Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 9
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
9
Campion
kemur
til
Campion ásamt Lugg aðstoðar-
manni sinum.
Campion við Lagonda glæsivagninn.
Torfærumyndbönd Stöðvar 2
XXX sumarsins 1990 XXX
Jólamarkaður miðbæjarins, Austurstræti.
Hann er kannski ekki eins mikill
sérvitringur og Sherlock heitinn
Holmes og hann skortir föðurlegt
ábyrgðarfas Derricks. Hercule Poi-
rot var ófríðari og James Bond var
meira kvennagull.
Albert Campion er samt sem áður
stéttarbróðir allra þeirra sem hér
er minnst á. Campion hefur sinn
eigin std og stendur hinum fyllilega
á sporði þegar dularfullar ráðgátur
eru annars vegar.
Sjónvarpsþættirnir um eihka-
spæjarann Albert Campion voru
teknir til sýningar í Ríkissjón-
varpinu í haust og áhangendum
hans fer stöðugt íjölgandi. Campi-
on er einhleypur sérvitringur af
yflrstétt eins og svo margar bresk-
ar bókmennta- 'og kvikmyndahetj-
ur. Hann hefur ástríðufullan áhuga
á sérkennilegum málum og er
ávallt boðinn og búinn til þess að
koma á staðinn og hjálpa til að
greiða úr flækjunni. Þegar hann er
kominn á staðinn hafa jafnvel sak-
leysislegustu ráðgátur tilhneigingu
til þess að taka á sig ævintýralegar
myndir.
Peter Davison leikur sérvitring-
inn Campion sem leikur á glæpa-
menn með prófessorslegu og oft
barnslegu yfirbragði sínu. Ekki má
gleyma hinum ómissandi aðstoðar-
manni Campions því hvað væri
spæjari án hans. Sá heitir því ein-
kennilega nafni Magersfontein
Lugg og er eggsköllóttur. Fortíð
Luggs er nokkuð skuggaleg og
hann hefur oftar en einu sinni gist
innan fangelsisveggjanna. Nú er
hann horfinn til heiðarlegra lífern-
is og aðstoðar Campion við að hafa
hendur í hári bófa og misindis-
manna. Einnig kemur mikið við
sögu vaskur fulltrúi lögreglunnar,
Stanislaus Oates, en sá-er leikinn
af Andrew Burt.
Þættirnir er gerðir eftir sögum
Margery AUingham sem löngu hef-
ur getið sér gott orð fyrir skrif af
þessu tagi. Sögur hennar seljast í
stóru upplagi víða um heim og hún
á sinn trausta aðdáendahóp. i
Þættirnir eru teknir í London og
á sveitasetrum í Suffolk. Þeir eiga
að gerast á árunum milh styrjald-
anna en það er tími sem mörgum
Bretum er afar hugstæður. Þess
má geta að bifreiðin rauða með
skrásetningarnúmerinu AYL 413
er af gerðinni Lagonda og er engin
eftirlíking heldur ekta antikbíll
sem keyptur var sérstaklega vegna
gerðar þáttanna.
-Pá
S. 78378 - 43776
Visa - Euro - Póstkrafa
-a»Bíldbú6
Benna t
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir ' 7—
Vagnhöfða 23, simi 685825
ÞAR SEM ALLT FÆST í JEPPANN
J¥! KRYDDVÆNGIR
Einnig tilboð
á garðsalati
Opið alla daga 11-22
LOGANDISTERKIR
KRYDDVÆNGIR
Kgntticky
Fned
Chicken
Hjallahrauni 15
Hafnarf irði
simi 50828
Faxafeni 2
Reykjavík
sími 68-05-88