Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Qupperneq 54
66
LAUGARDAGUR 23. JÚLl 1988.
Andlát
Steingrímur Karlsson, fyrrverandi
veitingamaöur, lést í Borgarspítalan-
um 20. júlí.
Sigurbjörg Vigdís Guðbrandsdóttir,
Hringbraut 42, Hafnarfirði, lést í St.
Jósefsspítala, Hafnarfírði, 21. júlí.
Sóley Þorsteinsdóttir kaupkona,
Hjallabrekku 17, lést 21. júlí.
Halla Sveinbjörnsdóttir, Smáraflöt
12, Garðabæ, lést 22. júlí á Landa-
kotsspítala.
Hjónáband
Fjögurra systra brúðkaup
Nýlega voru gefín saman í bjónaband af
sr. Svavari Jónssyni, Jóna Gunnars-
dóttir og Magnús Ingólfsson. Lilja
Gunnarsdóttir og Ólafur Björnsson,
Sveindís Björk Gunnarsdóttir og Máni
Sigfússon, Sólbjört Gunnarsdóttir og
Baldur Friðriksson.
Messur
Skálholtshátíðin 1988
. Guðsþjónusta sunnudag 24. júlí kl.
14.00. Sr. Ólafur Skúlason vígslubisk-
up prédikar. Altarisþjónustu annast
sr. Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup, sr. Guðmundur Óli Ólafsson
og sr. Sigurður Sigurðarson. Kór
Bústaðakirkju syngur, organisti og
söngstjóri er Guðni Þ. Guðmunds-
son. Einsöngvari IngibjörgMarteins-
dóttir. Trompetleikarar Jón Sigurðs-
son og Jón Hjaltason. Samkoma kl.
16.30. Kirkjumálaráðherra, Jón Sig-
urðsson, heldur ræðu. Ingibjörg
Marteinsdóttir syngur verk eftir
^ Hándel og Bach, orgelleikari Guöni
Þ. Guðmundsson og óbóleikari Daði
Kolbeinsson. Hljómeyki syngur verk
eftir Þorkel Sigurbjömsson.
Æskulýðssamband Reykjavíkurpró-
fastsdæmis.
Fundur í Neskirkju sunnudaginn 24.
júlí kl. 20.00. Farið verður í kvik-
myndahús. Stjórnin.
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi sunnudaginn 24. júlí 1988.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Árni Bergur Sigurbjömsson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Ari Agnarsson. Sr. Ólafur
Jens Sigurðsson messar. Sóknar-
nefndin.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Sr. Sigurð-
ur Pálsson prédikar. Sr. Láras Hall-
A dórsson þjónar fyrir altari. Organisti
Jónas Þórir. Sr. Lárus Halldórsson.
Mánudagur 25. júlí: Orgelleikur í
kirkjunni kl. 11.30-12.00. Organisti
Jónas Þórir.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Anders Jósefsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Nína Margrét
Grímsdóttir. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Ein-
söngvari Sigrún Þorgeirsdóttir. Sr.
Jón Bjarman. Þriðjudagur: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Kvöldbænir og fyr-
irbænir era í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18. Sr. Arngrímur Jóns-
son.
Hveragerðiskirkja: Messa kl. 14. Sr.
Þórarinn Þór prédikar. Sr. Jón Kr.
ísfeld þjónar fyrir altari. Félag fyrr-
verandi sóknarpresta.
Kópavogskirkja: Guðsþjónustakl. 11.
Sr; Þorbergur Kristjánsson.
Langholtskirkja, kirkja Guðbrands
biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Organ-
isti Jón Stefánsson. Heitt á könnunni
eftir athöfn. Sóknamefndin.
Laugarnessókn: Guðsþjónusta í Ás-
kirkju kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigur-
bjömsson. Sóknarprestur.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Org-
el- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson. Mið-
vikudagur: Fyrirbænamessa kl.
18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Seltj arnarneskirkj a: Bænaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón Sighvatur Jónas-
son.
Hafnarfjarðarkirkja: Morgunsöngur
kl. 11. Organisti Helgi Bragason. Séra
Gunnþór Ingason.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Guösþjón-
usta kl. 9.30 árdegis. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. Organisti og stjóm-
andi Öm Falkner. Ath. breyttan
messutíma. Ólafur Oddur Jónsson.
Keflavíkurkirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Organisti og stjómandi Öm Falkner.
Sóknarprestur.
Sýningar
Árbæjarsafn
í sumar stendur yfír sýning um Reykja-
vík og rafmagnið. Auk þess er uppi sýn-
ing um fomleifauppgröftinn í Viðey
sumarið 1987. „Gömlu" sýningamar um
m.a. gatnagerð, slökkvUiðið, hafnargerð
og jámbrautina em að sjáifsögðu á sínum
stað. Opið kl. 10-18 alla daga nema mánu-
daga. Veitingar í Dillonshúsi frá kl.
11-17.30. Páll Eyjólfsson gítarleikari spil-
ar tónlist frá ýmsum löndum í Dillons-
húsi á sunnudag milli kl. 15 og 17.
Sími 84412.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Lokað um óákveðinn tíma.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg 4a
Samsýning meðlima Gallerís Gijóts. Á
sýningurmi em málverk, grafík, teikn-
ingar, skúlptúrar í stein, leir, jám og stál,
nytjahlutir úr leir og siífurskartgripir.
Gallerí List,
Skipholti 50
í Gallerí List verða til sýnis og sölu í júní,
júlí og ágúst verk eftir Braga Hannesson,
Erlu B. Axelsdóttur, Hjördisi Frímann,
Sigurð Þóri, Elías B. Halldórsson, Helgu
Ármanns, Guðmund Karl, Tolla, Svein
Bjömsson, Ingunni Eydal og fl„ einnig
rakú og keramik.
Grafík Gallerí Borg,
Austurstræti 10
í glugga grafík-gallerísins stendur nú yfir
kynning á grafíkmyndum eftir Daða
Guðbjörnsson og keramikverkum eftir
Borghildi Óskarsdóttur. Auk þess er til
sölu úrval grafíkmynda eftir fíölda lista-
manna.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
í Gallerí Borg stendur yfir sýning á verk-
um gömlu meistaranna. Sýningin er sölu-
sýning og stendur yfir í sumar. Skipt
verður um verk reglulega.
Gallerí Gangskör
Þar stendur yfir sýning Gangskörunga á
málverkum, grafík og keramik. Sýningin
er opin alla daga nema mánudaga kl.
12-18.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textíigallerí. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Svart á hvítu,
Laufásvegi 17
Þar stendur yfir sýning á gouache-
myndum Bong-Kyou Im frá Suður-
Kóreu. Bong-Kyou Im hefur áður haldið
sýningu á verkum sínum í Nýlistasafn-
inu. A efri hæð gallerísins em til sölu
verk ýmissa myndlistarmanna. Galleríið
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
14-18. Síðasti sýningardagur er 24. júlí.
Katel,
Laugavegi 29
í sumar stendur yfír sölusýning á plaköt-
um og eflirprentunum eftir Chagall í
nýjum sal sem opnaður hefur verið að
Laugavegi 29 (Brynjuporti). Opið er virka
daga kl. 10-18.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á Kjarvalsstöðum standa yfir tvær sýn-
ingar. í austursal er sýning á verkum
Jóhannesar S. Kjarvals og stendur hún
til 21. ágúst. Á sýningunni eru mörg verk
sem ekki hafa komið fyrir almennings-
sjónir fyrr. í vestursal sýnir sænski lista-
maðurinn Claes Hake höggmyndir og
veggmyndir, unnar úr steini, gipsi og
bronsi. Um er að ræða forvitnilega sýn-
ingu: Verkin eru líklega þau stærstu er
nokkum tima hafa verið sýnd á Kjarvals-
stöðum. Sýningin stendur til 31. júh.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
14-22.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Þar stendur yfir málverkasýningin Fjór-
ar kynslóðir. Sýningin, sem er sjálfstætt
framlag til Listahátíðar 1988, er jafnframt
sumarsýning safnsins. Á sýningunni eru
um 60 málverk eftir á fíórða tug lista-
manna sem spanna tímabilið frá fyrsta
áratug þessarar aldar fram á síðustu ár.
Sýningin er opin alla virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-22. Henni lýkur 24.
júlí.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aögangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn Islands,
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sýningin Norræn kon-
kretlist 1907-1960. A sýningunni eru bæði
málverk og höggmyndir. Þá stendur
einnig yfir sýning á verkmn hins heims-
þekkta listamanns, Marcs Chagall. Sýn-
ingarnar eru opnar alla daga nema
mánudaga kl. 11-17. Sýning Marcs Cha-
gall stendur til 14. ágúst og sýningin
Norræn konkretlist til 31. júli. Kaffistofan
er opin á sama tima og sýningarsalimir.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Á morgun verður opnuð sumarsýning
Norræna hússins. Á sýningunni eru að
þessu sinni málverk eftir Jón Stefánsson
og ber hún yfirskriftina Landslag. Á sýn-
ingmmi má sjá um það bil 40 myndir.
Opið daglega ki. 14-19 til 21. ágúst. í and-
dyrinu stendur yfir sýrúng á íslenskum
steinum. Að sýningunni standa Félag
áhugamanna um steinafræði í samvinnu
við Norræna húsið. Sýningin stendur
fram til 22. ágúst og er opin daglega kl.
9-19 nema sunnudaga kl. 12-19. Aðgang-
ur er ókeypis.
Nýhöfn
v/Hafnarstræti
Þar stendur yfir sumarsýrúng á verkum
ýmissa listamanna. Verkin eru til sölu
og eru afhent strax. Opið alla virka daga
kl. 12-18 en lokað um helgar.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstíg
Þýski myndhöggvarinn Peter Mönning
sýnir í Nýlistasafninu. Verk hans eru
urrnin með hrárri efnismeðferð, tjáning-
araðferð sem á rætur í alþjóðlegu um-
hverfi iðnborga þar sem maðurinn þarf
að aðlaga sig lífsskilyrðum sem oft ganga
á mannlegar þarfir. Tækrú og hraði nú-
tímans eru áleitrúr þættir í verkum hans.
Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og
um helgar kl. 14-20. Sýningunni lýkiu
31. júh
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
í safrúnu stendur yfir sýning á myndum
eftir enska fræðimanninn og málarann
W.G. Collingwood, sem ferðaðist um
landið árið 1897, og mun sú sýning standa
til haustsins. Safnið er opið aha daga vik-
unnar nema mánudaga frá kl. 11-16.
Tilkyimingar
St. Jósefsspítali fær
sónartæki að gjöf
Kvennadeild Rauða kross íslands afhenti
nýlega St. Jósefsspítala, Landakoti, són-
artæki að gjöf. Tækið er frá Toshiba og
er hið fullkomnasta sem það fyrirtæki
framleiöir. í því er háþróuð tölvutækni
sem getur sent hfíóðgeisla með þrenns
konar mismunandi lögum eflir þvi hvað
rannsaka skal. Þetta stóreykur ná-
kvæmni í greiningu sjúkdóma, en eink-
um er þetta tæki hentugt við rannsóknir
á kviðarholslíffærum og híarta. Með til-
komu þessa tækis er nú mun auðveldara
að rannsaka böm, því hreyfing hvort sem
hún er vegna andardráttar eða þess að
bamið sé á iði, skiptir ekki eins miklu
máh og með eldri tækjum. Nú er einnig
hægt að gera sýnatöku með fínni nál og
getur það jafnvel sparað uppskurð.
Fyrsta sónartækið á íslandi til rannsókna
á kviðarholslíffærum (utan fósturs) var
gefið St. Jósefsspítala árið 1980. Að þeirri
gjöf stóð Kvennadeild Rauða kross ís-
lands, ásamt kvenfélagi Hringsins og
Thorvaldsenfélaginu. Það tæki var kær-
komin gjöf og geysileg framför á þeim
tíma, en þróunin hefur verið svo ör, að
segja má að nýja tækið sé meiri bylting
en gamla tækið var. Myndin er frá af-
hendingu tækisins og sýnir stjóm
Kvennadeildar Rauða kross íslalnds,
ásamt starfsfólki sjúkrahússins.
w ICELAND’S
UNIQUE HISTORY
AND CULTURE
By (>r. Msmm Jóns*on
Pl«>'.:» by Rafn I Ufnljöi-A
„lceland’s Unique
History and Culture"
Litbrá í Reykjavík hefur gefið út fíórðu
útgáfu af upplýsingariti dr. Hannesar
Jónssonar sendiherra, „Iceland’s Unique
History and Culture". Hefur ritið nú ver-
ið aukið og endurskoðað, prýtt völdum
htmyndum, sem Rafn Hafnfíörð hefur
tekið víðs vegar um landið. Ritið er stutt
og gagnorð • alhliða kynning á íslandi,
sögu okkar'Og menningu, skrifuð fyrir
þá erlendu ferðamenn og erlendu lesend-
ur sem í stuttu máh vifía geta fengið al-
hhða kynningu á landi, þjóð og menning-
arerföum okkar. Rihð skiptist í 29 smærri
kafla. Ritið er 48 síður, prýtt 35 htmynd-
um. Það fæst í ferðamannaverslunum og
bókabúðum.
Hljómplata frá Mosa frænda
Komin er á markað fyrsta hfíómplata
hfíómsveitarinnar Mosa frænda. Á plöt-
unni, sem er 45 snúninga sjötomma, eru
tvö lög, annars vegar Katla kalda, sem
naut mikilla vinsælda nú fyrr í sumar,
og aðahag plötunnar, Ástin sigrar(?). Það
lag hefur nú þegar hafið innreið sína á
vinsældahsta. Það er útgáfufyrirtæki
hfíómsveitarinnar sjálfrar sem gefur
plötuna út. Vandamanna-útgáfur hafa
áður sent frá sér efni með Mosa frænda
og Múzzólíni á snældum. Platan fæst í
hfíómplötuverslunum en einnig er unnt
að panta hana skriflega og kemur þá
meðhmur Mosa frænda og afhendir plöt-
una persónulega. Utanáskriftin er: Mosi
frændi - pósthólf 5199 - 125 Reykjavík.
Loftbrú til Vestmannaeyja
Um verslunarmannahelgina verður
leiguflug Sverris Þóroddssonar með loft-
brú til Vestmannaeyja. Flogið verður frá
Hellu og Reykjavík. Upplýsingar í síma
28011 í Reykjavík og á umboðsskrifstof-
unni á Hehu, s. 98- 75165.
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofa okkar verður lokuð á tímabilinu
25. júlí til 7. ágúst vegna sumarleyfa.
Edda hf.
■ >
SMÁAUGLÝSINGAR
Mánudaga - föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 — 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
Þverholti 11
s: 27022