og
faðir Indiru Gandhi sem var myrt
árið 1984. Þá voru þættir þessir í
vinnslu og orð Thatcher voru sögð
áður en sá hörmulegi atburður átti
sér stað.
Richardson, sem hefur unnið við
Shakespeare-Ieikhúsið í fimm ár,
sagði að þegar hann kom til Indlands
hefði fólk talað við hann á sínu
tungumáli. „Þegar við vorum við
upptökur á flugvellinum þurfti ég að
tala við konu í utanríkisþjónustunni.
Einn úr okkar hópi kallaði til henn-
ar: „Heyrðu, Nehru þarf að tala við
þig.“ Konan sagði mér að hún hefði
fengið hálfgert taugaáfall því henni
fannst hún fara þrjátíu ár aftur í tím-
ann þegar hún starfaði sem þýðandi
fyrir Nehru í Moskvu. Henni fannst
ég nákvæmlega eins og Nehru í út-
M,“ sagði Richardson. Leikarinn
var svo heppinn að hitta Indiru
Gandhi á heimili hennar í Nýju-Delhi
þar sem hún sat fyrir á mynd með
leikaranum sem var í hlutverki fóður
hennar.
Sam Dastor leikur Mahatma
Gandhi í myndaflokknum en hlut-
verkið hafði hann langað í frá því
hann gerðist leikari. „Ég hef alltaf
dáð þennan mann.“ Eins og aðrir
leikarar í hópnum fannst Dastor það
mikil upplifun að koma á slóðir þessa
sögufræga.manns á Indlandi. Dastor
Janet Suzman í hlutverki lafði
Mountbatten. Hún hjálpaði manni
sínum að koma á friði á Indlandi.
lét sig ekki muna um að léttast um
tæp tíu kíló til að leika Gandhi og lét
raka af sér þykkt og mikiö hár. Við
undirbúningsvinnu þáttanna lögðu
leikaramir á sig mikla vinnu til að
kynnast sögunni og ræddu við menn
sem höfðu kynnst þessum mikil-
mennum sem þáttaröðin fjallar um.
Leikkona með
heiðursnafnbót
Viktoría Alberta prinsessa kem-
ur einnig mikið við sögu í þáttunum
en með hlutverk hennar fer Wendy
Hiller. Viktoría Alberta var barna-
bam Viktoríu drottningar og gift
Louis Alexander, prins af Batten-
berg. Hún var móðir Mountbattens
lávarðar.
Leikkonan Wendy Hiller fékk
óskarverðlaun fyrir leik í kvikmynd-
inni Seperate Tables. Hún er ástsæl-
asta leikkona Breta og hlaut heiðurs-
nafnbótina „Darne" breska heims-
veldisins árið 1975. Wendy Hiller
hefur bæði starfað í Englandi sem
leikkona og í Bandaríkjunum. Hlut-
verk hennar em mörg og bæði á sviði
og í kvikmyndum. Má þar nefna
David Copperfield, Murder on the
Orient Express, The Voyage of the
Damned, The Elephant Man og Mak-
ing Love.
Meðal sjónvarpmynda hennar má
nefna Miss Morrisons Ghosts, Wit-
ness for the Prosecution og Comedy
of Errors.
Frægur leikstjóri
Vladek Sheybal leikur Mo-
hammed Ali Jinnah í þáttunum.
Sheybal er pólskur og hefur bæði
leikið og leikstýrt mörgum þekktum
verkum. Hann stundaði nám í þrjú
ár við Warsaw Stanislavskf School
of Drama, sex mánuði í Moscow Art
Theatre og fjögur ár í Warsaw School
of Drama Directors.
Sheybal starfaði lengi í heimalandi
sínu bæði leikhúsum og kvikmynd-
um áður en hann flutti til Englands
árið 1958. Frá því og til ársins 1960
stjómaði hann Stanislavski Method
Classes í Oxford. Þá tók hann að sér
leikstjóm í htlu leikhúsi nálægt Lon-
don. En fór aftur til kennslu á ámn-
um 1962-63 þá í Royal Academy of
Dramatic Art í London. Hann tók
einnig að sér kennslu í Ástralíu og
var með eigin námskeið bæöi í Lon-
don og Róm.
Hann hefur stjómað upptökum á ,
mörgum verkum og óperum fyrir
BBC og ITV. Hann leikstýrði fyrir
Dutch Theatre í Amsterdam. Auk
þess hefur hann unnið við fjölmargar
þekktar kvikmyndir.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu em hér á ferðinni miklir fag-
menn og má búast við að mynda-
flokkurinn eigi eftir að vekja athygli
fyrir fagmannleg vinnubrögð. Má
segja að Mountbatten-myndaflokk-
urinn sé stórbrotið verk sem sýni
sögulegar staðreyndir.
ELA
JP
Innihurðir
Fyrir þá sem sætta sig
ekki við neitt nema það
besta. Vandaðar hurðir
úr eik, beyki, mahóní og
hvitlakkaðar.
innréttingar
Skeilan 7 - Reykjavik - Simar 83913 31113
^ karlmannafatnaður
Itölsk hönnun
-toppurinnídag
KRON styður
EinarVilhjðlmsson
og Islensku ólympfunefndina.
Viðóskum fslensku
ólympfuförunum góðs
gengis í Seoul.
KAUPSTADUR
2. HÆÐ ÍMJÓDD