Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
23
DV
• ísak Tómasson skoraði 22 stig
gegn ÍS í gærkvöldi.
I
Körfuknattleikur:
Stór-
sigur
UMFN
- gegn ÍS, 90-42
Ægir Már Kárassan, DV, Suðumesjum;
Njarðvíkingar áttu ekki í neinum
erfiðleikum með að vinna stórsigur
gegn slökum Stúdentum í Flugleiða-
deildinni í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 90-42 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 38-23 heimamönnum í vil.
Njarðvíkingar höfðu mikla yfir-
burði frá byijun þrátt fyrir að vara-
menn hafi leikiö mikinn hluta leiks-
ins.
Stig UMFN: ísak Tómasson 22,
Helgi Rafnsson 20, Friðrik Ragnars-
son 16, Teitur Örlygsson 12, Georg
Birgisson 9, Hreiðar Hreiðarsson 6,
Agnar Olsen 3 og Rúnar Jónsson 2.
Stig ÍS: Páll Amar 13, Valdimar
Guðlaugsson 12, Hafþór Óskarsson
4, Sólmundur Jónsson 4, Þorsteinn
Guðmundsson 3, Jón Júlíusson 3 og
Heimir Jónasson 3.
r Körfuboltl
/Staðan j
Flugleiðadeild:
Haukar-Tindastóll.......84-62
ÍBK-ÍR..................88-59
UMFN-ÍS.................90-42
Valur-Þór...............89-64
A-riðill:
UMFN...13 13 0 1163-927 26
Valur.... 13 8 5 1103-989 16
Grindav 13 6 7 1004-971 12
ÍS......13 1 12 823-1245 2
Þór.....13 1 12 968-1220 2
B-riðill:
ÍBK.....13 11 2 1124-919 22
KR......13 10 3 1064-980 20
ÍR......13 6 7 992-1004 12
Haukar. 13 6 7 1162-1083 12
Tindast. 13 3 10 1076-1161 6
Stigahæstir:
Valur Ingimundars., Tind ...361
Eyjólfur Sverriss., Tind..300
1. deild karla:
Reynir-Skallagrímur.....79-43
Snæfell-Léttir..........78-66
Reynir......7 6 1 466-345 12
UÍA.........6 4 2 411-356 8
Skallag.....7 4 3 441-456 8
Laugdælir.. 6 3 3 341-339 6
UBK.........6 3 3 415-399 6
Snæfell.....5 2 3 352-372 4
Léttir......7 2 5 410494 4
Víkveiji....4 0 4 205-271 0
1. deild kvenna:
UMFN-ÍR..................3042
UMFN-KR.................33-40
ÍBK.........5 5 0 308-211 10
KR..........6 5 1 294-260 10
ÍS..........6 4 2 302-283 8
ÍR..........6 3 3 322-337 6
Haukar......6 2 4 260-204 4
UMFN........7 2 5 251-284 4
Grindav.....6 0 6 259-317 0
íþróttir
Haukar voru mun sterkari á
endasprettinum gegn UMFT
unnu mjög stóran og auðveldan sigur, 84-62, á Tindastóli
íslandsmeistarar Hauka náðu
loks að vinna sigur í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í gærkvöldi
eftir miklar hrakfarir í undanfóm-
um leikjum. Hafnarfjarðarliöið
sigraöi Tindastól frá Sauðárkróki í
íþróttahúsinu við Strandgötu meö
84 stigum gegn 62 eftir að leikurinn
hafði verið í hníflafn og spennandi
lengst af.
Nýliðamir frá Sauðárkróki voru
ekki taldir llklegir til mikilla afreka
fyrir leikinn þar sera landsliðsmað-
urinn Valur Ingimundarson var í
leikbanni. Sauðkrækingar létu sig
það engu skipta og komu sannar-
lega á óvart með kraftmiklum leik
í byijun. Tindastóll komst í 9-2 í
upphafi og norðanmenn leiddu síð-
an lengi vel. Á síðustu mínútum
fyrri háifleiks náöu Haukar foryst-
unni og höfðu eitt stig yfir í leik-
hléi, 37-36.
í síðari hálfleik var leikurinn
lengst af í jámum ogSauökræking-
ar, vel studdir af fjölmörgum aðdá-
endum sínum, börðust af miklum
krafti og virtust til alls liklegjr.
Þegar 7 mínútur vora eftir var
staðan 57-57 en þá vóg leikreynsla
og úthald íslandsmeistaranna
þungt á metunum. Haukar tóku
heldur betur viö sér og gersamlega
keyrðu yfir norðanmenn á síðustu
mínútunum og skoruöu þá 27 stig
gegn 5 og tryggðu sér stóran sigur
84-62.
Haukaliðið var langt frá því að
vera sannfærandi og það var ein-
ungis í iokin sem leikmenn náðu
að sína sitt rétta andlit. Pálmar Sig-
urðsson skoraði grimmt í lok leiks-
ins og hinn stórefnilegi Jón Arnar
Ingvarsson stóð fyrir sínu.
Haraldur Leifsson og Eyjólfur
Sverrisson voru bestu menn Tinda-
stóis í þessum leik en Sauökræk-
inga vantaði úthald og kraft til að
klára dæmið.
Stíg Hauka: Pálmar Sigurðsson
29, ívar Ásgrímsson 14, Jón Amar
Ingvarsson 12, Henning Hennings-
son 10, Ingimar Jónsson 9, Ólafur
Rafnsson 4, Eyþór Árnason 2 og
Reynir Kristjánsson 2.
Stíg Tindastóls: Haraldur Leifs-
son 15, Eyjólfur Sverrisson 14,
Sverrir Sverrisson 11, Kári Marías-
son 10, Bjöm Sigtryggsson 7, Ágúst
Karlsson 4 og Guöbrandur Stefáns-
son 1.
• Leikinn dæmdu þeir Kristján
Möller og Gunnar Valgeirsson.
-RR
• Ivar Asgrimsson í Haukum skoraði 14 stig gegn Tindastóli i Hafnarfirði i gærkvöldi er Haukar unnu norðan-
menn með nokkrum mun. Hér sést ívar sækja að körfu „Tindanna". DV-mynd Brynjar Gauti
Jón Kr. með
stórieik
er ÍBK vann ÍR, 88-59
Ægir Már Kárason, DV, Suðumœjum:
Jón Kr. Gíslason áttí stórleik þegar
Keflvíkingar unnu stórsigur á ÍR-
ingum í leik liðanna á íslandsmótinu
í körfuknattleik í Keflavík í gær-
kvöldi. Lokatölur urrðu 88-59 eftir
að staðan í leikhléi hafði verið 45-38,
ÍBKí vil.
Jón Kr. Gíslason skoraði 16 stíg í
fyrri hálfleik fyrir ÍBK en alls skor-
aði hann 21 stíg og átti 12 stoðsend-
ingar. ÍR-ingar höfðu yfirhöndina
framan af og höfðu yfir, 16-21, eftir
9 mínútur. Heimamenn náðu síðan
að rétta úr kútnum fyrir leikhlé og
munurinn var þá sjö stig, ÍBK í vil.
í síðari hálfleik breyttu ÍR-ingar
byijunarhði sínu. Ragnar Torfason
var tekinn út af. Eftir sex mínútna
leik komust ÍR-ingar yfir 50-51. Eftir
það tóku Keflvíkingar öll völd, skor-
uðu 18 stig í röð á sex mínútum og
unnu yfirburðasigur 88-59. ÍR-ingar
skoraðu aðeins 8 stig á síðustu 14
mínútum leiksins.
Stig ÍBK: Jón Kr Gíslason 21, Sig-
urður Ingimundarson 21, Guðjón
Skúlason 18, Axel Nikulásson 10,
Falur Harðarson 7, Magnús Guð-
finnsson 6, Einar Einarsson 2, Albert
Óskarsson 2 og Gestur Gylfason 1.
Stíg ÍR: Jón ðrn Guðmundsson 13,
Jóhannes Sveinsson 13, Karl Guð-
laugsson 10, Ragnar Torfason 10,
Bjöm Steffensen 8 og Sturla Örlygs-
son 5.
Auðvelt
hjá Val
Valsmenn sýndu Þórsuram enga
gestrisni þegar þeir fengu þá í heim-
sókn í gærkvöldi til leiks í Flugleiða-
deildinni í körfuknattleik. Lokatölur
leiksins urðu nefnilega 89-64 fyrir
Val. Staðan í leikhléi var 49-36, Val
í vil.
Það var aðeins á fyrstu mínútunum
sem nokkuð gott jafnræði var með
liðunum.
í síðari hálfleik var um mikla ein-
stefnu að ræða af hálfu Valsmanna.
Á 14. mín. var staðan 78-56 og á 17.
mín. 80-60 fyrir Val. Eftírleikurinn
var síðan auðveldur. Stig Vals: Matt-
hías Matthíasson 14, Einar Ólafsson
12, Tómas Holton 12, Bjöm Zoega 11,
Bárður Eyþórsson 10, Hreinn Þorkels-
son 8, Ragnar Þór Jónsson 8, Ari
Gunnarsson 4, Amar Guðmundsson
4, Hannes Haraldsson 4. Bestir Vals-
manna vom þeir Einar Ólafsson,
Matthías Matthíasson og Tómas Holt-
on, sem var þó langt frá sínu besta.
Stig Þórs: Konráð 26, Bjöm 17, Stef-
án 4, Jóhann 4, Guðmundur 4, Kristján
4, Eiríkur 3 og Einar 2.
HH