Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990.
59
Afmæli
Gunnar Þ. Þorsteinsson
Gunnar Þ. Þorsteinsson byggin-
gatæknifræöingur, Ægisíðu 76,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Gunnar fæddist aö Gerðum í
Garöi og ólst þar upp til átta ára
aldurs en flutti þá til Keflavíkur.
Hann læröi húsasmíöi hjá fóður sín-
um 1938-42, stundaði nám viö Iðn-
skólann 1941, lauk sveinsprófi 1942
og lauk prófi í byggingatæknifræði
við Stockholms Tekniske Institute
1947.
Gunnar vann fyrir iðnnámið al-
menna verkamannavinnu við fisk-
vinnslu og sendilsstörf. Hann starf-
aði við trésmíðar til 1945, var yflr-
verkstjóri á Keflavíkurflugvelli 1948
en hóf störf við Teiknistofu SÍ S í
árslok það ár og hefur starfað þar
síðan. Hann var forstöðumaður
teiknistófunnar frá 1952 og þar til
hún var lögð niður síðla árs 1986.
Gunnar hefur seinustu árin séð um
nýbyggingar Sambandsins en sein-
asta verkefnið var yfirumsj ón með
hönnun og byggingarframkvæmd-
um skrifstofuhúss Sambandsins á
Kirkjusandi.
Á þeim árum sem Gunnar veitti
Teiknistofu Sambandsins forstöðu
var mikil uppbygging hjá Samband-
inu og kaupfélögunum um allt land.
Verkefni Teiknistofu Sambandsins
á þessu tímabili eru því nokkuð á
annað þúsund. Gunnar mun láta af
störfum um næstu áramót.
Gunnar var flokksforingi og deild-
arforingi í skátafélaginu Heiðarbú-
um 1937-45. Hann sat í stjórn UMFK
í nokkur ár til 1945, var formaður
Iðnaðarmannafélagsins Kvikurs
1944^5, var byggingarfulltrúi Kvik-
urs 1944-45, var fyrsti formaður Iðn-
fræðingafélags íslands í þrjú ár, sat
í stjórn Tæknifræðingafélags ís-
lands í tvö ár, sat í stjórn Félags
einstæðra foreldra og var formaður
nefndar sem vaidi merki IS.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 31.12.1950 Þóru
Sofííu Guðmundsdóttur, f. 2.3.1922,
d. 10.7.1968, húsmóður. Þóra Soffía
var dóttir Guðmundar Árnasonar
sjómanns og konu hans, Halldóru
Einarsdóttur húsmóður.
Fósturdóttir Gunnars og dóttir
Þóru er Kristín Guðbjörnsdóttir, f.
6.9.1944. Börn Gunnars og Þóru eru
Guömundur, f. 7.11.1950, doktor í
efnafræði í Reykjavík, kvæntur
Bjargeyju Ásdísi Arnórsdóttur hús-
móöur og eiga þau tvö börn, Þóru
Soffíu, f. 18.12.1987, og Trausta Tý,
f. 6.4.1990; Guðný Helga, f. 17.4.1952,
kennari á Seltjarnarnesi, gift Einari
Magnússyni lyfjafræöingi og eiga
þau tvær dætur, Þóru, f. 20.10.1971,
og Gunnhildi, f. 29.12.1977; Dóra
Sigrún, f. 27.2.1956, matvælafræð-
ingur í Reykjavík, gift Þorkatli
Hreggviði Halldórssyni vélaverk-
fræöingi og eiga þau tvö börn, Þór-
hildi, f. 25.6.1981, og Halldór, f. 18.6.
1987; Þorsteinn Árni, f. 2.5.1959,
verkstjóri á Hvammstanga, kvænt-
ur Matthildi Benediktsdóttur hús-
móður og eiga þau einn son, Gunnar
Þorvald, f. 28.1.1981, auk þess sem
Þorsteinn Árni á dóttur frá því fyrir
hjónaband, Örnu Þóreyju, f. 21.5.
1977.
Alsystkini Gunnars: Árni, f. 14.11.
1908, d. 10.3.1986, skipstjóri í Kefla-
vík; Steinunn, f. 15.4.1910, húsfreyja
í Keflavík; Guðný Helga, f. 31.10.
1911, húsfreyja í Keflavík; Guðrún,
f. 31.10.1911, húsfreyja í Ytri-Njarð-
vík; Ingveldur, f.26.11.1912, skrif-
stofustjóri og húsfreyja i Keflavík;
Ingólfur, f. 25.9.1914, d. 15.7.1938;
Hallveig, f. 30.7.1916, húsfreyja í
Keflavík; Þorsteinn, f. 23.8.1918,
skipstjóri í Keflavík; Sigurbjörg, f.
29.5.1923, húsfreyja í Keflavík.
Hálfbræður Gunnars, samfeðra:
Ingólfur Gísli, f. 22.4.1951, bifvéla-
virkjameistari í Keflavík, og Vignir
Páll, f. 5.12.1952, trésmiður á Egils-
stöðum.
Foreldar Gunnars: Þorsteinn
Árnason, f. 28.10.1885, d. 23.1.1969,
sjómaður og síöar húsasmiður í
Keflavík, og fyrri kona hans, Guðný
Helga Vigfúsdóttir, f. 22.2.1882, d.
8.1.1943, húsfreyja.
Ætt og frændgarður
Þorsteinn var sonur Árna, út-
. vegsb. og símstöðvarstjóra í Gerð-
um í Garði, Árnasopar, b. og smiðs
í Gamla-Hrúðurnesi í Leiru, Helga-
sonar, b. á Markaskarði í Hvol-
hreppi, bróður Tómasar, langafa
Þórðar Tómassonar, safnvarðar í
Skógum, og Sigríðar, móður Stefáns
Harðar Grímssonar skálds. Helgi
var sonur Þórðar, b. á Moldnúpi
undir Eyjaijöllum, Pálssonar. Móðir
Árna smiðs var Ragnheiður Árna-
dóttir, b. og skálds í Dufþaksholti,
Egilssonar, prests að Útskálum, Eld-
járnssonar, bróður Hallgríms, lang-
afa Jónasar Hallgrímssonar og Þór-
arins, langafa Kristjáns Eldjárns.
Móðir Árna í Geröum var Jórunn
Árnadóttir, b. í Móeiðarhvolshjá-
leigu, Björnssonar. Móðir Jórunnar
var Jórunn, systir Helga í Marka-
skarði. Móðir Þorsteins var Guðrún
Gunnar Þ. Þorsteinsson.
Ingjaldsdóttir, b. á Kolbeinsstöðum
í Gerðum, Tómassonar, og Guðrún
Sigurðardóttir, b. á'Eystri-Geldinga-
læk, bróður Sigríðar, langömmu
Ingólfs Jónssonar ráðherra. Sigurð-
ur var sonur Magnúsar, b. á Eystri-
Geldingalæk, Sæmundssonar, bróö-
ur Guðbrands, föður Sæmundar á
Lækjarbotnum, ættfóður Lækjar-
botnaættarinnar og iangafa Guö-
mundar Daníelssonar rithöfundar.
Guðný Helga var dóttir Vigfúsar.
b. í Skagafírði, Vigfússonar, frá
Krossi í Ölfusi, Guömundssonar.
Móðir Guðnýjar Helgu var Steinunn
Jóhannsdóttir, b. í Geitageröi og
Litlu-Gröf, Guömundssonar, b. þar,
Einarssonar. Móðir Steinunnar var
Guðrún Ólafsdóttir, b. á Borgarlæk
á Skaga, Ólafssonar.
Anton Sigurðsson
Anton Sigurðsson húsasmíða-
meistari, Fornhaga 26, Reykjavík,
er níræðurídag.
Anton er fæddur á Sjávarhólum á
Kjalarnesi og ólst upp í Mávahlíð í
Fróðárhreppi á Snæfellsnesi.
Starfsferilf
Anton lærði húsasmíði á ísafirði
og var þar til 1928. Hann fluttist þá
til Reykjavíkur og vann við húsa-
smíði til 1975. Anton vann meðal
annars við byggingu á Landakots-
kirkju, Þjóðleikhúsi og Melaskóla
og stóð fyrir byggingarframkvæmd-
um víða um borgina. Hann var
varaformaður Trésmíðafélags
Reykjavíkur 1952 og gjaldkeri hjá
Meistarafélagi húsasmiða í nokkur
ár.
Fjölskylda
Anton kvæntist Huldu Þórðar-
dóttur, f. 28. september 1906, hjúkr-
unarkonu. Foreldrar Huldu eru
Þórður Matthíasson, sjómaður í Ól-
afsvíkj og kona hans, Björg Þor-
steinsdóttir. Synir Antons og Huldu
eru: Haraldur, f. 2. júlí 1934, búfræð-
ingur í Rvík, kvæntur Karin Ant-
onsson og eiga þau tvö börn; Stein-
ar, f. 10. júni 1936, tæknifræðingur
í Rvík; Sigurður, f. 13. apríl 1939,
framkvæmdastjóri í Rvík, á þrjú
böm, oglngólfur, f. 24. október 1942,
tæknifræðingur í Rvík, kvæntur
Svölu Eggertsdóttur og eiga þau
þrjúbörn.
Systkini Antons eru: Haraldur,
lést tíu ára; Ágústa, f. 1892; Björg-
vin, lést rúmlega tvítugur; Guðrún,
f. 1896; Ingimundur, f. 1898, sjómað-
ur; Einar, f. 19. nóvember 1902, skip-
stjóri; Svava, f. 5. ágúst 1905, og
Haraldur, f. 1907.
Foreldrar Antons eru: Sigurður
Ingimundarson, b. og sjómaður í
Mávahlíð í Fróðárhreppi, og kona
Anton Sigurðsson.
hans, Steinvör Einarsdóttir, f. 1868,
d. 1943.
Til hamingju með afmælið 17. nóvember
85 ára
Sigurmon Hartmannsson,
Kolkuósí, Viövíkurhreppi.
Véný Viðarsdóttir,
Goðheimum 12, Reykjavík.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Víðilundi 6A, Akureyri.
50 ára
80 ára
Kristín Eðvarðsdóttir,
Álfaskeiði 76, Hafnarfiröi.
70 ára
Guðný Matthíasdóttir,
Álfheirmun 19, Reykjavik.
Ólöf Alda Ólafsdóttir,
Látraströnd 14, Seltjarnarnesi.
Þuríður Gisladóttir,
Laxárholti, Hraunhreppi.
Helgi Haraldsson,
Búðagerði 5, Reykjavík.
Guðmundur W. Waage,
Hraunbæ 80, Reykjavík.
Guðborg Bjarnadóttir,
Birkivöllum 33, Selfossi.
60 ára
40 ára
Unnur Ólafsdóttir,
Dragavegj 5. Reykjavík.
Guðmundur Sigmarsson,
yíðimýri 2, Neskaupstað.
Ásgerður Jóhannesdóttir,
Akurhóli 2, Grýtubakkahreppi.
Sverrir Steingrímsson,
Háteigsvegi 13, Reykjavík.
Jörgen Thomas Tellnor,
Grænuhlið 15, Reykjavík.
Yngvi Hagalinsson,
Melgerði 1, Kópavogi.
Reynir Guðmundsson,
Engihjalla 1, Kópavogi.
Gústaf Ófeigsson
Gústaf Ófeigsson bifreiðarstjóri,
Fellsmúla 14, Reykjavík, verður sjö-
tugur á morgun.
Gústaf er fæddur á Suðureyri í Súg-
andafirði og ólst þar upp til sjö ára
aldurs hjá ömmu sinni, Margréti
Sigmundsdótttur, en fluttist til Vest-
mannaeyja með móður sinni en síð-
an til Reykjavíkur.
Starfsferill
Gústaf var sjómaður á bátum og
togurum og á síld í sjö sumur. Hann
hefur verið leigubílstjóri á Hreyfli
frá 1943.
Fjölskylda
Gústaf kvæntist 18. október 1941
Ásdísi Helgadóttur, f. 4. júlí 1921.
Foreldrar Ásdísar eru Helgi Einars-
son, rafstöðvarstjóri á Patreksfirði,
og kona hans, Soffía Jakobsdóttir.
Börn Gústafs og Ásdísar eru: Helgi,
f. 17. mars 1942, bifreiðarstjóri í
Rvík, kvæntur Emu Guömunds-
dóttur og eiga þau þrjú börn: Einar,
f. 11. febrúar 1944, símritari í fjar-
skiptastöðinni í Gufunesi, kvæntur
Kristínu Einarsdóttur, verslunar-
manni hjá Máli og menningu, og
eiga þau tvö börn: Örn, f. 30. októb-
er 1950, framkvæmdastjóri Vátrygg-
ingafélags íslands, kvæntur Árnýju
Benediktsdóttur; Gústaf, f. 10. febrú-
ar 1954, leiðbeinandi á Patreksfirði,
kvæntur Rannveigu Haraldsdóttur
og eiga þau þrjú börn, og Drífa, f.
16. ágúst 1958, gift Kristjáni Guð-
mundssyni, útgerðartækni í Bol-
ungarvík, og eiga þau þrjú börn.
Systkini Gústafs, sammæðra, eru:
Dagbjört Guðbjartsdóttir, f. 15. mars
1927, d. 6. september 1981, gift Björg-
vini Torfasyni; Einar Guðbrands-
son, f. 20. maí 1928, línumaður,
kvæntur Ernu Egilsdóttur; Margrét
Guðbrandsdóttir, f. 13. september
1929, gift Guðmundi Sveinssyni,
skipstjóra á Akranesi, og Sigrún
Guðbrandsdóttir, f. 21. september
1943, húsmóðir í Svíþjóð, gift Olle
Nilsson.
Ætt
Foreldrar Gústafs eru: Ófeigur
Jónsson, f. 2. september 1875, d. 30.
janúar 1961, b. í Kolsholti í Flóa, og
Kristín Ó. Einarsdóttir, f. 26. júlí
1899, d. 25. nóvember 1877. Stjúp-
faðir Gústafs er Guðbrandur Guð-
mundsson, starfsmaður hjá Reykja-
víkurhöfn. Ófeigur var sonur Jóns,
b. í Eystra-Geldingaholti, Ólafsson-
ar, b. í Eystra-Geldingaholti, bróður
Sigríðar, langömmu Ingigerðar,
móður Guðrúnar Helgadóttur al-
þingisforseta. Systir Olafs var
Margrét, móðir Brynjólfs Jónssonar
frá Minna-Núpi. Ólafur var sonur
Jóns, b. á Baugsstöðum, Einarsson-
ar og konu hans, Sesselju Ámunda-
dóttur, málara í Syðra-Langholti,
Gústaf Ofeigsson.
Jónssonar, langafa Guðmundar,
langafa Jóhanns Hjartarsonar stór-
meistara. Móðir Jóns Ólafssonar
var Gróa Jónsdóttir, b. á Hrygg í
Flóa, Einarssonar og konu hans,
Guðlaugar Helgadóttur, systur
Bjarna, langafa Guðbjarna, föður
Sigmundar rektors.
Móðir Ófeigs var Ingunn, systir,
samfeðra, Vigdísar, langömmu Vig-
dísar Finnbogadóttur. Ingunn var
dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ, Hafliða-
sonar. Móðir Ingunnar var Ingveld-
ur, systir Vigfúsar, afa Gretars
Fells.
Gústaf tekur á móti gestum í Vetrar-
brautinni í Þórskaffi á sunnudaginn
kl. 15-17.
Jón Finnsson
Jón Finnsson.
Jón Finnsson, bifreiðastjóri og
ökukennari, Melagötu 15, Neskaup-
-stað, er sjötíu og fimm ára í dag.
Jón fæddist í Neskaupstaö og ólst
þar upp. Hann var bifreiöastjóri til
ársins 1989 en Jón ók bæði vöruíl
og leigubíl. Þá stundaði hann öku-
kennslu til ársins 1989.
Jón kvæntist 10.7.1937 Sigur-
björgu Gunnarsdóttur frá Egilsstöð-
um í Fijótsdal en hún lést í mars
1987.
Jón og Sigurbjörg eignuðust fimm
börn sem öll eru á lífi.
Una Kristín Georgsdóttir
Una Kristín Georgsdóttir, Baugs-
stöðum III, Stokkseyrarhreppi, er
sextugídag.
Una er fædd í Reykjavík og giftist
29. nóvember 1952 Siggeiri Pálssyni,
f. 6. júlí 1925. Foreldrar Siggeirs eru
Páll Guðmundsson, b. á Baugsstöð-
um, og kona hans, Elín Jóhanns-
dóttir. Börn Unu og Siggeirs eru
fimm: PáU, f. 4. september 1949;
Svanborg, f. 18. september 1950;
Elín, f. 6. október 1952; og Guðný,
f. 20. júlí 1960. Una og Siggeir eiga
fjórtán barnabörn.
Una á fjögur systkini sem öll eru
álífi.
Foreldrar Unu eru Georg Dyrving
frá Sjálandi, b. í Fossvogi í Reykja-
vík, og kona hans, Guðrún Svan-
bor g Þórarinsdóttir, j árnsmiðs í
Reykjavík, Bjarnasonar.
Una Kristin Georgsdóttir.
Una tekur á móti gestum í Félags-
heimih Gaulverjabæjarhrepps kl.
15-18 á afmælisdaginn’.