Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989.
9
Utlönd
Eldur í kjarnorku-
knúnum sovéskum
kafbáti við Noreg
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Eldur kom upp í nótt í stórum
kjamorkuknúnum sovéskum kaf-
báti um 100 kílómetra norönorövest-
ur af ströndum Finnmerkur í Nor-
egi. Orsök brunans er ókunn. Þaö
var norsk herþota sem varð vör viö
reyk frá kafbátnum um hálfEimmley-
tið í nótt aö íslenskum tíma.
Þyrla frá norska vamarliðinu,
flugvél og varðbátar era nú á slys-
staö. En Sovétmenn hafa einnig sent
flugvélar til slysstaðarins. Norski
herinn hefur tekiö myndir af kaf-
bátnum. Hann er sagður af gerðinni
Echo-2. Báturinn er 117 metra langur
og vegur 4.800 tonn. Johan Jörgen
Holst, vamarmálaráðherra Noregs,
telur líklegt að kjamorkuvopn séu
um borð í kafbátnum.
Slysið virðist vera sama eðlis og
sovéska kafbátaslysið snemma í vor.
Sovétmenn þiggja enga hjálp frá
Norðmönnum vegna kafbátsslyss-
ins. Þetta varð ljóst þegar tilkynning
frá björgunarmiðstöðinni í Mur-
mansk barst til norskra yfirvalda um
áttaleytið í morgun að norskum tíma
eða sex að íslenskum. Norska sendi-
ráðið í Moskvu hafði boðið sovéskum
yfirvöldum aðstoð en eina svarið við
því var tilkynningin frá Murmansk.
Engu að síður era bæði norski her-
inn og björgunarsveitir viðbúnar
með mikinn mannskap.
Um áttaleytið í morgun var sent
blys frá kafbátnum sem Norðmenn
héldu að væri neyðarblys. Þetta hef-
ur trúlega verið merki tH Norðmann-
anna um að halda sig í hæfilegri fjar-
lægð frá kafbátnum.
Svo virðist sem Sovétmenn hafi
náð að stöðva útbreiðslu eldsins um
borð í bátnum. Norskar flugvélar
hafa séð til mannaferða á dekkinu á
kafbátnum og áhöfnin virðist róleg
og yfirveguð. Bátminn er nú á leið í
austur með fimm hnúta hraða til
bækistöðvar sinnar á Kólaskaga.
Talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins í Osló sagði snemma í
Eldur kom upp í sovéskum kafbáti
um hundrað kílómetra norðnorð-
vestur af Finnmörk I Norður-Noregi
í nótt.
morgun að sovéska sendiráðiö hefði
verið beðið um upplýsingar í sam-
bandi við kafbátinn en ekki hefði
neitt svar borist.
Norskur fréttaritari í Moskvu rifj-
aði upp kafbátsslysið 7. apríl sl. þegar
fjöratiu og tveir af sovésku áhöfninni
létu lífið. Þá fengu yfirmenn sovéska
hersins mikla gagnrýni fyrir hvemig
staðið var aö björguninni. Fréttarit-
arinn taldi því trúlegt að Sovétmenn
hefðu að þessu sinni þegið norska
hjálp ef mannslíf hefðu verið í hættu.
Sovéska fréttastofan Tass greindi
frá slysinu í morgun en ekki var sagt
frá því hvort um geislavirkan leka
væri að ræða. Vitnað var í sovéska
vamarmálaráðuneytið og sagt að
kjamaofninum um borð hefði verið
lokað og að áhöfhin væri öll úr
hættu.
í frétt Tass sagði að eldurinn hefði
komið upp skömmu eftir miðnætti.
Einnig var sagt að sovésk skip og
flugvélar væru á leiðinni til kafbáts-
ins og að stöðugt samband væri haft
við bátinn.
Þann 7. apríl síóastiióinn fórust fjörutíu og tveir úr áhöfninni þegar eldur kom upp i sovéskum kafbáti suðvestur af Bjarnarey i Norður-íshafi. Myndin er
af sovéskum kafbóti, svipuðum þeim er eldur kom upp í. Simamynd Reuter
M. BENZ 190E, árg. '85, ekinn aðeins
26 þús. km, litur hvitur, sjálfskiptur,
rafdr. rúður, leðurklæðning, einn eig-
andi. Innfl. nýr af umboði. Verð kr.
1.320.000,-
VW GOLF CL, árg. '87, ekinn 29 þús.
km. Litur gull. met. Verð kr. 630.000,-
rBÍLARn
Til sölu notaðar bifreiðar
í eigu umboðsins
FORD BRONCO XL '84, 6 cyl., 2,8
vél, 5 gíra, m/overdrive. Verð kr.
870.000,-
EGILL VILHJALMSSON HF.
Smiöjuvegi 4, Kópavogi,
simar 77200 - 77202
PORSCHE 924, árg. '82, sérstök af-
mælisútg. 2,01 vél, leðurklæðn., rafdr.
rúður, rafdr. speglar. Verð kr.
850.000,-
RANGE ROVER, árg. '76, bill í góðu
standi, sami eigandi frá upphafi. Verð
kr. 350.000,-
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA
AD VERA ÚSKEMMD
og þau þarf að hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
I umferðinni.
|JUMFEROAR
BENIDORM
I2.júlí-Beintflugísólina %
3ja vikna skemmtilegt sumarfrí á alveg sérstökum kjör-
um. Frábær gisting á besta stað á Benidorm.
Nú er tækifærið að
komast í ódýrt sumarfrí.
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn (2-12 ára).
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Hafið samband
STRAX.
Aðalstræti 16,
sími 621490