Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
Fréttir
RMsstjóminni tókst ekki að móta efhahagsstefnu um helgina:
Deilt um
og vaxta-
gengisfellingu
og verðlagsmál
Ekkert samkomulag varð á fund-
um ráðherra ríkisstjórnarinnar um
helgina annað en að skoða enn frekar
og reikna betur áhrif ýmissa val-
kosta. Ríkisstjórnin hefur þá sjö daga
fram að því að þing kemur saman til
að móta efnahagsstefnu. Fyrir þing-
byrjun þarf einnig aö vera búið að
ganga frá inngöngu Borgaraflokks-
ins í ríkisstjórnina ef stjórnarflokk-
amir sættast á hana.
Enn sem fyrr er meginágreiningur-
inn innan ríkisstjómarinnar um
gengismál. Ýmsar ráðstafanir í
vaxta- og verðlagsmálum eru síðan
bundnar því hver niðurstaðan verð-
ur varðandi gengið.
í tillögum Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra var gert ráð
fyrir að gengið yrði fellt. Verðlagseft-
irliti yrði haldið áfram á sama hátt
og verið hefur síðan í september.
Vextir yrðu síðan lækkaðir með
handafli í um 4 til 5 prósent og vaxta-
munur ákveðinn með lögum.
Alþýðuflokkurinn er andsnúinn
þessu öllu. Hann vill helst enga geng-
isfellingu. í stað vaxtalækkunar með
handafli vili flokkurinn semja um
vaxtalækkun í trausti þess að verð-
bólga hjaðni þar sem gengisfelling
sé ekki fyrir dyrum. Þá er flokkurinn
andsnúinn áframhaldandi verðlags-
eftirhti.
Alþýðubandalagið stendur þarna á
milli. Það er andsnúið því að fella
gengið um 10 prósent eins og fram-
sóknarmenn hafa nefnt. Alþýðu-
bandalagið er hins vegar ekki mót-
fallið vaxtalækkun með handafli né
áframhaldandi verölagseftirliti.
Þrátt fyrir þennan ágreining eru
stjórnarflokkarnir ásáttir um ýmis-
legt. Tillögur Halldórs Ágrímssonar
um úreldingarsjóð og aðrar sértækar
aðgerðir í sjávarútvegi verða líklega
samþykktar lítið breyttar. Breyting-
ar á vörugjaldslögunum vegna
tæknilegra ágalla verða samþykktar.
Þá er og ekki mikill ágreiningur um
að setja sérstakt gjald á þann inn-
flutning sem nýtur ríkisstyrkja í
framleiðslulandinu þó að fram-
kvæmd þess sé ekki ljós.
Ef ríkisstjórnin kemur sér saman
um hvort ög hversu mikið gengið
verður fellt og til hvaða aðgerða grip-
ið verður í vaxta- og verðlagsmálum
í kjölfar þess er búist við að margar
af tillögum Steingríms verði af-
greiddar þannig aö ríkisstjórnin
stefni að því að koma þeim á í fram-
tíðinni. Það eru líkleg örlög tillagna
hans um bann við verðtryggingu
nýrra skuldbindinga, þak á launa-
hækkanir á árinu og fleira.
Eins og áður sagði varð enginn
sýnilegur árangur af fundum helg-
arinnar; tveimur ríkisstjórnarfund-
um, fundi tveggja ráðherra úr hverj-
um flokki og tilheyrandi þingflokks-
fundum. Þjóðhagsstofnun var hins
vegar falið að reikna út áhrif ýmissa
aðgerða og þá einkum á raungengið.
-gse
Verðlaun í
London fyrir
togara
„Þetta módel af Ingólfi Arnarsyni
er þaö erfiðasta sem ég hef smíðað
fram aö þessu og tók verkið um 500
klukkustundir," sagði Sigurður H.
Þórólfsson, áhugamaður í módel-
smíði, í samtali við DV. Um áramót
tók Sigurður þátt í sýningu módel-
smiða í London og hlaut silfurverð-
laun í sínum flokki.
Fyrirmyndin er fyrsti nýsköpunar-
togarinn, Ingólfur Arnarson, sem
kom til landsins í febrúar 1947. Er
skipið smíðað í hlutfollunum einn á
móti 315. Módehð er ekki nema 18
sentímetrar að lengd og því eru at-
riði eins og loftnetsstangir á þykkt
við mannshár. Aðalefni skipsins er
silfur en brú, keis og hvalbakur er
gullhúðað til aðgreiningar. Sigurður
hefur í mörg ár fengist við að smíða
skipamódel en frá árinu 1972 hefur
hann einbeitt sér að smíðum úr silfri
og guhi.
„Þetta er í sjötta sinn sem ég tek
þátt í sýningunni og því er það mikh
gleði að hljóta þessi verðlaun. Kröf-
umar er gifurlega strangar og verður
hvert smáatriði að vera í lagi. Flokk-
urinn sem ég keppti í sérhæfir sig í
smámódelum af skipum en ég er sá
eini sem smíða í silfur. Ég hafði
teikningar af skipinu til að vinna eft-
ir og auk þess ljósmyndir af módel-
inu sem fylgdi skipinu en það er yfir
einn metri að lengd.“
Sigurður er skrifstofumaður að at-
vinnu og er módelsmíðin stunduö
um kvöld og helgar í bílskúmum.
Hann hefur fengið tæknilega aðstoð
hjá tveimur vinum sem em lærðir
guhsmiðir.
Aðspurður sagði Sigurður þetta
ekki dýrt áhugamál þó að efniviður-
inn væri góðmálmar á borð við silfur
og gull. „Efnið er að vísu dýrara en
tré en þegar tekið er thht th þess tíma
sem smíðin tekur er kostnaðurinn
ekki svo mikih.“ -JJ
Sigurður H. Þórólfsson með silfurtogarann sem kostaði 500 vinnustundir.
DV-mynd: GVA
Verkamannafélagið Dagsbrún:
Tilboð berast frá er-
lendum flugfélögum
„Það er rétt að fleiri en einn um-
boðsmaður erlendra flugfélaga hefur
haft samband við okkur hjá Dags-
brún og gert okkur tilboð í orlofs-
ferðir. Hér er um að ræða verð sem
er langt fyrir neðan það sem okkur
býðst frá innlendum aðilum," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannafélagsins Dags-
brúnar, í samtali við DV.
Guðmundur sagði að thboðin, sem
umboðsmennimir hefðu verið með,
miðuðust við ákveðinn farþega-
fjölda. Hann sagðist á þessu stigi
ekki vhja greina frá því hvaða erlend
flugfélög hér um ræðir, sagði það
ekki tímabært.
Aðspurður um hvort Dagsbrún
myndi taka þessum tilboðum sagðist
Guðmundur ekkert geta sagt um það
á þessu stigi málsins. Það væri enn
ekki farið að ræða þetta í stjórn Dags-
brúnar. Hitt væri alveg ljóst að ef
Flugleiðir hf. ætluðu að halda til
streitu málaferlum á hendur verka-
lýðsfélögum yrði máhð í heild skoð-
að.
„Mér þykir ekki ótrúlegt að fleiri
verkalýðsfélög en Dagsbrún fái sams
konar tilboö og við,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson.
-S.dór
Aldi-máJið:
Gæðamál engu síður
en hvalveiðarnar?
Því er haldið fram að kvörtunar- Margir halda því fram að kvörtun-
bréf frá verslunarkeðjunni Aldi í in í nóvember í bland við mótmæli
Þýskalandi, sem barst Sölustofiiun grænfriðunga síöustu mánuði sé
lagmetis 16. nóvember síðasthðinn orsök þess að samningum um
vegna grænna bletta í rækju frá rækjukaup hafi verið sagt upp.
íslandi, sé höfuðorsök þess að fyr- Menn hjá Aldi hafi sagt þegar þess-
irtækið hættir aö kaupa af okkur ir grænu blettir sáust á rækjunni,
rækju. Hvalveiðimáhð sé notað „einu sinni enn“, og notað hval-
sem tyhiástæða. Kvörtunin, sem veiðimálið sem tyhiástæðu.
barst í nóvember, var vegna 3.500 Grímur Valdimarsson, forstjóri
kassa af rækja Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
Theódór S. Halldórsson, forstjóri ins, sagði aö þessi vara hefði fengið
Sölustofnunar lagmetis, vih ekki vottorðfrástofnuninni, endafram-
samþykkja þessa keruhngu. Hann kvæmdu þeir aðeins lágmarks-
segir um grænu blettina, sem sáust gæðarannsókn. Ef útflyijandi vildi
á rækjunni, að við rannsókn hafi láta dæma vöruna eftir hærri
komið í Ijós að þeir stöfuðu af þör- gæðakröfum þá væri það gert.
ungaæti sem rækja hefði verið í. Hann sagði aö blaögrænublettimir
Hann segir að þetta sé eina kvört- væru ekki galh ef dæmt væri eftir
unin sem borist hafi lengi vegna lágmarkskröfum, sem miðuðust
rækju frá íslandi. við að öryggi vörunnar væri í lagi,
Það er aftur á móti vitaö að á að hún væri heilnæm og að hún
undanfömum árum hafa oft borist væri úr óskemmdu hráefni.
kvartanirvegnaniðurlagðrarvöru -S.dór
frá íslandi, ahir þekkja þau dæmi.
Þingmenn Borgaraflokksins:
Fallast á meginatriði tillagna Steingríms
Þingmenn Borgaraflokksins em
thbúnir að samþykkja meginatriði
efnahagstihagna Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra og
Framsóknarflokksins og þær thlögur
ættu ekki að hindra að Borgaraflokk-
urinn verði fjórði ríkisstjómarflokk-
urinn. Ekki seinna en í vikulok verð-
ur ljóst hvort af ríkisstjómarsam-
starfi verður, segir Júhus Sólnes,
formaður Borgaraflokksins.
Um helgina funduðu borgara-
flokksmenn stíft heima hjá Júhusi
Sólnes, formanni flokksins, og vom
tíðum í sambandi við Steingrím.
;,Tíminn er að renna út í viðræðum
Borgaraflokks við ríkisstjómina. Það
sem gerir þessar viðræður erfiöari
en ella er ósamkomulag innan ríkis-
stjómarinnar sjálfrar um efnahags-
tillögur Steingríms," segir Júhus.
Júlíus sagði Borgaraflokkinn geta
samþykkt að ríkisstjórnin gripi til
stjómvaldsaðgeröa th að lækka
vexti. „Við viljum hafa vextina
fijálsa en th bráðabirgða getur verið
nauðsynlegt að stjórna þeim.“
Júlíus sagði það fagnaðarefni að í
thlögum Steingríms væri gert ráð
fyrir aögerðum til styrktar sam-
keppnisiðnaði og sagði að „furðuleg
efnahagsstefna undanfarinna ára
krefðist harkalegra aðgerða."
„Næstu helgi boðar aðalstjórn
Borgaraflokksins til fundar á Selfossi
þar sem ljóst verður hvort af sam-
starfi við ríkisstjórnina verður eða
ekki,“ segir Júhus.
-pv