Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Page 26
26
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990.
Ellý Halldorsdottir segir frá fatafellunni Bonný:
Þetta er eng
pomósýnir
Ég hef varla séð nektardans ef frá eru talin brot og brot úr sjónvarpi og bíómyndum. Minn nektardans á litið skylt
við margt af því sem fólk hefur séð.
„Halló... er þetta Bonný?“
„Já, þetta er hún.“
„Við erum hérna nokkrir félagar í
spilaklúbb sem ætlum aö lyfta okkur
aðeins á kreik. Heldurðu að þú viljir
ekki koma og dansa fyrir okkur?“
„Jú, það er í lagi.“
„Hvernig er það, ferðu ekki úr öllu
saman?“
„Nei, ég fer ekki úr nærbuxunum.'1
„Hva’, er þetta ekki nektardans? Við
viljum alveg borga aðeins meira."
„Ég fer ekki úr nærbuxunum. Það
er alveg á hreinu."
„En geriröu ekki eitthvað meira en
að dansa... þú veist?"
„Aldrei.“
„Jæja... blessuð...“
Nektardansmærin Bonný hefur
verið á allra vörum undanfarið og
símtalið hér að ofan er mjög dæmi-
gert fyrir margar af þeim ótal mörgu
upphringingum sem Bonný fær dag-
lega, bæði dag og nótt. Ekkert varð
úr viðskiptum við Bonný í þetta
skipti en hún þarf ekki að örvænta.
Það er nóg aö gera fyrir íslenska fata-
fellu. En eins og vænta má ber nokk-
uð á misskilningi um það sem Bonný
er að gera.
„Það er mjög útbreiddur misskiln-
ingur meðal fólks að ég sé í hálfgerðu
pornói og standi í einhvers konar
vændi. Ég gæti það hæglega en það
er svo víðsfjarri því sem ég er að
gera aö slíkt hvarflar ekki að mér.
Ég er ekki með neina pornósýningu
heldur nektardans þar sem hið list-
ræna er aðalatriöið. Gott dæmi um
þennan misskilning er viðbrögð
margra kvenna eftir sýninguna hjá
mér. Þær hafa komið í algerri óvissu
um hvað þær væru að fara að sjá en
samt búnar að gíra sig upp í að skíta
atriðið og mig út sem eitthvert þriðja
flokks klám. Eftir á hafa margar kon-
ur hins vegar komið til mín, tekið í
höndina á mér, og sagt mér hve
hrifnar þær voru. Þetta segir ansi
margt um Bonný.“
En þetta segir þó ekki nema hálfa
söguna. Á bak við Bonný er aö finna
manneskju sem er alvön því að troða
upp og vera í sviðsljósinu. Það er
Ellý Halldórsdóttir, betur þekkt sem
Ellý í hljómsveitinni Q4U. Ellý olli
töluverðu umtali á hljómsveitar-
árum sínum frá 1979-1983. Gripu
margir andann á lofti þegar hún tróð
upp í afar litlum klæðum og var síð-
ur en svo að fela á sér brjóstin. Þá
var hljómsveitin sem slík umdeild
en hrátt pönkrokk og alls kyns gern-
ingar voru aðalsmerki hennar.
AlltönnurEllý
- Eru Bonný og Ellý í Q4U eitthvað
skyldar?
„Bæði og. Ég er frekar árásargjörn
að eðlisfari og fékk mikla útrás fyrir
þær kenndir í hljómsveitinni. Hins
vegar pældi ég ekkert í því þegar ég
byrjaði á nektardansinum. Bonný er
allt önnur manneksja en Ellý. Ég
þarf að fara í ákveðinn ham og verð
allt önnur manneskja þegar ég verö
Bonný. Þá er ég með ákveðiö
skemmtiatriði í gangi og þegar því
lýkur kem ég mér yfirleitt strax í
burtu, verð Ellý. En þar sem ég gef
mig alla í dansinn er ég oftast mjög
þreytt á eftir. Allt umstangið í kring-
um þetta, ferðalögin, fötin og æfing-
arnar gera að verkum að nektar-
dansinn getur verið afskaplega
þreytandi, eins og „showbisness" er
yfirleitt. Núna tók ég mér smáfrí, var
ekkert að vinna um helgina. Ég
nenni varla aö vjnna þessa helgi
heldur. Það er svolítið erfitt að drífa
sig af stað aftur eftir fríið. Að þvi
leyti er stundqm svolítið erfitt aö
losna sig við Bonný.“
Vil hafa fútt í þessu
- „Fyrir hverja dansarðu?"
„Allt mögulegt fólk. Ég hef farið
mikið út á land og dansað á böllum
í félagsheimilum. Þá fer ég í alls kyns
klúbba, einkasamkvæmi og afmælis-
veislur. Yfirleitt eru þetta mjög
blandaðir hópar þar sem konur eru
jafnmargar og karlar, til dæmis á
böllum."
- Hvernig gengur þetta fyrir sig?
„Þó ég hafi nánast fengið þetta starf
upp í hendurnar þá dansar maður
ekki nektardans eins og ekkert sé,
bara einn tveir og tíu. Ég hef verið í
eróbikki og dansi og æfi töluvert fyr-
ir sýningarnar. Ég kem með tónlist
með mér á segulbandsspólu og klæði
mig upp. Síðan mæti ég á staðinn og
dansa. Dansinn tekur um það bil
korter til tuttugu mínútur. Ég vil
hafa almennilegt fútt í þessu, dansa
mikið, og eins gott að pláss sé þar sem
ég treð upp.“
- Áttu þér einhveija fyrirmynd?
„Nei. Ég hef varla séð nektardans
ef frá eru talin brot og brot úr sjón-
varpi og bíómyndum. Minn nektar-
dans á lítið skylt við margt af því sem
fólk hefur séð. Þó ég eigi mér enga
fyrirmynd veit ég hins vegar vel hvað
ég á ekki að gera. Ég sá einu sinni
nektardans í Uppi og niðri við
Hlemm þar sem einhver pía með
fjólubláa hárkollu háttaði sig. Það
var ömurlegt. Þannig er ég ekki.“
- En hvernig eru viðtökurnar? Er
stemningin ekki orðin ansi erótísk
og heit þegar þú hefur lokið þér af?
„Jú, auðvitað. Til þess er leikurinn
gerður. Yfirleitt tekur fólk mjög vel
við sér og er með á nótunum. Þá fæ
ég mjög mikið út úr þessu. Það er
mjög mikilvægt að hafa áhorfendur
með sér og það getur bjargað kvöld-
inu ef ég er ekki í neinu sérstöku
stuði. Hins vegar er mjög leiðinlegt
að dansa fyrir alveg frosið lið sem
veit ekkert hvernig það á að vera.
Yfirleitt tekst mér þó að brjóta ísinn
en það getur verið ansi erfitt."
Vörn í nærbuxunum
- VerðurBonnýekkifyrirkynferðis-
legri áreitni?
„Nei, ég hef eiginlega alveg sloppið
við það. Ég passa mig mjög mikið á
að taka ekki hvaða tilboði sem er.
Þannig heyri ég yfirleitt á mönnum
í símanum ef þeir hafa eitthvað skít-
ugt í huga, vilja að ég fari úr nærbux-
unum og fleira. Mér finnst það ljótt
og lítið eiga skylt við almennilegan
nektardans. Ef menn nota ekki
ímyndunaraflið verður þetta bara
eins og hjá kvensjúkdómalækninum
og ekkert spennandi. Annars er heil-
mikil vörn í nærbuxunum. Ég yrði
hreinlega hrædd ef ég færi úr þeim
innan um einhverja karla i keng. Nú
fer ég aðallega ein að sýna en áður
fór umboðsmaðurinn minn yfirleitt
með og veitti nauðsynlegt öryggi. Nú
er hann hins vegar hættur. En það
er á hreinu að ég geri ekkert annað
en dansa.
Eins og kom fram hér áðan er Ellý
mikið spurð hvort hún geri ekki
meira en að dansa þegar hún treður
upp. Hún segir blaðamanni frá því
að menn hafi viljað fá hana til að
dansa í piparsveinapartíi og um leið
spurt hvort hún vildi ekki fara í rúm-
ið með væntanlegum brúðguma. Það
tók hún ekki í mál og fannst síðasta
sort að bera slíkar óskir fram. Þá
hefur hún verið beðin um að dansa
fyrir einn áhorfanda, alveg prívat,
en það tekur hún heldur ekki í mál.
Hún dansar ekki fyrir færri en þrjá.
Fötunum stolið
- Hvað tekurðu fyrir hvert skipti?
„Ég vil síður ræða það. Ég er ekk-
ert að reyna að verða rík á þessu.
Ég gæti það alveg en þá myndi ég
hreinlega missa vitið. Þetta er mjög
þreytandi og mér finnst fínt að sýna
ekki nema tvisvar til þrisvar í viku.
Þá fæ ég það sem ég þarf til að lifa.
Það er svo mikill munur að geta ver-
ið sjálfs sín herra. Þá fæ ég líka tíma
til að sinna ýmsum áhugamálum
mínum.“
Ellý segir að þrátt fyrir þokkalegar
tekjur sé mikill kostnaöur samfara
nektardansinum, þetta sé dýr útgerð.
Hún hefur tvo síma, annan fyrir
pantanir sem hún verður af og til aö
taka úr sambandi til að fá frið. Hún
ferðast mikið og í farangrinum eru
vinnufótin sem kosta skildinginn.
„Það er versti andskotinn að það
er stolið svo miklu af fötum frá mér.
Þetta eru rándýr föt. Nú er ég til
dæmis að búa til sýningu þar sem
ég má alls ekki láta stela neinu frá
mér. Annars er ég farin að sauma
meira og meira á mig sjálf. Þaö þýðir
ekkert annað. Ég er farin að kunna
mikið betur hvernig standa á að
svona sýningu. Þetta er heilmikið
umstang þó dasnsinn taki ekki lang-
an tíma. Ég þarf að hita mig upp,
klæða mig og mála. Það tekur allt
að þrjá tíma. Svo er ég stundum al-
veg búin eftir á.“
Bonný tekur völdin
Þegar tahð barst að fortíðinni var
Ellý ekki sérlega spennt að rifja hana
upp. Hún sagðist hafa farið í ótal við-
töl vegna Q4U á sínum tíma og vildi
frekar ræða um Bonný. Það kom þó
fram að Q4U hætti 1983. Ellý bjó þá
með manni og stuttu síðar kom barn.
Hún og maður hennar spiluðu fyrir
sjálf sig heima en lítið varö úr að hún
træði upp aftur.
Nú er Ellý einhleyp og barnið, sex
ára stúlka, býr ekki hjá henni. Þeir
sem sjá Ellý eins og hún lítur út i
dag og svo Bonný sjá ekki sömu
manneskjuna. Bonný er íturvaxin
æsandi dama sem lítur út fyrir að
vera til í allt. Sú Ellý sem tók á móti
blaðamanni minnir hins vegar á
ósköp venjulega húsmóður, þó ekki
í vesturbænum, en Ellý geðjast ekki
að þeim bæjarhluta. Hún er alin upp
í austurbænum en kann best við sig
í miðbænum.
Ellý segist hafa verið í alls konar
vinnu, módelstörfum, tískusýning-
arstörfum og aUs kyns skrifstofu-
vinnu. Hún útskrifaðist úr Tollskóla
ríkisins og vann síðan hjá tollstjóra
í tvö ár þar til Bonný tók völdin í
tilverunni síðastliðið sumar.
- Hvenær tróðstu fyrst upp sem
nektardansmær?
„Það var á árshátíð Sniglanna í
fyrra. Síðan var ég eitthvað að pæla
í að byrja á þessu en það varð ekkert