Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1988, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1988.
9
Utlönd
Skæruliðar kommúnista á Filippseyjum eru taldir hafa sprengt styttu af
Douglas Macarthur hershöfðingja á laugardaginn. Macarthur steig á land
í Filippseyjum fyrir 44 árum. Um helgina náðist einnig samkomulag um
herstöðvar Bandaríkjamanna á Filippseyjum.
Símamynd Reuter
Samkomulag um
herstöðvamar
Hreinsanimar
byrjaðar
Háttsettur herforingi sakaði í gær
júgóslavneska stjórnmálamenn um
að ýta undir ósætti fólks af mismun-
andi uppruna og hin opinbera frétta-
stofa landsins réðst á yfirstjórn
Kommúnistaflokksins fyrir að hafa
ýtt landinu fram á barm glötunar.
Þessar ásakanir komu einum degi
áður en flokkurinn gengur í gegnum
mestu uppstokkanir sem hann hafur
nokkru sinni gengið í gegnum.
Simeon Buncic, herforingi og að-
stoðarvarnarmálaráðherralandsins,
sagði í gær að stjórnmálamenn væru
ógnun við einingu í landinu.
Orð hans eru fyrstu opinber við-
brögð frá hernum um margra vikna
óróa og uppþot í landinu, sem end-
uðu með því að herlögreglu var beitt
gegn uppreisnarmönnum sem
reyndu að velta stjóminni í Svart-
fjallalandi í síðustu viku.
Hin opinbera fréttastofa landsins
sagði í gær að forysta Kommúnista-
flokksins hefði ýtt landinu fram á
barm glötunar og neytt fólk í biðrað-
ir eftir brauði.
Fréttastofan, sem segist vera frjáls
og óháð, hvatti ennfremur ónafn-
greinda meðlimi flokksins, sem mis-
tókst að ráða við vandann, til að segja
af sér.
í dag er búist við að skipt verði um
þriðjung allra miðnefndarmeölima
og stjómmálaráðsmeðlima í landinu.
Fyrir helgi var búiö að búa til lista
með nöfnum fjörutíu og fimm
manna, af eitt hundrað sextíu og
fimm mönnum í miðnefndinni, sem
áttu að hætta.
í gærkvöldi var greinilega byrjaöur
órói vegna uppstokkunarinnar í
flokknum, en þá sögðu tveir meðlim-
ir stjórnmálaráðsins af sér.
Kolj Siroka, sem er frá Kosovo í
Serbíu, og Milanko Renovica, sem er
frá Bosníu, sögðu báðir af sér í gær-
kvöldi.
Afsagnir þeirra virðast styrkja
stöðu þeirra sem berjast fyrir því að
losa flokkinn við spillta og óhæfa
embættismenn og vilja refsa þeim
sem bera ábyrgð á róstunum í
Kosovo milh Serba og Albana.
Búist er við miklum átökum á
fundi Kommúnistaflokksins í dag
milli Slobodan Milosevic, leiðtoga
Kommúnista í Serbíu, og Stipe Suvar
frá Króatiu, sem er forseti stjórn-
málaráðsflokksins. Reuter
Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washington:
Fulltrúar stjórnvalda í Banda-
ríkjunum og á Fiiippseyjum hafa
náð samkomulagi um greiðslur
vegna áframhaldandi veru'banda-
rískra herstöðva á eyjunum. Sam-
komulagið kveður á um að Banda-
ríkin greiði afls 481 milljón dollara
árlega næstu tvö árin, það er þar
til núgildandi herstöðvarsamning-
ur ríkjanna rennur út. Þetta er
töluverð aukning frá þeim 180
milljónum dollara sem Bandaríkja-
menn greiða nú.
Samkomulagið, sem er í raun
endurskoðun á 25 ára herstöðva-
samningi Bandaríkjanna og
Filippseyja, skuldbindur Banda-
ríkjastjórn til að greiða upphæðina
í formi efnahags- og hernaðarað-
stoðar, aukinna viðskipta við eyj-
arnar og beinharðra peninga. Að
auki er afgreiðslu aðstoðar, sem
þegar er gert er ráð fyrir í fjárlög-
um Reaganstjórnarinnar, fyrir
þetta og næsta fjárhagsár hraðað.
Stjórnvöld á Filippseyjum höfðu
farið fram á 1,2 milljarða dollara
leigu vegna bandarísku herstöðv-
anna tveggja sem staðsettar eru á
eyjunum. Vegna niðurskurðar í
framlögum til varnarmála og fjár-
hagshalla ríkissjóðs kvaðst Banda-
ríkjastjórn ekki geta orðið við
þeirri kröfu. Málamiðlunarsam-
komulag náðist loks um helgina
eftir 6 mánaða törn.
Auk ágreinings um upphæð leig-
unnar fyrir herstöðvarnar höfðu
samningaviðræðurnar áður
strandað á þeirri kröfu stjórnvalda
á Filippseyjum að nota hluta fjár-
hagsaðstoðar Bandaríkjanna til að
létta á tæplega 30 milljarða dollara
erlendri skuld. Samkomulagnáðist
milli ríkjanna þess efnis að ein-
hverium hluta fjárframlaga Banda-
ríkjanna á næstu 4 árum gæti verið
varið til að greiða erlend lán.
Samkomulagsviöræðurnar síð-
ustu mánuði eru hður í undirbún-
ingi frekari viðræðna ríkjanna um
endanlega framtíð herstöðvanna
beggja á eyjunum.
Búist er við miklum deilum milli Slobodans Milosevic og Stipes Suvar á fundi Kommúnistaflokksins í dag.
Símamynd Reuter
Nýaðferð
við krabba-
meinsleit
Anna Bjamason, DV, Denver:
Vísindamenn í krabbameinsstofn-
un í Maryland í Bandaríkjunum hafa
fundið nýja aðferð til að finna
krabhamein í blöðru á frumstigi. í
blaði bandarísku krabbameinsstofn-
unarinnar segir að þó að nýja að-
ferðin sé ekki fullreynd og verði ekki
beitt fyrir alvöru fyrr en eftir tvö til
þrjú ár sé ástæða til að ætla að hún
muni valda byltingu í krabbameins-
leit og fækka til muna dauðsfóllum
af völdum krabbameins í blöðru.
Ef krabbamein í blöðru finnst á
frumstigi er unnt að lækna fjóra af
hverium flmm sjúklingum segir í
blaðinu. Nýja leitaraðferðin byggist
á því að finna á auðveldan hátt eggja-
hvítuefni í þvagi sem krabbameins-
frumurnar framleiða. Rannsóknin
tekur aðeins um fjórar klukkustund-
ir.
Áður þurfti að ná vefjasýnishorni
til að leita þessa sjúkdóms. Það var
í senn sársaukafullt og nokkuð
hættulegt.
Vísindamennirnir telja að þeir geti
þróað aðferðina þannig að hún taki
aðeins stutta stund og þeir gera sér
einnig vonir um að með tímanum
megi endurbæta leitaraðferðina
þannig að með henni megi leita að
krabbameini í öllum líkamshlutum
með blóðrannsóknum. -
NY NAMSKEIÐ!
FYRIR
BÖRN
ENSKUR
LEIKSKÓLI
4-6 ára. Morgunhópar.
ATH. GÆSLA BARNA
undir skólaaldri á meðan morgun-
námskeið standa yfir.
7 vikna námskeið hefjast
31. okt. og 1. nóv:
f.h. kl. 10-12
e.h. kl. 1-6, 3-5, 5-6.30
á kvöldin: 6.30-8.30, 8.30-10.30
NYTT! NYTT!
SKRIFLEG ENSKUNÁMSKEIÐ
VIÐSKIPTAENSKA í HÁDEGINU
ic Sérmenntaðir
T.E.F.L. kennarar
if Lifandi og
skemmtileg kennsla
★ Allt námsefni
innifalið
Hámark 10
nemendur i bekk