Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Qupperneq 26
26
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Popp
DV
Listamaður
ársins?
Tónleikarnir, sem voru haldnir fyrir
skömmu á Wembley-leikvanginum í
Bretlandi, til heiðurs s-afríska blökku-
mannaleiðtoganum Nelson Mandela,
eru um margt eftirminnilegir. Þó að
stjórnvöld S-Afríku hafi látið afdrátttar-
lausa kröfu um frelsun Mandela sem
vind um eyru þjóta geta aðstandendur
tónleikanna státað sig af því að hafa
gefið milljónum manna óvænt tækifæri
til að uppgötva tuttugu ogfjögurra ára
söngkonu sem er þegar í dag skærasta
stjarna ársins í tónlistarheiminum.
Tracy Chapman heitir hún og hefur, á
þeim fáu vikum sem liðnar eru frá því
hún heillaði tónleikagesti og sjónvarpsá-
horfendur með leik sínum á Wembley,
lagt undir sig efsta sæti breska breið-
skífulistans með fyrstu breiðskífu sinni.
í Bandaríkj unum hefur platan þotið upp
vinsældalista og er nú komin inn á topp
tíu breiðskífulistann þar í landi. ARt
þetta væri svo sem ekki í frásögur fær-
andi ef Tracy Chapman væri einungis
nýjasta tilbrigðið við hið yfirborðs-
kennda Madonna/Whitney Houston stef.
Ekkert gæti verið eins fjarri lagi því auk
þess sem hún getur tæpast talist „fall-
eg“ út frá skilgreiningunni á hinni
dæmigerðu poppginu, þá einkennist tón-
list hennar af tvennu sem er sjaldgæfara
en vatn í helvíti á efstu stigum vinsælda-
listanna: einlægni ogboðskap.
Sagan á bak við óvæntan frama Tracy
Chapman er nokkuð óvenjuleg. Hún
fæddist í Ohio-fylki í Bandaríkjunum og
bjó ásamt móður sinni í svertingjahverfi
fram að unglingsaldri. Þegar henni
bauðst háskólastyrkur í Boston á aust-
urströndinni íluttist hún þangað og byrj-
aði að leika á götuhornum og einstaka
knæpum borgarinnar á meðan á náminu
stóð. Fyrir hreina tilviljun var hún upp-
götvuð af einum af forráðamönnum El-
ektra plötufyrirtækisins (útgáfufyrir-
tæki Sykurmolanna í Bandaríkjunum)
sem hreifst undir eins af tónlist hennar
og söng. Nokkrum mánuðum seinna var
fyrsta breiðskífan komin út og framlag
hennar til Mandela-tónleikanna fylgdi
skömmu seinna. Eftir þá tónleika hefur
svo frami hennar verið ævintýri líkast-
ur.
Tónlist Tracy Chapman er einföld og
íburðarlítil, lögin á fyrstu breiðskífunni
(sem ber nafn hennar) eru flest ballöður
í þjóðlagastíl þar sem kassagítar Chap-
man leikur stærsta hlutverkið. Gagn-
rýnendur hafa reynt að staðsetja hana í
poppinu með því að líkja henni við Joni
Mitchell, Suzanne Vega eða Joan Ar-
matrading en slíkt er óþörf einföldun,
því Tracy Chapman er engri lík. Sér-
staöa hennar birtist í einni hljómfeg-
urstu og jafnframt látlausustu rödd sem
hefur heyrst í poppinu í mörg ár, rödd
sem kemur tilfinningaróti persónanna
sem hún skapar í lögum sínum til skila
á óvenju einlægan hátt.
Umfiöllunarefni Tracy Chapman eru
heldur ekki af þeim toga, sem yfirleitt
er að finna í tónlist þeirra sem ná efstu
sætum vinsældalistanna. í laginu Fast
Car, sem er fyrsta smáskífa plötunnar,
fiallar hún um þrautseigju vonarinnar
við þrúgandi aðstæður veruleikans.
Textinn segir frá ungri konu sem gerir
alvöru úr draumi sínum um að flýja frá
ömurlegum aðstæðum tilveru sinnar til
þess eins að uppgötva að áfangastaður-
inn hefur orðið að nýrri prísund þar sem
eiginmaður og börn eru fangaverðirnir.
Aðrir textar fialla um hina ýmsu lesti
mannlegs samfélags, kynþáttahatur,
heimilisofbeldi og sjúkleg efnishyggja og
fátækt er meðal þess sem Tracy Chap-
man deilir á. Svartsýni er þó ekki alls-
ráðandi og sum af eftirminnilegustu lög-
unum fialla á næman og klisjulausan
hátt um hin sígildu hugðarefni manns-
ins, ástina og von um betri tíð.
Það er greinilegt að einlægur söngur
og meðvitaðir textar Tracy Chapman
hafa komið boðskap á framfæri sem hef-
ur hrifið bæði almenning og gagnrýn-
endur nógu mikið til að fleyta henni upp
í efstu sæti vinsældalista um allan heim.
Undraverður árangur eflitið er til þess
hversu ólík hún er þeim tónlistarmönn-
um sem iðulega einoka listana með létt-
vægu og oftast innantómu formúlu-
poppi. Því miður er ekki annað að sjá
en að gengi hennar sé undantekningin
sem sannar regluna um uppistöðu vin-
sældalistana. Reyndin er riefnilega sú
aö með því að slá í gegn á Wembley
komst Tracy Chapman bakdyramegin
inn á vinsældalistana, þ.e. hún komst á
toppinn nánast án aðstoðar fiölmiðla-
mafíunnar (útvarpsstöðvar, sjónvarp
o.fl.) sem sigtar oftast út þá tónlist sem
fellur ekki inn í þrönga skilgreiningu
hennar á því sem „almenningur vill
heyra“. Þar sem ádeilulög Tracy Chap-
man eru langt utan við þessa skilgrein-
ingu er ólíklegt að tónhst hennar hefði
nokkurn tímann náð slíkri hylh ef hún
hefði ekki fengið að slæðast með stóru
nöfnum hátíðarinnar, s.s George Mic-
hael eöa Whitney Houston, og ná þannig
beinu sambandi við fólkið. í framhaldi
af þessum hugleiðingum er kannski við
hæfi að velta því fyrir sér hversu marg-
ir hæfileikaríkir tónlistarmenn leynast
í þeim frjóa jarðvegi sem Tracy Chap-
man er sprottin úr en ná aldrei th al-
mennings, einfaldlega vegna þess að þeir
falla ekki inn í „vinsældapopp“-básinn.
Hvort Tracy Chapman keinur til með
að vera perlan meðal svínanna í hsta-
poppi næstu ára er erfitt að spá um, en
framtíðin er svo sannarlega björt. í sept-
ember verður hún eitt af aðalatriðum
tónleikaherferðar sem Amnesty Inter-
national gengst fyrir í fimmtán löndum
í tilefni þess að fiörtíu ár eru liðin frá
því að Mannréttindasáttmálinn var und-
irritaður. Þar verður hún í samfloti með
ekki minni spámönnum en Bruce
Springsteen, Sting og Peter Gabriel.
Glæstur félagsskapur fyrir listamann
sem fyrir tæpu ári var að vinna fyrir sér
með leik á götuhornum í Bandaríkjun-
um.
Síðan skein sól: enn rofar til i íslensku poppi...
Áður en þú lest lengra vh ég koma
þeim skilaboðum á framfæri að í
þessum pisth verður hvergi minnst
á sól, ský, rigningu né neitt sem yfir-
leitt tengist veðurfari á landinu á
nokkurn hátt. Við skulum láta ógert
að varpa fram loftkenndum lýsingar-
orðum sem krafsa i bakkann við að
gefa th kynna það sem höfundi finnst
um tónhst þeirra fiórmenninga sem
hér eru kynntir. Höldum okkur frek-
ar við staöreyndir og leyfum hverj-
um um sig að gera upp sinn hug um
það sem Síðan skein sól býður upp á
sem nýjustu viðbótina við allblóm-
lega útgáfu íslenskra sumarplatna.
Nokkrar staðreyndir: Síðan skein
sól er skipuð þeim Helga Björnssyni,
Ingólfi Sigurðssyni, Eyjólfi Jóhann-
essyni, og Jakobi Magnússyni. Alhr
menn með tónlistarlega fortíð, ef svo
má að orði komast. Helgi er fyrrum
söngvari í Grafik, Eyjólfur var áður
í slagtogi við Tappa tíkarrass og De
Vunderfoolz, Jakob í hinum ýmsu
gervum s.s. Tappi tíkarrassi, Das
Kapital eða MX-21 og svo Ingólfur,
sem þrátt fyrir yngstan aldur hefur
komið víða við, t.d. í Rauðum ílötum
ogBláttáfram.
Síðan skein sól eða SSSól hafa leik-
ið saman í rúmt ár og fyrsta afurðin,
sem birtist almenningi úr smiðju
þeirra, er nýkomin út, í formi tveggja
laga tólf tommu sem Skífan annast
útgáfu á. Blautar varir og Bannað
eru nöfn þessarra laga sem þegar
hafa hljómað víða á öldum ljósvak-
ans og vakið athygli hjá þeim tæpa
þriðjungi íslenskrar alþýðu sem enn
leggur sig eftir þeim miðli. SSSól var
líka meðal þátttakenda í útihljóm-
leikunum sem haldnir voru á Mikla-
túni um síðustu helgi til heiðurs
Nelson Mandela sjötugum. Þar gerðu
þeir enn lukku hjá þeim sem staddir
voru á túninu en því miður urðu
þeir fyrir barðinu á slælegri hljóð-
blöndun Sjónvarpsins sem sýndi frá
þessum tónleikum. Þannig fenguð
þið sem heima sátuð tæpast rétta
mynd af þeirri tónhst sem SSSól flyt-
ur í dag.
En hver er tónlist Síðan skein sól?
í anda hefðarinnar krafði ég þá Helga
Björnsson söngvara og Eyjólf gítar-
leikara svara við þessari djúpstæöu
og áleitnu spurningu: „Bara rokk og
ról, okkar útgáfa af því.“ (Hið eina
rétta svar við þessarri spurningu.)
Og tilgangurinn með öllu saman?
Reynir SSSól að höfða til einhvers
ákveðins aldurs - eöa þjóðfélagshóps
með textum sínum og tónlist? „Nei,
ekki get ég sagt það, nema bara hugs-
andi fólks. Einn texti höföar kannski
meira í áttina til unglinga og annar
í áttina að eldra fólki. Annars finnst
mér ekki gott að skilgreina þetta á
þennan hátt því ég held aö svona
rokktónhst höfði raunar th allra ald-
urshópa. Við spilum að minnsta kosti
þannig tónlist að hún eigi að geta
höföað til mjög breiðs hóps.“ Boð-
skapur er þáttur í rokkinu sem sum-
ir velta ekki mikið fyrir sér en aðrir
reyna að flétta hann inn í með
skemmtanagildi tónlistarinnar. Er
hoðskapur nauðsynlegur hluti af
tónlist SSSól? „ Já, mér finnst það
skipta öllu máli. T.d. vegna þess að
þegar staðið er á sviðinu og verið að
spila er miklu innihaldsríkara að
segja fólki eitthvað, í stað þess að
segja ekkert. Það gefur miklu meiri
kraft og tilgang sem skilar sér th
fólksins." Núna megum við eiga von
á breiðskífu frá hljómsveitinni þegar
fram líða stundir. Eru lögin tvö á
tólf tommunni einkennandi fyrir þá
tónlist sem verður á breiðskífunni?
„Það má segja að þetta sé svona miðj-
an á þvi, við förum meira í báðar
áttir frá þessum lögum. Sumt meira
poppaö en annað rokkaðra og
þyngra.“ Hvað er svo framundan á
næstu dögum? Tónleikar o.s.frv.?
„Við ákváðum að taka þá stefnu að
beina kröftum okkar alhliða í þessa
plötu og hún verður tekin upp fljót-
lega. Við komum til með að eyða síð-
ari hluta þessa mánaðar og ágúst í
upptökur, þannig að tónleikahald
mun ekki verða mikið á meðan. En
við komum svo til með að fylgja eftir
breiðskífunni af fullum krafti."
Um Síðan skein sól riiætti segja sem
svo að hún sé meö nýjasta framlagið
í sumarpoppið sem er án efa skör
ofar en flest það íslenska efni sem
dynur á hlustum okkar þessa dag-
ana. Getur ekki verið annað en gott
mál.