Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
UtLönd
Forseti í 1.000 daga
Corazon Aquino, forseti Filipps-
eyja, gróðursetur tré i úthverfi
Manila i morgun.
Símamynd Reuter
Á FiUppseyjum er haldið upp á
það þessa dagana að þúsund dagar
eru liðnir frá því að Corazon Aqu-
ino forseti komst til valda. Ekki er
þó allt eins og forsetinn heíði kosiö
því fyrir dyrum stendur verkfall
flutningamanna og kirkjan, fjöl-
miölar og mamiréttindahópar eru
ósparir á gagnrýni sína.
Dagblööin í gær sögöu menn hafa
orðið fyrir vonbrigöum með forset-
ann, mannréttindahópar sökuðu
her forsetans um að hafa rænt
vinstri sinnuðum stjómarand-
stæðingum og leiötogar kirkjunnar
höfnuðu baráttu yflrvalda fyrir
takmörkuðum bameignum.
leiðtogar Kýpur ræðast við
Leiötogar gríska og tyrkneska
hluta Kýpur ætla aö hittast í New
York í þessari viku til aö ræöa leiðir
til að sameina megi eyjarskeggja á
ný.
Grísk-kýpversk blöð segja að Peres
de Cuellar, framkvæmdastjóri Sam-
einuöu þjóðanna, lfti á fundinn í New
York sem upphaf raunverulegra viö-
ræðna milli deiluaðfla.
Tfl átaka kom á Kýpur í síðustu
viku þegar tvö þúsund grisk-kýp-
verskir mótmælendur rifu í sundur
gaddavírsgirðingar með berum
höndura og mddust aö girðingunni
sem hindrar aðgang að tyrkneska
hlutanum. Friðargæsluhermenn
Sameinuðu þjóðanna stöðvuðu för
mótmælendanna. Eru þetta mestu
róstur sem orðið hafa á Kýpur frá
því að tyrkneskar hersveitir náðu á
sitt vald norðurhluta eyjunnar árið
1974.
tyrkneska hluta Kýpur.
Róstur í Seoul
Mótmælendur í Seoui ráðast á tögreglumenn sem reyna að hindra
gðngu þeirra til heimkynna Chun Doo Hwan, fyrrum forseta S-Kóreu.
Mótmælendur krefjast þess að Chun verði tekinn af lifi.
Sfmamynd Reuter
Vegfarendur í Seoui í Suöur-Kóreu flúöu í ofboði á laugardaginn þegar
lögreglan beitti mótmælendur gasi sem brennir húöina. Þúsundir manna
höföu safnast saman til aö krefjast afsagnar Chun Doo Hwan, fyrrum
forseta. Tfl átaka kom milli óeirðalögreglu og mótmælenda í aðalverslun-
arhverfi borgarinnar. Kastaö var gijóti og bensínsprengjum að lögreglu-
mönnunum en mótmælendur dreifðust er lögreglan beitti þá pipargasi.
Forsetinn fyrrverandi, sem ríkti með haröri hendi eftir valdarániö 1979
og þar til í febrúar síðastliðnum, er sakaður um spfllingu og meisbeitingu
valds.
Kennedy ekki skotmarkið
Þegar Lee Harvey Oswald skaut á bílalestina í Dallas fyrir 25 árum,
þegar John F. Kennedy forseti var þari heimsókn, er ekki víst að hann
hafi ætlað aö skjóta forsetann til bana. Vel getur verið að skotmarkið
hafi veriö John Connafly fylkisstjóri. Þetta kemur fram í bók sem gefin
verður út á næsta ári, að þvi er segir í nýjasta hefti tímaritsins Time.
Connafly, sem feröaðist 1 sama bfl og forsetinn, særöist í skotárásinni.
Oswald á að hafa veriö lækkaður í tign í sjóhemum vegna athafiia hans
í Sovétríkjunum. Haföi Oswald beðið Connally um að hafa áhrif á sjóher-
inn þar sem hann hélt aö Connally gegndi embætti innan hans. Connally
haföi hins vegar látið af því embætti en skrifstofa hans sendi Oswald
neikvætt svar.
Engin þjóö ætti aö hafa herstöðvar
utan sinna landamæra og markmiðið
er að eyöa kjarnorkuvopnum í heim-
inum, sögöu Gorbatsjov, leiötogi
Sovétríkjanna, og Rajiv Gandi, for-
sætisráðherra fndlands, í lok þriggja
daga heimsóknar Gorbatsjovs til fnd-
lands í gær.
Gorbatsjov lét samt vera að bjóðast
til þess að loka herstöðvum Sovét-
ríkjanna úti í heimi og ekki var ítar-
lega útskýrt hvernig losa ætti heim-
inn viö kjarnorkuvopn.
Þjóöarleiðtogarnir náðu vel saman
og sagðí Gandi að viðræðurnar gerðu
þjóöirnar enn samrýmdari en áður.
fndland er helsta vinaþjóö Sovétríkj-
Sámur frændi er friðarspillir í Afganistan, segir Gorbatsjov, og frestar heim-
köllun soidáta sinna.
Gorbatsjov og
Gandhi boða frið
anna í Suður-Asíu og í gildi er mifli
þjóöanna vináttusáttmáli frá 1971.
Gorbatsjov og Gandi ræddu stööu
mála í nágrannaríki Indlands og Sov-
étríkjanna, Afganistan. Gorbatsjov
sagði að Bandaríkin og Pakistan
gerðu í því torvelda brottflutning
sovésku hermannanna sem gerðu
innrás í landið fyrir áratug. Hann
sakaöi Bandríkin og Pakistan um að
senda skæruliðum vopn til aö flæma
úr valdastóli ríkisstjórn Najibullah í
Afganistan, sem er Sovétríkjunum
þóknanleg. Skæruliðar neita að
semja við Najibullah og getgátur eru
um það að yfirvöld í Sovét séu reiðu-
búin að fórna Najibullah í þeirri von
að friður komist á í þessum bakgarði
Vinátta Sovétmanna og Indverja
staðfest með handsali Gorbatsjovs
og Gandi.
Sovétríkjanna. Gorbatsjov lét ekkert
hafa eftir sér sem hægt var aö túlka
sem stafestingu eða neitun á þessum
getsökum, en Gandi sagði að Gorb-
atsjov styggi Najibullah.
Samkvæmt yfirlýsingu Sovét-
manna eiga hermenn þeirra að vera
komir út úr Afganistan um miðjan
febrúar.
Leiðtogamir töldu að alþjóðleg ráð-
stefna væri til þess fallin að koma á
friði í Afganistan og lögðu að aðalrit-
ara Sameinuðu þjóðanna að beita sér
fyrir friðarráöstefnu af slíku tagi.
Indverjar heiðruðu Gorbatsjov
með veitingu friðarverðlauna, sem
kennd eru við Indiru Gandi, móöur
Rajivs. Ólafur Ragnar Grímsson,
fékk þessi sömu verðlaun fyrir ári,
þá sem formaður alþjóöasamtaka
þingmanna fyrir friöi.
Eystrasaltsríkin eru ekki samstíga
Eistar riðu á vaöið og gerðu
ítrustu kröfur um sjálfstæði innan
sovéska lýðveldissambandsins.
Litháar gengu skemmra og fre-
stuðu afgreiðslu um rétt þjóðþings-
ins. Lettar fjalla um sín mál á
morgun og búist er viö að þeir feti
í fótspor Litháa.
Þjóðþingið í Eistlandi staðfesti að
lög lýðveldisins hnekktu þeim lög-
um sem samþykkt væru í Moskvu
og ennfremur hafnaði þingið til-
lögu Gorbatsjovs um að sovéska
ríkisþingið fengi aukið umboð.
Gorbatsjov sér aukið þingræði sem
áfanga í endurbótastefnu sinni,
perestrojku. Eistar töldu tillöguna
fela í sér að vald flyttist úr héraði
til Moskvu.
Aukin varkárni í Eystrasaltsríkj-
unum síðustu daga bendir til þess
aö þau ætli að bíða og sjá hvað þau
geta fengið út úr stöðunni sem Eist-
ar lögðu fyrir sovésk yfirvöld. Ef
öll ríkin þrjú gerðu formlegar sam-
þykktir um ítrustu sjálfsstjóm gæti
það gert Kremlarbændur ósveigj-
anlega. Flokksbroddar í Mosvku
lýstu því strax yfir, eftir fréttist af
kröfum Eista, aö þær brytu í bága
viö stjómarskrána. Þaö er verkefni
sovésku flokksforystunnar að
finna lausn á kröfum hinna 15
þjóða Sovétríkjanna um aukna
sjálfsstjórn. Gorbatsjov, aðalritari
kommúnistaflokksins, veröur að
beita lagni ef honum á að takast
að hemja sjálfstæðisviðleitni þeirra
mörgu þjóða sem mynda Sovétrík-
in.
Eystrasaltslöndin þrjú leika aöal-
hlutverk í síðustu hrinu þess leiks
sem veldur mönnum andvöku í
Kreml. Þjóðimar voru sjálfstæðar
á ámnum milli stríða og innlimað-
ar í sovéska ríkjasambandið árið
1940.
Reuter
Serbnesk kona er borin meðvitundarlaus úr mótmælagöngu í Belgrad þar sem yfirráðum afkomenda Albana yfir
Kosovohéraðinu var andmælt.
Fundað og mótmælt í Júgóslavíu
Forysta kommúnistaflokksins í
héraðinu Serbíu í Júgóslavíu hittist
í dag til að finna lausn á sambúðar-
vanda ólíkra þjóða landsins. Um
helgina vom linnulaus mótmæli
Serba annars vegar og íbúa af al-
bönskum ættum hins vegar. Á með-
an Serbar og fólk albanskrar ættar
mótmæltu í Serbíu fóm Slóvakar í
norðri út á, götur til að andæfa yfir-
gangssemi Serba. Flokksforystan í
Belgrad hvetur stríðandi fylkingar
til að hætta andófi sínu og segir ólæt-
in eingöngu til skaöa.
Ofan á erfiðleika við að sætta þjóð-
arbrot í Júgóslavíu bætist sú stað-
reynd aö landið á í miklum efnahags-
erfiðleikum um þessar mundir.