Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1989, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989.
19
Fred Dryer er fyrrum fótboltahetja og einn fárra úr þeim hópi sem hafa
náð frægð sem leikarar.
Sló í gegn
með Hunter
Hann tók fyrst að sér nokkur smá-
hlutverk og hafði nokkra reynslu af
að leika í sjónvarpsmyndum þegar
stóra tækifærið kom árið 1984. Þá var
hann valinn til að leika Hunter. Þetta
eru sjónvarpsþættir sem standa og
falla með því að réttur maður sé í
aðalhlutverkinu. Efnið er það sama
og í ótalmörgum lögregluþáttum.
Framleiðendur þáttanna töldu sig
hafa fundið rétta manninn um leið
og Dryer kom í prufutöku.
Þeir sáu þó eftir öllu þegar vinsæld-
irnar létu á sér standa. Þegar búið
var að sýna átta þætti kom til tals
að taka Hunter af dagskrá. í stað
þess að gefast alveg upp var gripið
til þess ráðs að sýna þættina seint
að kvöldi og þá fyrst fóru áhorfendur
aö veita Hunter athygli. Eftir það
hafa vinsældirnar vaxið jafnt og þétt
og nú er Hunter vinsælasti lögreglu-
þátturinn hjá bandarískum sjón-
varpsstöðvum.
Þáttunum var líka breytt smátt og
smátt. í fyrstu þóttu þeir of dæmi-
gerðir til að ná vinsældum. Það var
lík í hveijúm þætti, slagsmál í
skuggasundi, kappakstur og yfir-
maður sem ekki þoldi einfarann
Hunter. í síðari þáttum er fjölbreýtn-
in meiri þannig að áhorfendur hafa
ekki lengur á tilfmningunni að þeir
séu að horfa á sama þáttinn aftur og
aftur.
Kvenhetja til
samanburðar
í þáttunum er töluvert lagt upp úr
Átta hundruð
milljónir manna
A* Notaðu
' endurskinsmerki
- og komdu heil/l heim.
mÉUMFERÐAR
Uráð
horfa á Hunter
Hunter er ein vinsælasta sjónvarps-
lögreglan sem nú er uppi. Talið er
að um 800 milljónir manna sjái þætt-
ina með honum í hverri viku. Hann
nýtur þess hka umfram margar aðr-
ar lögregluhetjur að vera á dagskrá
kínverska sjónvarpsins. Þar á hann
fjölmennan hóp aðdáenda.
Hér á landi er Hunter á dagskrá
Stöðvar 2 á þriðjudögum og keppir í
vinsældum við gamla jöfra á borð
við Derrick. Nú hafa verið gerðir
hundrað þættir með Hunter sem er
mun meira en búist var við eftir
fyrsta veturinn sem þættirnir voru
sýndir í Bandaríkjunum. Hunter var
seinn til að afla sér vinsælda en hef-
ur unnið á jafnt og þétt og er nú með
vinsælustu sjónvarpsþáttunum í
Bandaríkjunum.
Það er Fred Dryer sem leikur Hunt-
er. Þessir menn eru óaðskiljanlegir
í hugum flestra rétt eins og enginn
getur hugsað sér Derrick án Horst
Tappert. Fred Dryer er þó ekki enn
viðlíka þekktur sem leikari og marg-
ar aðrar lögregluhetjur enda er
Hunter eina fræga hlutverkið sem
hann hefur fariö með.
Dæmigert
hörkutól
Fred Dryer er á margan hátt dæmi-
gerður fyrir leikara sem veljast í
hlutverk lögreglumanna. Hann er
hávaxinn og hörkulegur í útliti.
Mörgum þykir hann minna á Chnt
Eastwood því hann er jafnan brúna-
þungur og fámáll. Þá er lögreglumað-
urinn, sem hann leikur, htið geflnn
fyrir að taka verk sín vetthngatök-
um.
Á yngri árum lék Dryer amerískan
fótbolta með liði New York Giants á
árunum eftir 1970. Hann var vinsæll
íþróttamaður en þótti harður. Hann
er fæddur í San Diego á vesturströnd
Bandaríkjanna en var keyptur til
New York-liðsins rúmlega tvítugur
fyrir mikið fé. Hann var því umtalað-
ur frá byrjun og umsetinn affjölmiöl-
um. Hann var einnig tahnn með
bestu leikmönnum og tvívegis valinn
í stjörnulið í lok keppnistímabils.
Margar fótboltastjörnur í Banda-
ríkjunum hafa reynt fyrir sér í Holly-
wood að loknum ferli í íþróttinni.
Fæstar hafa náð langt og Dryer er
eini fótboltakappinn sem ráunveru-
lega hefur slegið í gegn sem leikari.
Sjálfur gefur hann þá skýringu á
þessu að hann hafi ekki reynt að
koma sér á framfæri sem fyrrverandi
fótboltamaður. Hann sótti námskeið
í leiklist og kynnti sig alltaf sem leik-
ara og leitaði eftir hlutverkum í stað
þess að vera kallaður til sem fyrrver-
andi stjarna.
að hafa allt umhveríið sem kaldrana-
legast. Fólkið, sem birtist á skjánum,
er líka allt heldur óhefiað. Hunter
er alltaf í þröngum gallabuxum og
slitnum jakka. Þetta er hluti af
ímyndinni sem hann á að hafa. Eitt
sinn kom til tals að bæta útganginn
á hetjunni. Dryer neitaði að skipta
um föt - svona maður getur ekki
gengið í stífpressuðum jakkaföt-
um.
Hunter hefur konu fyrir félaga í
baráttunni á götunum. Það er Dee
Dee McCall sem Stephanie Kramer
leikur. Hún á að vera öllu þægilegri
manneskja í umgengni en Hunter og
myndar mótvægi við hetjuna. Lengi
vel stóð til að láta samband þeirra
þróast þannig í þáttunum að þau
yrðu ástfangin. Á endanum töldu
framleiðendurnir þó viturlegast að
halda ástinni utan við þættina og
láta hörkuna einkenna Hunter.
Dryer hefur unnið við þættina um
Hunter nær viðstöðulaust í rúm fjög-
ur ár. Hann segist vera mjög bundinn
af þessu starfi og gera fátt annað.
Þegar Hunter kom til skjalanna var
Dryer giftur leikkonunni Tracy Vac-
caro og eiga þau eina dóttur. Þau
skildu fyrir fáum árum.
/ 1 M1 1
ikvold
handa þér, ef þú híttír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekkí
vanta í þetta sínn!
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
i