Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1989, Síða 5
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989.
5
Blönduós:
134 milUónir í
brimvamargarð
Þórhallur Ásmundsson, DV, Norðurl. vestra;
í hafnaáætlun fyrir árin 1989-1992,
sem lögð hefur verið fram á Alþingi,
kemur langmest í hlut Blönduós-
hafnar af höfnum í Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Af samtals 344 milljón-
um á að veija 134,2 milljónum til 220
metra langs brimvarnargarðs á
Blönduósi.
Samkvæmt áætluninni fær
Blönduós í ár 9,1 milljón, 22 milljónir
á næsta ári og 103 milljónir á árunum
1991-1992. Gert er ráð fyrir að Sauð-
árkrókur fái næstmest eða 75,4 millj-
ónir og Skagaströnd er í þriðja sæti
með 60,4 milljónir. Siglufjörður á að
fá 52,4 milljónir, Hvammstangi 19,4
og Hofsós tvær milljónir króna. Rétt
er að geta þess að oftar en ekki hefur
hafnaáætlun tekið talsverðum breyt-
ingum í meðförum þingsins.
Hvammstangi:
Olís slegið
verslunarhús
Þórhallur Ásmundsson, DV, Norðurl. vestra:
Annað uppboð í þrotabúi Verslun-
ar Sigurðar Pálmasonar á Hvamms-
tanga fór fram nýlega og verslunar-
húsið á Höfðabraut 6 var slegið Olís
á 7,5 milljónir króna. Óskað var eftir
þriðja uppboði á sláturhúsi og frysti-
geymslum verslunarinnar og á það
að fara fram 10. maí nk.
Að sögn Jóns fsbergs sýslumanns
verður tilboði Olís tekið en fyrirtæk-
ið var eitt af stærstu kröfuhöfum í
þrotabúið. Tilboð í verslunarhúsið
var langt undir matsverði eignarinn-
ar.
Eimskip tapar
1 milljón á
dag, ekki 3
Mjög slæm villa varð í fréttinni um
100 milljóna króna tap Eimskips
fyrstu þrjá mánuði ársins. Sagt var
að Eimskip hefði tapað 3 milljónum
á dag fyrstu þrjá mánuðina. Hér er
um grófa reikningsskekkju blaða-
manns að ræða. Tapið er að sjálf-
sögðu rúmlega 1 milljón á dag. Forr-
áðamenn Eimskips og hluthafar í
félaginu eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum. -JGH
Banaslysið í Kópavogi:
Lögreglan
leitar vitna
Lögreglan í Kópavogi vill biðja alla
þá sem geta gefið upplýsingar um
•tildrög banaslyssins sem varð á
Hafnarfjarðarvegi síðastliðið
fimmtudagskvöld að hafa samband
við rannsóknardeild lögreglunnar í
Kópavogi. Símar lögreglunnar eru
41-200 og 4-32-60.
...... e&sw"05'
ló r 6 a 3 í n i • i f a t o f n 11
: iðrrni og yyy
Strandgötu 14
735 Eskifjöröur
s: 97-61399 .
yyi
Laugavegi 3
101 Reykja|^;
s: 91-62ð*r
H„OTWR
Hefur þig aldrei dreymt um að fara í hópferð undir traustri
fararstjórn um Norðurlöndin og Þýskaland?
Benni og Svenni á Eskifirði hafa undanfarin sumur farið slíkar
ferðir og bera umsagnir farþega best vitni um ágæti þessa
ferðamáta.*)
Á Sumri komandi verður enn á ný stigið á skipsfjöl, um borð í
glæsiskipið Norröna, frá Seyðisfirði og stefnan tekin á
Færeyjar og að lokinni tveggja tíma viðdvöl þar til
Hanstholm í Danmörku. Um borð getur fólk ýmist tekið
lífinu með ró, hresst sig með heilnæmu sjávarlofti, legið
í sólbaði, notið góðs matarog drykkjar, dansað eða sofið,
eftir óskum hvers og eins.
Ferðin um meginlandið hefst í Hanstholm, Danmörku.
Ferð I. 01.15. júní 1989,'Danmörk — Þýskaland — Noregurog
heim frá Bergen. 2 vikur.
Ferð II. 15. júní — 06. júlí 1989, Danmörk — Svíþjóö — Álandseyjar
— Finnland — Noregur og heim frá Bergen 3 vikur.
Ferð III. 10,—31. ágúst 1989, Danmörk — Þýskaland — Austurríki —
Sviss — Noregur og heim frá Bergen. 3 vikur.
Ferð IV. 27. júlí — 03. ágúst 1989, árleg Ólafsvökuferð til Færeyja. 1
vika.
Ferð V. 24.—31. ágúst 1989, árleg haustferð til Færeyja og nú
einnig til Shetlandseyja. 1 vika.
Hringdu eða líttu inn og fáðu upþlýsingar um þessar
ferðir svo og aðrar ferðir Norröna. Við fullyrðum að
verðið hefur aldrei
VINIR FOSSVOGSDALS
Sýníð samstöðu. Mætíð á fundínn í Snælandsskóla víð
Furugrund í Kópavogí (Fossvogsdal) i dag kl. 14.
Málið snýst um MEIRA MALBIK eða AUÐUGFA MANN-
LÍF, mál sem varðar okkur öll.