Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 23. JÚLl 1988.
Sérstæð sakamál
Gwen Massey var orðin fræg söng-
kona þegar hún kynntist iðjuhöldin-
um Frank Veldon. Þau urðu ást-
fangin við fyrstu sýn en afleiðingarn-
ar urðu aðrar en þau grunaöi þá.
Þykkt snjólag
Það lá þykkt lag af snjó yfir öllu
i litla enska bænurn Rudyard þetta
kvöld. Allt í einu mátti heyra að ein-
hver var að moka þvi skófla rakst í
harða jörðina undir snjónum. í daufu
mánaskininu sást ung. lagleg kona í
pels vera í óðaönn að fylla fótu af
snjó sem hún flýtti sér svo nteö inn
til sin.
Þetta var óvenjuleg sjón. Konan
var þrituga söngkonan Gwen Massey
og hún hafði vissulega ástæðu til
þess að standa i þessum snjómokstri
þótt hún kæmi ekki í dagljósið fvrr
en síðar.
Söngi’ödd
Gwen Massey uppgötvaðist þegar
hún var táningur en þá söng hún í
kirkjukór og áður en hún var orðin
tvítug var hún farin að syngja opin-
berlega viðs vegar um Bretland. Hún
vann til margra verðlauna og hlaut
tilsögn í söng bæði í París og Mílanó
án þess að þurfa nokkuð að greiða
fyrir. Hún var því orðin vel kunn í
heimalandi sínu og reyndar víðar er
það gerðist sem nú segir frá.
Frank og Mary Veldon á brúðkaups-
daginn.
Iðnjöfurinn
Frank Veldon var kynntur fyrir
Gwen Massey aö lokinni söng-
skemmtun sem hún kom fram á.
Hann rak þá klæðaverksmiðju í bæn-
um Hanley sem er skammt frá Rudy-
ard. Hann var kvæntur og á fimm-
tugsaldri en ástin milli hans og konu
hans var ekki jafnheit og á árum
áður. Þá hafði kona hans, Mary, ekki
sama áhuga á hljómlist og hann en
varði hins vegar miklum tíma í að
heimsækja aldraö fólk og létta því
lífiö.
Erfitt samband
Frank Veldon varð strax ást-
fanginn af Gwen Massey og hún gaf
honum strax til kynna að hún væri
hrifin af honum. Það leið því ekki á
löngu þar til þau fóru að hittast á
laun. Sumar nætur voru þau í af-
skekktum gistihúsum því þeim var
báðum ljóst aö þau gætu orðið fyrir
miklum óþægindum, ekki síst í
starfi, ef ástarsamband þeirra kæm-
ist upp. Þar kom svo að Frank full-
vissaöi Gwen um aö hann myndi
brátt biðja konu sína um skilnað og
myndi hann þá ganga að eiga hana.
Sambandið kemst upp
Ekki leið þó á löngu þar til Frank
Gwen Massey.
Franks en það var kona hans, Mary,
sem kom í símann.
Konurnar tvær hittast
„Svo það ert þá þú,“ sagði Mary
er hún heyrði hver hringdi.
„Já, ertu til í að koma og ræða við
mig svo við getum gert út um Frank
og framtíð okkar,“ spurði Gwen,
Þessi spurning vakti ýmsar fleiri.
Mary sá að best væri að fá svar við
þeim svo að hún ákvað stað og
stundu. Og þegar hún lagði bíl sínum
fyrir framan hús Gwen sáust þær í
fyrsta sinn.
Önnur var miðaldra, ekki sérstak-
lega lagleg og ekki klædd samkvæmt
nýjustu tísku, en hin þrítug, lagleg,
fræg og pelsklædd. Ókunnugur hefði
því við fyrstu sýn ekki getað séð að
þær ættu margt sameiginlegt en það
áttu þær því Frank Veldon var mað-
urinn í lífi þeirra beggia.
Rifrildi og átök
Báðar gáfu konurnar sig fljótlega
á vald sterkum tilfinningum. Leið
svo ekki á löngu þar til þær fóru að
takast á. Gwen var yngri og sterkari
og Mary varð undir en svo ultu þær
báðar fram af háum kletti við hús
Gwen með hendur hvor á annarrar
hálsi. Mary Veldon missti meðvitund
við fallið og rétt á eftir svipti Gwen
hana lífinu með því að slá hana í
höfuðið meö hamri sem hún sótti inn
í bílskúrinn hjá sér.
Vandi Gwen var nú hvernig hún
kæmi líkinu af Gwen og bíl hennar
undan. Og brátt fann hún lausnina.
Gamlar kastalarústir
Skammt frá heimili Gwen voru
Will Bradley.
Hluti af gömlu kastalarústunum.
og Gwen tókst ekki lengur að halda
sambandi sínu leyndu. Skammt var
milli bæjanna Rudyard og Hanley og
þegar sagan spurðist út fékk Mary
Veldon mikla samúö. Og auðvitað fór
svo að hún frétti um framhjáhald
manns síns.
Kvöld eitt sagði hún honum að hún
vissi ailt um samband hans og Gwen
og yrði hann að binda enda á þaö
áður en það yrði á allra vitorði í fjöl-
skyldum þeirra. Þá hét hann því há-
tíðlega að hætta að hitta Gwen Mass-
ey. Honum var þó ekki alvara.
Leynilegt samkomulag
Frank hringdi til Gwen og gekk
frá samkomulagi við hana þess efnis
aö þau héldu sig hvort frá öðru um
hálfs árs skeiö. Þá gætu þau farið að
hittast aftur, með meiri leynd en fyrr,
þar til honum hefði tekist að fá skiln-
aö en það ætti þá að geta tekist án
þess að Gwen kæmi nokkuð viö sögu
skilnaðarmálsins. Eftir þetta héldu
þau Frank og Gwen áfram aö ræöast
viö í síma en hittust ekki. Mary Vel-
don var hins vegar í þeirri trú að
maður hennar hefði með öllu sagt
skiliö við Gwen Massey.
Gwen gerist óróleg
Er svo haföi gengiö um tíma lýsti
Gwen því yfir við Frank einn daginn
að hún þyldi ekki þetta ástand leng-
ur. Væri honum alvara með aö
kvænast sér yröi hann að gera hreint
fyrir sínum dyrum. Hann yrði þegar
að velja milh sín og Mary því annars
myndi hún slíta sambandinu við
hann. Svo geröist það eitt kalt febrú-
arkvöld að Gwen hringdi heim til
gamlar kastalarústir og þangað ók
hún með líkiö af Mary í bílnum. Er
þangað kom setti hún það undir stýri
en lét bílinn síðan steypast fram af
háum klettum við rústirnar. Hún leit
nú svo á að hún hefði framiö full-
komna glæpinn. Talið yrði að Mary
Veldon hefði ekið út af veginum
þarna og fengið svo mikinn áverka
að hún hefði látist. Gwen hélt því
fótgangandi heim, klædd pelsinum,
og gætti þess að leita skjóls í hvert
sinn sem hún sá bíl koma.
Hamarinn brenndur
Er heim kom lét Gwen það verða
sitt fyrsta verk að kasta hamrinum
á eld og stóð hún hjá uns handfangið
var brunnið upp til agna. Þá fór hún
að moka burt blóðugum snjó fyrir
neðan klettinn þar sem hún hafði
veitt Mary banahöggið. Snjóinn bar
hún í fótu inn í eldhús þar sem hún
bræddi hann.
Næsta morgun hringdi elskhugi
hennar til hennar og sagði að kona
sín væri ekki enn komin heim og
hefði hún ekki verið um nóttina hjá
Ölmu Coogan eins og ákveðið hefði
verið. Gwen reyndi þá aö róa Frank
og sagði honum aö Mary hlyti að
koma fram fljótlega.
Mary finnst
Það leið ekki á löngu þar til líkið
af Mary Veldon fannst. Ökumaður
skólabíls sá bíl hennar þar sem hann
lá utan vegar. Er hann kom að hon-
um sá hann illa leikna konuna við
stýrið. Fannst honum ólíklegt, eftir
skemmdunum á bílnum að dæma,
að konan hefði orðið fyrir svo mikl-
um áverka viö að aka út af. Þá var
hvorki að sjá blóð á stýri né mæla-
borði. Ökumaðurinn, Will Bradley,
gerði lögreglunni þegar grein fyrir
fundinum og grunsemdum sínum
um að einhver vildi láta svo líta út
fyrir að um slys hefði verið að ræða
því flest benti til þess að konan hefði
verið myrt og slysið síðan sett á sviö.
Lögreglan sammála
Frumrannsókn lögreglunnar
leiddi til sömu niðurstöðu og Will
Bradley hafði komist að. Hér hlaut
aö vera um morð aö ræða. Það leið
svo ekki á löngu þar til lögreglan
komst á snoðir um samband Franks
Veldons og Gwen Massey; samband
sem þau höfðu reynt aö halda leyndu
en án árangurs. Næst lá því fyrir að
ræða við Gwen Massey. Það varð
sömuleiðis til þess að varpa grun á
hana að maöur nokkur sagöi aö
morðnóttina hefði hann séð hana
eina á gangi á þjóðveginum en er hún
hefði séð til ferða hans heföi hún
reynt aö fela sig á bak við runna.
Var lýsing hans á Gwen og pelsi
hennar svo góð aö vart varð dregið
í efa að það hefði verið hún sem
maðurinn sá.
Gwen yfirheyrð
Er lögreglan kom til Gwen sagði
hún í fyrstu að hún hefði séö bíl
Mary fyrir utan hús sitt og heföi hún
veriö meðvitundarlaus í honum.
Hefði hún jafnframt verið með
áverka á höfði. Sagði Gwen svo frá
því að hún hefði veriö ástkona
Franks Veldons, manns Mary, og því
hefði sér fundist aö hún mætti ekki
koma við sögu málsins því það myndi
aðeins vekja grunsemdir um að hún
bæri á einhvern hátt ábyrgð á dauða
Mary. Því hefði hún verið gripin
skelfingu og ekiö bílnum upp að
gömlu kastalarústunum þar sem hún
hefði reynt að setja slys á sviö.
Játningin
Leikhæftleikar Gwen Massey
leyndu sér ekki og rannsóknarlög-
reglumennnirnir undruðust frá-
sagnargáfu hennar. Svo var eins og
henni yrði ljóst aö hún yrði ekki
hengd þótt hún segði sannleikann og
þá geröi hún það.
Glæsilegur söngferill var á enda.
Gwen Massey kom í síðasta sinn
fram opinberlega í réttarsalnum þar
sem hún fékk langan fangelsisdóm
fyrir morðið á Mary Veldon.