Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989.
Fréttir
Nýr biskup settur irm 1 embætti:
Bæði þakklátur
og spenntur
- segir Ólafur Skúlason
„Mér er á þessari stnndu efst í
huga þakklæti vegna alls þessa og
spenningur aö takast á við þau verk-
efhi sem bíða,“ sagði Ólafur Skúla-
son, sem í gær var settur inn í emb-
ætti biskups við athöfn í Dómkirkj-
unni.
„Á slíkum stundum skoðar maður
það sem er aö baki og metur hver
undirbúningur kann helst að verða
að gagni. Ég hef áður komiö nálægt
störfum biskups en það var öðruvísu
að gera það úr þeirri fjarlægð.
Meðal þeirra verkefna sem bíða eru
frumvörp sem eru til umræðu um
prestaköll, prófastsdæmi, biskup og
starfsfólk þjóðkirkjunnar. Þar bíður
mikilvægt verkefni.
Við förum til Finnlands í næstu
viku á norrænan biskupafund. Þessi
fundur verður næst haldinn á íslandi
og því nauðsynlegt að sækja hann
núna. Mér þætti óþægilegt að halda
hann hér án þess að hafa sótt slíkan
fund áður.
Ég vil svo ítreka að mér er efst í
huga þakklæti til kirkjunnar og
þeirra sem hafa stutt mig. Ég mun
leitast við að sinna störfum biskups
svo vel að öllum verði ljóst að ég vil
kirkjunni, starfsfólki hennar og söfn-
uðunum einungis hið albesta."
-HV
Þaö sýna allir embættismenn málinu fullan skilning en:
Enginn gerir neitt
- segir móðir tveggja ungra fíkniefhaneytenda
„Ég veit eiginlega ekki hvert ég á
aö snúa mér. Það er búið að tala viö
alla þá embættismenn og stjóm-
málamenn sem okkur hefur dottið í
hug að reyna að fá til aðstoðar. Þeir
hafa allir sýnt málinu mikinn skiln-
ing en enginn þeirra virðist þess
megnugur að gera neitt. Ég á afskap-
lega erfitt með að sætta mig við þær
málalyktir. Elsti sonur minn er fár-
sjúkur fíkniefnaneytandi og á langan
afbrotaferil að baki. Það hlýtur að
vera hægt að finna leið til að stöðva
hann,“ sagði móðir tveggja ungra
fíkniefnaneytenda í viðtali við DV
um helgina.
Tveir af sonum konunnar dvelja
nú í Síðumúlafangelsi. Þeir em í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
nýlegra afbrota og lýkur varðhalds-
vist þeirra nú í vikunni.
Sá eldri drengjaima tveggja er lið-
lega tvítugur og á aö baki sex ára
afbrotaferil. Hann er kominn í mikla
lífshættu af völdum eiturlyfjaneyslu
og þarfnast meðferðar á sjúkrastofn-
un. ítrekaðar tilraunir til þess að fá
yfirvöld heilbrigðismála og dóms-
mála til að bregðast á afgerandi máta
við vandkvæðum piltsins hafa verið
árangurslausar.
„Mér er sagt að hérlendis finnist
ekki það meðferðarúrræði sem elsti
sonur minn þarfnast. Um tíma vom
mér gefnar vonir um að mögulega
kæmist hann í tilhlýðilega meðferö
erlendis en það reyndust tálvonir,"
segir móðirin.
„Drengurinn hefur verið sviptur
lögræði. Hann er hættulegur sjálfum
sér og í raun umhverfi sínu, því þess-
ir eldri og þyngri neytendur draga
fjöldann ailan af yngra fólki með sér
niður í svaðið. Ég get ekki trúað því
að yfirvöld ætli einfaldlega að sleppa
honum lausum á götuna núna. Það
má ekki gerast. Hann er að eyði-
leggja yngsta bróður sinn.“
Yngsti sonur konunnar hefur lent
í neyslu og afbrotum með elsta bróð-
ur sínum undanfarið ár. Síðustu
mánuði hefur neysla hans þyngst
verulega. Nú er unnið að því að koma
honum í meðferð en aðstandendur
óttast að ef elsti bróðirinn verður
látinn laus muni hann verða til þess
að sá yngsti ljúki aldrei meðferð.
„Sá eldri kann orðið svo á kerfið
að hann spilar á það eins og eflir
nótum,“ segir móðirin. „Hann hefur
dvaliö á geðdeildum, þar sem hann
segist fá inn allt það dóp sem hann
vill. Hann óskaði þess sjálfur að vera
sviptur lögræði, í þeirri von að þann-
ig fengi hann þá læknishjálp sem
hann þarfnast. Hana hefur hairn ekki
fengið enn.“
-HV
Innheimtuaðgeröir í Njarövík og Keflavík:
Látum ekki innsigla
bæjarskrifstofurnar
- segja bæjarstjóramir
Fógetinn í Keflavík tilkynnti bæj-
arstjórum Njarðvíkur og Keflavíkur
fyrir helgi að skrifstofum bæjanna
yrði lokað í dag vegna söluskatts-
skulda. í samtali við bæjarstjóra
Njarðvíkur og Keflavíkur í morgim
kom fram að þeir ætla ekki að láta
loka bæjarskrifstofunum og munu
þeir greiöa skuldimar með kröfu um
endurgreiðslu.
Að sögn Guðfinns Sigurvinssonar,
bæjarstjóra Keflavikur, er skuldin
um 2,8 milljónir og er hún frá 1986.
Eins og í Hafnarfirði og Grindavík
er hún tilkomin vegna söluskatts af
raforkusölu til götulýsingar. Sagði
Guðfinnur að málið hefði veriö allan
þennan tíma í meðferð hjá skatta-
nefnd en Keflavíkurbær telur að
þama sé um tvísköttun að ræða.
Oddur Einarsson, bæjarstjóri
Njarðvíkur, sagði að þeir í Njarðvík
hefðu mótkröfu í gangi vegna þess
aö þeir hefðu greitt of mikinn sölu-
skatt 1985. Skuld bæjarins er 900.000
krónur en mótkrafan er upp á 1,9
milljónir. Sagðist Oddur þó gera ráð
fyrir að þeir myndu greiða frekar en
að láta innsigla bæjarskrifstofuna.
-SMJ
Fólskuleg árás og rán:
Ræninginn ófundinn
Lögreglan leitar manns sem seint
á fóstudagskvöld réðst að konu sem
starfar hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur og náði af henni um 250 þúsund
krónum - í peningum og farmiöum.
Konan var stödd á Laugavegi þegar
ráðist var á hana. Hún var með pen-
ingana og miðana í tveimur pokum.
Maðurinn, sem leitað er að, réðst að
konunni og hrinti henni í götuna.
Hann tók pokana og hljóp á brott.
Konan slasaðist við árásina. Hún
handleggsbrotnaði auk fleiri áverka.
-sme
Friðarhlaupinu 1989 lauk í miöborg Reykjavikur í gærdag, á sama stað og
þaö hófst fyrir hálfum mánuði. Var hlaupið með logandi kyndilinn i kringum
landið á þessum tima. í Reykjavík hljóp Ólafur Ragnar Grimsson fjármála-
ráðaherra lokaspölinn. Hann virðist ekki blása úr nös enda vanur skokkari.
DV-mynd S
Hagvirki:
Övíst með frekari
lokunaraðgerðir
Mikil fundarhöld voru í morgun
með forráðamönnum Hagviriás,
fiármálaráðuneytinu og settum bæj-
arfógeta í Hafnarfirði. Var þar rætt
um frekari lokunarðagerðir en óvíst
var hvort gripið yrði til frekari að-
gerða en að loka skrifstofum fyrir-
tækisins.
Starfsmenn Hagvirkis komu saman
til fundar á laugardaginn þar sem þeir
samþykktu harða gagnrýni á inn-
heimtuaðgerðir fjármálaráöherra.
Er þar bent á að um leið og málið
bíði afgreiðslu hjá ríkisskattanefnd
sé gripið til svo harkalegra inn-
heimtuaðgerða. Með því telja starfs-
menn að afkomu sinni sé stefnt í
óvissu.
Telja þeir að nær væri að láta mál-
ið hafa eðlilega meðferð hjá viðkom-
andi yfirvöldum og koma í veg fyrir
frekari tafir en hafi orðið á málinu
nú þegar hjá yfirvöldum.
-SMJ
100110 við Mývatn:
Ástandið slæmt
vegna átuskorts
„Ástand lífríkisins er verra en í
fyiTasumar því að nú er átubrestur
bæði í Mývatni og efri hluta Laxár
en var bundinn við Mývatn síðastlið-
ið sumar. Ekki eru mikil líkindi til
þess að andavarp veröi mikiö við
þessi skilyrði og silungsveiði mun
varla glæðast fyrst um sinn. Eina
vonin um að veiöileysi linni í sumar
er að krabbaátu takist að ná sér á
strik,“ segir á minnisblöðum Ama
Einarssonar, starfsmanns Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
Árlegri talningu á fuglum við Mý-
vatn er nýlokið. í heild virðast anda-
stofnar við vatnið hafa minnkað síð-
ustu ár eftir fjölgun andanna á síð-
asta áratug. Húsöndum, einkennis-
fugli Mývatns og Laxár, hefur fækk-
að mikið í vor eða um helming. Hefur
nokkuð boriö á því að húsendur hafi
fallið úr hor síðustu vikur en flestar
þeirra hafa flutt sig niður í Aðaldal.
Eru ekki dæmi um að slíkt hafi gerst
síðustu fimmtán ár. Ástæðan er sú
að bitmý í Laxá hefur drepist í stór-
ntn stíl í vor en lirfur þess eru ein
helsta fæða húsandarinnar, ekki síst
eflir að rykmýsstofnar við Mývatn
hafa hrunið. Er óttast að margar
endur komi ungum sínum ekki á legg
við þessar aðstæður.
Árni Einarsson vildi ekki fullyrða
neitt um orsakir þessa ástands en
tekur fram aö ástaeðuna sé ekki að
finnaíkaldriveðráttu. -hlh
Heimsbikarmót í skák:
Timman
sigraði á
enda-
sprettinum
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman gerði sér lítið fyrir og
sigraði á heimsbikarmótinu í
skák sem lauk i Rotterdam í Holl-
andi um helgina. Timman sigraði
Seirawan frá Bandaríkjunum létt
í síöustu skák mótsins og fékk
alls 10 Vj vinning af 15 möguleg-
um. Timman var lengi annar, á
eftir Anatoli Karpov, fýrrverandi
heimsmeistara, en haföi betur á
endasprettinum. Karpov tapaði
þrem síðustu skákum sínum á
mótinu og endaði i öðru sæti meö
9'4 vinning eftir aö hafa leitt
mótið lengst af. í þriðja sæti varð
Sovétmaðurinn Vaganjan með 9
vinninga.
Sigurlaun á mótinu námu 20
þúsund dollurum eöa um 1200
þúsund íslenskum krónum.
Jóhanni Hjartarsyni gekk ekki
vel á þessu móti, varð í 16. og síð-
asta sæti meö 4 'A vinning.
Þetta heimsbikarmót var það
fimmta af í allt sex slíkum mótum
sem haldin voru í fyrra og í ár.
Síðasta heimsbikarmótið i þess-
ari röö móta verður í Svíþjóð í
haust þar sem heimsmeistarinn,
Garrí Kasparov, verður meðal
þátttakenda.
-hlh
Hvalveiðin:
Fjórðungur
þegar
veiddur
Hvalveiði gengur nú bærilega
en veður hamlaði veiðum svolítið
í byijun vertiðarinnar.
í hvalstööinni í Hvalfirði voru
í morgun komnir þrettán hvalir
á land. Fjórir til viðbótar hafa
veriö veiddir og eru á leiðinni til
lands þannig að alls hafa sautján
dýr verið veidd á vertíðinni. Er
það réttur fjórðungur þeirra sex-
tíu og átta dýra sem á að taka á
þessuári.
-HV
Fimm bfla
árekstur
Fimm bilar lentu í einum
árekstri á Vesturlandsvegi -
skammt frá Höfðabakka - í gær-
kvöldi. Lögregla flutti tvær
manneskjur, lítiö slasaöar, á
siysadeild. Sumir bílanna
skemmdust mikið - aðrir minna.
-sme
Hafnarfí arðarvegur:
Velti bflnum
tílaðforðast
aðaka yfir
önd með unga
Bfll valt og eyðilagðist þegar
ökumaöur hans beygði snögglega
á Hafnarfjaröarvegi á laugardag.
Ökumaðurinn var aö forðast að
aka yfir önd með unga. Öndin var
á gangi meö fjölskylduna og gerði
sér enga grein fyrir þeirri hættu
sem hún var í.
Bíllinn er nær ónýtur. Ein
manneskja meiddist litillega en
öndin og hennar afkvæmi eru
heil og ósærö.
-sme