Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Síða 44
44
MÁNUDAGUR 21. NÖVEMBER 1988.
Mertning
Nýsköpun með náttúrunni
Guðrún I. Sigurðardóttir lést 9. nóv-
ember sl. Hún var fædd 7. janúar
1899 á Eskifirði. Hún giftist Þórði
Stefánssyni en hann lést árið 1981.
Þau hjónin eignuðust sjö böm. Útfór
Guðrúnar verður gerð frá Víkur-
kirkju í dag kl. 13.30.
Kortfrá Listasafni
Sigurjóns
Listasafn Siguijóns Ólafssonar hefur gef-
ið úr þrjú litprentuö kort af verkum eftir
Sigurjón. Er hér um að ræða myndimar
„Sköpun" frá 1976, sem Erlingur Jónsson
hjó í marmara á síðastliðnu sumri,
„Dansinn" sem er lágmynd úr mahóný í
eigu Eimskipafélags íslands, gerð árið
1975, og Skúlptúr" úr kopar og tré unnin
1961. Prentun annaðist prentsmiðjan
Oddi hf. Listaverkakortin fást í Listasafni
Mánudaga - fostudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
Þverholti 11
s: 27022
Sigutjóns í Laugamesi, bókaverslun
Snæbjamar og í Rammagerðinni, Hafn-
arstræti 19.
Tónleikar
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
''Aðrir tónleikar í ljóðaröð í Gerðubergi
verða í dag 21. nóvember kl. 20.30. Á þess-
um tónleikum mun Rannveig Bragadótt-
ir syngja lög eftir Haydn, Mozart, Hugo
Wolf, Mahler og de Falla við undirleik
Jónasar Þóris. Forsala aðgöngumiða er í
Gerðubergi.
Sýning Kristjáns Davíðssonar í Gallerí Borg
Gömlum aðdáanda Kristjáns Dav-
íðssonar hstmálara og tíðum um-
sagnaraðila um myndir hans í
ræðu og riti er stundum vorkunn
því þar að kemur að hann hættir
að geta bætt nokkru við það sem
hann hefur áður og oftsinnis sagt
um listamanninn, verður sem sagt
orðlaus, eða allt að því.
Jarðarfarir
Oddný Halldórsdóttir frá Varmá,
Lokastíg 16, sem andaðist á Hrafnistu
í Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í dag 21. nóvember kl.
13.30. Eiginmaður hennar, Stein-
grímur Arnórsson, lést 1972. Faðir
Oddnýjar var Halldór Jónsson, eig-
andi og forstjóri Álafossverksmiðj-
unnar og bóndi að Varmá í Mosfells-
sveit, Ólafssonar bónda að Sveins-
stööum í Þingi. Móðir Oddnýjar var
Grunnfríður Guðlaugsdóttir, Árna-
sonar frá Helgafelli í Mosfellssveit.
Þorsteinn Guðjónsson lést af slys-
förum 18. október sl. í Nepal. Minn-
ingarathöfn um hann fer fram í Hall-
grímskirkju laugardaginn 26. nóv-
ember kl. 13.30.
Kristinn Rúnarsson lést af slysförum
18. október sl. í Nepal. Minningarat-
höfn um hann fer fram í Hallgríms-
kirkju laugardaginn 26. nóvember
kl. 13.30.
Sigríður Karitas Gísladóttir, fyrrum
húsfreyja í Ytra-Skógarnesi í Mikla-
holtshreppi, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 24.
nóvember kl. 13.30.
Kristinn Nikulás Ágústsson, Hjalla-
braut 5, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju þriðju-
daginn 22. nóvember kl. 13.30.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands
heldur námskeið í skyndihjálp. Nám-
skeiðið hefst þriðjud. 22. nóv. kl. 20 og
stendur í 5 kvöld. Kerrnt verðui- dagana
22., 23., 28., 30. nóv og 1. des. Þetta er síö-
asta námskeiðið fyrir almenning sem
haldið verður fyrir jól. Námskeiðið verð-
ur haldið að Öldugötu 4. Öllum 14 ára
og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem hafa
áhuga á að komast á námskeiðið geta
skráð sig í síma 28222. Á námskeiðinu
verður kennd blástursaðferðin, endur-
lífgun, fyrsta hjálp við bruna, blæðingum
úr sárum og beinbrotum. Ennfremur
verður fjallað um um ýmsar ráðstafanir
til vamar slysum í heimahúsum og m.fl.
Sýnd verða myndbönd um helstu slys.
Námskeiðinu lýkur með prófi sem hægt
er að fá metið í flestum framhaldsskólum.
TiIkyrLningar
Klassík, ný hárgreiðslustofa
Nýlega tók til starfa hárgreiðslustofan
Klassík að Hverfisgötu 64. Eigandi stof-
unnar er Tony Sandy en hann er einnig
eigandi hárgreiðslustofunnar Töff á
Laugavegi. Boðið er upp á aila almenna
þjóstustu og er .veittur 20% afsláttur út
nóvember. Þá býður stofan uppá þá sér-
þjónustu að fólk getur komið í þvott og
blástur allt að daglega. Þannig gefst við-
skiptavinum kostur á að safna afslætti
sem getur orðið allt að 50%. Klassík er
opin mánudaga, þriðjudaga og miöviku-
daga kl. 9-19, fimmtudaga og föstudaga
kl. 9-20 og laugardaga kl. 10-14. Síminn
á stofunni er 14490.
Kristján Davíðsson - „Vatn og land á vordægrum".
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
andi) sjálfsþekkingar - hvert svo
sem myndefnið er.
Það merkilegasta við Kristján
Davíðsson er líklega listrænt út-
hald hans, sá hæfileiki hans að geta
í sífellu endurnýjað sig og komið
ferskur til leiks.
Þetta sannast á sýningu þeirri á
verkum hans sem opnuð var í Gali-
erí Borg nú um helgina.
Á sýningunni eru 16 olíumálverk
og er rúmur helmingur þeirra
gerður nú á haustmánuðum og
væntaniega undir talsverðu sýn-
ingarálagi.
Þaö er engu líkara en það álag
hafi beinlínis skerpt á sköpunar-
gleðinni, svo áköf og næm er glíma
hstamannsins við náttúruöflin sem
hann sjálfur kallar „vatn og land á
vordægrum“ og „flóatetur fífu-
sund“.
Óháð sköpunarverkinu
Teikning litanna og litirnir í
teikningunni leggjast á eitt, að
magna upp náttúruskynjun uns
hún stendur ein og óstudd á strig-
anum, jafnvel óháð sjálfu sköpun-
.arverkinu.
Aðdráttarafl þessara mynda
Kristjáns fyrir okkur liggur
kannski einmitt í því hvemig þær
gera sýnilega okkar eigin frum-
náttúruupplifun.
Við skynjum náttúruna nefnilega
ekki eins og litfilma, sem skilur á
milli nálægðar og fjarlægðar, fjalls
og þúfu, rauðbrúnku og rauðgr-
áma, heldur leggst hún á skilning-
arvit okkar í heild sinni og fiöl-
breytni, án þess þó að við getum
greint á milli einstakra þátta henn-
ar.
Eins og málverk Kristjáns Dav-
íðssonar.
Það er síðan ekki fyrr en á öðru
stigi upplifunarinnar að við grein-
um hana í sundur og nafngreinum
innri þætti hennar. Um leið missir
upplifunin eitthvað af ferskleika
sínum.
En sá ferskleiki er sem sagt varð-
veittur í málverkum Kristjáns Dav-
íðssonar sem verða til sýnis í Gall-
erí Borg til 29. nóvember. -ai
á veginn!
Blindhæð
framundan.
Við vitum ekki hvað
leynist handan við
hana. Ökum eins
langt til hægri og
kostur er og drögum
úr hraða.
Tökum aldrei
áhættu! ||^ERÐAR
UMFERÐAR
RÁÐ
Gefum okkur
tíma í umferðinni.
Leggjum tímanlega af stað!
Þetta er sérstaklega bagalegt þeg-
ar í hlut á svo umtalsverður lista-
maður eins og Kristján, höfundur
að fjörugustu málverkum sem gerð
hafa verið í landinu á síðari árum.
Um svoleiðis listamenn þarf auð-
vitað að tala oft og lengi því aðeins
með því að hugsa upphátt getur
maður gert upp við sig og aöra
hvers vegna verk eru eins áleitin
og raun ber vitni.
Á endanum eru orð og hugtök
samt haldlítil enda oftast mála-
miðlun milli skynjunar og tjáning-
ar. Hvernig er til dæmis hægt að
kalla myndverk „tilfinningalega
hlaöin“ þegar við höfum ekki
grænan grun um það hvernig til-
finning er útlits?
En hvort sem það eru sterkar til-
finningar eða eitthvað annað sem
Kristján Davíðsson kemur áleiðis í
verkum sínum þá skiptir ef til vill
mestu að hann miðlar því af lífs
og sálar kröftum og leggur alit í
sölumar.
Ferskur til leiks
Þetta er það sem í daglegu tali er
nefnt „sannfæringarkraftur" og ef
hann er nógu mikill setur hann af
stað með áhorfandanum ýmislegt
hugarhvarfl sem á endanum leiðir
til aukinnar þekkingar og (von-
Kristján Daviðsson.