Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
Veiðivon
Stangaveiðifélag Reykjavíkur:
4320 laxar veiddust í
hópum félagsins í sumar
- fjölmenna stangaveiðimenn til Rússlands í laxveiði?
Aðalfundur Stangaveiðifélags
Reykjavíkur um síðustu helgi var
fróðlegur og fjörlegur á köflum.
Þarna kom margt fram eins og hjá
framkvæmdastjóra félagsins, Friðrik
D. Stefánssyni. Hann sagði að félags-
menn og aðrir sem veiðileyfi keyptu
af félaginu heföu veitt samtals síð-
asta sumar 4320 laxa. Veiðin árið á
undan var sambærileg tala, 4440 lax-
ar, en árið 1988 voru það 7227 laxar.
Á yfirstandandi ári hefur hver veiði-
inaður dregið á land að meöaltali 0,67
laxa sem er lítið eitt lægra hlutfall
en árið á undan.
Jón G. Baldvinsson, formaður fé-
lagsins, upplýsti fundinn um að fé-
lagið hefði staðið á bremsunni livað
hækkanir varðaði á veiðileyfum síð-
ustu þrjú árin og myndi gera það
áfram eins og það gæti. Jón upplýsti
líka að það hefði verið gerð krossferð
gegn Stangaveiðifélaginu, vegna for-.
ystu félagsins í netaveiðimálunum í
Borgarfirði og Norðurá í Borgarfirði
hefði spilað þarna inn í þetta. Vissir
menn unnu gegn félaginu fyrir það
sem þeir hefðu gert í upptöku neta í
Hvítá.
Núna er spurningin hvort neta-
veiðimenn við Ölfusá og Hvitá verði
tilkippilegir til að taka upp netin eins
og þeir í Hvítá í Borgarfirði. Eftir því
bíða margir þessa dagana en það
verður látið á þetta reyna innan fárra
vikna.
Orri Vigfússon fer
víóa þessa dagana
Orri Vigfússon, stórhuginn í laxa-
kvótakaupunum, situr ekki auðum
höndum þessa dagana, frekar en þá
fyrri. Hann feröast landanna á milli
Hlustað eftir einhverju spennandi á aðalfundi Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem um 150 félagsmenn sóttu.
DV-mynd G.Bender
til aö vinna þessu kvótamáli sínu
stuðning og hlusta á menn. Hann
sagði nokkur orð um stöðu mála á
aðalfundi Stangaveiðifélagsins en
nokkrum dögum áður var hann í
New York á ársþingi Laxasamtaka
Norður-Ameríku. En bæði Kanada
og Bandaríkin eiga aðild að þessum
samtök'um sem eru stærstu laxasam-
tökin um Atlantshafslaxinn. En Orri
Vigfússon, formaður Laxárfélagsins,
er í aðalstjórn þessara samtaka og
sat því fundina í New York. Eitt aðal-
efni þingsins voru sjóveiðar á laxi í
Atlantshafinu. Fjallað var um ólög-
legu veiðarnar á gráa svæðinu aust-
ur af íslandi sem talið er að búið sé
aö uppræta með dyggilegri aðstoð
Uffe Ellemenn-Jensen, utanríkisráð-
herra Danmerkur. Einnig var rætt
um starfsemi alþjóðakvótanefndar-
innar um kaup á laxveiðiréttindum
og erfiðleika Kanandamanna með að
uppræta netaveiðar á laxi á grunn-
slóð við Nýfundnaland. Miklar um-
ræður voru á þinginu um sívaxandi
verðlag á laxveiðileyfum, sérstaklega
hér á íslandi, samfara minnkandi
laxagöngum. Fluttar voru skýrslur
um ný og mikil laxveiðisvæði sem
eru að opnast í Rússlandi. Nokkrir
hópar laxveiðimanna hafa farið á
þessa staði undanfarin tvö ár og láta
afar vel af góðri veiði. Taliö er að
með breyttri stefnu í Rússlandi muni
veiðimönnum verða tekið opnum
örmum á næstu árum í þessari ný-
fundnu laxveiðiparadís stangaveiði-
manna.
-G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Haninn
Eldri maður varð fyrir því óláni
að keyra yfir hana þegar hann var
í sunnudagsbíltúr í Rangárvalla-
sýslu. Hann snaraðist strax út úr
bílnum og að nærliggjandi
sveitabæ tilað tilkynna um óhapp-
ið.
„Því miður hef ég ekið yfir han-
ann þinn en ég vil endilega gera
hvað ég get til að bæta þér skað-
ann,“ sagði hann við bóndann.
„Láttu þá sjá hvað þér verður
ágengt með hænurnar," svaraði
bóndinn og benti aðkomumanni
á hænsnahúsið.
Söngur Adams
Tveir drukknir, sem sátu inni á
Gauknum, voru að ræðast við,
þegar annar þeirra segir svona
upp úr þurru:
„Veistu hvað Eva söng þegar hún
sá Adam pissa i fyrsta skipti?"
„Nei,“ svaraði hinn.
„He’s got the whole world in his
hand,“ sagði sá fyrri að bragði.
HaraldurÁ.
Haraldur Á. Sigurösson leikari
var einkar orðheppinn. Hann var
feitur mjög og mátti þola ýmsa
glósur vegna þess. Einhverju sinni
kom raaður til Haralds og sagði:
„Alltaf dettur mér svín í hug
þegar ég'sé þíg.“
„ Já, hugsa þú heim, væni minn,
svaraði Haraldur. „Það þarf eng-
inn að skammast sín fyrir það.“
Blessað stríðið
Á stríðsárunum kom Haraldur
Á. Sigurðsson inn í verslun í
Reykjavík. Gekk honum illa að
fá afgreiöslu þar sem afgreiðslu-
stúlkan var í óðaönn að tala við
enskan hermann. Er Haraldur
hafði beðið góða stund eftir af-
greiðslu gekk hann að dyrunum
og hugðist ganga tómhentur út.
Kallaði þá afgreiðslustúlkan í
hann og spurði hvað það væri
fyrir hann.
„O, svo sem ekkert sérstakt,"
sagði Haraldur. „Ég kem bara
aftur þegar stríðið er búið.“
Finnur þú fímm breytingar? 83
Nú, svo þú ætlar út að skemmta þér á grimuballi og skilja okkur mömmu
eftir alein heima á sjálfu aðfangadagskvöldi!
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kernur í ljós að á
myndinni til thægri hefur
fimm atriðum ’verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau .með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningarnir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 81
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir áttu-
gustu og aðra getraun
reyndust vera:
1. Guðfinna H. Þórisdóttir,
Túngötu 30,
'820 Eyrarbakka.
2. Guðrún Birna Sigmarsdóttir,
Arakoti,
Skeiöum.
Vinningarnir verða
sendir heim.