Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Qupperneq 42
42
.eeei !nT]t es 'mimmM
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989.
Afmæli
Sveinn Baldvinsson
Sveinn Baldvinsson, Naustum 3,
Akureyri, er sjötíu og fimm ára í
dag. Björn Sveinn er fæddur á Hálsi
í Öxnadal og flutti flmm ára til Ak-
ureyrar. Hann var verkamaður á
Akureyri 1928-1944 og hefur verið
b. á Naustum á Akureyri frá 1944.
Systkini Sveins eru Ingólfur, f. 20.
janúar 1912, b. og verkamaður á
Naustum; Sigurður, f. 26. september
1915, skrifstofumaður á Akureyri,
kvæntur Ragnheiði Pálsdóttur;
Sveinbjörg Guðný Sigurbjörg, f. 6.
desember 1918, gift Ólafi Guð-
mundssyni, iðnverkamanni á Akur-
eyri, sonur þeirra er Magnús, lækn-
ir á Akureyri; Þórdís Jónína, f. 8.
ágúst 1919, gift Einari Kjartanssyni,
skipstjóra á Akranesi. Meðal barna
þeirra eru Jakob Þór leikari; Þór-
laug Guðbjörg, f. 3. nóvember 1922,
gift Guttormi Berg, verslunarmanni
á Akureyri, meðal barna hennar eru
Baldvin Ottósson, lögregluvarð-
stjóri í Rvík, og Róbert Friðriksson,
kaupmaður á Akureyri.
Foreldrar Sveins voru Baldvin
Sigurðsson, b. á Hálsi í Öxnadal, og
kona hans, Helga Sveinsdóttir. Föð-
ursystir Sveins var Steinunn, móðir
Sigurðar Guðmundssonar, vígslu-
biskups á Hólum í Hjaltadal. Bald-
vin var sonur Sigurðar, b. í Geir-
hildargörðum í Öxnadal, Jónasson-
ar. Móðir Sigurðar var Sigríður
Pálsdóttir, systir Bergþóru, ömmu
Erlings Davíðssonar, ritstjóra á
Akureyri, og langömmu Agnars
Ingólfssonar prófessors. Bergþóra
var langamma Amgríms Jónsson-
ar, prests í Rvík. Móðir Baldvins var
Sigurjóna Sigurðardóttir, b. á
Dvergsstöðum í Eyjafírði, Sigurðs-
sonar. Móðir Sigurjónu var Guðrún,
systir Guðnýjar, langömmu Ingólfs,
föður Kristjáns Vals, þrests á Gren-
jaðarstað. Systir Guðrúnar var
Helga, amma Stephans G. Stephans-
sonar. Guðrún var dóttir Guðmund-
ar, b. á Torfum í Eyjafirði, Magnús-
sonar. Móðir Guðmundar var Guð-
rún Guðmundsdóttir, b. á Krýna-
stöðum, Jónssonar, bróður Þórar-
ins, prests og skálds í Múla, langafa
Kristjáns Eldjám, afa Kristjáns Eld-
jám forseta. Bróðir Guðmundar var
Benedikt Gröndal skáld, langafi
Benedikts Gröndal, afa Halldórs
Gröndal, prests í Rvík.
Móðursystkini Sveins eru Brynj-
ólfur, hreppstjóri í Efstalandskoti í
Öxnadal, og Stefán, faðir Jóhanns
Gunnars, skrifstofustjóra hjá Olíu-
félaginu í Rvík. Helga var dóttir
Sveins, b. á Neðri-Rauðalæk á Þela-
mörk í Eyjafirði, Björnssonar, Mið-
hálsstaða-Björns, bróður Jóns, b. í
Víkurkoti í Blönduhlíð, fóður Jón-
asar, b. í Syðri-Brekkum í Blöndu-
hlíð, foður Hermanns forsætisráð-
herra, fóður Steingríms forsætis-
ráðherra. Bjöm var sonur Jónasar,
b. á Gili í Öxnadal, Bjömssonar og
konu hans, Þuríðar, systur Þóru,
ömmu Steindórs Steindórssonar,
fyrrv. skólameistara á Akureyri.
Önnur systir Þuríðar var Guðrún,
langamma Guðrúnar, ömmu Eyjólfs
Kjalars Emilssonar heimspekings.
Þuríður var dóttir Tómasar, b. á
Barká, Jónssonar, b. í Efstalands-
koti, Magnússonar, bróður Magnús-
ar, föður Jóns, hreppstjóra á Kirkju-
bæjarklaustri, langafa Jóhannesar
Sveinn Baldvinsson.
Kjarvals. Systkini Sveins á Rauða-
læk voru Bjöm, b. á Bryta, faðir
Axels, b. á Ásláksstöðum; Jónas, b.
í Gufunesi; Guðlaugur, verkamaður
á Akureyri, og Árni, kennari á Ak-
ureyri, faðir Eysteins, stórkaup-
manns á Akureyri. Annar bróðir
Sveins var Árni, faðir Haralds,
kaupmanns í Rvík. Systir Sveins vár
Lilja, kona Jóns Kristjánssonar, b.
í Glaumbæ í Reykjadal.
Magnús Axel Júlíusson
Magnús Axel Júlíusson verka-
maður, Klettagötu 10, Hafnarfirði,
eráttræðurídag.
Magnús fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp en í Reykjavík bjó hann
til ársins 1985 er hann flutti til Hafn-
arfjarðar. Magnús var starfsmaður
hjá Reykjavíkurborg þar til hann
varð sjötugur.
Magnús kvæntist 4.4.1939 Krist-
ínu Guðmundsdóttur húsmóður, f.
22.1.1907, en foreldrar hennar voru
Guðmundur Hansson, b. í Miðdal í
Kjós, og Guðrún Þorláksdóttir.
Böm Magnúsar og Kristínar em
Guðmundur Rúnar, f. 5.10.1936,
kvæntur Svanhildi Stefánsdóttur,
eiga þau fimm böm; Margrét Jóna,
f. 2.1.1940, gift Haraldi Hrafnkatli
Einarssyni, eiga þau fimm böm, og
Ema, f. 5.5.1948, gift Gunnari Páh
Jakobssyni og eiga þau fjögur börn.
Magnús átti fjögur systkini sem
öll era látin. Þau vora Axel Thor-
berg, f. 30.9.1907, d. 7.1.1908; Jóna
Kristín, f. 5.1.1911, d. 29.2.1932; Vil-
hjálmur, f. 1.1.1916, d. 22.12.1916,
og Guðjón Magnússon, f. 14.5.1920,
d. 6.10.1945.
Foreldrar Magnúsar vora Júlíus
Jónsson, verkamaður í Reykjavík,
f. 10.7.1885, d. 15.3.1962, og Margrét
Magnúsdóttir húsmóðir, f. 20.9.1883,
d. 1.5.1934.
Magnús Axel Júlíusson.
Anna Jónasdóttir Velek
Anna Jónasdóttir Velek, til heimils
að Dvalarheimilinu Felli, Skipholti
21, ReykjaVík, er áttatíu og fimm ára
ídag.
Anna fæddist á Bjarteyjarsandi á
Hvalfjarðarströnd og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hún flutti ung til
Reykjavíkur og hóf þá störf við karl-
mannafatasaum á klæðskerastofu
Andrésar Andréssonar.
Anna giftist 1944 bandarískum
klæðskerameistara, Edward J. Ve-
lek sem var fæddur og uppalinn í
Chicago, af tékknesku bergi brot-
inn.
Anna flutti til Bandaríkjanna vor-
ið 1945 og stofnuðu þau Edward
heimih í Dallas í Texas. Seinna
fluttu þau til Lawtom í Oklahóma
þar sem þau stofnuðu og ráku sam-
an klæðskerastofu um árabil. Ed-
ward lést árið 1980 og bjó Anna þá
ein um skeið í Lawtom en flutti síð-
an heim til íslands 1987.
Anna átti sex alsystkini og fimm
hálfsystkini. Hálfsystkini hennar
eru látin, sem og tvö alsystkini
hennar. Hálfsystkini Önnu vora
Stefán, búsettur á Akranesi; Bene-
dikt, verkstjóri í Reykjavík; Sigríð-
ur, húsmóðir í Reykjavík; Guðgeir
og Enghbert, bæjarstarfsmenn í
Reykjavík.
Álsystkini Önnu: Ragnheiður,
húsmóðir í Reykjavík, d. 3.1.1984,
átti Magnús Magnússon verkstjóra;
Guðmundur, b. á Bjarteyjarsandi á
Hvalfjarðarströnd, átti Guðbjörgu
Guðjónsdóttur; Valgeir, fyrrv. b. á
Neðra-Skarði í Leirársveit, átti Ingi-
björgu Sigurðardóttur; Vigdís, bú-
sett í Reykjavík, og Sigurður, d. 11.4.
1978, skógarvörður hjá Skógrækt
ríkisins, átti Sigrúnu Jóhannsdótt-
ur.
Foreldrar Önnu vora Guðfinna
Anna Jónasdóttir Velek.
Jósefsdóttir, f. 23.6.1869, d. 31.7.1957,
húsmóðir, og Jónas Jóhannesson,
b. á Bjarteyjarsandi, f. 27.4.1855, d.
5.2.1929.
Guðfinna og Jónas vora bæði ættuð
úr Leirársveitinni, hann frá Narfa-
stöðum en hún frá Hávarðsstöðum.
Leiðréttingar vegna afmælis-
greina um Þorlák Hjálmarsson
og Angantý H. Hjálmarsson
í afmæhsgrein um Angantý H.
Hjálmarsson kennara, Vahartröð 5,
Hrafnagih í Eyjafirði, og í afmæhs-
grein um bróður hans, Þorlák
Hjálmarsson, b. í Vilhngadal í Saur-
bæjarhreppi í Eyjafirði, slæddust
inn nokkrar meinlegar vihur sem
hér með eru leiðréttar. Jafnframt
eru viðkomandi aðilar beðnir vel-
virðingar á þessum leiðu mistökum.
Angantýr varð sjötugur þann 11.6.
sl. en greinin um hann birtist í blað-
inu 9.6. Þorlákur varð áttræður
þann 19.6. sl. en greinin um hann
birtist í blaðinu 16.6.
Systkini þeirra bræðra era J ón,
b. í Vihingadal, f. 6.10.1912, d. 1982,
en eftirlifandi kona hans er Hólm-
fríður Sigfúsdóttir húsmóðir; Sigr-
ún ljósmóðir, f. 28.9.1915, gift Ólafi
Rúnebergssyni, b. í Kárdalstungu í
Vatnsdal.
Systkini þeirra bræðra, samfeðra,
era Steinunn húsmóðir, f. 1.12.1898,
en hún var tvígift og hefur misst
báða menn sína er hétu Þórarinn
Ámason og Tómas Sigurgeirsson;
Snjólaug Margrét Ijósmóðir, f. 20.7.
1901, d.1930; Hjörtur, fyrrv. skóla-
stjóri á Flateyri, f. 28.6.1905, en kona
hans, Ragna Sveinsdóttir, er láhn.
Foreldrar Angantýs og Þorláks
vora Hjálmar Þorláksson, b. á Þor-
ljótsstöðum í Vesturdal í Skagafirði,
og Ingibjörg Jónsdóttir frá Vilhnga-
nesiíSkagafirði.
Halldóra
Sigfúsdóttir
í dag, mánudaginn 26. júní, er átt-
ræð frú Halldóra Sigfúsdóttir frá
Hofströnd, Borgarfirði eystra, th
heimihs að Miðleiti 7, Reykjavík.
Eiginmaður hennar var Halldór
Stefánsson, alþingismaður og for-
stjóri Brunabótafélags íslands.
Hahdóra tekur á móti gestum í
Miðleiti 7, jarðhæð, á afmæhsdag-
innfráklukkan 15.
80ára___________________________ 50 ára____________________________
Þórarinn O. Jónsson, Karl Freysteinn Hjelm,
Ásvahagötu 21, Reykjavik. Víðimýri 7, Neskaupstað.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Pétur Ragnarsson,
Höfðagrund 6, Akranesi. f5 Aðalstræti 32, ísafirði.
Gnðmundur Jónsson, * Svanhildur Þorgilsdóttir,
Skjólvangi, Hrafhistu, Hafnarfirði. Hjarðarholti, Hálshreppi.
Guðný Oddsdóttir, María K. Thoroddsen,
Hraunteigi 3, Reykjavík. Grundarlandi 15, Reykjavík.
Guðjón Eiríksson,
-------------------------------- Eyktarási 23, Reykjavík.
Þorgerður Þórðardóttir,
Túngötu 16, Húsavík.
40 ara
Sigfrid Breiðfjörð,
Réttarholtsvegi 89, Reykjavík.
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 29, Reykjavík.
60 ára
Ásrún Benediktsdóttir,
Neðribraut 7, Reykjalundi, Mos-
fehsbæ.
Auður D. Haraldsdóttir,
Grandarási 11, Reykjavík.
Erlendur Kristjánsson,
Hjöllum 26, Patreksfirði.
Steinunn Hákonardóttir,
Reykjavegi 72, Mosfellsbæ.
Kirsti Laurítsen Beck,
Kópavogsbraut 89, Kópavogi.
Gunnlaugur Sigmarsson,
Fellsbraut 9, Höfðahreppi.
örn Alexandersson,
Grandarbraut 34, Olafsvík.
Kristjana Guðmundsdóttir,
Látraseh 5, Reykjavík.
Steindór R. Haraldsson,
Fehsbraut 6, Höfðahreppi.
Tilmæli til almælisbama
Blaðið hvetur afmælis böm og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir
og upplýsingar um frændgarð og starfs-
söguþeirra.
Þessar upplýsingar þuría að berast í
síðasta lagi þremur dögum fýrir af-
mælið.
Munið að senda okkur myndir