Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Side 40
52
- sigling með Norrænu verður sífellt vinsælli
Fimmtudagur
á Seyðisfirði
Þaö er fimmtudagsmorgunn á
Seyðisflrði og lífið gengur sinn vana-
gang. Eitthvað greinir samt mannlíf-
ið hér frá öðru kaupstaðamannlífi.
Yfir Fjarðarheiði streyma erlendir
ferðamenn frá Egilsstöðum, á mótor-
hjólum, þríhjólabílum og gömlum
herbílum, en aðrir hafa haft vara á
sér og slegið upp tjöldum til einnar
nætur kvöldið áður á Seyðisfirði. í
nokkrar klukkustundir í hverri viku
verður samband Austfjarða við um-
heiminn áþreifanlegra en ella - og
+ ástæða þessa kemur fjótlega í ljós.
Á níunda tímanum siglir Norræna
inn fjörðinn, níu þúsund og eitt
hundrað tonna ferja frá Smyril-line
sem tekur eitt þúsund og fimmtíu
manns og tvö hundruð og flmmtíu
bíla. Nú færist fjör í leikinn við
bryggjuna þar sem skipið leggur upp
að. Ferðamenn kveðja landið og nýir
koma í þeirra stað.
með það að hún endurtekur sig í
hverri viku yfir sumartímann.
Fámenna frændur
dreymdi stóran draum
Þessi lýsing er hluti af ævintýri
sem frændur vorir Færeyingar hófu
fyrir þrettán árum og enn sér ekki
fyrir endann á. Þá hóf Smyrill sigl-
ingar sínar til Seyðisfjarðar frá Fær-
eyjum, Noregi og Skotlandi en Smyr-
ill tók fimm hundruð farþega og
hundrað og tíu bíla. Síðan hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar.
Fyrsta árið komu hingað og fóru
aftur með Smyrli um fjórtán hundr-
uö farþegar en í fyrra vom þeir tólf
þúsund og sex hundruð. í sumar er
svo gert ráð fyrir um fjórtán þúsund
farþegum til Seyðisfjarðar með Nor-
rænu, en skipiö hefur ffutt hingað
um 6-7% þeirra erlendu ferðamanna
sem til landsins koma. Þessar far-
þegaferðir skipanna hafa því gengiö
sem notfæra sér þennan skemmti-
lega ferðamáta en hópferðir þeirra
með skipinu verða sífellt vinsælli.
Auk farþega- og bilaflutninga hafa
vöruflutningar meö skipinu aukist
til og frá landinu en héðan hefur
skipið flutt ferskfisk og íslenskan
iðnvarning.
Norræna
- Hið samnorræna
samfélag
Af níutíu manna áhöfn Norrænu
eru Færeyingar langflestir og yfir-
menn skipsins hafa verið færeyskir.
Áhöfnin er skemmtileg blanda nor-
rænna þjóða sem ugglaust myndar
hið athyglisverðasta málsamfélag. í
áhöfninni eru svo tuttugu og fimm
íslendingar og það hefur vakið at-
hygli að í eldhúsi skipsins hefur ver-
ið gerð hailarbylting en þar ráöa nú
íslendingar lögum og lofum, við góð-
an róm farþeganna.
Það gengur mikið á við brýggjuna á Seyðisfirði meðan Norræna staldrar við.
Ferðir Norrænu
Skipstjórnarmenn á Norrænu: Amalian Knudsen skipstjóri, vinstra megin,
og Peter Hojgárd yfirvélstjóri, til hægri, en í miðið stendur „þeirra maður
á Seyðisfirði", Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Austfars hf.
Um hádegisbilið leggur skipið frá
landi og heldur til Færeyja. Þeir sem
hér urðu eftir gá til veðurs, rýna í
'J’landakort, lesa bæklinga, leggja á
ráðin og hefja síöan íslandsleiðangur
sinn, fullir eftirvæntingar. Eftir því
sem líður á daginn verður bærinn
aftur sjálfum sér líkur.
Stórkapitalistinn og heimsmaður-
inn Otto Wathne, faðir Seyðisfjarðar,
heföi sennilega orðið hreyldnn af
þessari uppákomu og hæstánægður
vonum framar. Nýting Norrænu hef-
ur veriö mjög góð og útlitið er bjart
framundan.
Fyrir fimm árum var Smyrill orð-
inn of lítill og var þá ráðist í kaup á
Norrænu sem síðan hefur siglt hing-
að á sumrin.
Flestir ferðamannanna hafa verið
Þjóðveijar en þeim íslendingum sem
ferðast með Norrænu fjölgar jafnt og
þétt.
Það eru þá ekki síst eldri borgarar
Norræna fer yfirleitt þrettán til
fjórtán ferðir á sumri. Hún kemur
hingað fyrst um mánaðamótin maí-
júní en fer sína síðustu ferð í byrjun
september.
Frá Seyðisfirði siglir Norræna til
Þórshafnar í Færeyjum, þaðan til
Hamstholm í Danmörku, aftur til
Færeyja, þá til Leirvíkur á Hjalt-
landi, síðan til Bergen í Noregi, aftur
til Hjaltlands, svo Færeyja og loks til
Seyðisfjaröar.
Þessi sigling tekur sjö daga en skip-
ið stansar tvo til fjóra tíma á hverjum
stað.
Hringmiði með Norrænu
Farþegar geta keypt sér hring-
miöa með ferjunni frá Seyðisfirði til
Seyðisfjaröar en þeir ráða þá sjálfir
hvar þeir fara í land og verða eftir
og hvenær þeir nýta sér þá hluta
ferðarinnar sem þeir eiga ófarna.
Hringmiðinn kostar um tuttugu og
þrjú þúsund krónur.
Aðstaðan um borð
Aðstaðan um borð í Norrænu er
eins og best verður á kosið á milli-
landaferjum. Þar eru morgunverðar-
og kvöldverðarsalir, ásamt danssal
og börum. Fríhöfn er um borð en þar
eru glæsilegar fríhafnarverslanir
sem selja áfengi, tóbak, sælgæti,
snyrtivörur og fatnað. Þá er kvik-
myndasalur p skipinu og leiktæki
fyrir böm 'pg unglinga.
Hverjir eiga Smyril-line?
í upphafi var Smyrill rekinn af
færeyska ríkisfyrirtækinu Strand-
faraskip landsins en útgerðarfélagið
Smyril-line, sem rekur Norrænu, er
hlutafélag. Færeyingar eiga um 94%
hlutafjárins og íslendingar tæp 6%,
en auk þess eiga örfáir danskir aðilar
þar lítinn hluta.
Umboðsaðili Smyril-line hér á
landi er Austfar hf. á Seyðisfirði.
Góð nýting
en of skamman tíma
Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Austfars hf., gat þess
við DV að júlímánuður væri nú allur
fullbókaður og að allt benti til þess
að innan fárra daga yrði fullbókaö
með skipinu frá íslandi fyrir ágúst-
mánuð. Hann benti jafnframt á að
þótt nýting skipsins væri sérstaklega
góð þann tíma sem það er í fórum
væri sá tími því miður allt of stuttur
og því skipti nú mestu máli að geta
lengt ferðamannatímann.
-KGK